Morgunblaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 1
40SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
188. tbl. 61. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ársfundur Alþjóðabankans:
300 milljónir manna á
mörkum lífs og dauða
30.
sept.
Washington,
AP—Reuter
ROBERT McNamara, forseti Al-
þjóðabankans, sagði f ræðu á árs-
fundi bankans, sem hófst f
Washington f dag, að vestrænar
iðnaðarþjóðir yrðu á næstu fimm
árum að leggja fram stóraukið
fjármagn til aðstoðar þróunar-
löndunum og skoraði á þau að
leggja af mörkunum 36 milljarða
dollara á þvf tfmabili. Hann sagði
að óskaplegt ástand rfkti nú hjá
800 milljónum fbúa fátækustu
landanna, þar sem meðalárstekj-
ur næmu aðeins 200 dollurum
(um 24 þúsund fsl. kr.).
Það vakti athygli, að McNamara
fetaði ekki f fótspor Ford Banda-
nkjaforseta og Kissingers utan-
ríkisráðherra í harðri gagnrýni á
olíuframleiðsluríkin, en sagði að
þessi lönd hefðu lagt hlutfallslega
miklu meira af mörkunum til að-
stoðar við þróunarlöndin en stóru
iðnaðarþjóðirnar og nefndi t.d. að
aðstoð Bandaríkjanna við þró-
unarlöndin hefði verið lA% af
Fá Martinson og
Johnson bók-
menntaverðlaunin?
Stokkhólmi, 30. sept.
NTB.
SÆNSKA útvarpið skýrði
frá því í kvöld, að sænska
bókmenntaakademían
hefði ákveðið að veita
sænsku rithöfundunum
Harry Martinson og
Eyvind Johnson bók-
menntaverðlaun Nóbels í
ár. Sagði útvarpið að til-
S-Afríka
úr S.Þ.?
Sameinuðu þjóðunum,
30. september. AP.
ALLSHERJARÞING Sam-
einuðu þjóðanna neitaði í
kvöld með 98 atkvæðum
gegn 23, en 14 þjóðir sátu
hjá, að samþykkja kjörbréf
fulltrúa sendinefndar S-
Afríku til þingsins og fól
Öryggisráðinu að fjalla um
framtíð landsins innan S.Þ.
kynning þess efnis yrði
gefin út á fimmtudag. Er
það nokkru fyrr en venja
hefur verið, en akademían
er sögð vilja koma í veg
fyrir vangaveltur um verð-
launahafa.
Sé þessi frétt rétt, verð-
ur þetta í 5. skiptið, sem
sænskir rithöfundar fá
verðlaunin. Áreiðanlegar
Framhald á bls. 39
þjóðarframleiðslunni árið 1960,
en aðeins 2/10% á þessu ári.
McNamara sagði það rétt, að
olíuframleiðsluþjóðirnar hefðu
bætt hag sinn langmest á þessu
ári, en benti á að þótt iðnaðar-
þjóðirnar á Vesturlöndum ættu
við mikla verðbólgu að strfða og
hagvöxtur hefði verið minni en
þau hefðu áætlað, hefði efnahags-
leg staða þeirra batnað til muna á
sl. tveimur árum. Hann sagði að
þjóðartekjur orfuríkjanna myndu
aukast úr 76 milljörðum dollara
1973 í 411 milljarða 1980. Fyrri
upphæðin hefði aðeins numið
2,5% af tekjum iðnaðarþjóðanna,
og 1980 myndu 411 milljarðar
dollara aðeins vera 5% af þjóðar-
tekjum iðnaðarþjóðanna. Hann
spáði því einnig, að olíuríkin
myndu eiga fasteignir, verðbréf
og peninga erlendis fyrir um 624
milljarða dollara 1980, miðað við
24 milljarða í ár:
McNamara sagði að það gæti
verið að auðugu iðnaðarþjóðirnar
yrðu eitthvað að herða beltið um
tfma, en slíkt væri auðvelt fyrir
íbúa þeirra, en ógerningur fyrir
þær 800 milljónir manna, sem í
dag lifa í sárafátækt og á barmi
hungursneyðar. McNamara sagði
einnig að hungurdauði vofði yfir
milljónum þessa fólks ef ekki yrði
þegar í stað gert eitthvað stórtækt
til að bæta hag þeirra. Segja
Framhald á bls. 39
Gerald Ford Bandarfkjaforseti
kveður konu sfna Betty með
kossi kvöldið áður en hún
gekkst undir uppskurð, þar
sem hægra brjóst hennar var
numið brott vegna krabba-
meins. Frú Ford er sögð vera á
góðum batavegi og hress f
bragði eftir uppskurðinn, en
nú er beðið eftir niðurstöðum
rannsókna, til að ganga úr
skugga um hvort læknum hef-
ur tekist að komast fyrir
krabbameinið. Frú Ford er 56
ára að aldri.
Vinstri menn virðast hafa
tögl og hagldir í Portúgal
Lissabon 30. september
AP—Reuter.
UNGIR vinstrisinnaðir herfor-
ingjar neyddu Spinola, forseta
Portúgals, til að segja af sér f
morgun og hefur nú þriggja
manna vinnstri sinnuð stjórnar-
nefnd tekið við stjórn landsins. 1
afsagnarbréfi sfnu fordæmdi
Spinola „öngþveiti og Iögleysu“
og varaði við að „ný tegund
þrælahalds væri f uppsiglingu."
Samfara afsögn Spinolas hafa
borist fréttir af því að hreinsanir
hafi farið fram f hópi stuðnings-
manna hans, herforingjaráðinu
og að tveir af bandamönnum hans
Vel heppnuð sýning í Moskvu
f bráðabirgðastjórninni hafi verið
settir af.
Þá berast einnig fréttir um
mikla leit að ,,fasistum“ en það
orðatiltæki er notað mjög frjáls-
lega um allt frá auðmönnum í þá,
sem látið hafa í ljós efa um þróun
byltingarinnar. Heimildir herma
að konur og börn 100 auðugustu
manna landsins hafi þegar flúið
ásamt mönnum sinum, sem ekki
höfðu verið hnepptirí varðhald.
Spinola sagði af sér, eftir að
stuðningsmenn hans úr hópi
hægri manna hættu við fjölda-
göngu til stuðnings honum, en
kommúnistar og vinstri menn
höfðu hótað að beita ofbeldi til að
stöðva gönguna.
Þessi úrslit koma þó ekki á
óvart, því að vinsældir Spinolas
hafa farið þverrandi á undanförn-
um vikum, og einkum hafa vinstri
Framhald á bls. 39
Moskvu, 30. sept. NTB.
MILLI 3—4000 manns sóttu
málverkasýningu 60 sovézkra
listamanna, sem haldin var í
Izmailovogarði í Moskvu í gær,
sunnudag, með leyfi sovézkra
yfirvalda. Listamennirnir
sýndu þarna afstraktlist, pop-
list og frumstæðar teikningar,
sem allar voru greinilega utan
þess listaramma, sem sovézki
kommúnistaflokkurinn viður-
kennir.
Sýning þessi er stærsta óopin-
bera samkoman, sem haldin
hefur verið í Moskvu á undan-
förnum áratugum. Listamenn-
irnir 60 voru mjög ánægðir með
sýninguna, en velta því fyrir
sér hvort leyfið fyrir henni sé
upphafið að sveigjanlegri
stefnu sovézkra yfirvalda á
þessu sviði. Einn listamann-
anna sagði við vestrænan
fréttamann: „Auðvitað vildum
við ekkert frekar en að fá að
halda fleiri svona sýningar, en
ég þori ekki að gera mér vonir
um að yfirvöldin leyfi slíkt.
Þegar listamennirnir reyndu að
halda sýningu á verkum sínum
fyrir viku síðan notuðu yfirvöld
jarðýtur, sprautubíla og ösku-
bíla til að loka sýningunni. Sýn-
ingin í gær stóð i 4 klst., og að
sögn vestrænna fréttamanna
vakti hún mikla ánægju þeirra,
sem skoðuðu hana, en talið að
mun fleiri en þorðu hafi viljað
koma, af ótta við að yfirvöld
væru að leggja gildru fyrir
gesti.
Nixon vildi af-
þakka náðun
Eitt verkanna á sýningunni.
Washington, 30. september AP.
BANDARlSKA vikuritið Time
segir f nýjasta tölublaðinu, sem
út kom f dag, að Nixon fyrrum
Bandarfkjaforseti hafi hringt f
Ford forseta og boðist til að hafna
náðuninni, sem Ford veitti hon-
um, en Ford ekki tekið það til
greina og sagt Nixon, að óánægju-
öldurnar myndi brátt lægja.
Time hefur eftir heimildum í
Hvíta húsinu, að þetta hafi verið í
fyrsta skipti, sem Nixon hringdi í
Ford, frá því að hann tók við
forsetaembættinu og að þeir hafi
aðeins rætt persónuleg mál í sam-
talinu.
Læknar Nixons sögðu f dag, að
hann yrði að vera f sjúkrahúsi í
a.m.k. viku í viðbót og er því
útilokað að hann geti mætt sem
vitni við réttarhöldin yfir Erlich-
mann, fyrrverandi ráðgjafa hans,
sem hefjast í Washington á morg-
un. 4 aðrir samstarfsmenn Erlich-
mans komu einnig fyrir réttinn,
sakaðir um meinsæri.