Morgunblaðið - 21.08.1974, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. AGUST 1974
Gæslumenn samþykktu samningana:
Topp-
stykkin
í lagi
Liðsmenn hljómsveitarinnar Nazareth vildu greini-
lega vera sem bezt til hafðir á hljómleikunum, sem
haldnir voru í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Þessa
mynd tók Ijósmyndari Mbl. RAX þegar verið var að
snyrta og snurfusa dýrmæt toppstykki þeirra félaga í
Hárhúsi Leó fyrir hljómleikana í gær.
— Kýpur
Framhald af bls. 1
hryðjuverk, sem Grikkir hafi
framiö ,,í nafni lýðræðis".
Arthur Hartmann, aðstoðar-
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sagði á fundi hjá utanríkis-
málanefnd öldungadeildarinnar,
að Bandaríkjastjórn hefði vísað á
bug öllum kröfum um, að hún
hætti stuðningi við Tyrki vegna
Kýpurdeilunnar. Sagði ráðherr-
ann, að það væri nauðsynlegt fyr-
ir Bandaríkin að vera í aðstöðu til
að hafa áhrif á alla aðila til að
reyna að greiða fyrir samkomu-
lagi. Ráðherrann sagði, að Bulent
Ecevit, forsætisráðherra Kýpur,
hefði fullvissað Bandaríkjastjórn
um, að Tyrkir myndu hætta hern-
aðaraðgerðum og ganga til samn-
inga á ný. Ráðherrann sagði, að
Bandarfkjastjórn teldi nú, að
hættan á styrjöld milli Grikk-
lands og Tyrklands væri yfirstað-
an en viðurkenndi, að ráðamenn í
Washington hefðu um tfma óttazt
mjög, að til styrjaldar kæmi.
Norskur kór
W
til Islands
t DAG kemur til landsins
norskur kór, Veituet
Musikkonservatoriums
kammerkor, en hann er frá
samnefndum tónlistar-
skóla í Osló. í kórnum eru
ungmenni á aldrinum
18—22 ára, en kórinn mun
dvelja hér í 9 daga. Hann
er hér í boði kórs Mennta-
skólans við Hamrahlíð.
Þessi norski kór mun halda tón-
leika víða um land. í Reykjavík
syngur hann 24. ágúst f Norræna
húsinu og 29. ágúst í Háteigs-
kirkju, aðgangur ókeypis. Þá mun
hann m.a. syngja á Húsavík,
Akureyri, Skálholti, Logalandi í
Borgarfirði og Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit.
Stjórnandi kórsins er Tor
Shauge, og f för með kórnum er
orgelleikari, Johan Varen Vig-
land, sem leikur undir hjá honum
og leikur auk þess einleik f Dóm-
kirkjunni 22. ágúst kl. 21.
Hussein konungur
Hussein
lenti á
Keflavíkur-
flugvelli
HUSSEIN Jórdanfukonungur
lenti með frfðu föruneyti á Kefla-
vfkurflugvelli klukkan 4.55 að-
fararnótt s.l. mánudags. Flaug
hann vél sinni sjálfur að sögn, en
hún er af gerðinni Boeing 727.
Hafði Hussein hér tæplega
klukkutfma viðdvöl.
Konungur var að koma úr opin-
berri heimsókn til Bandaríkj-
anna, en hann varð fyrstur þjóð-
höfðingja til að heimsækja Ford
forseta. Konungur var hinn alúð-
legasti þegar hann kom inn f flug-
stöðvarbygginguna á Keflavíkur-
flugvelli ásamt 16 manna fylgdar-
liði. Hann heilsaði því fólki með
handarbandi, sem þar var fyrir og
fór síðan í kaffiteríuna og fékk
sér'kaffi og kökur. Honum var
boðin sérstök þjónusta, en hann
afþakkaði hana brosandi.
Leiðrétting
I frétt um landhelgisdóm á
Höfn í Hornafirði fyrir skömmu
kom það fram, að um væri að
ræða fyrsta dóm hins nýja lög-
reglustjóraembættis á staðnum.
Hið rétta er, að um er að ræða
fyr&ta landhelgisdórainn.
Evrópumót í
sjóstangveiði
á Akureyri
Hljóta menntun sam-
bærilega sjúkraliðum
FRIÐRIK IHUGAR ÞATT-
TÖKU í NÆSTA SVÆÐAMÓTI
t DAG hefst á Akureyri Evrópu-
mót f sjóstangveiði. Sfðast var
haldið hér Evrópumót árið 1968.
Mótið stendur f 3 daga, og eru
Verðlaunin, sem keppt er um á
Evrópumótinu f sjóstangaveiði.
Ljósm. Mbl. Br.H.
þátttakendur um 100 talsins, þar
af helmingur útlendingar.
Mótið telst haldið á Akureyri,
þótt róið verði frá Dalvík, því
Sjóstangveiðifélag ''Akureyrar
hefur veg og vanda að því, með
aðstoð Sjóstangveiðifélags
Reykjavíkur. Róið verður á 15
bátum, og munu þeir halda sig á
miðum við Hrísey og í fjarðar-
mynninu. Fjöldamörg verðlaun
eru veitt, sem erlend fyrirtæki
hafa gefið til keppninnar.
Evrópumót er haldið árlega, og
hafa Islendingar verið virkir þátt-
takendur I þeim, og hafa þeir oft
unnið til verðlauna. Eins og fyrr
segir var Evrópumót sfðast haldið
hér árið 1968, og voru þátttak-
endur þá mun fleiri, eða urp 175.
1 FYRRINÓTT tókust samningar
f kjaradeilu gæzlumanna á
Kleppsspftala og fjármálaráðu-
neytisins. Voru samningarnir
samþykktir á fundi gæzlumann-
anna f gær með 14 atkvæðum
gegn 5.
Fundarmenn voru ekkert yfir
sig hrifnir af samningunum,"
sagði Jósteinn Kristjánsson, einn
úr samninganefnd gæzlumanna í
samtali við Mbl. í gær. Að sögn
Jósteins fá þeir nú strax hækkun
um einn flokk, úr 12. flokki í 13.
flokk. Síðan eiga þeir, sem hafa
unnið lengur en eitt ár, kost á að
fara á 3—4 mánaða námskeið hér
heima á fullum launum. Að þvf
loknu hljóta þeir menntun sam-
bærilega menntun sjúkraliða, og
hækka jafnframt upp f 14. launa-
flokk.
Eins og menn rekur Ifklega
minni til, hættu gæzlumenn störf-
um við Kleppsspítalann um s.l.
mánaðamót, og varð af þeim sök-
um alvarlegt ástand á stofnuninni
um skamma hríð, eða þar til
gæzlumennirnir samþykktu að
vinna í 20 daga gegn vissum skil-
yrðum, m.a. þeim, að skriður
kæmist á samningaviðræður.
Hafa verið haldnir þrír fundir
síðan, og náðist samkomulag á
þeim síðasta í fyrrinótt. Ef sam-
komulag hefði ekki náðst, hefðu
gæzlumennirnir hætt störfum í
nótt. Til þess kom ekki, og er
starfsemi spítalans því með eðli-
legum hætti.
Vantaði bara
rauðan dregil
A SUNNUDAGINN var framið
innbrot f heildverzlun eina í borg-
inni. t fyrstu saknaði eigandinn
lftils, en á mánudaginn fóru að
koma inn innstæðulausar ávísan-
ir merktar fyrirtækinu, auk þess
sem þær voru stimplaðar með
stimpli fyrirtækisins.
Ein slík kom fram hjá flug-
félagi einu, að upphæð 200 þús-
und krónur. Hafði maður nokkur
komið til flugfélagsins og beðið
um einkaflugvél til Kaupmanna-
hafnar. Gaf hann út rfflega ávís-
un á staðnum. Þegar vélin hafði
verið nokkra stund í loftinu fóru
afgreiðslumennirnir að kanna
málið betur, og kom þá hið sanna
í ljós. Voru þegar f stað gerðar
ráðstafanir til að stöðva vélina, og
náðist samband við hana þegar
hún átti aðeins eftir 30 mfnútna
flug til Kaupmannahafnar. Vél-
inni var umsvifalaust snúið við,
og lenti hún í Reykjavfk skömmu
fyrir kvöldmat á mánudaginn.
Beið mannsins þar fríð fylking
ríkisstarfsmanna, og höfðu við-
staddir á orði, að aðeins vantaði
rauðá dregilinn. Fékk maðurinn
Framhald á bls. 16
fram, að hann mun nota tfmann
fram að mótinu til að stúdera
skák. Hann sagði, að það hefði
verið meiningin að hann
stúderaði skák og æfði sig f
byrjun þessa árs, en hvert mót-
ið hefði rekið annað, og þvf
hefði Iftill tfmi gefizt til slfkra
hluta. Þvf ætlaði hann að nota
til þess seinni hluta ársins.
Eftir Ólympfumótið f Nissa
varð Friðrik að leggjast á
sjúkrahús, og af þeim sökum
varð hann að hætta við þátttöku
f IBM-skákmótinu, sem haldið
var f Amsterdam f júlf s.l. Frið-
rik hefur .einnig fengið boð um
að taka þátt f skákmótum á
Costa Brava 6.—20. september
og Barcelona 19. október — 3.
nóvember, en hann hafnaði
þeim boðum. Hins vegar verður
Guðmundur Sigurjónsson
meðal þátttakenda á Costa
Brava-mótinu. Auk hans verða
þar sterkir skákmenn, t.d.
Anderson, Larsen, Pomar og
Gligorich. Guðmundur mun f
nóvember taka þátt f skákmóti
í Sovétrfkjunum, en hann fékk
boð um það mót þegar hann
tefldi á Ólympfumótinu fyrr f
sumar. Guðmundur hefur eins
og Friðrik helgað sig skákinni
eingöngu, og hann býr sig nú af
kappi undir mótíð á Costa
Brava.
Eins og fram kemur f byrjun
fréttarinnar, mun frammistaða
Friðriks á Madridmótinu skera
úr um hvort hann heldur áfram
að stunda skák eingöngu eða
ekki. Ef svo fer, verður hann
með á næsta svæðamóti, sem
hefst f byrjun næsta árs.
Svæðamót er fyrsta skrefið að
heimsmeistaratitli. Komist
Friðrik áfram, tekur hann þátt
f millisvæðamóti og loks f
Framhald á bls. 16
FRIÐRIK Ólafsson stórmeist-
ari hefur þekkzt boð um að taka
þátt f afar sterku skákmóti,
sem hefst f Madrid á Spáni 20.
nóvember n.k. A móti þessu
verða 18 þátttakendur, allt stór-
meistarar. Annar fslenzkur
skákmaður, Guðmundur Sigur-
jónsson, alþjóðlegur meistari,
mun taka þátt f sterku skák-
móti á Costa Brava á Spáni,
sem hefst 6. september n.k., og
f nóvember verður hann með á
sterku móti, sem haldið verður
f Sovétrfkjunum.
Friðrik Ólafsson tjáði Mbl. f
gær, að frammistaða hans á
mótinu á Spáni myndi lfklega
Gligorich og Ljubojewich frá
Júgóslavfu, Anderson frá Svf-
þjóð, Pomar og Diez del Corral
frá Spáni verða meðal þátttak-
enda. Þrfr stórmeistarar koma
frá Sovétrfkjunum, Ifklega
Spasskf, Petrosjan, auk
Karpovs eða Kortsnoj, en það
fer eftir þvf hvor þeirra sigrar f
einvfginu f næsta mánuði. Sá
þeirra, sem tapar, verður að
öllum lfkindum með f þessu
móti. Einhverjir stórmeistarar
koma frá Bandarfkjunum, og
miklar Ifkur eru á þvf, að Port-
ich, Larsen og Mecking verði
með.
1 samtalinu við Friðrik kom
FRIÐRIK OG GUÐMUNDUR
TAKA ÞÁTT í STERKUM
SKÁKMÓTUM Á NÆSTUNNI
skera úr um hvort hann helgaði
sig skákinni næsta ár, eins og
hann hefur gert á þessu ári. Ef
það verður úr, mun Friðrik
taka þátt f svæðamótinu f byrj-
un næsta árs, en það er fyrsta
skrefið að þvf marki að fá rétt
til að skora á heimsmeistarann.
Fríðrik sagði f samtalinu við
Mbl., að mótið f Madrid væri
haldið til að minnast þess, að
400 ár væru liðin sfðan fyrsta
alþjóðlega skákmót heimsins
var haldið, en það var f Madrid
1574. Mótið nú mun standa frá
20. nóvember til 16. desember,
og teflt vcrður á Castellana
hóteli. Eins og fyrr segir verður
þetta mót sérstaklega vel
mannað, alls 18 stórmeistarar.
Þegar er ljóst, að Friðrik, Hort
og Smejkal frá Tékkóslóvakfu,