Morgunblaðið - 21.08.1974, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 21.08.1974, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. AGUST 1974 „Bandarísk sijórnmál í deiglunni” Undanfarna daga hefur hvert reiðarslagið af öðru dunið yfir Rirhard Nixon, 37. forseta Randarfkjanna. Óvissa f banda- rfskum stjórnmálum hefur og aukizt mjög eftir sfðustu at- burði. Atburðarásin hefur ver- ið svo hröð, að evrópskum lesendum, sem Iftt þekkja sér- kenni bandarfskra stjörnmála, hefur veitzt erfitt að átta sig. Þvf var það, að Hannes Gissurarson lagði nokkrar spurningar fyrir Karl Rove, formann Landssamtaka repúblikanastúdenta f Banda- rfkjunum, þegar leiðir þeirra iágu saman f Kaupmannahöfn. Og sú fyrsta er: Hvaða áhrif hefur Watergatemálið á Repúblikanaflokkinn og fylgi hans? — Líklega lítil sem engin. Gæta verður að því, að Repú- blikanaflokkurinn sem slíkur átti ekki aðild að kosningabar- áttu Nixons. Hún var verkefni sérstakrar nefndar undir forsæti Johns Mitchells, C.R. P. Misferli það, sem upp komst um í kosningabaráttunni, er þvf ekki unnt að skrifa á reikning Repúblikanaflokksins. Ef hann hefði haft hönd í bagga með henni, hefði ekki farið sem fór. Foringjar Repúblikanaflokks- ins, innan þings sem utan, hafa manna mest látið sig málið varða og viljað komast til botns f því sem fyrst. Líklega verða neikvæðustu áhrif Watergate- málsins aukið vantaust al- menningsá stjórnmálamönnum og sinnuleysi um stjórnmál. Hafa aðferðir á borð við þær, sem menn Nixons notuðu f kosningabaráttunni, tfðkazt f mfklum mæli f bandarfskum stjórnmálum? — Sums staðar. Þar hafa leiðtogar Demókrataflokksins síður en svo legið á liði sfnu. 1 Chicago, þar sem Daley borgar- stjóri, sem er demókrati, og lið hans hafa töglin og hagldirnar, hefur margt gerzt verra en Watergatemálið. Tugþúsund- um atkvæða hefur verið komið undan og annað eftir því. Þegar Lyndon Baines Johnson barðist fyrst I prófkjöri til öldunga- deildarinnar, var kosningabar- átta hans fræg fyrir vafasamar aðferðir. Jóhn Kennedy var kjörinn forseta 1960 með litl- um atkvæðamun, og líkur voru á, að hann væri fenginn með ótæpilegri beitingu flokksvalds demókrata. Einnig má minna á, að Robert Kennedy, sem var dómsmálaráðherra í forsetatið bróður sfns, skipaði t.d. að láta hlera sfma Marteins Lúters Kings. Hvert er mat þitt á Richard Nixon, skapgerð hans og ferli? — I stjórnmálum skiptir stefna manna og störf meira máli en vangaveltur um per- sónulega eiginleika. Richard Nixon hefur get margt vel í forsetatíð sinni, jafnt innan Bandarfkjanna sem utan. Hann hefur haft forystu um bætta sambúð stórveldanna, aukna alþjóðasamvinnu og nauðsynlegt endurmat á sam- starfi vestrænna þjóða. Hann hefur einnig beitt sér fyrir aukinni dreifingu valds til fylkjanna, t.a.m. með breyting- um á skattakerfinu o.fl. Ég hef hins vegar ekki nægilega nákvæmar fréttir af síðustu at- burðum til þess að geta lagt út af þeim og metið afleiðingar þeirra. Hafa fjölmiðlarnir ráðið niðurlögum Nixons? — í Watergatemálinu hafa fjölmiðlar gegnt lykilhlutverki. Stórblöðin bandarísku, útvarps- og sjónvarpsstöðvar eru mjög valdamiklar. Þessir fjölmiðlar eru óháðir stjórnmálaflokkum, t.d. er ekki nema einn fimmti hluti dagblaða háður stjórn- málaflokkum. Þá eru banda- rfskir fjölmiðlar ekki bundnir af jafnstrangri meiðyrðalöggjöf og evrópskir. T.d. er þá aðeins unnt að fá bætur fyrir missagn- ir eða meiðyrði, að takist bein- lfnis að sanna, að efni hafi veriö birt með þeim ásetningi að skaða manninn. Ég hef sjálfur nokkra reynslu af valdi stór- blaðanna. Eitt sinn hafði Washington Post, sem einmitt hefur komið mjög við sögu í Watergatemálinu, rangt eftir mér. Það var reyndar um minniháttar atriði, en það breytir litlu. Ég fór til blaðsins: — Þeir viðurkenndu, að ég hefði á réttu að standa, en neit- uðu að leiðrétta missögnina, sögðu, að það væri ekki frétta- matur. Enn er ótalið, að miklu máli skiptir fyrir stjórnmála- menn, að fjölmiðlar fari um þá mjúkum höndum, kynni þá og störf þeirra vel og rækilega. Þeir geta lagt feril manna í rúst, eyðilagt líf hans og fjöl- skyldu hans, ef þeim býður svo við að horfa, án þess að unnt sé að draga þá til ábyrgðar. Stjórn- málamenn reyna því að halda vináttu við stórblöðin og sjón- varpsstöðvarnar. Barátta þess- ara fjölmiðla gegn Nixon for- seta hefur vafalaust átt sinn þátt í, hvernig komið er fyrir honum. Telur þú, að hamla eigi gegn valdi dagblaðanna með laga- smfð, t.d. strangari ákvæðum um ábyrgð? — Nei, alls ekki. Raunar girða prentfrelsisákvæði bandarfsku stjórnarskrárinnar fyrir allar slíkar frekari tak- markanir. Ég tel, að þennan vanda eigi að leysa með eins konar eigin hömlum dagblað- anna, takmörkunum og reglum, sem þau settu sjálf fréttaflutn- ingi sfnum og málefnalegri um- ræðu. Tómas Jefferson sagði, að hann tæki frjáls blöð fram yfir flest annað. Þar hljómar rödd Bandaríkjamannsins: Með okkur er að finna gróna trú á prentfrelsi, jafnvel í hinum vafasamari myndum þess. Hvernig tekur bandarfsk há- skólaæska hinum miklu við- sjám á vettvangi stjðrnmál- anna? — Hin mikla alda stúdenta- óeirða og mótmælaaðgerða, sem reið yfir á árunum um 1968, er löngu hnigin. Um háskólaæsk- una má segja það sama og al- menning: áhugaleysi á stjórn- málum og almennt vantraust á stjórnmálamönnum hefur auk- izt við síðustu atburði. Skoðana- kannanir á meðal háskóla- stúdenta sýna, að um 20% þeirra styðja repúblikana, 35% demókrata og 45% eru óháðir. Af þeim síðastnefndu má reikna með, að einn þriðjungur- inn sé íhaldssamur, annar hæg- fara og þriðji frjálslyndur. Sfð- an er örlítið brot öfgasinnaðra hægri- og vinstrimanna til. Það hefur einmitt komið mér á — Viðtal við Karl Rove, formann Landssamtaka repúblikana- stúdenta í Bandaríkjunum óvart, hversu mikið fylgi kommúnista virðist vera í ýms- um háskólum i Evrópu. I Bandaríkjunum eru þessir menn nánast hafðir að gaman- málum. Hver heldur þú, að hafi verið ástæðan til hinna miklu mót- mælaaðgerða fyrir um 6 árum sfðan? — Þá stóð Víetnamstríðiö sem hæst, og það kom mjög mikið við ungt fólk. Þá benda hinir kaldhæðnari á, að her- skyldan og kvaðning til víg- stöðvanna hafi átt sinn þátt í hinni ofsalegu andstöðu við Víetnamstríðið. En megin- ástæðan hefur þó verið siðferði- leg. Hver er skoðun þfn á Vfet- namstyrjöldinni? Hún varð Bandarfkjamönnum til mikils álitshnekkis á alþjóðavett- vangi. — ' Bandaríkjamenn áttu aldrei að taka þann þátt f þess- um átökum sem raun varð á. Hinn mikla hlut þeirra í Víet- namstríðinu má rekja til ákvarðana, sem teknar voru eftir rækilega ihugun f forseta- tíð Lyndons Johnsons á ár- unum 1964—1965. Oft hefur mátt heyra gagnrýni vegna meintra stríðsglæpa okkar í Víetnam. Það er og rétt, að ýmsir einstaklingar fóru langt út fyrir þau mörk, sem setja verður strfðsrekstri. En þar var um gerðir einstaklinga að ræða, en ekki hers okkar sem slíks. Þeir, sem beittu glæpsamlegum aðgerðum markvisst, voru Norður-Víetnamar. Hvers vegna flúði ein milljón manna frá Norður-Víetnam til Suður- Víetnams? Hverjir gerðu eld- flaugaárásir á Saigon. En hvers vegna unnu Banda- rfkjamenn þá ekki skjótan og auðveldan sigur, stórveldi gegn smáher? — Hér verð ég að vitna í Maó formann mála mfnu til stuðn- ings, en hann segir, að hvergi sé stórveldi erfiðara að reka styrjöld en við þær aðstæður, sem voru í Víetnam. Ég veit ekki hvern enda átökin f Víet- nam fá að lokum, en aðalatriðið er, að sjálfsákvörðunarréttur víetnömsku þjóðarinnar sé tryggður. Er „Amerfski draumurinn" enn til? Svo sannarlega. Bandarískur rithöfundur sagði fyrir skömmu, að líklega væri ástæðan til þreytu okkar, sinnu- leysis og sjálfskönnunar, hversu við heföum átt miklu brautargengi að fagna. Ég held, að nokkuð sé til f því. En vera má, að margir hafi misst sjónar á þeim mannréttindum og hugmyndum, sem banda- rfskt þjóðfélag er sprottið upp úr. Hvað er framundan f banda- rfskum stjórnmálum? — Bandarísk stjórnmjál eru nú mjög í deiglunni. Demó- kratasamsteypa verkalýðs- hreyfingar, blökkumanna, Gyðinga og fleiri minnihluta, sem völdin hefur haft í Banda- rfkjunum frá tfma Franklíns Roosevelts, er nú að falla sundur. Bandarískir kjósendur hneigjast nú til minni ríkisaf- skipta og lægri skatta, og þá eykst fylgi Repúblikanaflokks- ins. Evrópumenn spyrja oft, hver munur sé á þessum tveimur flokkun. George Wallace segir hann engan, en lfklega er munurinn mestur í afstöðu til ríkisvaldsins og frelsis einstaklingsins, þar sem Repúblikanaflokkurinn vill draga úr og dreifa hinu fyrr- nefnda, en leggur áherzlu á hið síðara. — Hver endanleg niður- staða þessara umbrota verður, veit ég ekki, en Repúblikana- flokkurinn hefur enga ástæðu til svartsýni. TJANING- ARFRELSI 0G GÖTU- STRÁKAMÁL í GREIN Þorvalds Búasonar „Tjáningarfrelsi og götustráka- mál“ í blaðinu 20. ágúst sl. slæddust margar prentvillur. Tvær undirfyrirsagnir féllu niður. Eftir fyrstu greinaskil átti að vera undirfyrirsögnin: Draugagangur f réttarsölum. Orðin Lftil dæmisaga nokkru neðar í fyrsta dálki áttu að vera undirfyrirsögn. I síðasta kafla greinarinnar brenglaðist setning. Þar átti að standa: Þrjá menn hef ég nýlega hitt, sem allir sögðu eitthvað á þessa leið: Mér hefur stundum dottið í hug að stinga niður penna um pólitfk, en mér hefur hrosið hugur við níðskrifum Þjóð- viljans, sem sennilega fylgdu í kjölfarið, og níðið gæti haft áhrif á starfsmöguleika mfna f framtfðinni. Það, sem vantaði i setninguna, er með breyttu letri. önnur fingraför prent- villupúkans í mánudagsham verða ekki leiðrétt. Presta- og prestskvennamót að Vestmannsvatni PRESTAFÉLAG Holastiftis efnir til móts fyrir presta og prests- konur dagana 2„ 3. og 4. septem- ber og verður það haldið í sumar- búðum ÆSK við Vestmannsvatn. Þetta er þriðja mótið, sem Presta- félagið heldur. A mótinu flytur ekndi séra Jónas Gíslason kennari við guðfræðideild háskól- ans\ Sérstök nefnd annast undir- búning mótsins og hana skipa: formaður séra Sigurður Guð- munds^on prófastur, Grenjaða- stað, séra Ulfar Guómundsson, Ölafsfirði og séra Björn H. Jóns- son, Húsavík. Þátttakendur mæta til mótskis þriðjudaginn 3. september og eru þeir beðnir að tilkynna komu sína til formanns nefndarinnar fyrir mánaðarlok. Sumarbúðirnar hafa verið mjög vel sóttar f sumar sem endranær, en þar hafa verið námskeið fyrir börn og er þetta ip. sumarið sem búðirnar starfa. LEIÐRÉTTING Sú villa varð f frásögn blaðsins í gær af slysinu um borð í Guð- steini, að sagt var að togvír hefði slitnað. Það var 2 tommu vír, sem sjómenn nefna grandaraleiðara, sem slóst í piltinn, er krókur rétt- ist upp. Bólusetningar og vegabréf Nú þegar vegabréfaáritun hefur verið afnumin milli ls- lands og Indlands og Bangla- desh hafa margir velt þvf fyrir sér, hvort bólusetningarskylda sé ekki á sem fyrr. Ef þannig vill til, að fólk frá þessum löndum er á ferð hér, á útlend- ingaeftirlitið samkvæmt til- mælum frá landlækni að hafa eftirlit með slfku, en ef fólk frá þessum löndum hefur ver- ið utan heimalands sfns f hálf- an mánuð áður en það kemur hingað er ekkí hægt að gera þvf að sitja f sóttkvf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.