Morgunblaðið - 23.07.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JULI 1974
11
Byggjum land — Bœtum land
Mikill mannfjöldi sótti þjóð-
hátíð Eyfirðinga í Kjarnaskógi
Þjóðhátíð Eyfirðinga og Akur-
eyringa, sem hófst á föstudags-
kvöld með opnun listsýninga og
hraðkeppni í knattspyrnu, var
haldið áfram á laugardag með
knattspyrnukeppni milli 1.
deildarliðanna ÍBK og IBA,
afhjúpun listaverks og kvöldvöku
I Kjarnaskógi, hinu nýja útivistar-
svæði Akureyringa, og dansleik I
Iþróttaskemmunni. Á sunnudag
var stutt athöfn við minjasafnið,
hátíðarmessa f Akureyrarkirkju
og svo aðalhátíðarhöldin I
Kjarnaskógi. Geysilegur mann-
fjöldi innan héraðs og utan sótti
hátfðina, sem fór í alla staði vel og
myndarlega fram í góðu og björtu
veðri, en nokkuð svölu á köflum.
Ekki sá vín á nokkrum manni af
öllum þeim þúsundum, sem þarna
voru saman komin, og öll fram-
koma hátfðargesta var þeim og
héraðinu til hins mesta sóma.
Þjóðhátíðarnefndir Eyja-
fjarðarsýslu og Akureyrar hafa
starfað saman að undirbúningi
hátfðarinnar frá upphafi og
raunar starfað sem ein nefnd.
Eftir að Eyjafjarðarnefndin var
kosin, varð Dalvík kaupstaður, en
hélt fullri aðild að hátfðarhald-
inu. Þaðan kom líka fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, Hilm-
ar Danfelsson.
Hjónin Marta Sveinsdóttir og
Guðmundur Jörundsson útgerðar-
maður hafa gefið Akureyrarbæ
listaverk eftir Ásmund Sveinsson,
sem nefnist Harpa bænarinnar.
Þvf var valinn staður á steinstalli
í garðinum milli Þórunnarstrætis
og Byggðavegar, en sunnan
Hamarsstígs. Listaverkið var af-
hjúpað á laugardag kl. 5 sfðdegis
og gerði það frú Marta Sveins-
dóttir. Athöfnin hófst með leik
Lúðrasveitar Akureyrar undir
stjórn Roars Kvam, en síðan flutti
Guðmundur Jörundsson ræðu,
lýsti aðdraganda hugmyndar
þeirra hjóna að gjöfinni og
afhenti hana Akureyrarbæ. For-
seti bæjarstjórnar, Valur Arn-
þórsson, veitti gjöfinni viðtöku og
þakkaði hann, rausn og átthaga-
tryggð Mörtu og Guðmundar, en
þau eru bæði ættuð úr Eyjafirði
og voru lengi búsett á Akureyri.
Nokkuð rigndi á meðan á
athöfn þessari stóð og fram yfir
miðaftan og voru margir uggandi
um, að kvöldvakan í Kjarnaskógi
nyti sín ekki vegna votviðris, en
áður en til hennar kom stytti upp
og gerði bezta veður, en varð
nokkuð svalt, þegar kom fram á
kvöldið. Mjög margt fólk sótti
skemmtunina, sem var með afar
fjölbreyttu efni, tali, tónum og
dansi. Stjórnandi og kynnir var
Jón Hlöðver Áskelsson, sem hafði
gert lag í tilefni kvöldsins við
texta eftir Harald Zophoníasson.
Lagið og ljóðið var óspart sungið
og leikið, bæði á laugardag og
sunnudag og var orðið almenn-
ingseign í lok hátíðarinnar.
Kjartan Hjálmarsson kvað
stemmur, Gunnar Stefánsson las
þjóðsögur, Lilja Hallgrimsdóttir
og Þuríður Baldursdóttir sungu
tvísöng, einnig Jón Hlöðver og
Jóhann Danielsson, Jóhann
Konráðsson söng einsöng, Hannes
Hartmannsson og Rúnar Vest-
mann sýndu töfrabrögð, tvöfaldur
kvartett úr Karlakór Akureyrar
söng, hljómsveitin Gamlir félagar
Framhald á bls. 38
Frá afhendingu Hörpu bænarinnar. A myndinni eru, talið frá vinstri
bæjarstjórahjónin á Akureyri, gefendurnir og forseti bæjarstjórnar
og frú.
Siglíng um Isafjarðatdjúp,
heimsóttar eyjarnar nafntrægu
Æðey og Vigur og fleiri
markverðir staðir.
Ferðir á iandi til næstu héraða.
Bitferðir um Skaga-
fjörð, ferðir til Sigiu
fjarðar og þaðan
um Olafsfjörð, Ótafs
fjarðarmúla, Dalvik
og Árskögsstrand
til Akureyrar.
Höfuðstaður Norðurlands.
Kynnisferðir um gjörvalla Eyja-
fjarðarsýslu og tíl nærliggjandi byggða.
i Vaglaskógur og Goðafoss prýða _ - -- " "
1 ieiðina til MvvatnsSy^itaf.
í JÍ! H " ' RAUfARHÖFN
\ HÚSAVÍK
Nýtt og gtæsilegt
hótel. Þaðan eru
skipuíagðar ferðir pg
steinsnar til Ásbyrgis,
Hijóðakletta, Detti-
foss, Mývatnssveitar,
Námaskarðs og
Tjörness.
ÞÓRSHÖFN
ISAFJORÐUR
ÞINGEYRN
PATREKSFJÖRDUR m
Hér er Látrabjarg -"
skammt undan og '
auðvelt er að ferðast
tíl næstu fjarða. ■
NESKAUPSTAÐUR
i
Höfuðborgín sjálf.
Hér er miðstöð lands-
manna fyrir list og
mennt, stjórn, verzlun
og mannleg viðskípti.
Héðan ferðast menn
á Þingvöll, til Hvera-
gerðis, Gulifoss og
Geysis eða annað,
sem hugurinn leitar.
Áættunarferðir bif-
reíða til nærliggjandi
fjarða. Fljótsdals-
hérað, Lögurínn og
H a II o rmsstaðaskó gur
Innan seilingar.
1111
■■ * 'V
1111
i ;
''■S-ví •:.■: ■ -í
ftiWjiiÍjÍjViÍjjijijjiijiji
REYKJAVIK
j
FAGURHÓLSMÝRi
Ferðir í þjóðgarðinn
að Skaftafelli, Öræfa-
sveit og sjáið jafn-
framt Brelðamerkur-
sand og oókuísárlón.
Skipulagðar kynnísferðír
á landi og á sjó. ~
Gott hótel. jj
Merkilegt sædýrasafn.
Og auðvitað pldstöðvarnar.
sama hvar ferðin hefst. Sé Isafirði sleppt kostar hringur-
inn kr. 6.080. Allir venjulegir afslættir eru veíttir af þessu
fargjaldi, fyrir hjón, fjölskyldur, hópa o. s. frv.
Kynnið yður hinar tíðu ferðir, sem skipulagðar eru frá
flestum lendingarstöðum Flugfélagsins til nærliggjandi
byggða og eftirsóttustu ferðamannastaða.
Stærri áætlun en nokkru sinni — allt með Fokker
skrúfuþotum.
Frekari upplýsingar veita umboðsmenn, ferðaskrifstof*
urnar og skrifstofur flugfélaganna.
Aætlunarflug Fiugfélagsins tryggir fljöta, þægiiega og
ódýra ferð, og tækifæri til að leita þangað sem veðrið
er bezt.
I sumar fljúgum við 109 áætlunarferðir í viku milli Reykja-
víkur og 13 ákvörðunarstaða um land allt. Og til þess að
tengja einstaka landshluta betur saman höfum víð tekið
upp hringflug. Hringflug okkar umhverfis landið með áætl-
unarferðum er sérstakt ferðatilboð til yðar. Fyrir kr. 7.630
getið þér ferðast hringinn Reykjavík — ísafjörður — Akur-
eyri — Egilsstaðir — Hornafjörður — Reykjavík. Það er