Morgunblaðið - 23.07.1974, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.07.1974, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLl 1974 25 Hér Litið inn hjá íslenzku fyrirtækjunum Aiderknit og Norsteel í Skotlandi FÁIR telja til tíðinda, að erlend stórfyrirtæki vilju fjárfesta á íslandi sem annars staðar utan síns heimalands, enda hefur slík fjárfesting aukizt að mun eftir stríð, um leið og a.m.k. hinn vestræni heimur hefur færzt stöðugt í þá átt að verða ein markaðsheild. Það vekur hins vegar meiri athygli okkar, að íslenzk fyrirtæki hasli sér völl erlendis, enda er það nokkuð sjaldgæft. Nokkur íslenzk fyr'ir- tæki eiga þó dótturfyrir- tæki erlendis og má þar nefna Sambandið og Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna, sem bæði reka verksmiðjur í Bandaríkj- unum. Þá eiga Flugleiðir að hluta eða að fullu eignaraðild að fyrirtækj- um, skráðum og starf- andi erlendis. Nú síðast hafa tvö ís- lenzk fyrirtæki hafið iðn- rekstur í Skotlandi, Prjónastofa Borgarness, sem á fyrirtækið Aiderknit, og Stáliðjan, sem rekur fyrirtækið Norsteel. Bæði þessi fyr- irtæki reka verksmiðjur í Cumbernauld, sem er norðaustur af Glasgow, en þangað kom blm. Mbl. fyrir skömmu. Menn eru ekki á eitt sáttir um ágæti þess, að fyrirtæki fjárfesti utan síns heimalands. Hér á landi hefur það t.d. verið mikið gagnrýnt, að er- lendum fyrirtækjum skuli leyft að fjárfesta á íslandi og jafnvel veitt einhver fyrirgreiðsla til að auðvelda þeim starf- semina. Minna hefur hins vegar borið á gagn- rýni á fjárfestingar Is- lenzkra fyrirtækja er- lendis, þó að slík fjárfest ing geti verið neikvæð fyrir íslenzkan efnahag, eftir því hverjar ástæður liggja að baki því, að fyr- irtækið flytur út fjár- magn. Fjárfesting erlendis getur verið innlendum fyrirtækjum nauðsynleg til að tryggja aðgang að markaði. Verksmiðjur SÍS og SH eru dæmi um slíkt. Hún getur einnig reynzt fyrirtæki nauð- synieg til að tryggja sam- keppnisaðstöðu þess. Mikill hluti fjárfestingar Flugleiða erlendis virðist einmitt af þeim toga spunninn. Slík fjárfest- ing hlýtur að vera jákvæð, hvort sem er fyr- ir fyrirtækið eða þjóðina. Ef hins vegar fyrirtæki fjárfestir erlendis I því skyni að flýja háan inn- lendan kostnað getur fjárfestingin valdið at- vinnuleysi eða minnkað atvinnumöguleika, miðað við ef fyrirtækið hefði fremur kosið að fjárfesta innanlands. Jafnframt geta önnur innlend fyrir- tæki, sem starfa I sömu grein, skaðast við það að samkeppnisaðstaða þeirra erlendis versnar. Stöðugt atvinnuleysi hefur verið I Skotlandi og því hafa stjórnvöld Ullin sniðin. gripið til ýmissa ráðstaf- ana til að auka atvinnu- rekstur þar. Styrkir hafa verið veittir til svokall- aðra þróunarsvæða, eins og t.d. Cumbernauld, sem er nýuppbyggður bær. Ýmislegt er gert til að laða að fyrirtæki, innlend sem erlend, og hefur bæjarfélagið reist mikil verksmiðjuhúsnæði, sem fyrirtækin fá til afnota endurgjaldslaust fyrstu tvö árin, sem þau starfa, en sá tími getur skipt mestu um hvort fyrir- tækið dafnar. Auk þess er afsláttur veittur af op- inberum gjöldum og séð til þess, að nóg húsnæði sé til fyrir vinnuafl og önnur aðstaða sem bezt. Við slíkar aðstæður búa íslenzku fyrirtækin tvö I Cumbernauld, Aiderknit og Norsteel. Aiderknit hefur nú starfað I tíu mánuði og þar vinna 25 manns við að sauma kvenyfirhafnir úr íslenzkri ull. Efnið kemur ofið frá Islandi, en er sniðið og saumað af Skotum. Forstjóri Aiderknit er Skoti, Jim F. Allan að nafni. Hann skýrði svo frá, að verksmiðjan fram- leiddi um 1500 flíkur á Sjá næstu síöu A Óskar Hafsteinn Halldórsson verkstjóri. Ur saumasal Aiderknit.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.