Morgunblaðið - 21.08.1974, Side 28
3H«rgunS>f«tMÍ»
RUGIVSII1CRR
^-»22480
Ma
UIuuUh
iesiii
f'rouiiblnbij,
DRCLECR
MIÐVIKUDAGUR 21. AGCST 1974
Kristnihaldið á
norsku leiksviði
Maðurinn, sem les Morgunblaðið við flak flugvélar sinnar og með grænlenzk
fjöll í baksýn, er Lúðvík Karlsson flugmaður. Sem kunnugt er hlekktist
fslenzkri flugvél á við lendingu á Grænlandi s.l. föstudag og um það má frekar
lesa á bls. 3 f blaðinu f dag. — Ljósm. Páll Kristjánsson.
Byrjað að
greiða út
innborgunarféð
í GÆR komu til útborg-
unar fyrstu greiðslur úr
25% innborgunarsjóðn-
um, sem Seðlabankinn
hefur geymt. Þegar Mbl.
hafði samband við bank-
ann í gær, nam inn-
borgunarféð samtals
1217 milljónum.
Fyrir réttum þremur
mánuðum ákvað ríkis-
stjórnin 25% innborg-
unarskyldu innflutn-
ingsfyrirtækja. Hafa
innflytjendur orðið að
greiða þessar fjárhæð-
ir inn á reikning um
leið og gjaldeyrisyfir-
færslur voru afgreiddar
í Landsbankanum og Út-
vegsbankanum.
Féð geymir Seðla-
bankinn gegn 3% vöxt-
um, í 90 daga. Sömu
bankar sjá um að greiða
féð út aftur til eigenda.
Eins og fram hefur
komið í Mbl., hefur þessi
innborgunarskylda haft
í för með sér mikinn
vanda fyrir innflutn-
ingsfyrirtækin, og hefur
hún m.a. leitt af sér
skort á ýmsum vöruteg-
undum.
Sveinn Einarsson þjóðleikhús-
stjóri fór f morgun til Noregs, þar
sem hann mun setja á svið
Kristnihald undir Jökli eftir
Halidðr Laxness. Það er leikhúsið
f Þrándheimi, sem ætlar að hefja
sýningar á leikritinu f haust, en
það er eitt af þremur kunnum
gamalgrðnum leikhúsum f
Noregi utan höfuðborgarinnar.
Hin eru f Bergen og Stafangri.
Sveinn vann á sínum tíma leik-
gerðina upp úr skáldsögunni og
stjórnaði leikritinu hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Hefur Ivar
Eskeland þýtt þá leikgerð á
norsku.
Leikmyndina mun Björn Björns-
son gera fyrir leiksýninguna í
Þrándheimi, en hér í Iðnó var
leikmyndin gerð af Steinþóri Sig-
urðssyni. Sagði Sveinn Einarsson,
að þarna yrði um aðra uppsetn-
ingu að ræða en hér var og að
sjálfsögðu öðru vísi leikmynd.
Þetta verður í fyrsta skipti, sem
Kristnihald undir Jökli er sett á
svið erlendis.
Þekktir blaða-
menn til Islands
I LOK desember er væntanlegur
hingað hópur bandariskra blaða-
manna. Eru þeir félagar í einum
þekktasta og áhrifamesta blaða-
mannaklúbbi heimsins, National
Press Club í Washington. Þeir
verða 40 talsins og munu dvelja
hér frá 27. desember til 2. janúar
n.k. Ef að líkum lætur verða f
hópnum nokkrir mjög þekktir
blaðamenn.
með fyrirvara, þar sem hann
hefði ekki fengið nægar upplýs-
ingar um einstök atriði. Síðan
óskaði hann eftir upplýsingum
um, hvort niðurgreiðslum þeim,
sem ákveðnar voru sl. vor, yrði
Framhald ábls. 16
298 hval-
ir veiddir
I GÆR voru komnir 297 hvalir á
land í Hvalstöðinni, og bátur var á
leið til lands með einn hval. Þetta
er svipuð veiði og í fyrra, en þá
voru veiddir 295 hvalir á sama
tíma.
253 langreyðar hafa veiðzt, 39
búrhvalir og 6 sandreyðar.
Geir Hallgrímsson:
EKKI UNNT AÐ AUKA
NIÐURGREIÐSLUR ÚR
TÓMUM RÍKISSJÓÐI
VEGNA þeirrar ákvörðunar
vinstri stjórnarinnar að hækka
verð á landbúnaðarvörum innti
Morgunblaðið Geir Hallgrfms-
son, formann Sjálfstæðis-
flokksins, eftir afstöðu flokks-
ins til þessa máls. Geir
Hallgrfmsson sagði, að afstaða
sjálfstæðismanna til þessarar
hækkunar á búvöruverði hefði
ekki verið tekin f stjórnar-
myndunarviðræðunum. t þessu
sambandi má einnig geta þess,
að Ólafur Jóhannesson, for-
sætisráðherra, lét svo um mælt
f umræðum á Alþingi f gær, að
ekki væri unnt að blanda Sjálf-
stæðisflokknum við þessa
ákvörðun rfkisstjórnarinnar.
Geir Hallgrfmsson sagði, að
afstaða til þessa máls hefði
ekki verið tekin f viðræðum
Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins um stjórnar-
myndun. Þetta væri og Jiefði
verið úrlausnarefni þeirrar
rfkisstjórnar, sem enn sæti við
völd. t raun réttri væri þetta
enn eitt dæmið af mýmörgum,
þar sem vinstri stjórnin hefði
haldið óhjákvæmilcgum hækk-
unum leyndum fyrir öllum al-
menningi.
Þá sagði Geir Hallgrfmsson,
að kjarni málsins væri sá, að
Framhald á bls. 16
Ríkisstjórnin ákveður með 3 atkv. gegn 2:
9,5% hækkun á verðgrund-
velli búvöru
• NEÐRI deild Alþingis sam-
þykkti f gær með 25 samhljóða
atkvæðum að framlengja gildis-
tfma bráðabirgðalaganna, sem
fráfarandi rfkisstjón setti sl. vor
um tfmabundnar ráðstafanir til
viðnáms gegn verðbólgu. For-
sætisráðherra upplýsti, að niður-
greiðslum þeim, sem ákveðnar
voru f mafmánuði yrði haldið
áfram þar til nýjar ráðstafanir
yrðu gerðar. Jafnframt lýsti hann
yfir þvf, að á næstunni kæmi til
framkvæmda 9,5% hækkun á
verðlagsgrundvelli landbúnaðar-
afurða. Ólafur Jóhannesson sagði,
að ríkisstjórnin hefði tekið
ákvörðun um þetta. Lúðvfk
Jósepsson upplýsti hins vegar, að
þessi ákvörðun hefði verið sam-
Niðurgreiðslur verða
óbreyttar út september
þykkt f rfkisstjórninni f gærmorg-
un með þremur atkvæðum ráð-
herra Framsóknarfiokksins gegn
tveimur atkvæðum þingmanna
Alþýðubandalagsins, en Magnús
Torfi Ólafsson hefði setið hjá við
atkvæðagreiðsluna.
Yfirdráttur Viðlagasjóðs hjá
Seðlabankanum 12-1300 m.
Gildistími viðlagasjóðsgjalda enn framlengdur?
SKULD Viðlagasjóðs við Seðlabankann var 1227 milljónir króna um
mánaðamótin maf-júnf s.l. en bankinn sér um reikningshald sjóðs-
ins. Þessar upplýsingar koma fram f ritinu Hagtölur mánaðarins f
júlfhefti. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér,
hefur skuld sjóðsins við bankann sfzt minnkað sfðan. Sérfróðir menn
telja, að núverandi tekjustofnar sjóðsins dugi engan veginn til að
greiða upp þessa miklu skuld, og verði því að framlengja gildistfma
viðlagasjóðsgjalda um a.m.k. eitt ár ennþá.
Mbl. hafði í gær samband við
Braga Björnsson framkvæmda-
stjóra Viðlagasjóðs. Hann vildi
ekkert tjá sig um fjárreiður sjóðs-
ins, en staðfesti, að skuld hans við
Seðlabankann skipti töluverðum
fjárhæðum. En hann tók einnig
Framhald á bls. 16
% A fundi neðri deildar f gær
var felld tillaga ráðherra Alþýðu-
bandalagsins, þar sem lagt var til,
að niðurgreiðslur yrðu auknar
enn til þess að mæta þeirri hækk-
un, sem verður á búvöruverði
samkvæmt ákvörðun meirihluta
rfkisstjórnarinnar. Tillagan var
felld að viðhöfðu nafnakalli með
22 atkvæðum viðstaddra þing-
manna Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins. Ellert B.
Schram, Sigurlaug Bjarnadóttir
og Guðmundur H. Garðarson
greiddu ekki atkvæði. Með tillög-
unni greiddu atkvæði 11 þing-
menn Alþýðubandalagsins, Al-
þýðuflokksins og Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna.
Vilhjálmur Hjálmarsson mælti
f upphafi fundar f neðri deild
fyrir áliti fjárhags- og viðskipta-
nefndar, sem mælti með að gildis-
tfmi bráðabirgðalaganna yrði
framlengdur um einn mánuð
eða til loka september.
Karvel Pálmason sagðist
hafa ritað undir nefndarálitið