Morgunblaðið - 14.08.1974, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGUST 1974
21
félk f
fréttum
„Nei, við munum ekki setja
Scherlock Holmes I málið til að
leysa dularfullu gátuna um
rósavöndinn," segir aðal-
konsúll Bretlands f Chicago.
„Ef maðurinn vill ekki að við
vitum hver hann er, þá inunum
við virða það.“
Um leið og hann mælir þessi
orð þefar Ralph Daniell,
konsúll, af vendinum með sex
rósum, sem jafnan hefur verið
sendur konsúlatinu hinn 1.
ágúst ár hvert eins lengi og
nokkur man. Engin undirskrift
fylgir rósavöndunum, aðeins
þessi áletrun: „Til minningar
um bardagann f Minden."
Daniell konsúll upplýsir, að
hinn 1. ágúst 1759 hafi orrustan
f Minden verið háð með þvf að
sex hersveitir bandamanna
enskra ruddust yfir rósabreið-
ur til að berja á frönskum her-
sveitum f nánd við Minden f
Vestfalfu f Þýzkalandi. Sagnir
herma, að hermennirnir hafi
skreytt höfuðföt sfn með rósum
að sigri loknum og hersveit-
irnar sex hafa haldið þeirri
hefð allt fram á þennan dag.
Daniell segir, að Minden-
orrustan sé „einn bjartasti
dagurinn f sögu brezka hers-
ins“ og að rósavöndurinn f
konsúlati hans sé „með við-
kunnanlegri málum“ er hann
hafi glfmt við hin sfðari ár.
_________
ý
-
Kóngurinn af
Grikklandi í Englandi
Konstantfn, konungur Grikk-
lands, vonast nú til að breyttir
stjórnarhættir f Grikklandi
muni verða til þess að hann
geti snúið til heimalands sfns
og tekið þar til við fyrri iðju.
Hann lætur þessa von þó ekki
hindra sig f að koma f stand
landsetri sfnu f Stanyards f
Englandi, sem hann hefur ný-
lega fest kaup á. Landsetrið er
umlukið háum múr en þar fyrir
innan eru iðnaðarmenn þessa
stundina á þönum en yfirum-
sjón með framkvæmdum hefur
Anna-Marfa, drottning, þvf að
hún ákveður hvar skápar og
húsmunir skulu standa og
leggur auðvitað hart að sér til
að húsið verði fullfrágengið
þegar blessuð börnin koma
heim úr sumarleyfi frá Spáni.
Það er engin sæld þetta kónga-
lff!
Toyoichi Wanami,
japanskur eftirlaunasjó-
liðsforingi, vann það
afrek sl. laugardag að
klifra upp á topp Fujield-
fjallsins og var þar með
elsti maðurinn, sem þar
hefur fæti stigið.
Wanami er nefnilega 91
árs að aldri.
Söngleikur um
Önnu Karenínu
Nú hefur verið gerður söng-
leikur eftir skáldsögu Tolstojs,
önnu Karenínu. Aðalhlut-
verkið hefur verið látið í
hendur dönsku leikkonunnar
Önnu Karínu, en hún hefur
verið búsett í Frakklandi árum
saman og var á sfnum tíma gift
franska kvikmyndastjóranum
Jean-Luc Godard.
Michel Legrand heitir sá, sem
gert hefur tónlistina í söng-
leiknum um önnu Karenínu, og
hann hefur lýst þvl yfir, að
hann sé afar ánægður með, að
aðalhlutverkið hafi verið
fengið önnu Karínu.
Tekur ekki við
neinni skiptimynt
Audrey Hepurn var mikil
uppáhaldsleikkona hér í eina
tíð, en nú eru sjö ár liðin síðan
hún lét ljós sitt skfna að marki
á kvikmyndatjaldinu. Þrátt
fyrir þessa löngu fjarveru er
hún samt ennþá eitt af „stóru
nöfnunum“ og hefur svo
sannarlega ekki skort
glæsileg atvinnutilboð. En
konan er vandlát og hef-
ur haft efni á þvl að setja
sig á háan hest. Þegar
Visconti bauð henni hlutverk I
kvikmyndinni „Umræðuefnið",
sagði hún nei vegna þess að
henni llkaði ekki boðskapur
myndarinnar.
Nú mun hún velta því fyrir
sér, hvort hún eigi að taka til-
boði um hlutverk I mynd, sem
Frankenheimer' hyggst gera á
næstunni. Hlutverkið mun falla
henni I geð svo og mótleik-
arinn, Paul Newman. En þegar
kemur að laununum stendur
hnífurinn I kúnni. Audrey Hep-
urn sættir sig sem sé ekki við
minna en sem nemur 110
milljónum Islenzkra króna.
Þetta þykir að sjálfsögðu all-
mikið fé og hefur engin önnur
leikkona fengið svo mikið fyrir
eitt hlutverk nema Elizabeth
Taylor.
Audrey hefur lýst því yfir, að
fái hún ekki það, sem upp er
sett, verði ekkert af leik hennar
I mynd Frankenheimers.
SOVÉZKIR geimfarar láta
sér ekki allt fyrir brjósti
brenna fremur en starfs-
bræður þeirra vestan hafs.
Öhræddir þeytast þeir um
óravíddir himingeimsins og
mæta aðsteójandi hættum
með sannri karlmennsku og
ró.
Rússneska geimfaranum
Lyudvik V. Mirzoyan var
hins vegar öllum lokið eftir
þriggja mánaða rannsóknar-
ferð um Bandarlkin, þar
sem hann kynnti sér þarlent
samfélag. Við honum blasti
niðurlæging þess rikis I
sinni aumustu mynd: Nekt,
einstaklingshyggja og eigin-
girni voru niðurstöður Mir-
zoyan um Bandaríki Norður-
Ameríku.
„Heima hjá mér lifa menn
fyrir samfélagið," sagði
hann. „Hér lifa þeir aðeins
fyrir sjálfa sig.“ Hann lýsti
hneykslan sinni á nektinni,
sem blasti alls staðar við
honum — á veggmyndum og
I timaritum. „Það er skömm
að þessu. 1 Sovétríkjunum
er klám bannað með lögum.
Ef allir fá að gera hvað þeir
vilja, verður útkoman hreint
stjórnleysi," og bætti því, að
I heimalandi sínu yrði hver
sá, sem tekinn væri við að
hengja upp nektarmyndir,
settur I götusópun I tvær
vikur.
Vtvarp Reykfavik ^
MIÐVIKUDAGUR
14. ágúst.
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15, og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl. 8.45:
Kristfn ólafsdóttir heldur áfram að
lesa söguna „Dfsa frænka“ eftir Stefán
Jónsson. (6).
Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl.
9.45. Lé(t lög milli liða.
Kirkjutónlist kl. 10.25: „Missa
ChoralÍs“ eftir Liszt. Anne Dunn,
Marvis Walters, Kathleen Lenthall,
Aurie Arrows-Smith, Donald Peerce,
John Whiteman, Viktor Thomas og
Geoffrey Otter syngja með Borgar-
kórnum f Bournemouth.
Goffrey Tristram leikur á orgel;
Norman Austin stjórnar.
Morguntónleikar kl. 11.00: Boyd Neel
strengjasveitin leikur Tilbrigði op. 10
eftir Beujamin Britten við stef eftir
Frank Bridge og Menúett eftir John
Ireland/Ralph Holmes og Fric Fenby
leika sónötu nr. 1 fyrir fiðlu og pfanó
eftir Fredrick Delius.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Meðsfnulagi
Svavar Gests kynnir lög af hljómplöt-
um og talar um Louis Armstrong.
14.30 Sfðdegissagan: „Katrfn Tómasdótt-
ir“ eftir Rósu Þorsteinsdóttur
Höfundur les. (9).
15.00 Miðdegistónleikar:
Rosalyn Tureck leikur á sembal
Krómatfska fantasfu og fúgu eftir
Bach. Michel Piguet, Walther Stiftner
og Martha Gmiider leika Ttfósónötu f
c-moll fyrir óbó, fagott og sembal eftir
Vivaldi. Strengjakvartettinn f Brtissel
og Louis Logie leika Strengjakvintett
nr. 2 f a-moll eftír Fetis.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.25 Popphornið
17.10 Tónleikar.
17.40 Litli barnatfminn
Gyða Ragnarsdóttir sér um þáttinn.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfergnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Landslag og leiðir
Kristján Ingólfsson talar f fyrra sinn
um Múlaþing.
20.00 Einsöngur: Magnús Jónsson syng-
ur fslenzk lög; Ólafur Vignir Alberts-
son leikur á pfanó.
20.20 Sumarvaka
a. Þegar ég var drengur
Þórarinn Helgason frá Þykkvabæ byrj-
ar á ný að rifja upp sítthvað frá æsku-
árunum.
b. Hlekkja hljómar
Höskuldur Skagfjörð les Ijóð eftir Lúð-
vfgT. Helgason.
c. Þáttur af tveim þingmönnum Vest-
mannaeyinga frá Nýjabæ
Haraldur Guðnason bókavörður segir
frá.
d. Kórsöngur
Sunnukórinn á fsafirði syngur við und-
irleik Hjálmar H. Ragnarssonar; Ragn-
ar H. Ragnar stj.
21.30 Ctvarpssagan: „Árminningar“ eft-
ir Sven Delblanc
Heimir Pálsson fslenzkaði. Þorleifur
Hauksson les (16).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
I ferðahug
Umsjón: Einarörn Stefánsson.
Á skfánum
MIÐVIKUDAGUR
14. ágúst 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Róbinson Krúsó
Bresk teiknimynd úr flokki mynda,
sem gerðar eru eftir frægum skáld-
verkum.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
21.15 Fleksnes
Sjónvarpsleikrit úr gamanleikjaflokki
eftir bresku höfundana Ray Galton og
Alan Simpson.
Heilsuhælið Biovita
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
(Nordvision — Norska sjónvarpið)
21.45 Stéttaskiptíng —
Breskt þjóðfélagsmein?
Dönsk heimildamynd um stétta-
skiptingu f Bretlandi.
Þýðandi og þulur Ellert Sigurbjörns-
son.
(Nordvision — Danska sjónvarpið)
22.30 Dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
16. ágúst 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Lögregluforinginn
Þýskur sakamálamyndaflokkur.
Lfk f mýrarfeni
Þýðandi Brfet Héðinsdóttir.
21.25 Balzac
Frönsk heimildamynd um rithöfund-
inn Honoré de Balzac (1799—1850) og
æviferil hans.
Þýðandi Kolbeinn Sæmundsson.
22.45 Nútfmatónlist
Halldór Haraldsson kynnir.
23.45 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
15. ágúst.
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15, og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl. 8.45:
Kristfn Ólafsdóttir lýkur lestri sögunn-
ar „Dfsu frænku“ eftir Stefán Jónsson.
Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl.
9.45. Létt lög milli liða.
Við Sjóinn kl. 10.25: Ingólfur Stefáns-
son ræðir við Sigurð Magnússon skip-
stjóra frá Eskifirði; þriðji og sfðasti
þáttur.
Morgunpopp kl. 10.40.
Hljómplötusafnið kl. 11.00 (endurtek-
inn þáttur G.G.).
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.00 A frfvaktinni
Sigrún Sigurðardóttir kynnir óskalög
sjómanna.
14.30 Sfðdegissagan: „Katrfn Tómásdótt-
ir“ eftir Rósu Þorsteinsdóttur. Höfund-
ur les. (10)
15.00 Miðdegistónleikar:
Sinfónfuhljómsveitin f Minneapolis
leikur „Capriccio Ita!ien“ op. 45 eftir
"Tsjafkovský; Antal Dorati stjórnar.
Nikolai Petroff og Alexei Sjerkasoff
leika Fantasfu fyrir tvö pfanó op. 5
eftir Rakhmaninoff.
Mstislav Rostropovitsj leikur með
Rfkishljómsveitinni f Moskvu Konsert-
rapsódíu fyrir selló og hljómsveit eftir
Katsjatrúrfan; E. Svetlanov stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.25 Popphornið
17.10 Tónleikar.
17.30 f leit að vissum sannleika — við-
dvöl f Bangkok
Dr. Gunnlaugur Þórðarson flytur
ferðaþætti. (7).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt má!
Helgi J. Halidórsson cand. mag. flytur
þáttinn.
19.40 Á fimmtudagskvöldi
Vilmundur Gylfason sér um þáttinn.
20.25 Leikrit: „Sólarlftið sumar" eftir
Wynyard Browne
Þýðandi Þorsteinn ö. Stephensen.
Leikstjóri: Gfsli Halldórsson.
Persónur og leikendur:
Ungfrú Loder....Margrét Ólafsdóttir
Gisela Wallsteen ...........Guðrún
Ásmundsdóttir
Stephen Hadow........Sigmundur örn
Arngrfmsson
Frú Hadow Guðbjörg Þorbjarnardótt-
ir
Judy van Haan .........Anna Kristfn
Arngrfmsdóttir
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Sólnætur“ eftir
Sillanpáá
Baldur Pálmason les þýðingu Andrés-
ar Kristjánssonar. (7).
22.35 Mannstu eftir þessu
Tónlistarþáttur f umsjá Guðmundar
Jónssonar píanóleikara.
23.20 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok.
*
21.45 Iþróttir
Myndir og fréttir frá erlendum og inn-
lendum fþróttaviðburðum.
Dagskrárlok óákveðin.
LAUGARDAGUR
17. ágúst 1974.
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Læknir á lausum kili. Breskur
gamanmyndaflokkur
Sfðdegisraunir
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
20.55 Strengir slegnir
Tveir bræður, Sergio og Edwardo
Abreu, leika saman á gftara lög eftir
ýmsa höfunda. (Nordvision — Finnska
sjónvarpið)
21.15 Hvaðer hægt aðgera?
Fræðslumynd frá Sameinuðu þjóðun-
um um ráðstafanir, sem gerðar eru til
að koma f veg fyrir tjón af völdum
jarðskjálfta, eldgosa og annarra nátt-
úruhamfara. Þýðandi og þulur Krist-
mann Eiðsson.
21.40 Elmer Gantry
Bandarfsk bfómynd frá árinu 1960,
byggð á sögu eftir Sinclair Lewis.
Leikstjóri Richard Brooks.
Aðalhlutverk Burt Lancaster, Jean
Simmons og Arthur Kennedy.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
Aðalpersónan, Elmer Gantry, er
bandarfskur farandprédikari seint á
öldinni sem leið. Hann er sjálfur meir
en lítið blendinn f trúnni, en prédikan-
ir hens hrffa almenning með meiri
krafti en hann gat sjálfan órað fyrir.
23.35 Dagskrárlok