Morgunblaðið - 15.09.1974, Síða 40
SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1974
nucivsincnR
<&v--»22480
nuGivsincnn
<£L/-»22480
FÆREYSKI BATUR-
INN NÁÐIST Á FLOT
Seyðisfjörður, 14. september
I GÆRKVÖLD dró vélbáturinn
Vingþór færeyska bátinn Terje
Vigen á flot. Færeyingarnir telja
bátinn óskemmdan, en enginn
tslendingur hefur skoðað hann,
hvorki frá tryggingafélagi né
fslenzku skipaskoðuninni.
Lögreglan hafði samband við
slysavarnadeildina á staðnum.
Banaslys
Slysadeildin veitti einhverja að-
stoð við að koma bátnum á flot, en
hann var aldrei í neinni hættu.
Báturinn var ógangfær og raf-
magnslaus og eitthvað var athuga-
vert við olíu á gfr. Ég hitti
eiganda bátsins snöggvast uppi á
Framhald á bls. 33
STÓRLAXAR
Á ÞINGI
Ljósm.: Brynjólfur.
Sérdeild fyrir
lömuðu bömin
í Hlíðaskóla
t VETUR verður f fyrsta skipti
starfrækt kennsludeild fyrir fötl-
uð börn f almennum skóla f
Reykjavfk, og er verið að undir-
búa hana. Þessi deild er f Hlfða-
skóla og reiknað með, að þar verði
í vetur fimm lömuð börn á mis-
munandi skólastigi. Er verið að
útbúa sérstaka skólastofu fyrir
þau, þar sem m.a. er hvfldarhorn
fyrir hörnin. Einnig er verið að
breyta salernum o.fl.Um börnin
sér kennari, sem hefur verið f
Reykjadal og hefur reynslu af
meðferð slfkra barna svo og
fóstra.
1 Hlíðaskóla hefur undanfarin 2
ár verið starfrækt sérstök deild
fyrir heyrnarskerta. Eru þar
börn, sem talin voru hafa mögu-
leika til að vera í almennum skóla
með sérkennslu. Hefur þetta
gefizt vel, en þarf tíma til að
þróast.
Nú í vetur mun einn af þessum
nemendum flytjast yfir í almenn-
an skólabekk, en hefur jafnframt
aðgang að sinni fyrri sérdeild
með það, sem þarf.
Þykir þetta mjög æskileg þró-
un, þar sem hægt er að koma
henni við. Fötluðu börnin eru þá
með öðrum börnum f almenna
skólanum í ýmsu, t.d. heyrnar-
skertu börnin í leikfimi o.fl. Og
eins er talið, að börnum almennt
sé hollt að umgangast önnur börn,
sem erfiðara eiga.
V í ðtækar ráðstafanir
í þágu sjávarútvegs
Bráðabirgðalög þess efnis gefin út 1 vikunni,
segir Matthías Bjamason, sjávarútvegsráðherra
í Eyjum
BANASLYS varð f Vestmanna-
eyjum f fyrrakvöld. Ungur piltur,
16 ára, lenti f náttmyrkri f
árekstri við bfl, en pilturinn ók
skellinöðru. Hann var fluttur
með flugvél til Reykjavíkur, en
lézt skömmu eftir komuna
þangað.
Tildrög slyssins eru óljós og
varðist lögreglan í Vestmanna-
eyjum frétta af slysinu — sagði,
að málið væri í rannsókn og of
fljótt væri að skýra frá atvikum.
Slysið varð ofarlega í bænum og
ekkert ljós mun hafa verið á
skellinöðrunni.
Undanfarið hefur mikill skelli-
nöðrufaraldur gengið yfir í Vest-
mannaeyjum og unglingar þeytzt
á þessum farartækjum um bæinn.
ALLIR okkar stærri jöklar munu
verða sýndir minni á nýjum kort-
um. Verið er að leiðrétta mæl-
ingu þeirra og stærð eftir upplýs-
ingum af myndum og mælingum
úr gervihnettinum ERTS I. Búið
er að reikna út Hofsjökul, sem
var talinn 996 ferkm. að flatar-
máli en samkvæmt nýju útreikn-
ingunum er hann ekki nema 915
ferkm. Og aðrir jöklar virðast
hafa minnkað skv. þessum nýju
mælingum.
Það er Bandaríkjamaðurinn
Richard Williams sem hefur verið
hér staddur vegna ráðstefnu um
STEFNT er að því, að gefin verði
út bráðabirgðalög seint f næstu
viku til þess að bjarga rekstraraf-
komu helztu atvinnugreina f
sjávarútvegi. Gffurlegur tap-
rekstur var í sjávarútvegi, þegar
fjarkönnun, sem er að setja niður
nýjar mælingar á íslenzku jöklun-
um vegna erindis, sem jarfræð-
ingarnir Sigurður Þórarinsson og
Kristján Sæmundsson og Ágúst
Böðvarsson, forstöðumaður Land-
mælinga Islands, leggja fram
ásamt Richard Williams á alþjóð-
legu þingi um jöklafræði f Cam-
bridge í næsta mánuði.
Þær tölur, sem hingað til hafa
verið notaðar um flatarmál ís-
lenzkra jökla, munu vera af her-
foringjaráðskortunum, en þar er
Vatnajökull talinn 8400 ferkm.,
Langjökull 1022 ferkm., Hofsjök-
rfkisstjórnin tók við og talið er,
að þær ráðstafanir, sem gerðar
verða f væntanlegum bráða-
birgðalögum, dugi ekki einar sér
til þess að koma fðtum undir
þennan grundvallaratvinnuveg
ull 996 ferkm, Mýrdalsjökull 701
ferkm o.s.frv. Vitað er þó, að jökl-
ar hafa minnkað mikið síðan þær
mælingar voru gerðar og hefur
Jöklarannsóknafélag tslands t.d.
regiulegar mælingar af einstök-
um jökulsporðum, sem sýna það
og alltaf eru birtar.
Williams tjáði fréttamanni
Mbl., að frá gervihnettinum
ERTS I væru þegar til nauðsyn-
legar myndir og mælingar á öllum
stærri jöklum íslands, nema
Drangjökli, og væri verið að
vinna úr því. Liti út fyrir, að
Framhald á bls. 33
landsmanna heldur verður lög
unum fylgt eftir með ráðstöf-
unum f reglugerðum.
Matthfas Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra, sagði í viðtali við
Morgunblaðið í gær, að í bráða-
birgðalögunum yrði m.a. ákvörð-
un um öflun fjár tii olíusjóðs í
þeim tilgangi að halda áfram
niðurgreiðslu á olíu til fiskiskipa,
sem landa afla sínum innanlands.
Væntanlega verður einnig ákvæði
um breytingar á útflutningsgjaldi
til þess að tryggja aukna þörf
vátryggingasjóðs fiskiskipa. Þá
verður ennfremur í lögunum
breyting á framlögum til stofn-
fjársjóðs fiskiskipa og ákvæði um
breytingar á lögum um verð-
jöfnunarsjóð sjávarútvegsins og
væntaleg hækkun fjárbóta vegna
verðfalls á erlendum mörkuðum.
I bráðabirgðalögunum verður
einnig ákvæði um ráðstöfun
gengishagnaðar eftir því sem
hann kemur inn. Verður hann
fyrst og fremst notaður til þess að
greiða það, sem segir í lögunum,
sem Alþingi samþykkti fyrir
nokkrum dögum varðandi ákvörð-
un Seðlabankans um breytingu á
gengi krónunnar, en auk þess
verða ákvæði í þessum bráða-
birgðalögum um bætur til þess að
létta á skuldum og vaxtabyrði
skuttogara, annarra togara og
fiskiskipaflotans almennt. Enn-
fremur til annarra greina sjávar-
útvegs og fyrirgreiðsla til þess að
bæta rekstrarstöðu hraðfrysti-
iðnaðarins sérstaklega, sem er
mjög slæm.
Framhald á bls. 33
Ekiðá
roskinn
mann
I FYRRADAG var ekið á roskinn
mann, sem gekk yfir Hringbraut
á móts við gamla Kennaraskól-
ann. A þessum stað var gang-
braut, sem nú hefur verið lögð
niður, en önnur sett upp nokkru
austar. Var þessi ráðstöfun gerð
til þess að draga úr slysahættu.
Roskni maðurinn var kominn
langleiðina yfir götuna, er bíll ók
á hann. Samkvæmt upplýsingum
lögreglu er talið, að maðurinn,
sem var gestkomandi í borginni,
hafi sloppið nokkuð vel, en þó var
óttazt, að hann hefði brákazt á öxl
og meiðzt eitthvað á hægra fæti.
Gervitunglamælingar sýna
jöklana minni en kortin