Morgunblaðið - 23.07.1974, Síða 39

Morgunblaðið - 23.07.1974, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLl 1974 39 Unnu þrjá fyrstu leikina Frá Evrópukeppni unglinga í bridge Kaupmannahöfn, 22. júlí: — Fjórða Evrópumót unglinga í bridge hófst í danska verzlunar- háskólanum f gær. 20 þjóðir taka þátt í mótinu að þessu sinni, og hafa aldrei verið jafnmargar. Is- land tekur nú þátt f mótinu i fyrsta sinn, og er sveitin þannig skipuð: Helgi Jónsson, Helgi Sigurðsson, Einar Guðjohnsen, Isak Ölafsson, Sigurður Sverris- son og Jón Baldursson. Fyrirliði án spilamennsku er Jakob R. Möller. Ekki verður annað sagt en ís- lenzka sveitin hafi fengið fljúg- andi start í mótinu. Hún vann þrjá fyrstu leikina stórt, en tapaði svo f 4. umferð. I gærkveldi spil- aði tsland fyrst við Sviss og vann 20:0. Sigurður og Jón og Helgarn- ir spiluðu leikinn. Síðan unnu sömu spilarar Holland 17:3. I 3. umferð í dag spiluðu Helgarnir og Einar og Isak við Spán og unnu 15:5.1 4. umferð spilaði Island við Ungverjaland og tapaði með 1:19 (Sigurður-Jón og Einar-Isak). — I hverjum leik eru aðeins spiluð 16 spil. Staða 10 efstu eftir 4. umferð: Irland 62, Danmörk 59, Belgfa 56, Svíþjóð 55, Island 53, Ungverja- land 53, Holland 52, Noregur 48, Bretland 46 og Israel 41. — JRM. — Læknafélög Framhald af bls. 40 þær, sem þeim hafi verið dæmdar með kjaradómi 15. febrúar s.l. hafi vart verið umtalsverðar. Því sögðu sjúkrahúslæknar upp störf um sínum á fundi 5. júní s.l. til að knýja fram launabætur, enda augljóst, að sjúkrahúslæknar hafa dregizt verulega aftur úr miðað við ýmsar aðrar stéttir. I bréfi sínu til félagsmanna vísa stjórnir félaganna til 2. mgr. 18. gr. félagslaga L.R., sem hljóðar svo: Félagsmenn mega ekki sækja um eða taka við embætti eða stöðu nema stjórn L.R. hafi viður- kennt launakjör, starfsskilyrði og starfssvið, enda hafi staðan verið auglýst með minnst fjögurra vikna fyrirvara í Læknablaðinu eða á annan fullnægjandi hátt.“ Jafnframt er vísað til Codex Ethicus Læknafélags Islands: 22. cg 23. gr.: „Lækni, sem ræður sig til læknisstarfa, ber að gæta þess, að ráðning hans sé samkvæmt samn- ingi eða samþykktum, sem L.I. viðurkennir. Læknir má ekki gefa kost á sér til stöðu, ef stjórn L.l. hefur ráðið félagsmönnum frá að sækja um hana. —“ — Ólafur Framhald af bls. 40 rétt að bíða eftir því að svar berist frá Alþýðuflokknum. En miðað við neikvætt svar Framsóknar- flokksins er ljóst, að eigi eru skil- yrði að svo stöddu fyrir myndun meirihlutastjórnar Sjálfstæðis- flokksins, Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins." Alþýðuflokkurinn heldur flokksstjórnarfund síðdegis í dag, þriðjudag. Sá fundur mun taka ákvörðun um afstöðu Alþýðu- flokksins. Bréf Ölafs Jóhannessonar til Geirs Hallgrímssonar er svohljóð- andi: „Ég hef móttekið bréf yðar dags. 19. þ.m. Af því tilefni skal eftirfarandi tekið fram: Ég hef fulla ástæðu til að ætla, að Framsóknarflokkurinn, Alþýðubandalagið, Alþýðu- flokkurinn og Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna séu reiðubúin til viðræðna um mynd- un ríkisstjórnar, er hefði stuðn- ing þessara flokka. Framsóknar- flokkurinn telur eðlilegt, að þess- ir flokkar fái tækifæri til a<* kanna möguleika á myndun slíkrar rfkisstjórnar og getur ekki orðið við tilmælum yðar um stjórnarmyndunarviðræður þær, er þér stunguð upp á.“ Lfkan af verðlaunatillögunni skoðað. A myndinni eru, talið frá vinstri, Gfsli Halldórsson, Birgir Isleifur Gunnarsson, Magnús L. Sveinsson og bræðurnir Vilhjálmur og Helgi Hjálmarssynir, sem voru meðal höf- unda tillögunnar, sem fékk 1. verðlaun. —Ibúðabyggð Framhald af bls. 40 Guðjónsson arkitekt, en við síðari athugun kom í ljós, að hann hafði ekki öðlazt leyfi til að leggja fram teikningar fyrir Byggingarnefnd Reykjavíkur, en þátttökuréttur var við það miðaður að verkefnið skyldi falið þeim aðila, er hlyti 1. verðlaun 3. verðlaun, kr. 250.000 hlaut tillaga arkitektanna Magnúsar Benjamfnssonar og Gunnars Sveinbjörns Óskars- sonar. I tillögunni, sem fékk fyrstu verðlaun er lagt til, að á reitnum verði byggð fjölbýlishús, sem að formi til eru hlutar tveggja átthyrninga, sem umlykja tvo garða og tengjast með tengi- byggingu. I tengibyggingunni er gert ráð fyrir þjónusturými, en á annarri og þriðju hæð eru einstaklingsíbúðir og sameigin- legar setustofur. Alls eru 113 íbúðir f húsinu og eru hlutfalls- lega margar þeirra einsherbergja- fbúðir og eru þannig skapaðir möguleikar á samfélagi fbúa úr sem flestum þjóðfélagshópum. I dómnefnd áttu sæti Gfsli Halldórsson, Guðmundur Kr. Guðmundsson, Hilmar Guðlaugs- son, Gunngeir Pétursson og Sigurlaug Sæmundsdóttir. Sýningin verður opin al- menningi í hálfan mánuð frá kl. 9—12 og 13—18 virka dag. — Seldu Framhald af bls. 2 GK 1621 kassa fyrir 1.3 millj. kr., Ásberg RE 2025 kassa fyrir 1.6 millj. kr., Hilmir SU 974 kassa fyrir 1.1 millj. kr. og Helga RE 508 kassa fyrir 560 þús. kr. Landsmóti skáta lauk á sunnudag LANDSMÓTI skáta að Ulfljóts- vatni lauk sfðdegis á sunnudag og hafði það þá staðið í átta daga. Þátttakendum í mótinu fjölgaði stöðugt, er leið á mótið, og voru orðnir um 2.500 talsins siðustu dagana. Þá var einnig mjög margt gesta í fjölskyldubúðunum, flest- ir um 700 talsins, fleiri en 4 nokkru öðru landsmóti. Almenn- ur heimsóknardagur var á laugar- daginn og er gizkað á, að nálægt þremur þúsundum gesta hafi komið á mótssvæðið þann dag. Á föstudag og laugardag voru ljós- álfar og ylfingar í heimsókn og var fjöldi þeirra nálægt tveimur hundruðum. I heild er þetta landsmót lang fjölsóttasta skáta- mót, sem hér á landi hefur verið haldið. Jafnframt er það eitt hið allra bezt heppnaða, hvað alla fram- kvæmd snertir; engin teljandi vandamál komu upp að sögn mótsstjórans, Bergs Jónssonar, í samtali við Mbl. 1 gær, og engin teljandi slys urðu á mönnum, utan hvað einn skáti viðbeins- brotnaði í fjörugum leik. Strax á sunnudagskvöldið var lokið við að fella tjaldbúðir á mótssvæðinu og skátarnir héldu heimleiðis, nema skátarnir frá Isafirði og Siglufirði, sem héldu heim í býtið á mánudagsmorgun. Hreinsun svæðisins lauk að mestu í gær, en nú mun haldið áfram því uppbyggingarstarfi á Úlfljóts- vatni, sem hafið var í vor, m.a. verður nú sáð i geysistór flög og gróðurrýr svæði, sem voru búin undir sáningu fyrir mótið- og af mótsþáttakendum sjálfum. — Gylfi Framhald af bls. 40 meirihluta atkvæða. Voru at- kvæði þá greidd á nýjan leik sam- ( kvæmt reglum þingskapa. Féllu atkvæði þá aftur eins og í fyrstu atrennu. Að því búnu var kosið á milli þeirra tveggja manna, er flest atkvæði höfðu hlotið. Þegar atkvæði höfðu verið greidd í þriðju atrennu lýsti aldursforseti yfir því, að aðeins hefðu borist 59 atkvæði. Dró þá Jónas Árnason atkvæðaseðil sinn upp úr vasanum og rétti aldurs- forseta. Atkvæði féllu þannig, að Gylfi Þ. Gíslason fékk 34 atkvæði þingmanna Framsóknarflokksins, Alþýðuflokksins, Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna og Al- þýðubandalagsins; einn seðill var auður. Gunnar Thoroddsen fékk 25 atkvæði þingmanna Sjálf- stæðisflokksins. Gylfi Þ. Gfslason tók sfðan við forsetastörfum og þakkaði það traust, er sér hefði verið sýnt. Hann greindi sfðan frá því, að fram hefði komið ósk um að fresta fundi, áður en kjör varafor seta færi fram. Fundum var síðan tvívegis frestað síðdegis í gær, eins og áður greinir. En kjör vara- forseta er næsta á dagskrá þing- setningarfundarins, sem enn verður framhaldið kl. 14 í dag, þriðjudag. — Taylor Framhald af bls. 40 leggja af stað til Hull, voru mín fyrstu viðbrögð þau, að komast sem fyrst af stað. Nú, þegar ég var kominn af stað, reyndi ég að halda áfram eins hratt og auðið var. Þvf næst var Taylor spurður, hvort hann hefði verið einn í brúnni á flóttanum og hvort hann hefði ekki sett áhöfnina f hættu með því að stöðva ekki skipið strax? — Ég var mest allan tfmann einn í brúnni, en 1. stýrimaður og loftskeytamaður komu þangað við og við. Ég tel, að áhöfnin hafi ekki verið í beinni hættu, allt fram að þeim tíma, að varðskips- menn fóru að skjóta föstum skot- um. En þá lét ég áhöfnina flytja sig á öruggan stað í skipinu. Eftir að yfirheyrslum yfir Tayl- or var lokið, kom fyrir réttinn David Taylor 1. stýrimaður (þeir eru óskyldir, nafnarnir). Bar hon- um að mestu saman við svör skip- stjóra. I gærkvöldi áttu að koma fyrir réttinn stýrimenn á Þór og ákveð- ið var að halda réttarhöldunum áfram í dag. Dómari í málinu er Erlendur Björnsson, bæjarfógeti á Seyðisfirði, og meðdómendur eru þeir Trausti Magnússon, skip- stjóri, og Einar Magnússon, vél- stjóri. Sækjandi fyrir hönd Land- helgisgæzlunnar er, eins og fyrr segir, Gísli ísleifsson hrl., en verj- andi Taylors er Benedikt Blöndal hrl. Fulltrúi Saksóknara ríkisins er Bragi Steinarsson. Þá eru staddir á Seyðisfirði þeir Micheal Burton, einn af eigendum útgerð- arinnar, og Young 1. sendiráðsrit- ari í brezka sendiráðinu. Dóm- túlkur er Hilmar Foss. Ekki er enn vitað hvenær dóm- ur verður kveðinn upp í málinu, en talið er að það verði f dag. — Sement Framhald af bls. 2 hefði ekki komið til greina núna, þar eð allt frá áramótum og fram til 10. júlf hefði söluverð sements- ins verið lægra en kostnaðar- verðið. Þeir Svavar Pálsson og Guð- mundur Guðmundsson kváðust vona, að úr rættist með afgreiðslu á sementi frá verksmiðjunni þegar f næsta mánuði. Síðustu stykkin í nýju sementskvörnina komu til landsins í gær og upp- setning hennar hófst þá þegar í stað. Er vonazt til þess, að nýja sementskvörnin verði komin i notkun um miðjan ágústmánuð nk. Fram að þeim tíma getur orðið dráttur á afgreiðslu sem- entsins, eins og áður getur. Birgð- ir af portlandssementi eru mjög litlar eða um 2 þúsund tonn og afkastageta sementskvarnarinn- ar, sem fyrir er, aðeins rúml. 400 tonn á sólarhring. Þetta er ekki nægilegt til að anna eftirspurn- inni á miðju sumri og þess vegna er ákveðið að flytja inn önnur 2.500 tonn af sekkjuðu sementi, sem kemur væntanlega til lands- ins f byrjun ágúst. Hins vegar er öllu óljósar, hversu langvinn áhrifin frá yfir- vinnubanni verkamannanna á Akranesi verða. Viðræður hins opinbera við starfsmenn ríkis- verksmiðja hefjast ekki alveg í bráð og f millitíðinni getur verk- smiðjan ekki gengið til móts við kröfur verkamannanna, að sögn þeirra Svavars og Guðmundar. Yfirvinnubannið er ekki á vegum verkalýðsfélagsins á Akranesi, heldur eru það verkamennirnir sjálfir, sem að því standa hver um sig. Yfirvinnubannið hefur í för með sér, að ferja sementsverk- smiðjunnar kemst aðeins eina ferð frá Akranesi til Ártúnshöfða f stað tveggja undir eðlilegum kringumstæðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.