Morgunblaðið - 21.08.1974, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. AGUST 1974
13
Rockefeller
efnaður austurríkjamaður,
sem vill vera fyrirliði
hann útnefningunni fyrir
Barry Goldwater. A meðan
hann var rfkisstjðri héit hann
uppi stöðugri gagnrýni á forset-
ann, m.a. fyrir að veita ekki
nðgu mikið fé til landvarna og
að reyna ekki nðgu mikið til að
vinna Vietnam-strfðið. t barátt-
unni um útnefningu 1968 sneri
hann hins vegar við blaðinu og
gerði tillögu um, að Bandarfkin
drægju sig smám saman út úr
strfðinu. Þessa tillögu gerði
Kissinger sfðan að stefnu
átjðrnarinnar.
Varaforsetinn er bara vara-
skeifa," sagði Nelson Rocke-
feiler eitt sinn. „Eg held, að ég
passi ekki sem maður númer
tvö.“ Svona fullyrðingar þurfa
engum að koma á óvart þegar
þær koma frá manni, sem kem-
ur úr fjölskyldu olfubaróna,
einni hinni efnuðustu og
áhrifamestu f Bandarfkjunum.
Nafnið Rockefeller heiðrar
háskðla, vfsindastofnanir,
styrki til lista og fleiri. t rfkis-
stjðratfð sinni f New York var
Rockefeller allt annað en mað-
ur númer tvö. 1 15 viðburðarfk
ár bar hann hæst f stjðrnmál-
um fylkisins. Hann notaði út f
æsar þau völd, sem hann hafði,
og lagði stolt sitt f það, sem
hann gerði.
En allan tfmann hafði hann
augun á meiri völdum — starf-
inu f Hvfta húsinu. Það var f
baráttunni um útnefningu
frambjððanda til forseta 1964
Kaupmannahöfn, 20. ágúst,
frá Jörgen Harboe
fréttaritara Morgunblaðsins.
Danskir stjórnmálamenn búast
við því, að innan þriggja vikna
verði gert út úm það, hvort stjórn-
málaflokkarnir ; geta sameinazt
stjórninni um heildarlausn efna-
hagsmála eða hvort Danir verða
að ganga til enn eiijna þingkosn-
inga.
og 1968, sem Rockefeller lét
ofangreind orð um embætti
varaforseta falla.
Nú, aftur á mðti, er varafor-
setaembættið, sem Gerald Ford
bauð honum, Ifklega eina tæki-
færi hans til að ná forsetastðli.
Samt sem áður þarf það ekki að
koma neinum, sem fylgst hefur
með ferli Rockefellers, á ðvart
þð að hann passi ekki sem mað-
ur númer tvö. Þar af leiðandi
getur verið mjög athyglisvert
að fyigjast með hvernig honum
reiðir af f embættinu.
Það, sem vfst er, er, að Rocke-
feller hefur mikla reynsiu að
baki þegar hann nú tekur við
þessu nýja starfi og þð að hann
sé orðinn 66 ára gamall er
metnaðurinn nú meiri en
nokkru sinni fyrr. Hann hefur
mikla þekkingu á alrfkisvanda-
málum Bandarfkjanna jafn-
framt þvf sem honum er vel
vill stjórnin hækka virðisauka-
skatt, þannig að ekki verður um
tekjumissi fyrir ríkið að ræða.
Þingkosningar voru siðast
haldnar f Danmörku 4. desember
í fyrra. Utkoman varð minni-
hlutastjórn Poul Hartlings. Bygg-
ir stjórnin tilveru sína aðeins á
einum flokki, sem hefur 22 af 179
sætum þjóðþingsins.
kunnugt allt, sem viðvfkur
stjórn fylkja.
1 umræðum sem leiddu til
þess, að hann varð varaforseti,
bár mest á þeirri gagnrýni
fhaldssamra, að Rockefelier
væri of frjálslyndur fyrir
stjðrn repúblikana, en verjend-
ur hans svöruðu þvf á mðti, að
hann hefði orðið fhaldssamari
með aldrinum.
Ef litið er á feril hans sem
fylkisstjðra, ber lftið á frjáls-
lyndri hugmyndafræði og nú
getur hann vart kallast fhalds-
samur af hugsjðn. Rauði
þráðurinn f öllum hans gerðum
er mikilmennska — miklar
hugmyndir, mikil loforð, mikl-
ar fjárveitingar, mikil áhætta
— fremur en að unnið sé eftir
skipulegum aðferðum eða hug-
myndum.
Það var árið 1964, sem Rocke-
feller kom sterkast til greina f
forsetaframboð, en þá tapaði
Vinstri flokkúrinn, Róttæka
vinstri flokksins og sósíaldemó-
krata, sem er stærsti flokkurinn á
þjóðþinginu. Saman mynda þessir
flokkar nauman meirihluta.
Skiptar skoðanir eru um, hvort
samkomulag geti náðst milli
flokkanna þriggja. Vinstri
flokkurinn og Róttæki vinstri
flokkurinn eru í stórum dráttum
\Rockefeller fæddist 8. júlf
1908, sonur hjónanna John D.
RoVkefeller og Abby Green
Aldrich Rockefeller. Eftir að
hafa lokið háskðlanámi, giftist
hann Mary Todhunter Clark,
sem ér úr ffnni fjölskyldu frá
FfladeViu.
Fyrst'a starf hans var staða
bankastjóra við Chase Manhatt-
sammála um sparnað og skatta-
lækkun. Aftur á móti eru sósíal-
demókratar svartsýnir á, að hægt
verði að lækka útgjöld um 5
milljarða án þess að það hafi
óæskileg félagsleg áhrif. Á þriðju-
dag er búizt við, að stjórnin leggi
fram tölur með tillögum sfnum.
Margir kunnugir telja, að Hart-
ling muni ákveða í siðasta lagi 16.
september hvort gengið skuli til
kosninga. Þá verður hægt að
kjósa 8. október. Þann 16. sept-
ember verður aukaþinginu, sem
Hartling kallaði saman til að
fjalla um efnahagsvandann, slit-
ið. Samkvæmt dönskum lögum
má ekki kjósa fyrr en þrem vikum
eftir að þingi er slitið.
an Bank én sfðan vann hann við
ýmis f jölskyldufyrirtæki.
Hann hðf fyrst afskipti af
stjðrnmálum f New York árið
1955 sem formaður nefndar,
sem skyldi endurskoða
stjðrnarskrá fylkisins. Hann
bauð sig fram f fylkisstjðraem-
bættið 1958, gegn hinum vin-
sæla demókrata Averill
Harriman og vann eftirminni-
legan sigur. Hann var svo
endurkosinn 1962, 1966 og
1970.
Það, sem talið er eitt mesta
afrek Rockefellers f fylkis-
stjðraembætti, er stækkun New
York háskóla. Hann lét um-
hverfismál til sfn taka og setti á
fðr fyrstu opinberu stofnunina
til endurhæfingar ffknilyfja-
neytendum. Hann undirritaði
fyrstu lög Bandarfkjanna um
frjálsar fðstureyðingar.
En það, sem kannski var mest
einkennandi fyrir hann, er
Empire State Plaza, sem hann
hðf byggingu á, og sem gagn-
rýnendur hans kölluð bezta
merkið um stðrmennsku hans.
En Plaza eru 96 ekrur af
marmaraskýjakljúfum f New
York borg, sem hýsa eiga skrif-
stofur fylkisstjðrnarinnar á
komandi árum.
Val Fords á varaforseta þykir
mjög gott þegar tekið er tillit
til þess jafnvægis, sem þarf að
vera á milli mannanna tveggja,
landfræðilega og persðnulega.
Ford er blátt áfram, fyrrver-
andi fótboltamaður og þing-
maður úr hjarta Michigan. Og
þegar Nixon útnefndi hann
varaforseta lýsti hann sjálfum
sér sem „liðsmanni" en ekki
fyrirliða.
Nú hefur hann valið sér við
hlið efnaðan austurrfkjamann
og fyrrverandi rfkisstjðra, sem
alltaf hefur verið fyrirliði og
segist aldrei lfta á sig sem ann-
að.
Poul Hartling
Kosningar í Danmörku
— náist ekki samkomulag um úrræði í efnahagsmálum
Stjórnin hefur lagt fram tillög-
ur um minnkun útgjalda og
skattalækkanir. Er gert ráð fyrir,
að fimm milljarðar danskra króna
verði skornir af fjárlögum. Sam-
kvæmt tillögunum um skatta-
lækkun á að lækka tekjuskatt um
tfu milljarða króna, en um leið
Heildarlausn stjórnarinnar var
samin fyrr í ár eftir viðræður við
aðra borgarflokka á þingi. En nú
hefur stjórnin breytt tillögum
sínum þannig, að ekki er lengur
meirihluti með þeim. Viðræður
standa nú yfir á milli þriggja
flokka: stjórnarflokks, sem er
Erkibiskup var
vopnasmyglari
Jerúsalem, 19. ágúst. AP.
ERKIBISKUP grfsk-kaþólsku
kirkjunnar f Jerúsalem, Hilarion
Capudja, hefur verið handtekinn
og gefið að sök að hafa smyglað
vopnum til arabfskra hryðju-
verkamanna á vesturbakka
Jðrdan.
Israelska lögreglan segir, að við
leit f bifreið erkibiskups 7. ágúst
hafi fundizt mikið magn vopna og
sprengiefnis, sem hann hafi reynt
að smygla frá Lfbanon til hryðju-
verkamanna.
Israelska stjórnin reyndi að fá
yfirstjórn grísk-kaþólsku kirkj-
unnar í Beirút til þess að koma
Capudja úr landi í kyrrþey, en
samkvæmt góðum heimildum leit
herinn málið svo alvarlegum
augum, að hann krafðist þess, að
yfirvöldin létu mál hans vérða
öðrum til varnaðar.
Hann var leiddur fyrir dómara f
gær og úrskurðaður f 15 daga
gæzlúvarðhald meðan rannsókn
er haldið áfram í máli hans.
I söfnuði Capudja erkibiskups
eru aðeins 5.000 manns í Austur-
Jerúsalem, vesturbakkanum og
borgunum Ramla, Jaffa og Lod.
Capudja erkibiskup er 42 ára
gamall og er sýrlenzkur Arabi.
Hann er róttækur þjóðernissinni
og hefur neitað að mæta við öll
opinber tækifæri í Israel síðan
Israelar tóku Jerúsalem 1967.
Hin vönduöu skrifstofuhúsgögn frá
Kristjáni Siggeirssyni h.f. eru fram-
leidd meö hagkvæmni innréttinga
á vinnustað fyrir augum.
Með fjölbreyttum möguleikum er
fyrirtækjum og arkitektum gert
kleift að mæta sérkröfum um
vinnutilhögun, þægindi og útlit.
Auknar kröfur á vinnustað gera
hlutverk skrifstofuhúsgagna mikil-
vægara en nokkru sinni áður.
Kristján Siggeirsson h.f. hefur tekið
þetta allt með í reikninginn við
framleiðslu skrifstofuhúsgagna
sinna. Hönnun þeirra býður
sérstaka möguleika í sambandi við
breytingar, viðbót eða stækkun, -
án þess að heildarsvipur húsnæð-
isins þurfi að breytast.
Munurinn er mikill: Vellíðan yðar,
starfsfólksins og viðskiptavin-
anna er látin ganga fyrir.
auknar 5
kröfur á.
vmnustað
HESGAGNAVERZLUN
KRISTIÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Launavooi 13 Reykjavik simi 23870