Morgunblaðið - 21.09.1974, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1974
Félagaskipti í
körfuknattleik
um i 1. deild í vetur, sem geröu
það ekki i fyrra. Guðmundur Þor-
steinsson fyrrum landsliðs-
þjálfari hefur tekið við þjálfun
liðs Vals i stað Ólafs Thorlacíusar,
Hilmar Hafsteinsson fyrrum leik-
maður UMFN hefur nú hætt
keppni, en mun í þess stað þjálfa
lið UMFN. Ekki hefur okkur tek-
ist að afla upplýsinga um það
hver þjálfar lið HSK. Guttormur
Ölafsson, sem þjáfaði þá í fyrra,
verður ekki með liðið i vetur, og
mér finnst líklegast, að Birkir
Þorkelsson þjálfi liðið án þess ég
viti nokkuð öruggt um það. Einar
Sigfússon þjálfar nýliðanna I 1.
deild, Snæfell frá Stykkishólmi,
sem leika i 1. deild i fyrsta skipti.
Einar Bollason verður áfram með
KR, og nafni hans Ólafsson með
IR, svo og Ingva. Sigurbjörnsson
með Armann. IS hefur ekki ráðið
þjálfara enn, og er liklegt, að
Steinn Sveinsson taki að sér þjálf-
un liðsins a.m.k. fyrst um sinn.
Þau félagaskipti, sem þegar er
vitað um, eru þessi: Þröstur Guð-
mundsson úr IISK í KR, Stefán
Bjarkason úr Val i UMFN, Bragi
Jónsson úr UMFS i KR, Jón
Héðinsson úr IMA í IS. Þá höfum
við heyrt um fleira en ekki fengið
staðfest, t.d. að Eiríkur Jónsson,
besti maður UMFG s.l. vetur,
muni leika með Snæfelli, Ólafur
Jóhannesson, bakvörðurinn knái
úr HSK, muni leika með UMFG
og sömuleiðis Magnús Valgeirs-
son áður leikmaður IR, HSK og
Snæfells. IS mun endurheimta
tvo gamla „jaxla“, þá Frits Heine-
man og Stefán Þórarinsson, svo
gera má ráð fyrir ÍS sterku í
vetur.
gk.
Víkingur
AÐALFUNDUR blakdeildar Vík-
ings verður haldinn i Vikings-
heimilinu 24. september n.k. kl.
20.00. Eru blakmenn hvattir til að
fjölmenna.
Nú þegar keppnistfmabilið I
körfubolta er að hefjast er fróð-
legt að rifja upp helstu félaga-
skipti, sem hafa átt sér stað milli
liðanna f sumar, og eins hvernig
þjálfaramálum liðanna verður
háttað f vetur.
A.m.k. fjórir þjálfarar stýra lið-
Steinar Jóhannsson
skoraði mark Keflvík-
inga í Split.
Ætlum okkur langt í Evrópukeppninm
— sögðu Júgóslavarnir eftir stórsigur gegn IBK
EINS frá var skýrt í Morgun-
blaðinu i gær tapaði lið Iþrótta-
bandalags Keflavikur leik sínum
við júgóslavneska liðið Hadjuk
Split f fyrri leik liðanna í Evrópu-
bikarkeppni meistaraliða I knatt-
spyrnu með 1 marki gegn 7, en
leikurinn fór fram í Split í fyrra-
kvöld.
I frásögn AP-fréttastofunnar
um leikinn kemur fram, að Kefl-
víkingarnir hafi staðið sig mjög
vel i fyrri hálfleik og þá oft átt
góðar sóknarlotur og skapað
hættu við mark Júgóslavanna.
Mikill hraði var hins vegar í
leiknum, og mátti glögglega sjá að
í seinni hálfleik fór að draga af
Keflavikuliðinu og þar með r 5u
júgóslavnesku meistararnir öllun
tökum á leiknum.
Gangur leiksins var annars sá,
að fyrstu mínúturnar sóttu Júgó-
slavarnir til mun meira, en Kefla-
víkurvörnin var þá vel á verði og
stóðst öll áhlaupin fram til 31.
mínútu er Zungul skoraði fyrsta
mark leiksins með geysilega
fallegu skoti, sem Þorsteinn átti
enga möguleika á að ná. Á 40.
mínútu bætti svo stjarnan úr liði
Júgóslava í heimsmeistarakeppn-
inni i Þýzkalandi, Oblak, öðru
marki við, en skömmu fyrir lok
hálfleiksins skoraði Steinar Jó-
hannsson laglegt mark fyrir IBK.
Hljóp Steinar inn í sendingu, sem
ætluð var markverðinum og
skoraði af öryggi. Hleypti þetta
mark miklu lífi í Keflavíkurliðið,
sem sótti stanzlaust það sem eftir
var hálfleiksins, en þó án ár-
angurs.
I seinni hálfleiknum komu svo
yfirburðir júgóslavneska liðsins
bezt i ljós. Það hafði öll völd á
vellinum, og lék oft fremur þunga
og óörugga vörn Keflavíkur-
liðsins grátt. Og fimm sinnum
varð íslenzki landsliðsmark-
vörðurinn Þorsteinn Ólafsson að
hirða knöttinn úr netinu hjá sér í
þessum hálfleik. Skoraði Zungul
þrjú þessara marka en Surjak —
önnur stjarna úr júgóslavneska
landsliðinu skoraði tvö. Undir lok
leiksins virtistsem Júgóslavarnir
hægðu ferðina og gáfu Keflvík-
ingum þá möguleika á að sækja,
en þeim tókst hins vegar ekki að
skapa sér verulega hættuleg tæki-
færi.
Enginn einn leikmaður bar af
öðrum i Keflavíkurliðinu. Til að
byrja með var góð barátta í því, en
þegar þreytan fór að segja til sín
var sem leikmennirnir misstu
nokkuð móðinn. Steinar Jóhanns-
son er sagður hafa staðið sig
einna bezt — fljótur og áræðinn
framherji. Vörn liðsins var hins
vegar nokkuð götótt og gaf of
mikil færi á markinu, þar sem
Þorsteinn var fyrir og náði ekki
að sýna sitt bezta.
Beztir í liði Júgóslavanna voru
þeir Oblak, Surjak og Meskovic,
en allt liðið lék vel — tók leikinn
alvarlega og hélt uppi miklum
hraða.
Eftir leikinn sagði Tomislav,
þjálfari Hadjuk Split, að hann
hafi verið nokkuð ánægður með
sína menn. Liðið hefði á engan
hátt getað búið sig nægjanlega vel
undir nýbyrjað keppnistímabil,
þar sem svo margir leikmanna
þess hefðu verið I júgóslavneska
landsliðinu og fórnað því öllum
tíma sínum. — Við höfum mikinn
metnað og ætlum okkur að ná
Iangt í Evrópubikarkeppninni,
sagði Ivic. — Við höfum því ekki
efni á að vanmeta andstæðinga
okkar, hvorki í þessum leik né
öðrum og tökum enga áhættu. Ég
þekkti ekkert til liðs IBK, né
íslenzkrar knattspyrnu fyrir
þennan leik.
Júgóslavneski landsliðsmaður-
inn Buljan, sagði, að lið sitt hefði
verið heppið að fá svo léttan and-
stæðing i fyrstu umferð Evrópu-
keppninnar. — En við þekktum
ekkert til þeirra, og urðum að
berjast þangað til að sigurinn var
örugglega okkar.
Hadjuk Split og IBK leiða
saman hesta sína aftur n.k.
þriðjudag, en þá mun Split ekki
geta telft fram fullu liði, þar sem
júgóslavneska landsliðið verður í
keppnisferð og nokkrir leik-
manns Split fá ekki leyfi til þess
að leika með liði sínu.
Rey kj avíkur mótið
í körfuknattleik
REYKJAVIKURMÓTIÐ f körfu-
knattleik hið 18. f röðinni hefst ð
morgun, sunnudag. 32 flokkar frá
6 félögum keppa f mótinu, auk
minni-bolta flokka, en mót fyrir
þá verður sfðar. Þátttakendur
Kepptu í
Svíþjóð
FJÓRIR unglingar kepptu á
Andrésar-Andarleikunum
sænsku, sem fram fóru nýlega.
Jón Erlingsson varð þar þriðji f
langstökki, stökk 5,83 metra, Asta
B. Gunnlaugsdóttir komst f milli-
riðil f 100 metra hlaupinu, en
varð þar fimmta á 13,0 sek. Ásta
keppti einnig f langstökki og varð
þar aftarlega, stökk 4,77 metra.
Lára Halldórsdóttir, FH, stökk
1,45 metra f hástökki, en sú
keppnisgrein vannst á 1,60 metr-
um og Guðmundur Geirdal, UBK,
hljóp 1000 metra á 2:52,0 mfn., en
hlaupið vannst á 2:40,0 mfn.
verða því um 550, þ.e. 200 fleiri
en f fyrra.
Á morgun fara fram tveir leikir
í m. fl. karla, Valur leikur gegn
Ármanni og IS gegn Fram. —
Leik Vals og Ármanns verður
sennilega að telja einn af úrslita-
leikjum mótsins, a.m.k. ef miða á
við árangur liðanna s.l. keppnis-
tfmabil. Ekki er vitað um neinar
breytingar á liðskipan Ármanns,
en Stefán Bjarkason hefur gengið
úr Val yfir f UMFN, og Þórir
Magnússon, sem meiddist á hendi
í sumar, mun e.t.v. ekki leika með
Val í dag. — Lið IS ætti að vinna
hið unga lið Fram, þótt ekki sé
með neinni vissu hægt að fullyrða
um það fyrirfram, en ÍS-liðið hef-
ur æft mjög vel að undanförnu
v/Norðurlandamóts stúdenta sem
verður hér um mánaðamótin. Og
ekki má gleyma því, að ÍS hefur
borist góður liðsauki þar sem er
hinn sterki miðherji frá Í.M.A.,
Jón Már Héðinsson. — Fróðlegt
verður að sjá hvernig liðin koma
undirbúin til keppninnar nú, og
hvort þetta mót verður jafn jafnt
og skemmtilegt og mótin s.l.
keppnistímabil.
gk.
Dregió
um leíó
105 VINNINGAR
að verðmæti 4o.ooo.kr. hver.
í söiuturnum borgarinnar
eru enn fáanlegir miðar
í smámiðahappdrættinu.
LEYTIÐ MERKISINS—FREISTIÐ GÆFUNNAR