Morgunblaðið - 15.09.1974, Síða 1
40 SIÐUR OG LESBOK
175. tbl. 61. árg.
SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Líðan Nixons
sögð afleit
San Clemente, Kaliforníu
14. sept. Reuter. AP
•k Einkalæknir Nixons Banda-
ríkjaforseta, dr. Walter Thack,
kom til heimilis Nixons í San
Clemente í dag til að rannsaka
Nixon og úrskurða, hvort ætti að
leggja hann inn á sjúkrahús. Nix-
on þjáist af blóðtappa í fæti sem
hefur valdið mikilli bólgu í fætin-
um. Hann hefur fengið aðkenn-
ingu af slíku áður. Aftur á móti
segja fréttir, að dr. Thack ætli
ekki síður að kanna, hvort ástæða
sé til sérstakrar meðferðar vegna
vaxandi þunglyndiskasta, sem
Nixon er sagður þjást af og hafa
færzt mjög í aukana. Fréttir hafa
borizt um sjálfsmorðshugleiðing-
ar Nixons og annað í þeim dúr.
Dr. Thack ákvað, að Nixon færi
ekki á sjúkrahús að svo stöddu en
myndi fá meðferð á heimili sínu
eins og við ætti.
Tengdasonur Nixons, David
Eisenhower, sagði í sjónvarpsvið-
tali í gær, að Nixon væri iðulega
mjög þjáður af þunglyndi, en
hann hefði ekki í hyggju að svipta
sig lífi. „En að sumu leyti má
kannski segja, að lífi Nixons sé
lokið,“ sagði Eisenhower. Hann
bætti því við, að tengdafaðir sinn
reyndi að herða sig upp suma
dagana, en aðra daga væri hann
fullur iðrunar og hryggðar yfir
því, hvernig farið hefði og sektar-
byrðina myndi hann verða að rog-
ast með alla tíð. Hann sagði, að
Nixon færi lítið út úr húsi og
forðaðist samneyti við aðra en
fjölskyldu sína og nánustu vini.
David Eisenhower sagðist sann-
færður um, að Nixon næði sér og
hann gæti enn lagt sitt af mörk-
um, m.a. með því að einbeita sér
að skrifum og vonandi færi hann
að lfta bjartsýnni augum til fram-
tíðarinnar.
Japanski fanginn var á
leið til Hollands í gær
Haag, Parfs 14. sept.
Reuter. AP.
ir ÞEGAR Morgunblaðið fór f
Danmörk:
Stjórnmálaviðræður
Kaupmannahöfn 14. sept. NTB
HÆGRI flokkarnir í Dan-
mörku hófu í dag nýjar við-
ræöur með það fyrir aug-
um að ná samkomulagi í
skatta- og tollamálunum.
Öllum flokkum var boðin
þátttaka í viðræðunum, en
Páll páfi VI sést hér með
skrautlegan höfuðbúnað
Indjána og brosir breitt
er hann tekur á móti
hópi bandarískra Indj-
ána frá Michigan. Höfuð-
skrautið var gjöf Indján-
annatilpáfans.
ekki var vitað hvort full-
trúar frá Radikale Venstre
kæmu á fundinn. Búizt var
við, að fundurinn stæði all-
an daginn. Poul Hartling,
forsætisráðherra situr ekki
fundinn, þar sem hann er á
ráðstefnu EBE-landa í Par-
ís og kemur ekki heim fyrr
en á morgun.
Eiginmaður heimt-
ur frá Sovét
London 14. sept. AP. Reuter
ENSK kona, Angela Levitsky,
sem giftist sovézkum manni fyrir
tveimur árum, hefur nú loks
heimt eiginmann sinn frá Sovét-
ríkjunum eftir mikla og harða
baráttu. Þau kynntust í Moskvu,
hvar hún var á tungumálanám-
skeiði og giftust nokkru síðar.
Hann sótti þá um leyfi til að flytj-
ast með konu sinni til Englands,
en leyfi fékk hann ekki fyrr en nú
og kom hann til. Englands með
skipinu Baltika í gærkvöldi.
Bourgiba
forseti
ævilangt
Túnis 14. sept. Reuter
HABIB BOURGIBA hefur verið
kjörinn forseti fyrir lífstíð á
landsfundi stjórnarflokks lands-
ins. Bourgiba hefur verið forseti
síðan 1957. Hann er 71 árs að
aldri.
prentun f gær var franski sendi-
herrann f Haag enn f gfslingu f
sendiráðinu og virtust samninga-
viðræður hafa strandað f bili, þótt
menn gerðu sér vonir um, að úr
myndi greiðast, þegar japanski
fanginn kæmi til HoIIands. Hann
var þá á leið frá Parfs með
franskri þotu. Fréttir komust á
kreik um, að hann vildi ekki hitta
mannræningjana þrjá og enn sfð-
ur ganga til liðs við þá, en það
hefur verið borið til baka. Einn
sendiráðsstarfsmanna, ung
stúlka, komst út úr sendiráðinu f
nótt og kvaðst hafa falið sig inni f
skáp og ræningjarnir hefðu ekki
vitað af henni þar.
Vitað er nú, að enn eru alls níu
manns í sendiráðinu og hafa
ræningjarnir öðru hverju sent frá
sér hótanir um að þeir ætli að
drepa alla gfslana, einnig eftir að
kunnugt varð um, að japanski
fanginn hefði verið látinn laus og
væri á leið til Hollands. Hins veg-
ar hefur verið gefið í skyn, að
hann verði ekki látinn ganga á
fund mannræningjanna fyrr en
þeir hafa staðið við þau loforð sfn
að sleppa gfslunum heilum á húfi
í skiptum fyrir hann.
Mannræningjarnir eru félagar í
samtökum f Japan, sem kalla sig
Rauða herinn, og hafa staðið fyrir
hryðjuverkum víða um heim.
Maður sá, sem nú er á leiðinni til
Hollands til fundar við
ræningjana, er sagður hafa skipu-
lagt hina alræmdu árás á Lodflug-
velli í Tel Aviv fyrir fáeinum
árum, þegar fjöldi fólks var myrt-
ur.
Yitzak Rabin, forsætis-
ráðherra ísraels, hefur
verið í heimsókn í
Bandaríkjunum undan-
farna daga og rætt þar
við Gerald Ford, forseta,
og ýmsa áhrifamenn.
Hann sést hér bjóða
Henry Kissinger utan-
ríkisráðherra, og Nancy
konu hans velkomin í
samkvæmi í ísraelska
sendiráðinu I Washing-
ton.
Tyrkland:
Deilur innan
stiórnarinnar
Ankara 14. sept. Reuter.
DEILURNAR innan tyrknesku
stjórnarinnar mögnuðust enn f
morgun og áttu þá Ecevit, for-
sætisráðherra, og Erbakan,
aðstoðarforsætisráðherra, langan
fund með sér f fyrsta skipti sfðan
kvisaðist um ágreininginn innan
stjórnarinnar. Erbakan, sem er
úr NSP-flokknum, hefur gagn-
rýnt Ecevit fyrir að hafa látið
stjórnast af tilfinningum og sýnt
fljótfærni f ýmsum gerðum sfn-
um, m.a. f Kýpurmálinu. Hann
hefur harðlega gagnrýnt það
Sovézkur rithöf-
undur handtekinn
Moskvu 14. sept. AP.
SOVÉZKI rithöfundurinn
Mikail Heifitz hefur verið
dæmdur í fjögurra ára
þrælkunarvinnu og síðan
tveggja ára útlegð fyrir
andsovéska starfsemi og
ýmsa undirróðursiðju.
Rithöfundurinn er 38 ára
gamall. Hann er sögukenn-
ari að atvinnu og var hand-
tekinn í apríl sl. er öryggis-
lögreglan fann uppkast að
grein um Josef Brodsky í
fórum hans.
Meðal ritverka Heifitz
má nefna bók um
rússneska byltingarmenn,
sem grófu undan leynilög-
reglu keisarans á 19. öld.
Sú bók var gefin út með
blessun stjórnvalda á sín-
um tíma.
áform Ecevits að fara f opinbera
heimsókn til Norðurlanda, á
meðan það viðkvæma mál er ekki
til lykta leitt.
Stjórnmálafréttaritarar segja,
að Ecevit hafi lengi þótt stjórnar-
samstarfið með NSP-flokknum
erfitt og hann hafi viljað slíta því
og mynda stjórn með öðrum
flokki. Ecevit hefur tilkynnt, að
Eyupoglu innanríkisráðherra
muni gegna störfum forsætisráð-
herra, meðan hann verður fjar-
verandi og hefur Erbakan gagn-
rýnt það harðlega og talið eðli-
legast, að hann gegndi því starfi.
Aftur á móti dró Erbakan úr því,
að stjórnin riðaði til falls.
Olíuverð til olíu-
félaga hækkar
Vínarborg 14. september
NTB. Reuter
Á FUNDI olíuframleiðsluland-
anna í Vínarborg var í morgun
samþykkt hækkun á olíuverði, en
tekið er fram, að það eigi aðeins
við um olíufélög í formi skatta og
annarra gjalda, og neytendur
skuli ekki bera þessa hækkun,
sem Reuter segir vera um 33% á
olíufat. Gefið er í skyn, að frá og
með áramótum kunni að verða
miklar hækkanir á olíu vegna
verðbólgunnar um heim allan.