Morgunblaðið - 21.09.1974, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1974
3
Er Ríkisútgáfa náms-
bóka svelt fjárhagslega?
KENNARAFUNDUR Hagaskóla
ályktaði nýlega um skort á
kennslubókum f skóium á skyldu-
námsstigi, en nú er skólaár er að
hefjast, vantar enn nokkrar
kennslubækur, sem kenna á eftir.
Að þessu tilefni leitaði Mbl. upp-
lýsinga um þetta mál hjá Krist-
jáni Gunnarssyni fræðslustjóra.
Kristján sagði, að Rfkisútgáfa
námsbóka sæi um útgáfu bók-
anna, en bækurnar hefðu tafizt f
prentun og stafaði það m.a. af
fjárskorti útgáfunnar.
Árið 1971 var gerð skattalaga-
breyting og voru þá nefskattar
svokallaðir felldir niður. Fram til
þess tíma liafði Ríkisútgáfa náms-
bóka öruggan árlegan tekjustofn,
sem var sérstakt námsbókagjald.
Eftir niðurfellingu námsbóka-
gjaldsins varð Ríkisútgáfan síðan
að treysta gjörsamlega á rausn
rfkisvaldsins, og sagði Kristján,
að ávallt gengi jafnerfiðlega að
koma ríkisstjörnum í skilning um,
að nauðsynlegt væri að svelta
ekki þessa útgáfu. Hún væri af-
skaplega mikilvægur þáttur í
menntakerfinu í heild, sem þyrfti
mikið fé, og útgáfan mætti ekki
fara varhluta af mildi rfkisvalds-
ins.
Einkum veldur það erfið-
leikum, þegar endurskoða þarf
námsbækur. Skólarannsóknir
eiga þar hlut að máli, en þar er
mannfæð eins og víðar, og oft og
Aðalfund-
urSÍBS
AÐALFUNDUR SÍBS verður
haldinn um helgina. Hann verður
settur klukkan 10 f.h. í dag, í
Domus Medica. Fundurinn mun
standa í dag og á morgun, og hann
sækja milli 60 og 70 fulltrúar.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
verða ræddar lagabreytingar.
tíðum vilja handrit koma seint til
prentunar. Þó kvað hann í sumum
tilfellum unnt að nota aðrar
kennslubækur.
Kristján Iagði áherzlu á, að
hann teldi ríkisútgáfu á námsbók-
um mjög nauðsynlega, en ríkis-
valdið yrði að sjá til þess, að nægi-
legt fé væri til útgáfustarf-
seminnar, öðru vísi væri tak-
markað gagn af útgáfunni.
Septem ’74
opnuð í dag
SÝNING hópsins Septem '74
verður opnuð í dag í kjallara Nor-
ræna hússins kl. 14. Eins og fram
hefur komið eru I hópnum Guð-
munda Andrésdóttir, Jóhannes
Jóhannesson, Karl Kvaran,
Kristján Davíðsson, Steinþór
Sigurðsson, Valtýr Pétursson og
Þorvaldur Skúlason. Sigurjón
Ölafsson er sérstakur gestur
sýningarinnar.
• t».:
t matsalnum f Hðtúni 12. Frá vinstri: Sigurður Guðmundsson, formaður Sjálfsbjargar f Rcykjavfk,
Theodór A. Jónsson, formaður Landssambandsins, og Trausti Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambandsins.
Sjálfebjörg byggir vinnu-
og dvalarheimili
FJAROFLUNARDAGUR
Á SUNNUDAGINN
Sjálfsbjörg, landssamband fatl-
aðra, rekur margháttaða starf-
semi. Aðalverkefni sambandsins
undanfarin ár hefur verið bygg-
ing Vinnu- og dvalarheimilis
Sjálfsbjargar f Hátúni 12 f
Reykjavfk, og hefur hluti heimil-
isins verið starfræktur f rúmlega
eitt ár. I öðrum áfanga byggingar-
innar, sem er 5 hæða hús, tengt
dvalarheimilinu, verða m.a. 36
fbúðir, skrifstofa, félagsheimili
Sjálfsbjargarfélagsins f Reykja-
vfk, vinnustofa o.fl. Er nokkur
hluti álmunnar tilbúinn undir
tréverk og unnið að múrverki, en
fé til framkvæmda hefur verið
mjög takmarkað.
Hinn árlegi merkja- og blað-
söludagur Sjálfsbjargar verður
næstkomandi sunnudag. Verða þá
seld merki samtakanna og blaðið
„Sjálfsbjörg 1974“. Vaxandi
skilningur og stuðningur lands-
manna hefur verið samtökunum
hvati og stuðlað að bættum hag
fatlaðs fólks f landinu. Og ein
aðferðin til stuðnings er að kaupa
blaðið og merkið.
Blaðið er f jölbreytt að efni: Þar
er ávarp borgarstjóra, og greinar
um æskulýðsmót fatlaðra á
Norðurlöndum, örorku og MS úr
greinargerð læknanna Kjartans
R. Guðmundssonar og Sverris
Skipulag björgunarmála verði undir
einni yfirstjórn I • ( . • HH
Rætt við Bjarna Helgason,
skipherra, er kynnti sér
björgunar- og eftirlitsstörf í
Bandaríkjunum.
NÝLEGA urðu skipherraskipti hjá
Flugdeild Landhelgisgæzlunnar,
og tók Bjarni Helgason þá við þv(
starfi af Helga Hallvarðssyni.
Bjarni hóf störf hjá Landhelgis-
gæzlunni árið 1957 og var þá á
varðskipunum til að byrja með, en
fyrir átta árum varð hann fastur
skipherra hjá stofnununni. Skip-
herrarnir skiptast á um að vera i
flugdeildinni og þá jafnan tvö ár i
senn. Þegar komið var að Bjarna,
ákvað iandhelgisgæzlan að senda
hann til tveggja mánaða náms- og
kynningardvalar I Bandaríkjunum.
Skömmu eftir heimkomuna sneri
Morgunblaðið sér til Bjarna og
bað hann að segja nánar frá dvöl
sinni vestan hafs.
„Já, þessi dvöl min vestra
hófst með því, að ég settist þar á
skólabekk í National Search and
Rescue School, sem er á Govenor
Island, ekki fjarri Manhattaneyjunni
i New York," sagði Bjarni „Þetta eru
alhiða þjálfunarbúðir, og ég var þar í
yfirmannabekk. þar sem alls voru
um 26 nemendur, þar af fjórir
útlendingar auk mín — tveir frá
kanadísku strandgæzlunni, einn úr
danska flughernum og einn frá
Jamaica. Þarna var kennd leit og
björgun, svo og skipulag björgunar-
mála almennt. Auðvitað er þetta
kerfi fyrst og fremst miðað við
bandariskar aðstæður, en hefur
engu að síður fullt notagildi fyrir
aðrar þjóðir. Mátti mikinn lærdóm
af þessu námi draga. Ég var þarna i
fjórar vikur og að þeim tíma liðnum
útskrifaðist ég frá skólanum, eftir að
hafa gengizt undir próf I hverri viku.
Fékk ég I kveðjuskyni skírteini upp á
prófin."
Bjarni sagðist þessu næst hafa
haldið norður til Alaska á Kodiak-
stöðina svonefndu, sem er á sjö-
unda svæði bandarísku strandgæzl-
unnar. „Þarna er rekin mjög virk
björgunarstöð," sagði Bjarni, „og
eínnig stór flugstöð. Strandgæzlan
hefur þarna yfir að ráða bæði
skipum og flugvélum, m.a. fimm
Herkúlesvélum og sex þyrlum, þar
af þrem af sömu gerð og Gnáin
okkar. Fyrstu þrjár vikurnar var ég
eingöngu í gæzluflugi á Herkúles-
vélunum og kynntist því þá, hvernig
bandaríska strandgæzlan skipu-
leggur fluggæzlu sina og fiskveiða-
eftirlit. Að mörgu leyti eru aðstæður
þarna í Alaska svipaðar því sem við
eigum að venjast bæði hvað
veðráttu og landslag snertir, og
eftirlit með fiskveiðibrotum er helzta
viðfangsefni þeirra, nema hvað
þarna eru það Japanar og Rússar,
sem eiga það til að smeygja sér
inn fyrir í stað Bretanna
Bjarni (í aftari röð, lengst til vinstri) ásamt bandarískum strandgæzlumönnum
við komuna úr eftirlitsflugi
Bjarni Helgason, skipherra, sem
nú hefur tekiB við flugdeild Land-
helgisgæzlunnar.
og Vestur-Þjóðverjanna hér
í kringum Alaska er sem kunn-
ugt er 12 mílna landhelgi, en
þar er þó fleira að gæta t.d eru
laxveiðar bannaðar austan 170.
lengdargráðu og er það svæði viða
langt fyrir utan 12 milna mörkin.
Hins vegar hafa Sovétmenn gert
samning við Bandarikjastjórn um að
hafa sérstök umskipunarsvæði fyrir
móðurskip fiskveiðiflotans innan 1 2
mílna markanna, en i staðinn hefur
bandaríska strandgæzlan fulla
heimild til þess að fara um borð í
rússnesku skipin hvar sem er á
þessum slóðum og athuga veiðar-
færin, aflamagn og annað eftir þvl."
Bjarni sagði, að þetta sjönda
svæði bandarísku strandgæzlunnar
væri afar viðáttumikið hvað eftirlits-
störfin áhrærði og kvaðst hafa
komizt allt vestur fyrir 180. lengdar-
baug Fiskveiðieftirlitið væri bæði i
Beringshafinu og eins í Alaskafló-
anum, og gæzluflugið hefði iðulega
staðið röska tíu tíma Bjarni sagði,
að sér hefði einkum þótt athyglis-
vert, hversu geysigóðum tækjabún-
aði strandgæzlumennirnir banda-
risku voru búnir til eftirlitsstarfans
„Slðustu vikuna var ég svo um
borð I USCGC Confidence, sem var
búin þyrlu af sömu gerð og Gná. og
þar frá skipinu fórum við i gæzluflug
allt upp i þrisvar sinnum á hverjum
degi. Confidence er annars af svip-
aðri stærð og Ægir, en er með 70
manna áhöfn Fylgdum við eftir allri
strandlengjunni í Alaskaflóa — allt
frá Kodiakstöðinni suður til Sitka.
Þótti mér mjög lærdómsrikt að sjá,
hvernig þeir notuðu þyrlur af skip-
unum til að halda uppi eftirlits-
störfum."
Bjarni sagði enn fremur, að niður-
staða hans eftir þessa kynnisferð
væri, að ýmislegt megi betur fara i
björgunar- og eftirlitsmálumálum
— „aðallega þó, að okkur skortir
tilfinnanlega betri og fullkomnari
staðsetningartæki í flugvélar, og
eins samræmda stjórn björgunar-
mála Ég tel alveg nauðsynlegt, að i
slysatilfellum, þar sem björgunar-
og leitaraðgerða sé þörf, þá sé ein
aðalstofnun, sem hafi yfirstjórn
þeirra mála, og ég teldi eðlilegast,
að sú stjórn væri í höndum Land-
helgisgæzlunnar, vegna þess, að
hún hefur sína eigin loftskeytastöð
og langmest af björgunartækjum,
bæði skipum og flugvélum. Hins
vegar tel ég, að í sambandi við
flugslys ætti yfirstjórnin að vera i
höndum flugumsjónar, þó að Land-
Framhald á bls. 11.
Bergmanns, um íþróttir fyrir fatl-
aóa eftir Magnús ölafsson og efni
um málefni samtakanna. Rit-
nefnd skipa Ólöf Rfkharðsdóttir,
Pálfna Snorradóttir og Dagur
Brynjúlfsson. Sjálfsbjargarfélög,
sem eru 12, sjá ásamt trúnaðar-
mönnum um sölu á um 95 stöðum
á landinu. Blaðið kostar 100 kr.,
en merkin 50.
Sjálfsbjörg rekur skrifstofu á
Laugavegi 120 og annast fyrir-
greiðslu, m.a. útvegun hjálpar-
tækja, fyrir deildirnar og ein-
staklinga, sem hefur aukizt á und-
anförnum árum. Eru þetta aðal-
lega hjólastólar, sjúkralyftur,
göngugrindur, stafir og varahlut-
ir til viðhalds. Þá gefur skrif-
stofan út Félagsblað, 1—2 blöð á
ári, og kynningarbæklinga um
ýmsa málaflokka.
Nýja byggingin I Hátúni 12 er
skipulögð fyrir fólk f hjólastólum
og reglur hússins miðaðar við að
hver einstaklingur geti lifað því
Iífi, sem hann hefur áhuga á og
getu til. 1 álmunni, sem er I bygg-
ingu, verða 12 2ja herbergja fbúð-
ir með eldhúsi og 24 eins her-
bergja með eldhúsaðstöðu, en for-
stofa og rúmgott baðherbergi
fylgir öllum fbúðum. Enn vantar
mikið á, að næg aðstaða f húsinu,
sem þegar hefur verið tekið f
notkun, sé fyrir hendi. Má þar
fyrst nefna æfingastöð, sundlaug
og vinnustofur, en fjármagn
hefur ekki verið til að ganga frá
baðklefum og byggja upp sund-
laugarálmu f tengslum við
æfingastöðina. 1 sumar var útbú-
in f húsinu aðstaða fyrir fþrótta-
iðkun og mun fþróttafélag fatl-
aðra byrja f haust á nokkrum
íþróttum. Föndurvinna hefur
verið f húsinu á liðnu ári og
einnig hefur verið tekin létt frá-
gangsvinna frá nokkrum fyrir-
tækjum og skapað fbúum hússins
nokkra vinnu. En nú er f athugun
að hefja rekstur vinnustofu fyrir
öryrkja f húsinu, bæði fyrir fbú-
ana og öryrkja. Yrði léttur
iðnaður aðalframleiðslugreinin,
en til greina kæmi að taka ýmis
verkefni, sem vel henta, t.d. frá-
gangsvinnu, pökkun o.fl., en
margt kemur til greina.
A sl. vetri var kennsla f nokkr-
um námsgreinum, á vegum
Námsflokka Reykjavfkur, f hús-
inu og notuðu margir heimilis-
menn sér þá kennslu. Er f ráði að
bæta við námsgreinum f vetur og
gefa fötluðu fólki utan heimilis-
ins kost á að vera með.
Sjálfsbjörg hefur þvf, svo sem
sjá má, blómlegt starf, en fjár-
skortur hamlar.