Morgunblaðið - 21.08.1974, Síða 10

Morgunblaðið - 21.08.1974, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1974 HÉR hefst greinaflokkur um alþjóSaviðskipti og stjórnmál eftir Braga Kristjónsson. FjallaS verður um hinar miklu breytingar, sem orSið hafa á verkaskiptjngu þjóðanna. Rysjótt samskipti Banda- rfkjanna og Efnahagsbandalags Evrópu og bandalagsland- anna innbyrðis. Aukið samstarf Austur- og Vestur-Evrópu og annarra viðskiptavelda; um hina nýju umdeildu sam- starfssamninga og tæknisamstarf kapitalisma og kommúnisma. Innri mál Efnahagsbandalagsins og þau vandamál, sem orkukreppan og hækkað orkuverð hefur valdið allri framleiSslu og hagvexti. FjallaS verSur um gjaldeyrismál heimsins og þá deiglu, sem þau eru nú I; um hinn nýja auð, oltuauðinn. sem safnazt hefur á fáar arabískar hendur. Væntanlega évöxtun sama auðs í hinum kapitaliska og kommúniska fjármálaheimi. Fleira margt verður tekið til meðferðar T greinum þessum; allt varðar hin náskyldu mál; milliríkjaviðskipti og alþjóðastjórnmál. Atlantshafið Auk þess var þetta á einkar viðkvæmri stundu, þegar Bandaríkin — í samræmi við alheims- hlutverk sitt og ábyrgð — voru í óða önn að reyna að koma á friði milli hinna stríðandi aðila Vissulega var sú viðleitni líka Evrópu I hag með tilliti til orkumála. Tveim dögum siðar var þessu þó kippt í liðinn á NATO-fundi í Brussel, þegar Kissinger hélt sögufrægan hrað- fund með utanríkisráðherrunum níu á Hiltonhótelinu. Franski ráðherrann, Jobert, talaði sem fyrr mest allra og sagði eftir fund- inn hin áhugaverðu orð: „Bandaríkin stefna að sömu Evrópu og við." Pílagrímsræðan. Næstu atburðir staðfestu vægast sagt ekki þessa fullyrðingu Daginn fyrir leiðtogafund Efnahagsbandalags ríkjanna í Kaupmannahöfn 13 desem- ber 1973 sá Kissinger aftur ástæðu til að gefa bandalaginu dálitla ádrepu Það gerði hann i svokallaðri pilagríms- ræðu i London, þar sem hann sagði m a.: „Sumir Evrópumenn álita, að mikilvægi þeirra aukist i samræmi við firrð þeirra frá Bandarikjunum." Hann sagði ennfremur, að það væri mark- leysa, að millirikjaviðskipti. varnarmál og efnahagsmál ættu alltaf samleið Og hann deildi mjög á, að lönd Efna- hagsbandalagsins létu undir höfuð leggjast að ráðfæra sig við Bandaríkin, létu nægja að gefa upplýsingar eftir á, t d yfirlýsingin frá 6 nóvember. Meðan þessu fór fram hafði orku- deilan brotizt út og var í algleymingi og Kissinger gerði það að tillögu sinni, að orðið um neinar bráðar og raunhæfar aðgerðir að ræða af hálfu Efnahags- bandalagsins. Frakkar vildu láta „skil- greina" vandamálin og gera þau Ijós hinum þátttakendunum, en alls engar ákvarðandi ráðstafanir máttu sjá dags- ins Ijós og Efnahagsbandalagið skyldi varðveita óskertan samningsrétt sinn gagnvart olíuframleiðendunum. Ef nauðsynlegt myndi reynast að fylgja eftir Washington-fundinum væri rétti vettvangurinn, að áliti Frakka, annað- hvort Sameinuðu þjóðirnareða OECD Hin Efnahagsbandalagsríkin átta vildu gjarna ganga lengra til móts við Nixon Það hlaut að vera gagnlegt fyrir aðila að undirbúa aðgerðir til að ráða bót á öllum þeim vandamálum, sem óhjákvæmilega hlytu að fylgja I kjölfar orkuskorts Svo sem áhrif hans á efna- hag, framleiðslu og greiðslugetu flestra þjóða heims, vegna dýrari orku og e.t.v. orkuskorts. Einnig var mikil- vægt að taka afstöðu til, hvernig bregðast skyldi við þeim milljarðaupp- hæðum, sem olluframleiðslulöndin fengju I hendur. Samningar um fram- tlðarafhendingar og traust verð og rannsóknir á nýjum orkulindum og orkugjöfum voru Itka þýðingarmikil mál, en vegna neikvæðrar afstöðu Frakka varð hið sameiginlega útspil mjög loðið Það einkenndist fyrst og fremst af því að forðast hvers kyns ágreining við olluframleiðslulöndin. Eining Efnahagsbandalagsrikjanna náði ekki lengra en að dyrum fundar- salarins i Washington. Þátttakendur voru auk þeirra: Bandarikin, Japan, Kanada og Noregur. Frakkar urðu strax viðskila við bandamenn slna og margir létu stór orð falla, m.a. þáverandi fjármálaráð- fannst súrt að fá reykinn af réttunum, þegar búið væri að bera þá fram fyrir aðra. Um yfirlýsinguna um forsendur samstarfsins sögðu Bandrikjamenn. að yfirlýsing, sem við þáverandi aðstæður hefði farið i gegnum alla tilheyrandi skriffinna Efnahagsbandalagsins, væri í sjálfu sér litils eða einskis virði Þar væri engu hægt um að breyta Samtímis því að Nixon lét í Ijós vonbrigði sin i orðsendingu til vinar sins Willy Brandts hófu þeiraðmunn höggvast svo neistar flugu, utanríkis- ráðherrarnir Kissinger og Jobert. Jobert lét í Ijós, að það væri alls ekki mikilvægt fyrir Frakkland að hafa bandariskar hersveitir i Evrópu. Fyrir Frakka væri sjálfstæði og stolt þjóðar miklu meira virði Einhverra hluta vegna féllu þessi orð hans rétt fyrir fund þeirra Pompidous og Brezhnevs á Krímskaga. Kissinger lét ekki á sér standa með svarið og sagði, að Evrópumenn væru miklu ósamvinnuþýðari en kommúnist- ar og i rauninni hefði engin starfhæf ríkisstjórn verið í Evrópu siðan í fyrri heimsstyrjöldinni Þessi ógætni Kissingers var af vel- viljuðum fréttastofnunum álitin stafa af persónulegum ástæðum, þar sem hann var í þann mund að ganga i hjónaband En í þeirri Evrópu, sem i marga áratugi hefur einkennzt af stjórnar- kreppum og naumum meirihlutastjórn- um, þótti þetta með öllu óviðeigandi Og doktor Kissinger baðst afsökunar — eftir brúðkaupið. Storminn lægir. Endapunkturinn i þessu yfirlýsinga- Þrœtur Efnahagsbandalags Evrópu og Bandaríkjanna „Við gerðum okkur vonir um, að pólitisk eining myndi geta náðst eftir að samstaða hafði tekizt i efnahagsmál- um Við héldum, að sameinuð Evrópa myndi verða til að létta hinar mörgu alþjóðlegu skuldbindingar okkar i Atlantshafssamstarfinu " Það var með þessari vonbrigðastunu í upphafi ársins, sem átti að verða „ár Evrópu", sem Henry Kissinger hóf þráteflið yfir Atlantshafið hinn 23 apríl 1973 á frægum blaðamannafundi Sú þræta varð sifellt magnaðri eftir þvi sem á árið leið í sömu ræðu lagði Kissinger áherzlu á alheims ábyrgð og skuldbindingar og hagsmuni Bandarikjanna og benti á andstæðurnar i stefnu þeirra og þjóða Efnahagsbandalags Evrópu: Evrópu- þjóðirnar létu sér ávallt nægja að hugsa eingöngu um sín eigin, stað- bundnu markmið og hagsmunamál Hann lýsti vonbrigðum sinum yfir, að Evrópa vildi ekki starfa nánar með Bandaríkjunum í Atlantshafssam- starfinu. Hann hélt mjög fram þeirri skoðun að stefna bæri að miklu nánara samstarfi og benti á sambandið með millirikjaviðskiptum og öryggismála- stefnu þjóðanna. Hann sagði lika — þetta var þó átta mánuðum fyrir oliu- og orkudeiluna — að einn af hornsteinunum í sliku sam- starfi ætti að vera sameiginleg afstöðu- mótun gagnvart olíuframleiðendunum og samsömun orkupólitiskra hags- muna Bandarikjanna. Evrópu og Japans í Evrópu voru menn dálitið hikandi að kyngja öllum þessum nýju hug- myndum I einum bita Sumir hnutu lika illilega um þá áminningu, að nær- vera bandariskra hersveita i Evrópu væri m.a komin undir. viðskipta- ivilnunum af hálfu Efnahagsbandalags- ins. Það var Ijóst, að ræða þessi var boðskapur frá Bandarikjaforseta Ekki aðeins vangaveltur prófessor Kissingers Nauðsynlegt varð því að gefa svar, en mikill vandi reyndist að komast að sameiginlegri niðurstöðu Gaullistar voru trúir við andstöðu hins látna foringja gegn hvers konar aukn- um samskiptum sem gætu þýtt meiri bandarisk áhrif Forðast bæri þá stöðu, sem leitt gæti til þess, að Bandarikin gætu sett löndum Efnahagsbandalags- ins neins konar kosti. Þetta væru lönd, sögðu Frakkar, sem með misjöfnum styrkleika vildu þó öll standa fast á utanríkispólitísku sjálfstæði sinu Hinn sameiginlegi texti, sem utan- ríkisráðherrarnir náðu samstöðu um hinn 10 desember. var lika mjög varkár i orðum og mjög almenns efnis Ætlunin var, að plagg þetta yrði undirstaða viðræðna, sem fyrirhugaðar voru við heimsókn Nixons, sem þá var ráðgerð i október eða nóvember- mánuði. Bandarikjamenn vildu fá skýrari útlistanir á tilteknum samstarfs- verkefnum og óskuðu auk þess að fá fleiri yfirlýsingar. Yfirlýsingu um sam- starf hinna Atlantshafsþjóðanna og þri- þætta yfirlýsingu frá Efnahagsbanda- laginu, Japan og Bandarikjunum. Nú var skipuð nefnd, eins og venja er, þegar vandræði steðja að Þetta var kölluð starfsnefnd: með þátttöku ráðu- neytisstjóra i utanrikisráðuneytum Efnahagsbandalagsrikjanna og tveggja Bandarikjamanna á sama plani Þessi merka nefnd hefur ekki enn lokið störf- um, enda torveldaði hin pólitíska orra- hrlð, sem nú fór i hönd, mjög allt starf þessara samvizkusömu embættis- manna við að koma saman trúverðug- um texta um kærleiks- og bróðurþel Evrópu og Bandaríkjanna. Fyrst fór það þó alvarlega úr böndunum, þegar utanrikisráðherrar Efnahagsbandalags- ríkjanna — undir verulegum þrýstingi frá Aröbum — gáfu út hina frægu yfirlýsingu 6. nóvember 1973 um Austurlönd nær, þar sem þeir hvöttu ísraela til að rýma hin herteknu svæði frá i strlðinu 1 967. Kissinger varð nú æðþstyggur yfir, að Efnahagsbandalagið hefði þannig látið undan án þess fyrst að ráðfæra sig við stóra bróður hinum megin við Evrópa, Bandaríkin og Japan skyldu bregðast sameiginlega við þessum vanda og setja niður virka starfsnefnd i orkumálunum. Eitt helzta verkefnið átti að vera að samræma afstöðu orku- kaupenda til framleiðenda í bandalagi orkuseljenda. OPEC Með þessu vildu Bandarikjamenn láta af venjulegu diplómatasnakki, en í þess stað reyna á samstarfsvilja Evrópumanna á afmörkuðu sviði, þar sem þó var um að tefla afar þýðingar- mikla hagsmuni, þ e útvegun orku og greiðslu sömu orku. Sllkt tilboð frá Bandarikjunum var reyndar æði stór- huga, því að þau voru tiltölulega betur sett en aðrir heimshlutar — með eigin orkulindir í landi — og líkleg til að standast raunina betur en Evrópa og Japan. Enda hefur það komið i Ijós. Orkuráðstefnan. Þegar tilboðið hafði fengið að gerjast yfir hátíðirnar kom boð frá Nixon 1 1 janúar 1974. Hann vísaði til „pila- grimsræðunnar" og bauð til fundar í Washington um orkumálin hinn 11. febrúar 1974 á utanrikisráðherraplani. Það urðu erfiðar hríðar fyrir Efna- hagsbandalagsrikin að setja saman þakkarbréfið. Vitanlega var ekki hægt að afþakka, en Frakkar voru stífir á, að hvergi mætti bregða fyrir neinum ánægjuvotti. Jafnfram átti að gera Bandarikjunum það Ijóst, að ekki gæti herra Þýzkalands, Helmut Schmidt Hann lýsti þeirri skoðun Þjóðverja, að ágreiningurinn ógnaði forsendum áframhaldandi starfs Efnahagsbanda- lagsins og dró ekki dul á, að ef á reyndi myndi Þýzkaland fremur fylgja Banda- rikjunum en Frakklandi. Frakkar skárust úr leik á ráðstefn- unni, en hin rikin tólf samþykktu að skipa eina nefndina enn, sem m.a. var falið það hlutverk að leggja drög að ráðstefnu með olíulöndunum. Ósamvinnuþýðir Evrópumenn. Um leið og þessi starfshópur byrjaði að vinna að nákvæmlega sömu vandamálum og fjallað er um í orku- nefnd Efnahagsbandalagsins, sem stofnað var til eftir toppfundinn í Kaup- mannahöfn, i OECD og viðar, unnu Frakkar að þvl öllum árum með venju- legum þráa og lagni að Efnahags- bandalagið færi að tillögum þeirra í orkumálunum Þeir fengu þvi m.a áorkað, að Efnahagsbandalagið ákvað 4. marz að taka uppp viðræður við Araba um olíumálin. Sama dag luku ráðherrar bandalags- ins við uppkast sitt að yfirlýsingu um forsendur Atlantshafssamstarfsins, þar sem farið er fram á frekari viðræður við Bandarikjamenn í báðum þessu tilvikum þótti Banda- rikjamönnum þeir hlunnfarnir og striði var ræða Nixons I Chicago 1 5. marz sl. Þar afþakkaði hann boð frá Willy Brandt um að varpa með nær- veru sinni Ijóma yfir 25 ára afmælis- dag NATOs 1 0 dögum síðar. Þá átti að undirrita yfirlýsingu um forsendur og grundvallaratriði Atlantshafssamstarfs- ins almennt og auk þess aðra yfirlýs- ingu, þar sem lögð var sérstök áherzla á hin ýmsu vafaatriði og vandamáj í þessu varnarsamstarfi. Nixon lýsti óánægju með báðar yfirlýsingarnar. Og aftan I tölu slna hnýtti hann bitur- yrðum, sem af sumum voru túlkuð sem ógnun frá forsetanum um að kalla bandarískar hersveitir heim frá Evrópu. Þetta leiddi til írafárs i VesturÞýzka- landi, sem hýsir 210 þúsund banda- ríska hermenn og finnst það harla gott Aftur var það ítrekað af þýzkri hálfu, að samstarfið við Bandaríkin væri horn- steinninn i utanríkismálastefnu Þjóð- verja Til að reyna að bæta ástandið i Efnahagsbandalaginu bauð Scheel ut- anríkisráðherra Þýzkalands starfs- bræðrum sinum með frúm og nokkrum völdum ráðgjöfum til árbits í höllinni Gymnich Það tókst svo vel, að Jobert lét lokka sig til að samsinna yfirlýsingu um, að enn væri bjart útlit fyrir gott samstarf við Bandarikin. Eftir þennan velheppnaða árbit hafa ekki fleiri stóryrtar yfirlýsingar flogið yfir Atlantshafið. Leiðtogar landanna hafa hins vegar gert ýmislegt til að bæta sambúðina. Bandarikin hafa lagt trúnað á hið stóryrta tal um samstarfið innan Efnahagsbandalagsins og að Evrópa eigi að tala „einum rómi". Þó hefur það verið svo í málumþarsem mætastólíkir hagsmunir einstakra rlkja innan bandalagsins, að viðkomandi lætur hag bandalagsins lönd og leið Enn er því Efnahagsbandalagið hópur ríkja, sem á við að stríða slíkar innri mótsetningar, að ótrúlega langt er í land með hinn „eina róm" Nýjar stjórnir i Þýzkalandi og Frakk- landi gefa þó til kynna, að aðrar kynslóðir hafi setzt að völdum Willy Brandt hefur verið leystur af hólmi af hinum eljusama Helmut Schmidt, sem er sannfærður um tvennt. eigin hæfni og mikla yfirburði Þýzkalands. Hann er líka ákveðinn i að koma í betra horf sambúðinni. við Bandaríkin. Giscard d'Estaing er ekki haldinn áberandi minna sjálsáliti og kjör hans þýðir allmikið áfall fyrir stefnu gaullista, sem um áratugi hefur valdið vandkvæðum í Atlantshafssamstarfinu. Þessir nýju herrar á meginlandi Evrópu geta ásamt hinni varkáru stefnu Bretlands, sem virðist þó hafa aukna tilhneigingu til samvinnu við Bandarikin, orðið til að gera alvöru úr fyrrnefndum sam- starshugmyndum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.