Morgunblaðið - 09.08.1974, Síða 14

Morgunblaðið - 09.08.1974, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. AGÚST 1974 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Áskriftargjaid 600,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 35,00 kr. eintakið. hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, simi 22 4 80. Með hverjum deginum sem líður verður ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar alvarlegra og afleiðingar þriggja ára vinstri stjórnar koma bet- ur og betur fram. Rekstri útgerðar og fiskvinnslu er enn haldió gangandi með yfirdráttarlánum hjá við- skiptabönkum, sem aftur eru komnir í mikla skuld við Seðlabanka. Hingað til hefur það verið kappsmál frystihúsanna að fá eins mikinn fisk og unnt hefur verið til vinnslu. Nú er svo komið, að þau frystihús, sem eru opin, vilja taka við sem minnstum afla, ein- faldlega vegna þess, að þeim mun meiri fiskur, sem unninn er í húsunum, þeim mun meira verður tapið á rekstrinum. Skut- togararnir nýju safna mikl- um skuldum við viðskipta- aðila, olíufélög, vélsmiðjur og aðra. Fyrstu merki alvarlegrar greiðslukreppu í efnahagslífinu eru að koma fram. Hin gífurlega verðbólguþróun hefur leitt til svo mikillar kostnaðar- aukningar, að atvinnu- fyrirtækin hafa ekki leng- ur það fjármagn í höndum, sem þarf til að halda eðli- legum rekstri gangandi og draga því allar greiðslur eins og unnt er. I opinbera kerfinu er sömu sögu að segja, ríkisfyrirtæki og stofnanir eru rekin með sívaxandi halla. Bersýni- legt er, að þanþol efnahags- kerfisins er að bresta. Þannig verða horfur í málefnum lands og þjóðar ískyggilegri dag frá degi, á sama tíma og þeir flokkar, sem bera ábyrgð á þessu ófremdarástandi, sitja vik- um saman og gera tilraun til þess að mynda nýja vinstri stjórn með aðild Alþýðuflokksins. Hingað til hefur lítið verið rætt um efnahagsvandann í þessum viðræðum heldur hefur öll orka þeirra farið í að finna samkomulagsgrundvöll um framtíðarskipun varnar- málanna. Vissulega finnst mörgum réttast að vinstri flokkarnir fái að moka sinn eigin flór, en það er hins vegar alveg ljóst, að takist þeim að koma saman ein- hverri stjórnarómynd yrði þar um svo veika stjórn að ræða, að hún mundi engan veginn ráða við þau stór- felldu vandamál, sem við blasa. í efnahags- og atvinnu- málum þjóðarinnar, eins og þeim er nú komið, dugar ekkert kák. Það verður að gera rækilegan uppskurð, sem hlýtur að koma harka- lega við alla landsmenn, hvort sem um er að ræða launþega eða atvinnu- rekendur. Við íslendingar eigum engan annan kost í dag en þann að herða ólarnar um sinn og bíta úr nálinni með afleiðingar þeirrar óstjórnar, sem ríkt hefur í efnahagsmálum okkar undir vinstri stjórn síðustu þrjú árin. Grund- vallaratriði í nýjum efna- hagsaðgerðum hlýtur að vera það að skapa atvinnu- fyrirtækjunum rekstrar- grundvöll á ný og gera jafnframt ráðstafanir til að draga úr þeirri óhugnan- legu verðbólguþróun, sem í landinu er. Þetta verður ekki gert sársaukalaust. Það verða allir að gera sér ljóst. En það skiptir auðvit- að höfuðmáli, að aðgerðum verði hagað á þann veg, að þeir, sem minnst mega sín í þjóðfélaginu, verði fyrir minnstum erfiðleikum vegna þess hversu komið er. Það er sanngirnismál og það er réttlætismál og um það eiga allir stjórn- málaflokkar að geta sameinazt. Ólafur Jóhannesson hef- ur nú í rúmar þrjár vikur gert tilraun til myndunar nýrrar vinstri stjórnar. Enn er allt á huldu um, hvort í raun og veru er grundvöllur til slikrar stjórnarmyndunar. Vegna ástandsins í efnahagsmál- um þjóðarinnar er orðið aðkallandi að línur skýrist. Þess vegna verður að ætl- ast til þess, að nú um þessa helgi fáist úrslit í því, hvort vinstri flokkarnir geti komið sér saman eða ekki. Verði niðurstaðan sú, að ný vinstri stjórn verði mynduð, verður hún tafar- laust að gera grein fyrir því, hvernig hún ætlar að takast á við þau efnahags- vandamál, sem öllum eru ljós i dag. Verði ekki af myndun nýrrar vinstri stjórnar verður umsvifa- laust að ganga til þess verks að mynda sterka og ábyrga ríkisstjórn, sem getur tekið til höndum þeg- ar í stað. Fráfarandi vinstri stjórn hefur látið reka á reiðanum misserum sam- an. Það verður ekki gert öllu lengur. Við erum kom- in út í kviksyndi, sem erfitt verður að komast upp úr, en nú er komið að þeirri stundu, að ekki dugar leng- ur að láta reka. Stjórn- málamennirnir verða að láta hendur standa fram úr ermum og taka til við að stjórna landinu. EKKERT KÁK Aðeins ein jörð lÁ Byggist náttúruvernd á hagstœðri efnahagsþróun ? Ljóst er orðið, að í þessum ört vaxandi mannheimi fjölg- ar Evrópumönnum hægar en flestum öðrum þjóðum. En reynslan hefur sýnt og sann- að, að þar sem iðnvæðing og efnahagsleg þróun er komin lengst á veg fer þess að gæta, að fólk vill ekki eignast eins mörg börn og meðan efnin voru minni. Árið 1950 Voru í Evrópu 23% af íbúum jarðar. Á næstu tveimur ára- tugum fjölgaði í Evrópu (að undanskildum Sovétríkjun- um) um 3,5 milljónir á ári, þar sem fjölgunin hafði að- eins orðið 1,9 milljónir næstu 50 árin á undan og 1,8 hálfu öldina þar á undan. Þetta er mjög til umræðu núna vegna sérfræðingaskýrslu frá Sam- einuðu þjóðunum, sem unn- in hefur verið fyrir ráðstefnu um mannfjölgunarmál, sem halda á í Búkarest 19. — 30. ágúst n.k. Árið 1965 gerðu starfsmenn S.Þ. spá um fjölgun í Evrópu til ársins 2000 og reiknuðu þá með svipaðri fjölgun og fram að því. En eftir 1965 lækkaði fæðingartalan hægt í flestum Evrópulöndum og loks nokk- uð ört árið 1 972. Það er því útlit fyrir, að fólksfjölgun í Evrópulöndunum verði til ársins 2000 minni árlega en hún hefur verið síðustu 20 ár. Þetta skiptir máli, þegar rætt er um áhrif mannsins til skaða í náttúrunni á þessu þéttbýlasta svæði jarðar. Tækni- og efnahagsframfarir okkar í Evrópu byggjast á því, að tekizt hefur að bæta álagsmöguleika umhverfisins með því að nýta það á nýjan hátt. En maðurinn er sem kunnugt er eina skepna jarð- ar, sem getur með fyrir- hyggju breytt umhverfinu í þá átt að það þoli meira. Með þessu móti eykst álag á auð- lindir, sem hingað til hafa verið ónýttar. Og það getur að sjálfsögðu ekki gengið endalaust. Þessar auðlindir hljóta — að svo miklu leyti sem þær eru í jörðu og ekki endurnýjunarhæfar — að ganga upp. Dómsdegi má fresta, en ekki koma ! veg fyrir hann. Þetta er ekki órök- rétt ályktun og leiðir til þess, að maður hlýtur að viður- kenna, að áframhaldandi fjölgun fólks sé skaðleg fyrir umhverfið og beri þannig í sér dauðadóm fyrir tegund- ina. í framhaldi af því hljót- um við svo að draga þá álykt- un, að efnahgasvöxtur og mannfjölgun hafi skaðleg áhrif á náttúruna og dragi úr því, að við getum fengið að njóta hennar. Þetta er þó dálítið villandi, segir í grein í ritinu „Nature in Focus" um þetta efni. Og það af þremur ástæðum. í fyrsta lagi ógna tölurnar ein- ar um hundraðshlutafjölgun ekki umhverfinu heldur skiptir höfuðmáli, hvað allt þetta fólk aðhefst i umhverfi sínu. Til dæmis fór uppþurrk- un lands í Norðvestur-Evrópu fram, þegar fólkinu fjölgaði ekki mjög hratt, en hafðisamt óhugnanleg áhrif á jurtir og dýr á þessum svæðum. Hin öra fólksfjölgun í Evrópu á 19. öld varð í borgum og bæjum. Náttúran var, a.m.k. fyrst í stað, nær alveg óhreyfð. í öðru lagi bætir efnahagsþróun, sem fylgir tækniframförum, lífskjör fólksins. Afleiðingin ersú, að það þarf minna að vinna (þó að framleiðslugetan fari vax- andi) og fær betri menntun. Við það beinist athyglin að frístundunum. Það verður ekki fyrr en þá, sem hug- myndir um náttúrulegt um- hverfi til ánægjuauka fara að koma fram af verulegum þunga. Það er kannski nokk- uð meinlegt, að sú þróun, sem talið er að ógni mest umhverfinu, skuli einmitt vera hvati hugmyndanna um að umhverfið sé til að njóta þess. Væri það því ekki fyrir auknar efnahagsframfarir þá mundu miklu færri hafa tíma, peninga og áhuga á því að styðja og styrkja verndun- arstofnanir, sem vinna að því að halda óskertum svæð- um með villtri náttúru og dýralífi. Þannig byggist áhuginn á því, að náttúrulegt umhverfi sé og skuli vera til yndisauka og varðveitt í því skyni, á hagstæðri efnahags- þróun. Bændur I Andesfjöll- um munu ekki hafa áhuga á gömmunum eða Indverjar á tígrisdýrunum fyrr en þeir hafa nægan tíma og peninga til að skoða þessi dýr í frí- stundum sínum. I þriðja lagi hefur þaðalltaf fremur verið jarðyrkja en iðn- aðurinn, sem ógnað hefur náttúrulegu umhverfi í þeim skilningi að stærri náttúruleg landsvæði hafa verið eyði- lögð með beit og ræktun en með námugrefti og mengun lands, lofts og vatns. Þannig er það í fátæku löndunum nú. Og þannig var það í Evrópu áður. Nú er Evrópa aftur á móti í ákaflega heppi- legri aðstöðu að þessu leyti. Mörg svæði — allt frá kalk- steinshæðunum við Miðjarð- arhafið að skógarhöggs- stöðvunum í norðurhluta Norðurlanda — eru nú yfir- gefin af fólki vegna þess, að þau geta ekki veitt jafngóð lífskilyrði og krafizt er á vor- um dögum. Þetta er jafnvel ennþá meira áberandi í Bandaríkjunum (t.d. má hugsa til allra eyðibýlanna ! Nýja Englandi). Fjallahéruð Frakklands og Norður-Nor- egs eru í byggð af þeirri ástæðu einni, að talin er stjórnmálaleg nauðsyn að styðja óarðbæran atvinnu- rekstur þar. Miklu af þeirri náttúru, sem á undanförnum tvö þúsund árum hefur verið breytt í ræktað land í Evrópu, má nú eða bráðlega breyta aftur þannig að hún auðgi lífkerfi, sem maðurinn getur orðið áhorfandi að og skoðað sér til ánægju. Þess vegna er óhætt að vera svolítið bjartsýnni en nú er títt, segir greinarhöfundur. Fólksfjölgunin í Evrópu er ekki aðeins hætt að aukast — er jafnvel orðin hægari en spáð var fyrir 10 árum — heldur kemur i Ijós við ná- kvæma skoðun á samanburði á fólksfjölgun og eyðilegg- ingu náttúrunnar, að efna- hags- og félagsleg stefna er í vissu tilliti til bóta. Auðvitað er enginn hagur að áfram- haldandi fólksfjölgun og óhugsuð bjartsýni mun ekki vernda á hagstæðastan hátt umhverfi okkar til yndisauka fyrir okkur í framtíðinni, þeg- ár íbúar Evrópu hafa með auknum efnahag fylkt sér til stuðnings við verndun um- hverfisins, verður vandinn að velja á milli í harðnandi sam- keppni um notkun umhverf- isins til yndisauka fyrir mann- fólkið, segir greinarhöfundur ! lokin. — E.Pá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.