Morgunblaðið - 15.09.1974, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1974
27
Magnea Tómasdóttir
frá Eyvík — Minning
Ffedd 2. júnl 1889
Dáin 31. ágúst 1974
Magnea Tómasdóttir frá Eyvík
var jarðsungin síðast liðinn
mánudag, en hún lést að heimili
sínu hinn 31. ágúst. Hún var fædd
í Hjarðarnesi 1 Kjós 2. júnf 1889.
Foreldrar hennar voru Tómas
Magnússon Eyjólfssonar bónda í
Lykkju á Kjalarnesi og Guðrún
Þórólfsdóttir. Móðir Tómasar var
Diljá Þórðardóttir Ölafssonar
bónda f Saurbæ á Kjalarnesi. En
sonur Þórðar og bróðir Diljáar
var Runólfur í Saurbæ faðir
Þórðar hreppsstjóra í Móum á
Kjaiarnesi, er kvæntur var Ást-
rfði Jochumsdóttur frá Skógum í
Þorskafirði.
Magnea ólst upp í Arnarholti á
Kjalarnesi, en fluttist með
foreldrum sfnum til Reykjavíkur
ung að aldri árið 1906 og átti þar
heimili síðan, að undanteknu
einu ári, er hún var búsett á Þing-
eyri við Dýrafjörð. Hún giftist
hinn 31. maí 1919 Jóni Krist-
mundssyni, en hann var ættaður
frá Utskálahamri í Kjós. Jón
stundaði sjómennsku lengst af
ævinnar, fyrst á kútterum, síðan
vélbátum og síðast um langt skeið
á togurum, en hann andaðist hinn
1. des. 1952 eftir alllöng veikindi.
Að honum látnum bjó Magnea hjá
Auði dóttur sinni og manni
hennar, Kristleifi Jónssyni, og
naut þar frábærrar umhyggju og
ástúðar. Voru þau hjón og börn
þeirra einstaklega umhyggjusöm
og nærgætin við hana og samhuga
að búa henni friðsælt og bjart
ævikvöld.
Magnea var gæfumanneskja og
ætla ég, að hún hafi verið forsjón-
inni innilega þakklát fyrir það.
Hún lifði í farsælu og ástríku
hjónabandi um hartnær 35 ára
skeið og átti gjörvileg og vel gerð
börn, sem voru samhent að gleðja
hana og gera henni allt til yndis,
er þau máttu. En — þó fór lífið
ekki ætíð um hana mjúkum hönd-
um. Hún hlaut að heyja harða
baráttu með barnahópinn sinn á
árunum milli heimsstyrjaldanna,
þegar heimskreppan beið við
hvers manns dyr og margir urðu
að berjast fyrir lífi sínu og sinna
til hinsta blóðdropa. Jón, maður
hennar, var oft fjarverandi lang-
tfmum saman, vegna atvinnu
sinnar, svo að hún varð að vera
bæði bóndinn og húsfreyjan á
heimilinu. Á þeim árum vann hún
einnig það, sem til féll utan
heimilisins, m.a. við fiskþurrkun
ofl. Ég hygg, að sfðari kynslóðir,
þær sem nú eru á miðjum aldri og
yngri, muni alls ekki geta gert sér
í hugarlund hinn gffurlega mun,
sem er á lífskjörum almennings
þá og nú. Meira að segja eru þeir
tfmar eins og f jarlægur draumur í
vitund okkar, sem lifðum þá.
Magnea átti við veikindi að
stríða á manndómsárum sínum.
Einnig veiktist hún af hjarta-
kvilla fyrir tæplega 20 árum og
eftir það gat hún átt von á kalli
dauðans fyrirvaralaust. En þeim
örlögum tók hún með jafnaðar-
geði og léttri lund, eins og raunar
öllum öðrum spjótalögum lífsins.
Hún óskaði sér þess aðeins, að
verða ekki ellihrörnun og sjúk-
leika að bráð en mega sofna
hinsta svefninum f hljóðlátri
kyrrð og fyrirvaralaust. Og henni
varð að þeirri ósk. Þegar hún var
að klæðast að morgni 31. ágúst,
hneig hún út af og var þegar
örend. Það var eins og hún gengi
til svefns að loknum löngum og
farsælum starfsdegi.
Börn Magneu og Jóns eru sex,
fjórar dætur: Inga, Auður, Jar-
þrúður og Halldóra og tveir synir:
Gunnar og Kristmundur. Þau eru
öll hinir mætustu þjóðfélagsþegn-
ar, eins og þau eiga kyn til. Þau
eru ríkulega gædd eðlisþáttum
foreldranna, er í engu máttu
vamm sitt vita. I fari þeirra birtist
sterk ættarfylgja móðurinnar,
vinfesti og tryggð og rík samúð
með smælingjum og þeim, sem
fara halloka í lífinu en jafnframt
stór lund og mikið geð, þegar við
ójöfnuð erða rangsleitni er að
etja.
Magnea lifði friðsælt ævikvöld í
skjóli barna sinna. Þau voru öll
fádæma samhent að gera henni
sfðustu æviárin eins ljúf og létt-
bær og þeim var framast unnt og
hlaut það að vekja aðdáun allra,
er til sáu. Það var eins og þau
skynjuðu óskir hennar og þarfir
af eðlisávísun og þau lögðu sig f
líma að uppfylla þær. Viðbrögð
þeirra minntu oft á viðbrögð móð-
ur, sem vakir yfir hverri hreyf-
ingu og hverju hljóði barns sfns,
hvítvoðungsins í vöggunni, sem
einskis má sín og naumast getur
tjáð vellfðan sína eða vanlíðan.
Mér er kunnugt, að Magnea bar í
brjósti einlægt þakklæti til for-
sjónarinnar fyrir mikið barnalán
og stóran ættboga, sem hún skil-
aði þjóð sinni.
Sigríður Eiríksdóttir, sem var
kennari I áratugi við Melaskólann
í Reykjavík, var í heimili hjá
Magneu og Jóni um langt árabil
og naut þar fágætrar ástúðar og
umhyggju. Ég held, að þau hafi
öll litið á hana sem eina af
fjölskyldunni. Hún hefur látið
þau orð falla í mfn eyru, að
engum eigi hún stærri skuld að
gjalda en Magneu og börnum
hennar og að hún hugsi til hennar
að leiðarlokum með djúpri virð-
ingu og takmarkalausu þakklæti
fyrir langa og einlæga vináttu. En
Sigrfður hefur dvalið sfðustu
mánuði fársjúk á spftala.
Magnea Tómasdóttir var mik-
illar gerðar, lundin stór og geðið
ríkt, bæði í meðlæti og mótlæti.
Hún var kvenskörungur og hefi
ég enga konu þekkt, sem fremur
ætti að bera það nafn en hún.
Hún var stór í öllum háttum og
gerðum og langt hafin yfir
flatneskju meðalmennskunnar.
Hún var aldrei hálfvolg í neinu,
hvorki sem liðsmaður né andstæð-
ingur. Ég held, að enginn hafi
verið öfundsverður að hafa hana
að andstæðing né eiga við hana
Framhald á bls. 31
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Er kristnum manni nauðsyn á þvf að ganga til altaris? Eg
geri það stundum, en stundum sleppi ég þvf. Mér þætti vænt
um að heyra skoðanir yðar á þessu.
Kristur sagði: „Gjörið þetta í mína minningu," og
orðin hafa á sér blæ fyrirmæla. Altarisgangan, að
neyta efnanna, sem tákna líkama og blóð frelsarans
minnir okkur á ævarandi þörf okkar á honum.
Líkami okkar lifir ekki án brauðs og vökvunar. Á
sama hátt getum við ekki lifað nema hann dvelji
innra með okkur. Hann sagði: „Ég er kominn til þess
að þeir hafi líf og hafi nægtir.“
Hin heilaga kvöldmáltíð minnir okkur á fórn
Drottins á krossinum. Hún bendir á staðreynd synda
okkar, sem lagðar voru á hann, og minnir okkur á
hversu fjarri því fer, að við getum frelsað okkur
sjálf. Hún leiðir huga okkar að mestu fórn kærleik-
ans, er hinn bezti dó fyrir hina verstu, og fyllir
hjarta okkar þakklæti.
Ég heyrði um litla stúlku, sem neytti heilagrar
kvöldmáltíðar. Hún tók eftir litlum róðukrossi á
borðinu, sem brauðið og vínið voru á. Hún hvíslaði
að móður sinni: „Mamma sjáðu plúsmerkið á kvöld-
máltíðarborðinu." Samfélagið við borð Drottins set-
ur slíkt merki á hjörtu okkar. Það dregur okkur nær
honum, sem elskaði okkur og sjálfan sig fyrir okkur.
Frá barna- og
unglingaskóla Njarðvíkur
Nemendur 5., 6., 7. og 8. bekkjar komi í
skólann mánudaginn 16. september kl. 10.
Innritun nemenda í forskólann fer fram í skólan-
um sama dag kl. 1 3. — 15.
Skólastjóri.
r STAÐGREIÐSLA
Höfum kaupanda að 3ja til 4ra herbergja ibúð á 1., 2. eða 3ju hæð í
blokk við ÁLFTAMÝRI, SAFAMÝRI, HÁALEITI, FELLSMÚLA, STÓRA-
GERÐI eða HVASSALEITI.
STAÐGREIÐSLA
fyrir góða ibúð. Vinsamlega hafið samband sem fyrst í sima 20424
eða 141 20. Heima i sima 85798 eða 30008.
Fasteignamiðstöðin Hafnarstræti 11.
(P Aðstoðarlæknir
Staða aðstoðarlæknis við Svæfinga- og Gjörgæzludeild Borgarspitalans
er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. des. til eins árs eða eftir samkomulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavikur.
Upplýsingar um stöðuna veitir yfirlæknir deildarinnar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist Heil-
brigðismálaráði Reykjavikurborgar fyrir 20. okt. n.k.
REYKJAVÍK, 13.09. 19 74.
HEILBRIGÐISMÁLARÁÐ
REYKJAVÍKURBORGAR
Miðbær
Höfum til sölu rúmlega 100 fm húsnæði í
nýlegu og glæsilegu verzlunarhúsnæði í hjarta
borgarinnar. Hentugt fyrir skrifstofur og verzl-
un.
Allar upplýsingar á skrifstofunni.
Lögmenn:
Jón Ingólfsson hdl.,
Már Gunnarsson hdl.,
Garðastræti 3,
sími 11252 og 27055.