Morgunblaðið - 23.07.1974, Síða 21

Morgunblaðið - 23.07.1974, Síða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JULÍ 1974 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1974 21 Loks féll elzta metið Óskar bætti met Jóels um 77sm. — Ég er dauðfeginn að metið féll, sagði Jðel Sigurðsson fyrrum Islandsmethafi f spjótkasti eftir að Óskar Jakobsson. 19 ára ÍR- ingur, náði þvf langþráða tak- marki að bæta lslandsmetið f spjótkasti á meistaramóti tslands, sem hófst á sunnudaginn. Jóel sagðist nú reyndar hafa vonað, að Snorri sonur sinn yrði fyrstur manna til þess að bæta metið og er ekki ótrúlegt, að Jóel verði að ósk sinni, þótt seinna verði, þar sem Snorri náði sfnum langbezta árangri f spjótkasti f þessari keppni og varð annar. Snorri er aðeins 18 ára og á þvf vissulega framtfðina fyrir sér. Meistaramótið á sunnudaginn var annars eitt skemmtilegasta og árangursríkasta frjálsíþróttamót, sem haldið hefur verið hér um langt skeið. Auðséð er, að hér er að koma fram hópur frjálsíþrótta- fólks, sem virðist taka fþrótt sína alvarlega og æfa vel. Eftir hin svonefndu gullaldarár íslenzkra frjálsíþrótta frá 1950—1956 hefur löngum verið ríkjandi hálfgerð deyfð yfir þessari skemmtilegu íþróttagrein og afreksmennirnir hafa verið tiltölulega fáir. Nú er þátttakan hins vegar að aukast gífurlega mikið og það eitt út af fyrir sig gefur mótunum skemmtilegri blæ. Þó var það þannig, að í sumum greinum meistaramótsins var ekki nógu mikil þátttaka og þegar á heildina er litið verður ekki annað sagt en að utanbæjarmenn hefðu mátt mæta betur til mótsins. Spjótkastsmetið var það afrek, sem hæst bar á sunnudaginn. Met setti Jóel Sigurðsson í spjótkasti árið 1949 og var það orðið elzta íslenzka frjálsíþróttametið, — staðið f aldarfjórðung. Margir hafa gert að því atlögur á þessum árum, en þær jafnan mistekizt þangað til núna. Reyndar munu flestir hafa búizt við því, að metið félli í sumar og kom það ef til vill ekki ýkja mikið á óvart, en ánægjulegt var það eigi að síður. Þegar spjótkastararnir voru að hita upp fyrir keppnina lék Elías Sveinsson sama leik og um daginn — kastaói 65—65 metra og mátti því búst við, að hann yrði nálægt metinu þegar f keppnina yrði komið. En f henni tók Öskar Jakobsson forystu þegar í fyrstu umferð, kastaði 65,43 metra og stórbætti þar með fyrri árangur sinn. í annarri umferð tókst Ösk- ari svo að bæta metið. Atrenna hans virtist þó með öllu mis: heppnuð—í henni enginn hraði og víxlhoppið hálf misheppnað. En krafturinn í útkastinu var Ágúst Ásgeirsson sigrar f 800 metra hlaupinu. Svo sem sjá má er búnir.gurinn hinn skrautiegasti, en hann fór f taugarnar á mörgum viðstöddum. gífurlegur, enda þessi piltur sterkur vel og spjótið hafnaði fyrir framan fslenzka fánann, sem stungið hafði verið niður í völlinn til þess að merkja met Jóels. 67,76 metrar mældist kastið — metið bætt um hvorki meira né minna en 77 sentimetra. Og rétt til að sýna, að þetta var engin tilviljun kastaði Óskar f þriðju tilraun lengra en gamla metið var, eða 67,02 metra. eftir það kast fann hann til f olnboga og gat ekki bætt um betur, enda takmarkinu náð. En Snorri Jóelsson virtist ekki sáttur við að missa metið úr fjöl- skyldunni. Þessi 18 ára piltur bætti sinn fyrri árangur um marga metra og kastaði tvívegis yfir 62 metra — lengst 62,50 metra. Ef til vill tekst honum þegar í sumar að hnekkja hinu nýja islandsmeti Óskars og alla vega er ekki langt i drengjametið hjá honum, en það er 62,80 metrar — sett af Óskari í fyrra- sumar. Elías varð svo þriðji f keppninni með 61,54 metra — árangur, sem oftast hefði nægt til meira en bronsverðlauna á is- landsmeistaramóti. Óskar Jakobsson kom einnig við sögu í kúluvarpskeppninni á sunnudaginn, en þar náði hann sínum bezta árangri, kastaði 15,45 metra. Óskar hefur f hyggju að gera kringiukast og kúluvarp að sfnum aðalgreinum í framtíðinni og er ekki að efa, að þar á þessi stórkostlega efnilegi piltur eftir að ná góðum árangri. Fyrsta grein mótsins á sunnu- daginn var 400 metra grinda- hlaup og bar Stefán Hallgrímsson methafinn í greininni þar örugg- an sigur úr býtum, hljóp á 53,0 sek. og setti þar með nýtt meist- aramótsmet og vallarmet á Laugardalsvellinum. Það kom nokkuð á óvart, að Stefán var meðal keppenda á mótinu, en hann hafði farið utan til keppni í tugþraut í Póllandi. — Ég lenti í hálfgerðum hrakningum í þeirri ferð, sagði Stefán, — Mótið, sem ég ætlaði að keppa í, var haldið á öðrum stað og tima en fyrirhugað var og ég kom ekki til keppninnar fyrr en 10 mínútum áður en þrautin byrjaði. Stefán náði þó sínum bezta tíma f fyrstu grein- inni, 100 metra hlaupinu, sem hann hljóp á 11,4 sek., en fann fyrir meiðslum f hné í langstökk- inu og varð að hætta keppni. — Ég ákvað þvf að drífa mig heim og taka þátt f meistaramótinu, sagði Stefán. Um grindahlaupið sagði hann: — Þetta var vel heppnað hlaup hjá mér þangað til að ég kom að síðustu grindinni, þá stanzaði ég hreinlega og hef örugglega tapað sekúndu. Ekki er á þvf vafi, að Stefán á að geta bætt eigið met í þessari grein, 52,7 sek., hvenær sem honum bíð- ur svo við að horfa. Gffurleg keppni var um annað sætið í þessu hlaupi og þurfti landsliðs- maðurinn Hafsteinn Jóhannesson að bæta sinn bezta árangur til þessa um hálfa sekúndu til þess að hreppa það. Halldór Guð- björnsson hreppti þriðja sætið, hljóp vel, en fór ekki eins vel yfir grindurnar. Sigraði hann Trausta Sveinbjörnsson á sjónarmun. EFNILEGIR SPRETTHLAUP- ARAR í næstu hlaupagrein, 200 metra hlaupi, var aftur sett Laugardals- vallarmet. Bjarni Stefánsson hljóp á 21,6 sek. og jafnaði hann einnig meistaramótsmetið, sem er í eigu þeirra Hauks Clausen, Harðar Haraldssonar og Hilmars Þorbjörnssonar. Bjarni hljóp fyrri hluta þessa hlaups glæsi- lega, en virkaði nokkuð stffur á sfðustu metrunum. Vilmundur varð annar og hljóp vel og þá ekki síður hinn 16 ára Armenningur, Sigurður Sigurðsson, sem setti nýtt sveinamet í greininni og jafnaði drengjametiðmeðþvf að Ingunn atkvæðamest setd met í 200 m hkuni Óskar Jakobsson horfir á eftir metkasti sfnu 67,76 metrum. Fyrir aftan hann stendur Snorri Jóelsson (f Ijósri treyju) en Snorri náði sfnum langbezta árangri f þessari keppni, kastaði 62,50 metra. hlaupa á 22,4 sek. Þarna er á ferðinni stórefnilegur sprett- hlaupari, sem óhætt er að binda miklar vonir við. Hlaupastfll hans er einnig mjög fallegur, hlaupið átakalítið og jafnt. 13 í 5000 METRA HLAUPI Eigi færri en 13 keppendur mættu til leiks í 5000 metra hlaupinu, þar af tveir Bretar, sem dvelja hérlendis um þessar mundir. Strax í upphafi hlaupsins tók Sigfús Jónsson forystu, en annar Bretinn, Symond, fylgdi honum vel á eftir fyrstu hringina, en varð síðan að sleppa einnig. Tókst Sigfúsi að verða hring á undan öllum öðrum keppinautum sínum og tvo hringi á undan sumum. Átti hann greinilega mikið eftir þegar í markið kom og með meiri keppni er ekki að efa, að tíminn hefði verið betri en 15:00,8 mín., — sem er þó það langbezta, sem náðst hefur á meistaramóti Islands síðan Krist- leifur Guðbjörnsson hætti keppni. TVEIR YFIR TVO METRA i fyrsta skipti gerðist það á móti þessu, að tveir Islendingar stukku yfir 2 metra í sömu hástökks- keppninni, þeir Elías Sveinsson og Karl West Fredriksen, en keppnin milli þeirra var mjög tví- sýn og skemmtileg. Þeir tveir stóðu eftir, þegar hækkað var i 1,95 metra og báðir fóru yfir þá hæð. Karl stökk svo 2,00 metra í annarri tilraun, en Elías fór fal- lega og hátt yfir þá hæð í þriðju tilraun. Báðir áttu svo allgóðar tilraunir við 2,03 metra, en höfðu ekki lánið með sér að þessu sinni, og þar sem Karl hafði notað færri tilraunir hreppti hann íslands- meistaratitilinn annað árið í röð. FRIÐRIK MEÐ SEX OGILD 7 METRA STÖKK Fyrirfram var búizt við því, að Friðrik Þór Óskarsson yrði örugg- ur sigurvegari 1 langstökki, en hann hefur stokkið 7,10 metra í sumar. Friðrik sýndi einnig í stökkum sínum, að nú er mikill kraftur 1 honum. Voru öll stökk hans um og yfir 7 metrar, en því miður öll ógild. Stefán Hallgríms- son sýndi hins vegar, hvers hann er megnugur. Eftir hið erfiða grindahlaup hljóp hann i spjót- kastskeppnina og úr henni i lang- stökkið, þar sem hann hreppti Is- landsmeistaratitilinn. Vilmundur er einnig mjög kröftugur lang- stökkvari, en sennilega skortir hann nokkra tækni til þess að stökkva miklu lengra, en það gæti hann örugglega gert legði hann rækt við þessa grein. SKRAUTLEGAR BUXUR! Keppendur í 800 metra hlaupi voru aðeins fimm, þar sem 7 af skráðum mættu ekki til leiks. Þrír keppendanna: Agúst Asgeirsson, Gunnar Páll Jóakimsson og Jón Diðriksson mættu til keppninnar í buxum saumuðum úr brezka fánanum og Ágúst auk þess 1 bol með bandarísku fánaeinkenn- unum. Mæltist þetta ekki of vel fyrir hjá forráðamönnum keppn- innar, enda verður því ekki á móti mælt, að snyrtilegir búningar hafa sitt að segja og geta sett svip sinn á frjálsíþróttamót. Löngum hafa búningar islenzks frjáls- íþróttafólks verið heldur ósam- stæðir og stundum jafnvel fátæk- legir. Er sérstaklega vert að geta um það, hversu keppnisfólk frá Ungmennafélaginu Breiðabliki úr Kópavogi hefur lagt mikla áherzlu á að mæta til keppni í samstæðum og snyrtilegum bún- ingum. Það er hróss vert og ólikt því, sem verið hefur hjá sumum öðrum deildum þess félags. Byrjunarhraðinn í 800 metra hlaupinu var heldur lítill, en eftir að hlaupið var tæplega hálfnað tók Jón Diðriksson mikinn sprett og freistaði þess að hrista keppi- nauta sína af sér. Náði Jón góðu forskoti, en megnaði ekki að svara, er Ágúst og Gunnar Páll tóku endasprettinn og hafnaði í þriðja sæti. ÚR BUXUNUM! Og til þess að geta keppt I 4x100 metra boðhlaupinu þurftu ÍR-ing- arnir að skipta um buxur. Ræsir mótsins, Einar Frímannsson, neit- aði að ræsa hlauparana nema þeir yrðu við þessum tilmælum. 1 boð- hlaupinu bar sveit KR: Marinó Einarsson, Bjarni Stefánsson, Stefán Hallgrímsson og Vil- mundur Vilhjálmsson, öruggan sigur úr býtum, en afleitar skipt- ingar komu í veg fyrir, að tíminn yrði betri en 44,5 sek. í þeim átta karlagreinum, sem keppt var i á sunnudaginn, náðist betri árangur í fimm en á meist- aramótinu i fyrra. Sennilega hefur það haft sín áhrif á keppn- ina á sunnudaginn, að veðrið var öllu betra en algengt er á frjáls- íþróttamótum. — Það er búið að slá eitt met nú þegar, það er gott veður, sagði einn af vallarstarfs- mönnunum áður en mótið hófst, en það hefur löngum verið haft við orð, að ekki megi auglýsa frjálsíþróttamót. þar sem veður- guðirnir sjái þá til þess, að vonzkuveður sé þann daginn. INGUNN Einarsdóttir, ÍR, var sú stúlka, sem mest lét að sér kveða á fyrsta degi meistaramóts Is- lands f frjálsum fþróttum á sunnudaginn. Ingunn bætti metið f 200 metra hlaupi um sekúndu- brot og auk þess var hún vel undir metinu f 100 metra grinda- hlaupi, en þá var tekið að kula og meðvindur of mikill til þess að metið fengi staðfestingu. Er það' örugglega aðeins tfinaspursmál, hvenær Ingunn eignast einnig það met. 1 200 metra hlaupinu hafði Ingunn yfirburði og hljóp mjög vel. Tími hennar reyndist vera 25,8 sek. Eldra metið átti hún sjálf ásamt Sigrúnu Sveinsdóttur, Ármanni, og var það 25,9 sek. Sigrún hljóp á þeim tima 1972, en Ingunn í fyrra. Töluverð forföll frá boðaðri þátttöku voru i flestum kvenna- greinanna og keppnin þar yfir- leitt ekki eins tvisýn og skemmti- leg og í karlagreinunum. Þannig voru aðeins tvær, sem hlupu 800 metra hlaup, og Ingunn sú eina, Ódýr hópferð Um næstu helgi tekur fslenzka frjálsfþróttalandsliðið þátt f hinni svonefndu Karlottkeppni, sem að þessu sinna fer fram f Svfþjóð. Er þetta í annað skiptið, sem íslendingar taka þátt f þess- ari keppni, en sfðast urðu þeir f öðru sæti, á eftir Finnum. Frjáls- fþróttasamband tslands hefur ákveðið að efna til hópferar á, keppni þessa, verður farið á föstudagsmorgni og komið aftur á sunnudegi. Náði FRl mjög hag- stæðum samningum við Ferða- skrifstofuna Sunnu um ferð þessa og verður fargjaldið aðeins 10 þúsund krónur. Töluverð eftirspurn hefur verið eftir sætum f ferð þessa, en samt sem áður mun nokkrum sætum enn vera óráðstafað og er þeim, sem áhuga hafa á ferð þessari, bent á að snúa sér til ferðaskrif- stofunnar, sem veita mun frekari upplýsingar. sem að marki kom i grindahlaup- inu. Lára Sveinsdóttir, sem ný- lega setti met í þeirri grein er- lendis og hljóp á 14,9 sek., tók einnig þátt I hlaupinu og var aðeins sjónarmun á eftir Ingunni I miðju hlaupinu, en þar mis- heppnaðist henni og hún varð aó hætta. Lára varði hins vegar örugglega titil sinn í hástökkinu, en stökk ,,aðeins“ 1,55 metra. Is- landsmetið á hún sjálf og er það 1,69 metrar, sett 1972, þannig að hún er greinilega alllangt frá sínu bezta 1 þessari grein og öryggi hennar ekki hið sama og áður. Þrjár stúlkur mættu til leiks i spjótkastinu og þar varð Arndís Björnsdóttir öruggur sigurvegari, en hið sama má segja um hana og Láru. Æfingin virðist vera minni og árangurinn mun lakari en áður. Þannig kastaði Arndís nú rösklega 6 metrum styttra en is- landsmet hennar er, og það er ekki nögu gott að 33,40 metrar nægi til sigurs i íslandsmeistara- móti. Guðrún Ingólfsdóttir varði titil sinn í kúluvarpi, varpaði 11,60 metra — rúmum metra styttra en Islandsmet hennar frá i fyrra er. i 800 metra hlaupinu vantaði beztu millivegalengdahlauparana og i fjarveru þeirra sigraði Svan- dís Sigurðardóttir úr KR, en tim- inn var ekki betri en 2:31,7 mín. Boðhlaupssveit Ármanns náði hins vegar ágætum tima í 4x100 metra boðhlaupinu, eða 50,6 sek. og er þar meistaramótsmetið bætt um heila sekúndu. Og svo að haldið sé áfram að tala um bún- inga, þá voru búningar sumra Ár- mannsstúlknanna, sem tóku þátt í hlaupi þessu, lítið betri en hinar umdeildu buxur 800 metra hlaup- aranna. W Ingunn Einarsdóttir kemur að marki f 100 metra grindahlaupinu á 14,6 sek. — 3/10 úr sek. betri tfma en lslandsmetið er. sgpé «‘s', i ..‘íCiCm 'síi Sigfús Jónsson hafði mikla yfirburði f 5000 metra hlaupinu og er að nálgast markið er þessi mynd var tekin. Halldór Matthfasson átti þá hring eftir. r ci Agætur árangur á meistaramótinu Úrslit í meistaramótinu K0NUR Hástökk: metr. Lára Sveinsdóttir 1,55 María Guðnad., HSH 1,50 Þórdís Gíslad., ÍR 1,50 Hrafnhildur Vaíbjörnsd., Á 1,45 Björk Eiríksd., IR 1,45 Ása Halldórsd., Á 1,40 Sveinbjörg Stefánsd., HSK 1,35 Sofffa Gestsd., HSK 1,25 Spjótkast: metr. Arndís Björnsd., UBK 33,40 Sveinbjörg Pálsd., ÍR 30,62 Marfa Guðnad., HSH 30,34 200 metra hlaup: sek. Ingunn Einarsd., ÍR 25,8 Erna Guðmundsd., Á 26,5 Ásta B. Gunnlaugsd., ÍR 27,3 Vilborg Jónsd., HSH 28,5 Anna H. Kristjánsd., KR 28,8 Kúluvarp: metr. Guðrún Ingólfsd., USÚ 11,60 Sigríður Skúlad., HSK 10,06 Ása Halldórsd., Á 9,36 Sveinbjörg Stefánsd., HSK 8,75 Úrsúla Kristjánsd., HSH 7,79 100 metra grindahlaup: Ingunn Einarsd., ÍR 14,6 800 metra hlaup: mfn. Svandís Sigurðard., KR 2:31,7 Vilborg Jónsd., HSH 2:53,6 4x100 metra boðhlaup sek. Sveit Ármanns 50,6 B-sveit Ármanns 56,1 Sveit ÍR 51,5 KARLAR 400 metra grindahlaup: sek. Stefán Hallgrfmss., KR 53,0 Hafsteinn Jóhanness., UBK57.5 Halldór Guðbjörnss., KR 57,6 Trausti Sveinbjörnss., UBK57.6 Kúluvarp: metr. Hreinn Halldórss., HSS 17,74 Erlendur Valdimarss., ÍR 16,27 Öskar Jakobss., IR 15,45 Guðni Halldórss., HSÞ 15,36 200 metra hlaup: sek. Bjarni Stefánss., KR 21,6 Vilmundur Vilhjálmss. KR 22,1 Sigurður Sigurðss., Á 22,4 Guðmundur Jónss., HSK 24,1 5000 metra hlaup: mfn. Sigfús Jónsson, ÍR 15:00,8 Hug Symond, Bretl. 15:20,6 Parker, Bretlandi 16:22,6 Jón H. Sigurðss., HSK 16:24,0 Einar Oskarss., UBK 16:34,8 Halldór Matthiass., ÍBA 16:54,0 Leif österby, HSK 17:18,0 Helgi Ingvarss. HSK 18:02,4 Rúnar Gunnarss., KR 18:39,0 Gísli Sveinss., USVS 19:41,9 Þrfr hlauparar: Gunnar Snorrason, Emil Björnsson og Sigurður Lárusson hættu í hlaupinu. Spjótkast: metr. Óskar Jakobss., IR 67,76 Snorri Jóelss., IR 62,50 Elfas Sveinss., ÍR 61,54 Ásbjörn Sveinss., UBK 57,28 Stefán Hallgrímss., KR 56,88 Hörður Harðarss., UBK 52,84 Jón Björgvinss., A 50,01 Hástökk: metr. Karl West Fredrek- sen, UBK 2,00 Elias Sveinsson, ÍR 2,00 Hafsteinn Jóhanness., UBK1,85 Jón S. Þórðars., ÍR 1,85 Þráinn Hafsteinss., HSK 1,80 Kristinn Arnbjörnss., KR 1,75 Þórir Óskarss., IR 1,70 Langstökk: metr. Stefán Hallgrímss., KR 6,84 Vilmundur Vilhjálmss., KR 6,77 Guðmundur Jónss., HSK 6,63 Helgi Haukss., UBK 6,49 Marinó Einarss., KR 6,43 Páll Ólafss., HSK 6,38 Bergþór Halldórss., HSK 6,23 800 metra hlaup: mín. Agúst Ásgeirss., ÍR 1:57,2 Gunnar P. Jóakimss., ÍR 1:58,0 Jón Diðrikss., UMSB 1:59,2 Bjarki Bjarnas., UMSK 2:11,0 Þórður Gunnarss., HSK 2:11,6 4x100 metra boðhlaup: sek. Sveit KR 44,5 Sveit UMSK 46,4 A-sveit ÍR 47,0 B-sveit ÍR 50,1 PUMA IÞROTTA- TÖSKUR Verö frá kr. 488.--- 2.600.- 10 gerðir Póstsendum Klapparshg 44 Reykjavik simi 11783

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.