Morgunblaðið - 23.07.1974, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.07.1974, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGÚR 23. JÚLÍ 1974 ÍBA varð ÍBK engin hindrun ÞAÐ VAR mikill áhugi á leik Akureyringa og Keflvfkinga, sem fram fór á Akureyri á laugardag- inn, enda veður hið fegursta þeg- ar leikurinn hðfst og menn minnugir leiks liðanna frá í fyrra, sem þðtti skemmtilegur og spennandi. 1767 áhorfendur greiddu aðgangseyri á völlinn og er það hið næstmesta f deildinni f sumar. Margir höfðu fylgt Kefl- vfkingunum norður og var sá hðp- ur litrfkur, enda Bakkus með f ráðum sums staðar. En þrátt fyrir gðð ytri skilyrði varð leikurinn ekki sú skemmtun, sem vonir stððu til, og stðð sem slfkur að sögn langt að baki leik sömu liða f fyrra. Þetta er talandi dæmi um knattspyrnuna þá og nú, aftur- förin er greinileg. Keflvfkingar voru betri aðilinn í leiknum og sigruðu verðskuldað 2:0. Sigur- ganga þeirra hefur verið ðslitin sfðan f sfðasta leik fyrri um- ferðarinnar f Vestmannaeyjum, og eiga Keflvfkingar nú einir liða einhverja möguleika á þvf að ná Akurnesingum. Liðin mætast f Keflavfk á laugardaginn og verð- ur það þýðingarmesti leikur mðtsins fram til þessa. Akureyringar kusu að leika undan sunnanstrekkingi í fyrri hálfleik og var leikurinn nokkuð jafn þann hálfleik nema hvað sóknarlotur Keflvíkinga voru mun hættulegri. Akureyringar hins vegar virtust ekki ná að byggja upp nein hættuleg mark- tækifæri, þótt þeir væru mikið með boltann. Fátt markvert gerðist f hálfleiknum. Helzt er að nefna aukaspyrnu Ölafs Júlíus- sonar á 6. mínútu, sem Benedikt varði vel í horn. Nokkru síðar átti Sigbjörn fast skot að marki ÍBK, en framhjá. Gunnar Jónsson bak- vörður fBK komst í gott færi á 30. mínútu, en skaut framhjá og á 32. mfnútu átti Guðni skalla að eigin marki, en Þorsteinn bjargaði af snilld. Umdeilt atvik Svo gerðist það, sem mark- verðast mátti teljast í þessum annars viðburðalitla hálfleik. Keflvíkingar fengu aukaspyrnu á vftateigshorni vinstra megin á 38. mfnútu. Spyrnan var snöggt tekin, Ástráður lék hratt upp vinstra megin og þegar hann nálgaðist endalínu gaf hann knöttinn að stönginni fjær, þar sem Steinar Jóhannsson kom á fullri ferð og skoraði. Dómarinn Magnús Pétursson dæmdi markið f fyrstu gilt, en breytti síðan úr- skurðinum, þegar hann sá flagg Guðmundar Haraldssonar línu- varðar á lofti. Hann hafði dæmt Steinar rangstæðan. Atvik þetta var mjög umdeilt meðal áhorfenda, bæði hvort Steinar hefði verið rangstæður eða ekki og hvort dómarinn hefði verið bú- inn að flauta leikinn á, þegar gefið var á Ástráð. ÍBK tryggir sér sigur Keflvíkingar léku undan gol- unni í seinni hálfleik og undan rigningu, sem lét á sér kræla þegar leið á leikinn. Þeir sóttu mun meira, en Akureyringar hugsuðu um það eitt að verjast og tryggja sér annað stigið, rétt eins og gegn íA á dögunum. Langi vel virtist sem Keflvíkingar ætluðu ekki að finna leiðina í net- möskvana. Benedikt stóð sig ágætlega í markinu og tvisvar björguðu þeir Aðalsteinn og Gunnar Austfjörð á línu. Það var svo ekki fyrr en á 73. mfnútu sem mark ÍBK varð að veruleika. Kári Gunnlaugsson, sem kom inn í stað Jóns Ölafs, lék af harðfylgi upp vinstra megin og gaf lausan bolta úr þröngri að- stöðu fyrir markið. Bæði Bene- dikt markvörður og varnarmaður misstu boltann klauflega framhjá sér og Steinar Jóhannsson kom aðvífandi á fullri ferð og skoraði f tómt markið. Keflvíkingar héldu áfram að sækja og bættu við marki á 82. mínútu. Olafur Júlíusson tók hornspyrnu frá vinstri, boltinn þvældist um í víta- teignum, tvö skot dundu á markinu og loks f þriðju tifraun tókst Guðna Kjartanssyni að innsigla sigur ÍBK með föstu vinstrifótarskoti, sem hafnaði neðst f markhominu vinstra megin. Eftir þetta áttu bæði Kári og Steinar góð marktækifæri, en uppskáru ekki mark. Benedikt markvörður meiddist í lok leiksins og lék Samúel f markinu síðustu mínúturnar. Liðin Þrátt fyrir þennan sannfærandi sigur áttu Keflvíkingar síður en svo nokkurn glansleik. Það, sem þeir höfðu umfram Akureyringa, voru fyrst og fremst sóknarmenn, sem gátu skapað sér tækifæri og unnið úr þeim. Þorsteinn mark- vörður þurfti ekki oft að hafa afskipti af leiknum, en sitt hlut- verk vann hann af slíkri prýði, að eftirtekt vakti. Hann er ekki aðeins bezti markvörður okkar í dag heldur sá langbezti. í vörninni voru þeir Guðni og Ástráður mjög góðir, virðist sá síðarnefndi vera að ná sínu fyrra formi aftur. Karl og Grétar voru að vanda duglegir á miðjunni og í framlfnunni voru Steinar og Ölafur drjúgir, þó að þeir ættu engan stórleik. Kári var góður þann tíma, sem hann var inni, og er furðulegt, að hann skuli ekki vera búinn að fá fast sæti í liðinu. Eins og gegn Akurnesingum á dögunum hugsuðu Akureyringar mest um vörnina og sfðan var treyst á fljóta framherja liðsins. Ekki varð árangurinn mikill af þeim hlaupum nema þá helzt hjá Árna Gunnarssyni. I vörninni áttu þeir Gunnar og Aðalsteinn góðan leik, voru beztu menn liðsins. Benedikt fer fram með hverjum leik f markinu. Hann er góður milli stanganna, en út- hlaupin eru greinilega hans veika hlið. Akureyringar eru enn f fall- hættu, þeirra mikilvægasti leikur fram til þessa verður á laugardag- inn, þegar þeir mæta Vfkingi í Reykjavfk. 1 stuttu máli: Akureyrarvöllur 20. júlí. fslands- mótið. 2 LIÐ VIKUNNAR 2 Þorsteinn Ólafsson, fBK Jón Gunnlaugsson, ÍA páll Björgvinsson, Vfkingi Sigurður Indriðason, KR Ástráður Gunnarsson, IBK „ Jðhannes Eðvaldsson, Val . t Guðgeir Leifsson, Fram Kristján Sigurgeirsson, IBV Ólafur Lárusson, KR Kristinn Jörundsson, Fram Karl Þðrðarson, IA EINKUNNAGJOFIN KR ÍBA: ÍA Magnús Guðmundsson 3 Benedikt Guðmundsson 2 Davfð Kristjánsson 2 Sigurður Indriðason 3 Haukur Jðhannsson 1 Björn Lárusson 2 Stefán Örn Sigurðsson 2 Sigurður Lárusson 1 Benedikt Valtýsson 2 Ottð Guðmundsson 3 Aðalsteinn Sigurgeirss. 3 Jðn Gunnlaugsson 3 Ólafur J. Ólafsson 2 Gunnar Austf jörð 3 Jðn Alfreðsson 3 Haukur Ottesen 1 Steinþðr Þórarinsson 2 Þröstur Stefánsson 3 Gunnar Gunnarsson 1 Þormðður Einarsson 1 Haraldur Sturlaugsson 2 Árni Steinsson 3 Jðhann Jakobsson 1 Hörður Jðhannesson 2 Atli Þðr Héðinsson 2 Sigbjörn Gunnarsson 1 Teitur Þðrðarson 2 Hálfdán Örlygsson 2 Gunnar Blöndal 1 Karl Þðrðarson 3 Ólafur Lárusson 3 Árni Gunnarsson 2 Matthfas Hallgrfmsson 2 Baldvin Elfasson (varam.) 1 Sævar Jðnatanss. (varam) 1 Samúel Jóhannss. (varam) 1 VlKINGUR IBK: IBV Ögmundur Kristinsson 1 Þorsteinn ólafsson 3 Arsæll Sveinsson 1 Eirfkur Þorsteinsson 2 Gunnar Jðnsson 1 Einar Friðþjðfsson 2 Magnús Þorvaldsson 1 Ástráður Gunnarsson 3 Ólafur Sigurvinsson 3 Jðn Ólafsson 1 Lúðvfk Gunnarsson 2 Friðfinnur Finnbogason 3 Helgi Helgason 2 Guðni Kjartansson 3 Þðrður Hallgrfmsson 2 Gunnar Gunnarsson 2 Hörður Ragnarsson 1 Óskar Valtýsson 3 Jðhannes Bárðarson 1 Kari Hermannsson 2 Kristján Sigurgeirsson 3 Hafliði Pétursson 2 Grétar Magnússon 2 Snorri Rútsson 2 Gunnar Örn Kristjánss. 1 Jðn Ólafur Jðnsson 1 Tðmas Pálsson 1 Páll Björgvinsson 4 Steinar Jðhannsson 2 örn Óskarsson 2 Kári Kaaber (varm.) 1 Ólafur Júlfusson 2 Sveinn Sveinsson 1 Rðbert Agnarss. (varam.) 1 Kári Gunnlaugss. (varam) 2 Viðar Elfasson (varam.) 1 Steinar Jðhannsson kominn efstur á blað markaskorara f 1. deildar keppninnar eftir mark sitt á Akureyri, sem þarna er að verða til. 1. deild, fBA—IBK 0:2 (0:0). Mörk IBK: Steinar Jóhannsson á 73. mínútu og Guðni Kjartansson á 82. mínútu. Áminning: Engin. Ahorfendur: 1767. Dðmari: Magnús Pétursson og átti hann einn af sfnum albeztu dögum, þ.e. dómgæzla var á heimsmælikvarða. MARKHÆSTIR Eftirtaldir leikmenn hafa skorað flest mörk f 1. deild að 10 umferðum loknum: Steinar Jðhannsson, IBK, 6. Matthfas Hallgrfmsson, lA, 5 Gunnar Blöndal, IBA, 4 Jóhann Torfason, KR, 4 Kristinn Jörundss., Fram, 4 Ólafur Júlfusson, IBK, 4. Sveinn Sveinsson, IBV, 4 Teitur Þðrðarson, ÍA, 4 Örn Óskarsson, ÍBV, 4 Ingi Björn Albertss. Val, 3 Kári Kaaber, Vfking, 3 I 2. deild hafa eftirtaldir leikmenn skorað flest mörk: Loftur Eyjðifss., Haukum 10 Guðmundur Þðrðarson, Breiðabliki 7 Helgi Ragnarss., FH 6 Jðhar.n Hreíðarss., Þrótti 6 Ólafur Danivalss., FH 6 Ólafur Friðriksson, Breiða- bliki 6 Hermann Jðnasson, Völsungi 5 Sumarliði Guðbjartsson, Sel- fossi 5 STIGAHÆSTIR Eftirtaldir leikmenn hafa hlotið flest stig f einkunnagjöf blaðamanna Morgunblaðsins: Jðhannes Eðvaldsson, Val 31 Jðn Gunnlaugsson, 1A 29 Óskar Valtýsson, IBV 26 Gunnar Austf jörð, IBA 25 örn Óskarsson, IBV 25 Atli Þðr Héðinsson, KR 24 Ólafur Júlfusson, tBK 24 Þröstur Stefansson, lA 24. 1. DEILD LEIKIR HEIMA Uti STIG lA 10 4 3 1 0 9:2 6 3 3 0 7:3 16 IBK 10 5 3 2 0 10:2 5 3 0 2 7:5 14 KR 10 5 2 2 1 6:4 5 1 2 2 6:10 10 IBV 10 5 1 2 2 4:6 5 1 3 1 8:6 9 FRAM 10 6 1 2 3 7:9 4 1 2 1 4:4 8 VALUR 10 5 1 3 1 9:9 5 0 3 2 3:5 8 iBA 10 5 1 1 3 4:10 5 2 1 2 7:12 8 VIKINGUR 10 4 0 1 3 2:5 6 2 2 2 7:7 7 2. DEILD LEIKIR HEIMA Cti STIG FH 10 4 2 2 0 10:1 6 5 10 14:2 17 ÞRÓTTUR 9 5 4 10 12:4 4 1 3 0 6:4 14 HAUKAR 10 6 2 3 1 10:6 4 3 0 1 8:5 13 BREIÐABLIK 9 5 3 0 2 16:6 4 2 2 0 8:2 12 VÖLSUNGUR 10 5 3 0 2 11:8 5 0 14 5:14 7 SELFOSS 9 4 2 0 2 8:7 5 1 0 4 3:10 6 ÁRMANN 9 5 10 4 5:12 4 10 3 4:11 4 iBl 10 5 113 3:6 5 0 0 5 2:22 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.