Morgunblaðið - 14.08.1974, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. AGUST 1974
5
SPONAPLOTUR:
Bison (danskar)
(10, 12, 16, 19, 22 mm)
Elite, vatnsþéttar
(12, 16 mm)
VATNSÞÉTTUR KROSSVIÐUR
Harðviðarkrossviður
(4, 6, 9, 12, 18 mm)
Mótakrossviður plasthúðaður
(12, 15, 18 mm)
Combi-krossviður (greni, birki)
(3, 4, 61/2, 9, 12 mm)
VIÐARÞILJUR:
Gullálmur
Eik
Hnota
Teak
ÞILPLÖTUR:
Harðtex
Olíusoðið masonite
ÍRKAÐUR HARÐVII
„ Eik .
Oregonpine 1
TIMBUR:
Mótaviðpr
Smíðaviðjjfi!:,
Þurrkaður viður
Gagnvarinn viðu
i' Gluoaaefni
LÍMTRESBITAR C
Klapparstíg
Glasgow-London
tvisvar í viku
British Airways flýgur nú bæði á miðvikudögum og
sunnudögum frá Keflavik til Glasgow og London - og
áfram til yfir 200 staða í 88 löndum.
Brottfarartími kl. 16.05 frá Keflavík, kl. 11.35 frá London.
Flogiö með hinum þægilegu Trident 2 þotum í samvinnu
við Flugfélag íslands og Loftleiðir.
British airways
Now worldwide you 11 be in good hands
Vestmannaeyingar í
Reykjavík og nágrenni
ÉG leyfi mér að senda ykkur,
Vestmannaeyingum, sem enn eru
dreifðir um Reykjavík og
nágrannabæina, Kópavog, Garða-
hrepp og Hafnarfjörð, smá orð-
sendingu.
Svo er mál með vexti, að
fimmtudagskvöldið, er kemur,
þann-15. þ.m., er ákveðið að hafa
helgistund í kirkju Óháða safnað-
arins, sem jafnframt verður
þakkarstund, en við þennan söfn-
uð, prest hans, síra Emil Björns-
son, ásamt öllu starfsfólki safnað-
arins, stöndum við Vestmannaey-
ingar í óbættri þakkarskuld og
reyndar við söfnuðinn I heild.
Presturinn og safnaðarstjórnin
sýndu okkur þá einstöku velvild,
Þá beinir fundurinn þeim til-
mælum til fjárveitingavaldsins og
Vegagerðar ríkisins, að ofan-
greindum hreppum verði gefinn
kostur á, i framtíðinni, að eiga
aðildaðendurskoðun vegaáætlun-
ar, þannig að heimamönnum
verði gert kleift að koma á fram-
færi sfnum óskum, áður en veg-
áætlun er tekin til endanlegrar
afgreiðslu. Með þessu fyrirkomu-
lagi verði fjármagni til fram-
kvæmda í vegagerð á svæðinu
betur varið f samræmi við þarfir
íbúa þess. Einnig leggur fundur-
inn áherzlu á, að vegaáætlun
verði tilbúin fyrr á vorin en verið
hefur, svo sumarið nýtist betur til
framkvæmda.
þegar við neyddumst til að flýja
heimili okkar, að bjóða okkur inni
í kirkju sinni endurgjaldslaust
svo lengi, sem við þyrftum á að
halda.
í þessari kirkju hefur verið
miðstöð safnaðarstarfs Landa-
kirkju í dreifingunni. Allt, sem
þvf starfi fylgir, hefur okkur Stað-
ið það til boða. Auk þess höfum
við notið stuðnings margra
ómetanlegra starfskrafta, svo sem
kirkjukórs safnaðarins, sem alltaf
hefur mætt til hverrar messu,
ásamt fleirum ágætum söngkröft-
um undir stjórn hins mikilhæfa
söngstjóra og kirkjuorganista,
Jóns Isleifssonar, sem innt hefur
mikið starf af höndum í okkar
þágu endurgjaldslaust.
Þá má og geta þess, að söfnuðir
Kjalarnessprófastsdæmis, hafa
samkvæmt tillögum prófastsins
þar, séra Garðars Þorsteinssonar,
stutt kirkjulegt starf Landakirkju
mjög höfðinglega með mánaðar-
legum fjárframlögum, sem komu
sannarlega í góðar þarfir, þegar
þörfin var mest.
Fyrir allt þetta og margt fleira
ber okkur vissulega að þakka. Við
höfum valið til þess fimmtudags-
kvöldið er kemur og það eru vin-
samleg tilmæli mín, að allir Vest-
mannaeyingar á þessum slóðum
bregðist mannlega við og sýni lit á
þakklæti sínu með því að fjöl-
menna til kirkju Óháða safnaðar-
ins kl. 8.30 á fimmtudag n.k.
Þorsteinn L. Jónsson
sóknarprestur.
Þjóðhátíðarhefti
Iceland Review
NÝTT HEFTI tímaritsins
ICELAND REVIEW er nýlega
komið út og er það nokkru stærra
en venjulega, flytur m.a. efni
tengt þjóðhátíðarárinu, ásamt
ýmsum öðrum fróðleik um land
og þjóð.
Forseti Islands, dr. Kristján
Eldjárn, skrifar hér hugleiðingar
um fyrstu landnemana, og fjallar
um það hvers konar fólk þeir hafa
verið og hvernig þeir hafa komið
að landinu. Greinin er mynd-
skreytt af Einar Hákonarsyni,
listmálara.
Þá skrifar Matthías Johannes-
sen grein um skáldin og áhrifin,
sem þau hafa orðið fyrir af
náttúru landsins. Birtast með
greininni litmyndir af náttúrufari
eftir Rafn Hafnfjörð og Gunnar
Hannesson.
Árni Gunnarsson, fréttamaður,
skrifar um Vestmannaeyjar, áhrif
gossins á fólk á heimleið. Hvernig
eyjaskeggjar eru að byrja að
koma sér fyrir aftur, og hann
greinir frá því helzta varðandi
endurvakið lif í Eyjum. Myndir
eru hér eftir Sigurgeir Jónasson
og Sigurgeir Sigurjónsson, bæði f
svarthvítu og litum.
Þá er syrpa af loftmyndum frá
óbyggðum landsins úr safni Land-
mælinganna, og Sigurður A.
Magnússon skrifar um endur-
vakta heiðni á tslandi. Með þeirri
grein birtist fjöldi mynda i litum,
m.a. frá blóti Asatrúarmanna við
Dragháls i fyrra.
Haraldur J. Hamar, annar rit-
stjóri Iceland Review, skrifar
hugleiðingar um ást Islendinga á
landinu og viðhorf þeirra til um-
heimsins, og er sú grein prýdd
fjölda litmynda. Þá er viðtal við
Jakob Björnsson, orkumálastjóra,
um hina miklu, óbeizluðu orku
landsins, bæði í ám og jarðhita —
og Eiður Guðnason gerir grein
fyrir gangi mála í siðustu land-
helgisdeilu og rekur þróun þeirra
mála allra frá upphafi.
Vilja hraða framkvæmdum
við Suðurfjarðarveg
Þá fylgir blaðinu litið frétta-
blaó að vanda, og f heild er hér
um að ræða mjög litskrúðugt og
vandað hefti ritsins.
HREPPSNEFNDIR Fáskrúðs-
fjarðar-, Búða, Stöðvar- og Breið-
dalshrepps komu saman til fund-
ar á Fáskrúðsfirði 12. júlí s.l. Á
þessum fundi var samþykkt sam-
eiginleg áskorun um breytingar á
vegaáætlun fyrir Suðurfjarðar-
veg árin 1974—1977 til samgöngu-
málaráðherra og þingmanna
Austurlandskjördæmis.
Fundurinn skorar á ofan-
greinda aðila, að nokkrar breyt-
ingar verði gerðar á vegaáætlun
fyrir Suðurfjarðarveg. Beinast
þær að því, að öllum framkvæmd-
um verði hraðað og öðrum bætt
inn í, þar sem vegur er slæmur.
Bendir fundurinn á, að ef 45%
framkvæmda áætlunartfmabils-
ins verði settar á siðasta áriö,
1977, sé mikil hætta á frekari
töfum á framkvæmd áætlunarinn-
ar, en við það verði eigi unað.
Ibúar hreppanna eigi ekki um
aðra leið en Suðurfjarðarveg að
velja til samgöngumiðstöðvar
Austurlands, Egilsstaða, á vetr-
um.