Morgunblaðið - 09.08.1974, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.08.1974, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGCST 1974 M JJ llíl .X /,/ 7f,.( \ 'ALUR." LOFTLEIOm BILALEIGA CAR RENTAL Tt 21190 21188 LOFTLEIÐIR MARGAR HENDUR II VINNA Bl*— ÉTT VERK § SAMVINNUBANKINN Æbílaleigan felEYSIR CAR RENTAL «24460 í HVERJUM BÍL piopueŒn ÚTVARP OG STEREO KASSETTUTÆKI Bílaleiga GAB BENTAL Sendum 41660 - 42902 r Tilboft AKIÐ NÝJA HRINGVEGINN Á SÉRSTÖKU AFSLÁTTARVERÐI Shodq LEIGAH CAR RENTAL AUÐBREKKU 44, KÓPAV. =4 ® 4-2600 SKIPAUTGCRB RIKISINS M/s Hekla fer frá Reykjavík föstudaginn 9. ágúst austur um land í hringferð. Vörumóttaka: fimmtudag og til hádegis á föstudag til Austfjarða- hafna, Þórshafnar, Raufarhafnar, Húsavíkur og Akureyrar. Þjóðnýting í stað varnarleysis? Enn eru mönnum f fersku minni yfirlýsingar talsmanna Alþýðubandalagsins frá þvf fyrir kosningar um horfur f efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Formaður Al- þýðubandalagsins, Ragnar Arn- alds, kom fram f sjónvarps- þætti, þar sem rætt var um efnahagsvandann og greindi frá þvf, að hér væri ekkert það á ferðinni, er kalla mætti vanda. Magnús Kjartansson fylgdi svo fast f kjölfarið og fullyrti, að tslendingum væri enginn vandi á höndum f efna- hagsmálum; ef hér væru ein- hver vandamál á ferð væru það einvörðungu velmegunar- vandamál. Og iðnaðarráðherr- ann bætti við af alkunnu hyggjuviti sfnu, að allan vanda mætti leysa með bókhaldsað- gerðum. Loks kom Lúðvfk Jósepsson fram á sjónarsviðið og sór og sárt við lagði, að hann hefði enga hugmynd um, að efnahagserfiðleikar steðjuðu að. Þvert á móti stæði efnahags- Iffið f miklum blóma. Þannig var talað fyrir kosn- ingarnar. Og Þjóðviljinn lapti upp allt það, sem leiðtogarnir höfðu sagt, og froðufelldi af vandlætingu yfir þeim, er greindu þjóðinni frá raunveru- legum viðhorfum f þessum efn- um. Nú kemur hins vegar ann- að hljóð úr strokknum. I for- ystugrein Þjóðviljans f gær seg- ir: „Þegar Alþýðubandalagið hafði frumkvæði að þvf að við- ræður fjögurra flokka hæfust um myndun rfkisstjórnar und- ir forustu Olafs Jóhannessonar, lagði Alþýðubandalagið áherslu á, að nauðsynlegt væri að Alþýðuflokkurinn og Al- þýðubandalagið næðu saman um efnahagsmálin vegna þeirr- ar hættu sem nú blasir við, með tilliti til afkomu launafólksins, ef hægri stjórn tæki við. Sú hætta, sem framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins benti á f bréfi sfnu 2. júlf er mjög alvar- legs eðlis, jafnvel enn alver- legri en nokkru sinni fyrr um áratuga skeið.“ Þannig er stjórnmálabarátta loddaranna. Meðan verið er að tæla kjósendur til fylgis rétt fyrir kosningar láta valdhaf- arnir svo sem allt leiki f lyndi og ef eitthvað bjáti á sé það einna helst of mikil velmegun. Þegar kosningarnar voru af- staðnar þögðu talsmenn Al- þýðubandalagsins f fyrstu, meðan óljóst var hvort þeir héldu ráðherrastólunum. Nú virðast veður hins vegar hafa skipast f lofti. Forystumenn AI- þýðubandalagsins eygja mögu- leika á áframhaldandi valda- setu, en um leið verða þeir að horfast f augu við raunveru- leikann f efnahagsmálum þjóð- arinnar eftir þriggja ára óstjórn. Þá er gripið til þess ráðs að segja fólkinu, að það blómlega ástand f efnahags- og atvinnumálum, sem rfkti fyrir kosningar, sé nú orðið að alvar- legri kreppu, en Islendingar hafi átt við að etja um áratuga skeið. I framhaldi af þessum boð- skap segir Þjóðviljinn, að hásk- inn sé slfkur, að engin venjuleg úrræði dugi til þess að mæta honum. Grfpa verði til heild- stæðra efnahagsráðstafana, og f þvf skyni að tryggja Iffskjör alþýðunnar verði að taka til rót- tækrar meðferðar innflutnings- verslunina, bankakerfið, tryggingakerfið, olfuverslun- ina og fleira og fleira eins og þar segir. Þannig er ekki ólfk- legt, að Alþýðubandalagið sé reiðubúið til þess að láta undan ýtrustu kröfum f varnarmálum, komi það fram hugmyndum sfnum um þjóðnýtingu at- vinnufyrirtækjanna eða félags- legan rekstur þeirra eins og þaðer nú kallað. Sú efnahagslega ringulreið, sem vinstri stjórnin hefur leitt yfir þjóðina hafði þann aug- ljósa tilgang að grafa undan frjálsum atvinnurekstri f landinu. Þegar öngþveitið hefur verið magnað nægilega, eru settar fram kröfur eins og þær, sem Þjóðviljinn boðar nú. Slfk vinnubrögð eiga sér erlendar hliðstæður. Það er þvf rfk ástæða til þess að spyrna við fæti og knýja á um þá kröfu kjósenda f sfðustu kosningum, að greitt verði úr efnahags- ringulreið vinstri stjórnar- innar á grundvelli frjálshyggj- unnar. spurt og svarad Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS Hrmtjið í síma 10100 kl 1 0— 1 1 frá mánudegi til tostudags °9 biðjið um Les- endaþjónustu Morgunblaðs- ms □ Hvenær fá eftir- launaþegar hækkun? Ólafur Jónsson, Háagerði 55, Reykjavfk, spyr: „Við sfðustu samninga áttu eftirlaun mín að hækka, þannig að þau áttu að miðast við 13. flokk, en ekki 10. flokk svo sem verið hafði. Þessi hækkun hef- ur ekki enn komið fram. Hve- nær er hennar að vænta?" Steinunn Gunnlaugsdóttir, starfsmaður Lffeyrissjóðs rfkis- starfsmanna svarar: „Um þessar mundir er unnið að því, að þessar hækkanir geti komið til framkvæmda, og er stefnt að því, að um næstu mán- aðamót verði unnt að greiða eftirlaunin eftir hinum nýja taxta." Q Skyr f Hafnarfirði Unnur Magnúsdóttir, Kletta- hrauni 11, Hafnarfirði, spyr: „Hvenær megum við, sem verzlum við mjólkurbúðiná við Arnarhraun, eiga von á því að geta fengið boðlegt skyr? Að undanförnu hefur skyrið und- antekningarlaust verið fúlt eða súrt. Á ég þar við skyr, sem er vegið og pakkað inn á staðnum, en ekki skyr í dollum.“ Oddur Helgason hjá Mjólkur- semsölunni svarar: „1 umræddri verzlun er selt nákvæmlega sama skyr og ann- ars staðar á dreifingarsvæði Mjólkursamsölunnar og kæli- kerfi verzlunarinnar er í bezta lagi. Skyr, sem framleitt er með gömlu aðferðinni og selt í lausri vigt, er alltaf missúrt, auk þess sem smekkur manna er mis- jafn. Á það skal bent, að skyr í dósum súrnar miklu hægar en hitt.“ □ Hver bætir skaðann? Valborg Guðnadóttirm Hraunteigi 6, Reykjavfk, spyr: „Hver greiðir kostnað, sem leiðir af spellvirkjum eins og þeim, sem Helgi Hóseasson vann á Stjórnarráðshúsinu á dögunum?" Baldur Möller, ráðuneytis- stjóri f dómsmálaráðuneytinu, svarar: „Með dómi er hægt að láta þá, sem skemmdum valda, bæta tjónið, en í því tilviki, sem hér er nefnt, hefur mál enn ekki verið höfðað, hvað sem síðar kann að verða.“ □ Lítið um kirkju- tónlist í útvarpi Haraldur Þór Jónsson, Hverf- isgötu 83, Reykjavfk, spyr: „Hvernig stendur á því, að við, sem höfum mætur á sí- gildri tónlist og kirkjutónlist, fáum ekki meiri tíma í dagskrá ríkisútvarpsins en orðið er? Popp-unnendur fá orðið tvo til þrjá þætti á dag, en kirkju- tónlist og andlég lög heyrast vart oftar en tvisvar til þrísvar í viku hverri.“ Guðmundur Gilsson, tónlist- arfulltrúi rfkisútvarpsins, svar- ar: „Ég held, að segja megi, að sígildri tónlist séu gérð allgóð skil í útvarpinu, en benda má á það, að milli 9 og 11 á sunnu- dagsmorgnum er útvarpað krikjutónlist og sígildri tónlist í bland, og á miðvikudagsmorgn- um milli kl. 10.25 og 11. Ef almennar óskir kæmu fram um meiri kirkjutónlist f útvarpinu yrði þeim sjálfsagt sinnt. Allar ákvarðanir um þetta efni eru í höndum útvarpsráðs og því væri rétt að óskum yrði komið á framfæri við það.“ P Haflidi Jónsson Höggmyndir FÁTT gefur betur til kynna menningu borga en myndir á almannafæri. Það sem af er þessu ári hafa verið settar upp í Reykjavík fimm höggmyndir, sem ætlað er að standa til fram- búðar. Er þar fyrst að nefna minnismerki Nínu Tryggva- dóttur á Míklatúni eftir Sigur- jón Ölafsson. Við upphaf þjóð- hátfðar í Reykjavík var afhjúp- uð í Austurstræti önnur mynd Sigurjóns, brjóstmynd af Tóm- asi Guðmundssyni, skáldi. Þann sama dag var mynd Ásmundar Sveinssonar, „Undir friðar- og landnámssól" afhjúpuð á Bæj- arhálsi fyrir ofan Ártúnsbrekk- ur. Er sú mynd gjöf Álfélags- ins. Auk þess sem höggmyndin er án efa eitt af fegurstu verk- um þessa aldna snillings, þá er hún merkileg fyrir það, að vera unnin að öllu leyti af íslenzkum höndum og úr íslenzkum málmi. Hún er tákn þeirrar þró- unar. sem átt hefur sér stað á íslandi í tíð núlifandi manna. Ánægjulegt er, að myndinni var valinn staður í útjaðri skipulagðra byggða borgarinn- ar á þessum merku tímamótum í sögu þjóðarinnar. Liggja þar vegir til allra átta að og frá borginni út f dreifðar byggðir landsins. Vestur í Vatnsmýri var komið fyrir táknmerki um samstarf norrænna manna, merki Nor- rænu félaganna, gert af Gísla B. Björnssynf og gjöf frá finnskum vinum okkar. En sízt skal gleyma þeim merka atburði, að hér hefur bætzt við eitt listaverk eftir Bertil Thorvaldsen, og er það eitt frægasta verk hans, mynd- in Adonis. Henni var valinn staður í Fríkirkjuvegsgarðin- um við gatnamót Sóleyjargötu og Skothúsvegar. A næsta ári eru liðin hundrað ár frá því að fyrsta höggmyndin var sett upp í Reykjavík, en það var sjálfs- mynd Thorvaldsens, sem Danir gáfu Islendingum í tilefni 1000 ára þjóðhátíðar. Sú mynd stendur i Tjarnargarðinum en var upphaflega sett upp á Aust- urvelli, en flutt þaðan 1930 er mynd Jóns Sigurðssonar var komið fyrir á Austurvelli. Adonismyndina gerði Thor- valdsen árið 1808 að þvf er talið er, og fyrir hana öðlaðist hann þá frægð, sem honum var nauð- synleg. Myndina eignaðist Lúð- vík konungur i Bayern og galt fyrir hana 4000 ríkisdali. Var hún höggvin f marmara og mun nú f höggmyndasafninu í Miinchen. Afsteypan, sem hér hefur verið sett upp, er gerð eftir myndinni, sem er í Thorvald- sensafninu í Kaupmannahöfn og steypt í eir. Með þessari frægu mynd eru komnar þrjár merkar höggmyndir eftir Thor- valdsen á opin útivistarsvæði f Reykjavík. Suður við Fossvogs- kirkju stendur hin fræga Kristsmynd Thorvaldsens, sem gefin var af Bálfarfélagi Is- lands og afhjúpuð 27. septemb- er 1962. Með þeim höggmyndum, sem hér hafa bætzt við á þessu sumri, eru myndir á opnum úti- vistarsvæðum í borginni orðnar yfir fimmtíu talsins. Munu fáar borgir með svipaðan fbúafjölda búa betur að listaverkum en Reykjavík. Eru þó ekki með- taldar þær mörgu myndir, er skreyta húsveggi víðsvegar um borgina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.