Morgunblaðið - 15.09.1974, Síða 26

Morgunblaðið - 15.09.1974, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1974 Steingrimur Pálsson — Minningarorð Utför Steingríms Pálssonar, Selvogsgrunni 3, fer fram frá Laugarneskirkju á morgun. Ekki óraði frændur og vini fyrir, er sátu I fagnaði á heimili hans á laugardag 7. september, að húsbóndinn yrði allur fyrir ris- mál næsta mánudag. Steingrímur Pálsson var fæddur að Árhrauni á Skeiðum 7. sept. 1894, sonur hjónanna Ölafar Steingrímsdóttur frá Fossi á Síðu, og Páls Erlingssonar sundkenn- ara frá Stóru-Mörk. Þau hjónin eignuðust alls fjóra syni, sem allir urðu vel þekktir hér í borg vegna gjörvuleika og starfa í þágu hins opinbera. Þau Ölöf og Páll voru af iandskunnum stofnum f ættir fram, og var frúin m.a. afkomandi Sveins Pálssonar, en húsbóndinn bróðir þjóðskálds- ins ástkæra Þorsteins Erlings- sonar. Frændgarðurinn er stór, og dreifður um flestar byggðir lands- ins, en þó mest um Árnes-, Skafta- fells- og Rangárþing. Steingrímur fluttist ungur að árum með foreldrum sínum að Apavatni í Laugardal, og sleit þar barnsskónum að mestu, en þegar sveinninn er tólf vetra, flytjast foreldrarnir til Reykjavíkur, og gerist faðir hans sundkennari við Sundlaugarnar, og gengdi hann þvi starfi til dánardægurs, en Steingrimur réðst til skóv. Lárusar G. Lúðvigssonar, og vann bæði þar og einnig við sund- kennslu næstu þrjú árin. Með Steingrimi og fjölskyldu Lárusar G. Lúðvígssonar urðu miklir kærleikar, sem entust svo lengi sem beggja naut við. En þótt vinahópurinn stækkaði, og fjölskyldan lifði sæl við leik og störf, var þráin til gróandi lffs yfirsterkari. Steingrimur þráði sveitalíf, þráði snertingu við iðandi haf, af lagprúðu úrvals skaftfellsku sauðfé, hann þráði gæðinginn, sem hann hafði dreymt um svo óralengi, en ekki getað veitt sér. Nú skyldi það gerast og það varð. Hann réðst sem sundkennari að Hörgslandskoti á Sfðu, einmitt í sveitina fögru, þar sem móðirin var upp runnin. Ekki var heitt vatn í laug, eða önnur þægindi nútímans, sem löð- uðu unga manninn að starfinu, enda voru slíkir smámunir ungum mönnum ekki fótakefli í þann tfð. Á Síðunni gekk Steingrímur að öllum algengum störfum jafn- t Útför PÉTURS STEFÁNS PÉTURSSONAR fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 1 7. september kl 1 3.30. Þeir sem vildu minnast hins látna, láti liknarfélög njóta þess. Ásta Jónsson Camila Pétursdóttir Kolbeinn Pétursson Gissur Pétursson Sighvatur Pétursson Snorri Pétursson t Við þökkum af alhug öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns mins og föður HARÐARJÓHANNESSONAR, málarameistara Móvahlið 27 Guðrún Sveinsdóttir Örn Harðarson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför, SNÆBJARNARINGA JÓNSSONAR skrifstofustjóra. Þórunn Kjerulf, Guðrún Jónsdóttir, Anna Dóra Snæbjörnsdóttir, Ingólfur Jónasson, Guðrún Snæbjörnsdóttir, Stefán Jónsson, Snæbjörn Snæbjörnsson, Egill Jónsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför elsku legrar eiginkonu, systur, móður, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR, Freyjugötu 34, Reykjavtk. Jón S. Benjamínsson, Guðný Jónsdóttir, Guðrún I. Jónsdóttir, Asgeir Karlsson, Jón Birgir Jónsson, Steinunn Norberg, Jórunn Jónsdóttir, Guðmundur Oddsson og barnabörn. t Sonur okkar og bróðir, ELÍAS SIGURÐSSON, Holtagerði 13, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 1 6. september kl. 3.00 e.h. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á að láta Krabbameinsfélag Islands njóta þess Guðný Jónsdóttir, Sigurður L. Ólafsson, Sigríður M. Sigurðardóttir, Jón Þór Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Sigurþór L. Sigurðsson, Guðný Rut Sigurðardóttir, Sigurður H. Sigurðsson, Lindis Sigurðardóttir, Guðmundur Sigurðsson, Sólrún Sigurðardóttir, Sigríður Birgisdóttir, Ásrún Sigurðardóttir. framt sundkennslunni, sem var þó ærin vinna, því flestir ungir menn lærðu þá list austur þar, og eru sumir enn á lífi, sem muna þessa tíð. A þessum árum og reyndar æ síðan, tamdi Steingrímur margan fagran folann og urðu flestir góðir, en sumir afburða gæðingar, en hann átti hesta fram á síðustu ár. Á þessum árum var fslenska glíman og sundið mjög hugstæðar iþróttir ungum mönnum, það var hin hrausta aldamótaæska og ungmennafélagar, sem öðrum fremur settu svip á íþróttalíf þess tíma, þá gengu ungir menn fram, stigu á stokk og strengdu heit og voru trúir sinni hugsjón. Steingrímur Pálsson var einn þessara manna. Því var það, að eftir að hafa kennt sund í Skaftafellssýslu, fór hann vestur um heiði og lærði glímu, ekki einasta ísl. glímu, heldur einnig grísk-rómverska. Hann glimdi við kappana Hall- grím Benediktsson, Sigurjón á Álafossi og fleiri, en allt voru þetta drengir góðir, sem hann lét mikið af, enda vöfðust ekki fyrir honum brögðin og léttleikinn þegar til leiks var gengið. I Árnesþingi lágu sporin næstu missirin, en f maí 1918 gengur hann að eiga heimasætuna Krist- Inu Jónsdóttur á Vestri-Lofts stöðum f Gaulverjabæjarhreppi, sem þótti gott gjaforð, og var álitið mikið jafnræði með ungu hjónunum sakir myndarskapar og glæsileika. Þau fluttu í fardögum og reystu bú að Eyvindartungu í Laugardal, og var þá ungi bónd- inn kominn með brúði sfna á æskustöðvarnar, heim f sveitina góðu með silungsá og skógarilm. Ekki spiltu nágrannarnir ham- ingju heimilisins s.s. skáldið á Hjálmsstöðum og héraðshöfðing- inn á Laugarvatni. I þessu umhverfi undu ungu hjónin hag sínum vel, og þar fæddist þeim fyrsta barnið, hún var vatni ausin og Ólöf nefnd, þar var komin alnafna ömmu sinnar og augasteinn. Dvölin í Eyvindartungu varð Framhald á bls. 39 Einar Geir Jóns- son — Minning Fæddur 5. janúar 1955 Dáinn 2. ágúst 1974. Deyr fé deyja frændur deyr sjálfur hið sama en orðstír deyr aldrei þeim sér góðan getur. Um hádegisbil þann 9. ágúst hringdi síminn og okkur barst sú hörmulega frétt, að frændi okkar, Einar Geir Jónsson, hefði orðið fyrir banaslysi. Þetta gat ekki verið hugsaði ég, ég vildi ekki trúa þessu. Faðir minn kom heim frá vinnu seinna um daginn, þá hringdi hann til New York til frænku okkar til að fá staðfestingu á þessu, jú, þetta var rétt. Ég gleymi aldrei heim- sókn minni til Islands fyrir 2 árum hvað Einar Geir frændi minn var góður við mig, fór með mig um allt, í bíó, á söfn og margt fleira, sem mig langaði til að fara. Hann gaf sér nógan tíma, þó hann ætti mikið af vinum. Hann var hinn stóri, sterki frændi minn, sem ég var svo stoltur af. Þegar ég hugsa til þess að þegar ég kem næst til Islands, á ég engan slfkan vin og frænda, þá langar mig ekki þangað, þvf ég sakna hans svo mikið. Nú verður heldur ekkert úr ferðinni, sem hann ætlaði í með foreldrum sfnum og systur hingað til Amerfku að loknu stúdentsprófi 1976) sem við töluð- um svo mikið um síðast er við hittumst. En frændi minn gaf mér í þessari stuttu heimsókn minni skýra mynd af sér, sem ég geymi f hjarta mínu og ég er þakklátur fyrir að hafa haft tækifæri til að kynnast honum. Minning hans mun aldrei mást úr huga mér. Ég, foreldrar mínir og systkini kveðj- um hann með söknuði. t Eiginmaður minn, ALEXANDER JÓHANNESSON, fyrrv. skipstjóri sem andaðist 8. þ.m. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudag- inn 1 7. þ.m. kl. 1.30 e.h. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna Halldóra Ólafsdóttir, Grettisgötu 26. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og bálfarar eiginkonu minnar, LITU SIGURÐSSON, Álfhólsvegi 94, Kópavogi. Haraldur Sigurðsson. Foreldrum hans, Sigríði Einars- dóttur og Jón Geir Árnasyni, hár- skurðarmeistara, og einkasystur hans, Dfönu Veru, sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur, og biðjum guð að styrkja þau f sorg þeirra. Jón Þór Sigurðsson. St. Louis. U. S. A. t Maðurinn minn ÞÓRARINN LÝÐSSON, Hliðartúni 3, lést að heimili sinu 13. þ.m Sigríður Þ. Tómasóttir. t Þökkum hluttekningu, samúð og vináttu við andlát og útför SIGRÚNAR INGVARSDÓTTUR frá Bakkastig 11, Vestmannaeyjum Ágústa Sveinsdóttir Berent Sveinsson Laufey Guðbrandsdóttir Garðar Sveinsson Ólöf Karlsdóttir Tryggvi Sveinsson Þóra Eiríksdóttir og barnabörn t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐLAUGUR KRISTJÁNSSON verður jarðsunginn frá Neskirkju, mánudaginn 16. september, kl. 13,30, Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á liknarstofnanir. Sveinn Guðlaugsson Katrín Eiriksdóttir Halldóra Guðlaugsdóttí Guðm. Valur Sigurðsson Gunnar Guðlaugsson Jóna Arthúrsdóttir Fjóla Guðlaugsdóttir Kristinn Magnússon Hafdís Guðlaugsdóttir Ragnar Vignir Guðrún Guðlaugsdóttir Valgeir Helgason og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför FRIÐRIKS JÓNSSONAR, frá Ólafsfirði. Lisbet Friðriksdóttir, Sigriður Friðriksdóttir, Sigursveinn Friðriksson, Sigrún Jóhannesdóttir, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför, MAGNEU ÞORLÁKSDÓTTUR frá ísafirði. Börn, fósturböm og aðrir ættingjar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.