Morgunblaðið - 23.07.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.07.1974, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JULI 1974 □ Efnið er siffon, eins og sjá má. Grunnliturinn er brúnn og doppurnar Ijósbrúnar. Okkur bárust ný- lega þessar myndir, sem eru frá tízku- húsinu Nina Ricci í París. Það, sem einkum hefur þótt einkenna fötin frá þessu tízku- húsi, er hversu kvenleg þau eru, eða „dömuleg“. í ár ber mikið á alls konar skrauti, svo sem blómum, slaufum og skartgripum. Sérstaka athygli vekur, að síddin er nú talsvert fyrir neðan hné, og sumarflíkurnar eru jafnvel í „midi-sídd- inni“ frægu. Þegar „midi-síddin“ var sem mest í tízku hér um árið, náði hún aldrei teljandi vin- sældum, en nú er eftir að vita hvort hún nær útbreiðslu að þessu sinni. Við vekjum at- hygli á því, að skórn- ir á myndunum eru allir með þunnum sólum og virðast svo sem þykku sólarnir, eða „hrosshófarnir“ eigi ekki lengur upp á pallborðið í háborg tízkunnar, eins og París hefur stundum verið kölluð. □ Stakir jakkar með herra- legu sniði eru nú orðnir slgild- ir og ómissandi. Hér er einn úr hvítu hörefni. Buxurnar og blússan eru úr dökkbláu krep- silki. Q Þessi dáfagri samkvæmis- kjóll er úr mússulíni og ör- þunnu siffoni. Liturinn er apríkósubleikur, og sláið er fsaumað litlum blómum. Ljúft.... □ Hér er glæsileg kjóldragt úr þunnu mússulfni. Með þessum klænaði fylgir túrban úr sama efni. Q Hér er brúðarkjóll, og efnið er hvítt silkisiffon með þrykktu mynztri, sem myndar liljur, en þessi fallegu blóm eru einnig höfð f brúðarvönd- inn. Takið eftir hinum sér- kennilega höfuðbúnaði, sem er kærkomin tilbreyting frá barðastóru höttunum og síðu brúðarslæðunum, sem við eig- um helzt að venjast. □ Þessi kjóll er úr fílabeins- hvftu krepefni. Bóndarósirnar, sem festar eru við beitið, eru í sama lit — perlufestin og hatturinn einnig. □ Kápan er úr grófu ullarefni, dökkbláu og hvftu. Húfan er dökkblá. □ Frakkar hafa löngum haft dálæti á silkiefnum, og þegar Nina Ricci saumar úr silki, þá er það áreiðanlega ekkert gervisilki, og þessi kjóll er engin undantekning frá þeirri reglu. Blússan er ljósbrún, pilsið ryð- rautt og slönguskinnsbeltið dökkbrúnt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.