Morgunblaðið - 15.09.1974, Side 30

Morgunblaðið - 15.09.1974, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1974 Yfirheyrslum í Guillaume- málinu hald- ið áfram Bonn, 13. sept. Reuter. YFIRMAÐUR leyniþjónustu V- Þýzkalands, Gtinther Nollau, kom til yfirheyrslu vegna rannsókna á njósnamáli Guillaume, fyrrv. ráögjafa Willy Brandts, kanslara. Sagði Nollau að leitað hefði verið að njósnara kommúnista innan Jafnaðarmannaflokksins í tólf ár, áður en upp komst um Gtinther Guillaume. Hann kvaðst hafa sagt ríkisstjórn Brandts frá sterkum grun, sem væri á Guillaume í lok maf 1973, en þá hafði hann verið í 2'/i ár í innsta hring kanslarans og hafði aðgang að öllum leyni- skjölum kanslaraembættisins. Guillaume var engu að síður 1 embættinu í ellefu mánuði eftir að Nollau kvaðst hafa látið þetta í ljós. Áður hafði Herbert Wehner, formaður þingflokks jafnaðar- manna, borið vitni í málinu, og stangast framburður þeirra á, þar sem Wehner neitar að Nollau hafi nefnt ákveðinn ma.in og aðeins sagt að fylgzt væri með ótiltekn- um aðila og Nollau hefði aldrei sett sig inn í þetta mál. Yfirheyrslum er haldið áfram og segir Reuter að fylgzt sé með þeim af miklum áhuga í Vestur- Þýzkalandi. Mengandi hávaði á rúntinum Akranesi, 9.—13. september. BIFREIÐUM hefur fjölgað mjög mikið hér á Akranesi á síðari ár- um, þó mest á árinu 1974. Þær eru nú á milli 1400 og 1500 talsins. Bifreiðaárekstrum hefur fjölgað í sama hlutfalli. í júlímánuði urðu 9 árekstrar hér f bænum, í ágúst urðu þeir 12 og nú 13. september hafa orðið 8 árekstrar. Það eru fólksbifreiðar, sem lenda í flest- um árkestrunum og hefur orðið mikið tjón á þeim. Furðulega lítil slys hafa orðið á fólki í þessum árekstrum, sem betur fer. Helztu ástæður fyrir þessum fjölda árekstra telja menn of hraðan akstur, stundum sé jafnvel kappakstur á hinum steyptu götum og einnig verði oft vart við vankunnáttu og tillits- ieysi f umferðinni. Ef til vill má einnig kenna um eftirlitsleysi, en lögreglan mun vera of fámenn hér. Einn áberandi ósiður er ríkj- andi hér í umferðinni — sérstak- lega árúntinum.Ökumenn þeyta flautur sínar í tíma og ótfma, heilsast og kveðjast með þessum mengandi hávaða langt fram á nótt. Þetta þekkist víst hvergi nema hér og er gróft brot á lög- reglusamþykktinni. — Júlíus. ---- — Skólaprestur Framhald af bls. 22 Fyrstu þrjú árin fá félögin verulegan stuðning frá systur- félögunum á Norðurlöndum. En eftir þann tíma verða félög- in hér heima að sjá um sig. Það er því von félaganna, að stuðningsmannahópurinn stækki mjög á þessum árum. Einnig vonum við, að rfkis- valdið sjái ástæðu til að styrkja þetta starf í framtíðinni." Hér látum við staðar numið að sinni. Margt væri þó enn hægt að tína fram hjá Jóni Dal- bú, enda er hann fullur áhuga þegar hann talar um starf sitt, sem senn hefst fyrir alvöru. Við endum spjallið á að benda á kjörorð K.S.S. og verður nú enn gert átak til að efla það: Æskan fyrir Krist. I Allt í einu fannst mér ég mjög, mjög hlægilegur!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.