Morgunblaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTOBER 1974 Mikið tjón á mjólkur- búinu á Egilsstöðum Egilsstöðum — 30. september. ELDUR kom upp f mjðlkurbúinu á Egilsstöðum um kl. 10 f gær- morgun. Brugðið var skjótt við til að reyna að rlökkva eldinn, en þegar slökkvistarf hófst var mik- ill eldur f risi hússíns, en eldur- inn varð ekki slökktur fyrr en risið var brunnið að mestu. Mönn- um hugkvæmdist þó að setja hlera undir loftið f vinnusalnum og reka undir þá stoðir, en með þeim hætti tókst að koma f veg fyrir að loftið félli niður f salinn og á vélarnar sem þar voru. Eru vélarnar þvf óskemmdar að heita má, þó að rafleiðslur allar séu brunnar. Eldsupptök hafa ekki verið full- könnuð enn sem komið er. Mjólkurbúið er hið eina hér um slóðir og er þetta því mjög baga- legt fyrir bændur á Héraði. Hins vegar stendur til að leysa þetta vandamál til bráðabirgða með því að fá tankbíl frá Mjólkurbúi Flóa- manna, er flytji mjólkina frá Hér- aði til Húsavíkur til gerilsneyð- ingar og síðan aftur gerilsneydda til baka. Hraðað Verður bráða- birgðaviðgerð á mjólkurbúinu, og byggt á það nýtt þak, en nýtt og glæsilegt mjólkurbú, er i smfðum hér þó að það eigi enn nokkuð í land. — Steinþór. 1400 hestahlaða brann í Skagafirði Mælifelli 30. september. Á TÍUNDA tfmanum á sunnu- dagskvöld kviknaði skyndilega eldur f 1400 hesta hlöðu f Geld- ingaholti. Álitið er að kviknað hafi f út frá rafmagni, en heyið — um 1200 hestar — var grænt og mjög vcl verkað. Iflaðan var rcist 1971, stálgrindahús og er 18 kúa fjós undir henni að hálfu. Loftið yfir fjósinu brann ekki og eru skemmdir á þvf ekki stórvægi- legar. 300 kinda f járhús, sem er f smfðum norðan hlöðunnar slapp að mestu, og þrjú stór hey þar hið næsta, enda barst fljótt hjálp úr nágrenni og úr Staðarhreppi, en slökkviliðið f Varmahlfð og á Sauðárkróki brugðu einnig skjótt við. Hlaðan er nær ónýt. Stál- grindur dignuðu og er tilgangs- laust að klæða þær að nýju, báru- járn mjög skemmt og böttungar gerbrunnir. Enda þótt hlaðan væri vátryggð er tjón bændanna í Geldingaholti, Sigurjóns og Gunn- laugs Tóbíassonar, mikið, fyrir utan heyskaðann, sem er gífur- legur. Reynt verður að hirða eitt- hvað af heyinu, en það sem ekki brann er rennblautt og þvælt. Var það ekki vátryggt. Sérstaklega skal tekið fram, að ekki var hita I vottur í hlöðunni og hlýtur orsök brunans því að vera önnur, en það er mál er enn á rannsóknarstigi. Helzt beinist grunur að rafmagn- inu. — Séra Agúst. Lík stúlkunn- ar fundið LlK stúlkunnar sem saknað hefur verið frá Vfk f Mýrdal fannst um hádegisbilið f gær. Fannst það rekið á fjörur rétt vestan við Vfkurána, suður af Vfkurþorp- inu. Var stúlkan f öllum klæðum og engir áverkar sjáanlegir á Ifk- inu. Stúlkan var úr Reykjavík, en gestkomandi á Vík. Hennar var fyrst saknað á föstudagskvöld og leit þá þegar hafin. Um helgina leituðu flokkar manna á landi og eins var leitað úr lofti. I gærmorg- un hugkvæmdist bifreiðastjóra í þorpinu að aka þarna niður með ánni og fann þá lfk stúlkunnar. Endurskinsmerkin ódýr líftrygging 1 DAG hefst árleg kynning Um- ferðarráðs á endurskinsmerkjum og gildi þeirra fyrir umferðar- öryggið, þegar skammdegistfm- inn fer f hönd. Kynningin hófst á þvf, að dómsmálaráðherra Ólafi Jóhannessyni voru afhent sýnis- horn endurskinsmerkja þeirra, sem Umferðarráð hefur látið út- búa til dreifingar og sölu um allt land. Við það tækifæri sagði dómsmálaráðherra m.a.: „Um- ferðin krefst árlega mikilla fórna, og f litlu þjóðfélagi sem okkar er hvert mannslff dýrmætt. Ég vil þvf eindregið hvetja alla, jafnt unga sem aldna, til þess að nota þessi ódýru merki. Þau eru vissulega varúðarráðstöfun til að koma f veg fyrir slys og geta orðið ódýr lfftrygging.“ Að þessu sinni beinist athyglin sérstaklega að fullorðna fólkinu, því þrátt fyrir mikilvægi endur- skins fyrir gangandi vegfarendur hefur reynzt örðugt að koma á almennri notkun merkjanna. Það er útbreiddur misskilningur, að endurskinsmerki séu fyrst og fremst fyrir börn. Fullorðnir eru meira á ferli eftir að skyggja tekur og eru þar af leiðandi oftar f h opftii Á s.l. ári gerði Umferðarráð áætlun til þriggja ára um sölu endurskinsmerkja. Þá seldust 28 þús. endurskinsmerki, á þessu ári er markmiðið að selja 40 þús. merki og á næsta ári 50 þúsund. Einn þriðji hluti umferðarslysa verður í myrkri og slæmu skyggni, auk þess, sem þau eru mun alvarlegri en slys í dags- birtu. Endurskinsmerki eru þvf mikilvæg fyrir gangandi vegfar- endur, þegar þeir eru á ferli í myrkri eða slæmu skyggni. Endurskinsmerki er gert úr þús- undum örsmárra glerperla beggja megin á þunnri plötu. Þegar svo ljós bifreiðar fellur á plötuna endurkastar hún ljósinu með miklum styrk til bifreiðastjórans. Gangandi vegfarandi sést fimm sinnum lengra frá ef hann notar endurskinsmerki. Þar með kemur endurskinsmerkið I veg fyrir að hinn gangandi vegfarandi sjáist of seint. Að þessu sinni hefur Umferðar- ráð gefið út bækling, sem hefur verið sendur fyrirtækjum, stofn- unum og sveitarfélögum víðs- vegar um landið. Þessum bækl- ingi er ætlað að kynna endur- skinsmerkin. Vilja hætta í Lífeyris- sióði Austurlands Fá ekki lán nema hafa réttar pólitískar skoðanir Stjórn Verkalýðs- og sjómanna- félags Fáskrúðsfjarðar hefur nú verið falið að athuga hvort félagið eigi ekki að segja sig úr Lífeyris- sjóði Austurlands og annaðhvort að falast eftir inngöngu I annan lífeyrissjóð eða stofna sér lífeyris- sjóð. „Ástæðan fyrir þessu er sú,“ sagði Guðni Kristinsson, varafor- maður félagsins, í gær, „að stjórn- endur sjóðsins sem eru f Nes- kaupstað hafa hagað störfum sín- um þannig, að það er til hinnar mestu hneisu fyrir þá. Þeir hafa leyft mönnum, sem hafa réttar pólitískar skoðanir, að þeirra mati, að kaupa sig inn í félagið og síðan veitt þeim lán. Á meðan hafa aðrir fullgildir félagar ekki fengið lán úr sjóðnum. Þegar svona er komið er ekki lengur verandi f sjóðnum og hér finnst okkur, að þeir atvinnurekendur, sem eru í stjórn sjóðsins, lftil áhrif hafa á gang mála. Stjórn- endur hans f Neskaupstað virðast algjörlega ráða ferðinni," sagði Guðni. Hann sagði, að þessi ákvörðun hefði verið tekin á fjölmennum fundi félagsins s.l. laugardag, en þar spunnust miklar umræður um þetta mál og samþykkti fundur- inn einróma að fela stjórninni að reyna að slfta sig úr tengslum við Lífeyrissjóð Austurlands. Enn- fremur var samþykkt á fundinum Ólafur Jóhannesson dómsmála- ráðherra á göngu með endur- skinsmerki. Þau endurskinsmerki, sem Um- ferðarráð dreifir nú til sölu, eru tvenns konar: 1. Áprentuð merki til að sauma áföt. 2. Litlar plötur, sem hafðar eru f vasa, og látnar hanga lausar, þegar fólk er á ferð I myrkri og slæmu skyggni. Verð merkjanna er kr. 50,00. Merkin eru til sölu f öllum mjólk- urbúðum á dreifingarsvæði Mjólkursamsölunnar f Reykjavík og f kaupfélögum um land allt. að segja upp núverandi samning- um, þannig að þeir yrðu lausir 1. nóvember n.k., en ekki var tekin nein ákvörðun um verkfallsboð- un. Myndin er tekin á sunnudag við prestvfgslu f Dómkirkj- unni f Reykjavfk, en þar vfgði hiskup tslands, herra Sigur- björn Einarsson, prestana Auði Eir Vilhjálmsdóttur til Staðarprestakalls f Súganda- firði, Jón Þorsteinsson til Sét- bergsprestakalls f Grundar- firði og Kristján Val Ingólfs- son til Raufarhafnarpresta- kalls. Einar talar á Sþ-þingi EINAR Ágústsson utanríkisráð- herra átti að flytja ræðu sína í nótt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna eða milli kl. 9 og 10 að staðartíma. Ræða Einars snerist mikið um þróun hafréttarmála, en nánar verður frá henni greint sfðar. Góð sala hjá Reyðar- fjarðarbát Reyðarfirði — 30. september. GUNNAR SU-139 kom sl. sunnu- dag úr söluferð til Cuxhaven f Þýzkalandi. Báturinn var með 74 tonn og var meðalverð á hvert kíló kr. 70.20. Ferðin gekk mjög vel báðar leiðir, þrátt fyrir vont veður hér heima fyrir. Snæfell SU 20 er suður með landi á neta- veiðum, en afli hefur verið lftill, enda veðurlag þar mjög óhag- stætt. Barna- og miðskóli Reyðarfjarð- ar tekur til starfa á morgun. 115 börn verða f bamaskólanum í vet- ur og kennt í 7 bekkjardeildum. 1 miðskólanum verða 46 börn í þremur bekkjardeildum. Fastir kennarar eru 7 með skólastjóra, en stundakennarar eru þrír. Skólastjóri er Kristinn Einarsson. — Gréta. Þá hefur blaðið fregnað að mikil óánægja sé ríkjandi á fleiri stöðum á Austurlandi vegna af- greiðslu lána úr Lffeyrissjóði Austurlands. EINBYLISHUS EYÐILEGGST ÍBRUNAÍ NORÐFIRÐI Neskaupstað, 30. sept. UM KLUKKAN 13 í gær var Slökkvilið Neskaupstaðar kallað að býlinu Skálateigi 2 í Norð- fjarðarhreppi, en mikill eldur var þá á efri hæð hússins, sem er tvílyft steinhús. Þegar slökkvi- liðið kom á vettvang var mikill eldur á efri hæðinni og f þaki hússins. Slökkvistarfið gekk þó vel, enda veður gott og var þvi aó mestu lokið á klukkustund. Húsið er gffurlefea mikið skemmt eftir brunann, efri hæðin að mestu ónýt eftir eldinn og sú neðri stórskemmd af reyk og vatni. Eldurinn mun hafa komiö upp í þakherbergi í norðaustur hluta hússins, en ekki er vitað um eldsupptök. öll búslóð náðist út úr húsinu, en eitthvað mun hún hafa skemmst. I Skálateigi 2 bjó Einar Sigfússon ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum. Ennfremur bjó aldraður faðir Einars hjá þeim. Fólkinu hefur nú verið komið fyrir á öðrum bæjum f Norðfjarðarsveit. Asgeir. Fjársöfnun vegna Sjálfstæðis- hússins FJÁRSÖFNUN vegna Sjálfstæð- ishússins stendur enn yfir. I kvöld, þriðjudag, hefst fjársöfn- un f Vesturbæjar- og Miðbæjar- hverfi. Söfnuninni verður haldið áfram þar á miðvikudags- og fimmtudagskvöld. Lokið er fjár- söfnun f Nes- og Melahverfi. Að sögn talsmanna byggingarnefnd- arinnar gekk sú söfnun vel og er það von nefndarinnar, að undir- tektir verði jafn góðar í Vestur- bæjar-og Miðbæjarh verfi. Fulltrúar byggingarnefnd- arinnar leita nú eftir fjárfram- lögum hjá þeim stuðnings- mönnum flokksins, sem ekki hafa þegar fengið tækifæri til þess að leggja skerf til húsbyggingar- innar. Unnið er að uppslætti fyrir efstu hæð hússins um þessar mundir. Ráðgert er að ljúka við að steypa húsið upp í þessum mánuði. Fjársöfnunin, sem nú fer fram, á að tryggja, að unnt verði að ljúka þeim framkvæmdum. Myndin sýnir slökkviliðsmenn á þaki mjðlkurbúsins á Egilsstöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.