Morgunblaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1974 3 Muna ekki annað marga tugi fjár úr Vföidalsá, en hún liggur langs eftir Jökuldals- heiðinni. Hafði áin blásið upp og bólgnað mikið, en hún rennur eft- ir talsverðu sléttlendi. Þá kvaðst hann einnig hafa frétt af því að smalað hefði verið í Jökulsárhlfð- inni og þar hefðu fundizt kindur, sem hrakizt hefðu, m.a. hefðu á einum stað fundizt 6 til 7 dauðar kindur. I gær var fyrsti góðviðrisdagur- inn eftir þetta áhlaup og voru menn almennt á heiðum uppi að huga að fé sínu. Slíkt veður kvað Aðalsteinn mjög óvenjulegt svo snemma hausts og í 50 ára bú- skapartíð sinni sagðist hann ekki minnast slíks sem þessa. eins áhlaup í göngum „Eg bjó f 50 ár á Jökuldalnum og allan minn búskap man ég ekki eftir öðru eins áhlaupi svo snemma hausts og nú hefur gert.“ Þetta sagði Aðalsteinn Jónsson, fyrrum bóndi á Vaðbrekku í Jökuldal, er Mbl. ræddi við hann f gær. Aðaisteinn býr nú á Egils- stöðum, en sonur hans Aðalsteinn býr nú á Vaðbrekku. Hann var ásamt öðrum á fjalli f leit að fé, sem fennt hefur f áhlaupinu, sem gerði f fyrri viku. Aðalseinn Jónsson skýrði Mbl. frá því í gær að upphaflega hafi gangnamenn ætlað að fara á fjall 24. september og við Brúardali var komið svo mikið vonzkuveður að gangnamenn urðu að skilja þar eftir talsvert f jár og hætta smala- mennsku. Skildu þeir féð eftir innan við Vesturdalsá, sem þá var orðin mjög bólgin og algjörlega ófær yfirferðar. Gangnamenn gátu ekki athafnað sig sökum veð- urs og f óru því heim. Þegar gangnamennirnir komu aftur að Vesturdalsá var þar féð fyrir og hafði ekkert komið fyrir það. Mjöllin á þessum slóðum var Gangnamenn á Jökuldalsheiði lentu í hrakning- umáfjöllum mjög þurr og fennti því ekki. Hins vegar kvað Aðalsteinn meiri blota hafa verið utar í heiðinni og hlóðst krap utan á kindurnar og fraus síðan. Hafa fundizt kindur á stöku stöðum albrynjaðar, en ekki kvað hann hafa verið kannað enn, hvort mikill skaði hefði orðið á fénu. Þó kvaðst hann hafa heyrt um, að eitthvað hefði fundizt af dauðum kindum. Aðalsteinn Jónsson sagði að í morgun hefðu menn dregið all- Þá ræddi Mbl. i gær við Arnór Benediktsson á Hvanná. Hann sagði að í göngum hefðu menn fundið í Laxá talsvert af fé, sem hrakizt hafði I ána. Voru sumar kindur hálfgert á kafi, en yfirleitt voru þær lifandi. Hann kvað stór- skefli hafa verið á þessum slóðum og fannir harðar, þannig að ekki hafi til fullnustu verið unnt að kanna, hve mikið fé væri á þessum slóðum. Farartækin, sem gangnamennirnir nota eru snjó- sleðar. Arnór sagði að það væru einu farartækin sem dygðu á heiðinni. Gangnamenn, sem fóru frá Seyðisfirði yfir í Loðmundarfjörð i leitir lentu í leiðindaveðri, en Gunnlaugur Sigurbjörnsson, sem tók þátt í leitinni sagði, að ekkert hefði orðið að gangnamönnum, sem staðið hefðu af sér hrakviðrið á eyðibýli i Loðmundarfirði. Hins vegar sagði hann að Borgfirð- ingar, sem voru að smala milli Loðmundarfjarðar og Húsavíkur, hefðu lent í talsverðum hrakn- Framhald'á bls. 39 Frá aukaþingi Sambands ungra sjálfstæðismanna, sem haldið var f Vaihöll á Þingvöllum um sfðustu helgi. Friðrik Sophusson, formaður S.U.S.: Ánægður með störf aukaþingsins Aukaþing Sambands ungra sjálfstæðismanna var haldið f Valhöll á Þingvöllum um sfðustu helgi. Milli 70 og 80 fulltrúar félaga ungra sjálfstæðismanna vfðsvegar að af landinu sóttu þingið. Helstu umræðuefni þings- ins voru stjórnarskrármálefni, byggðamál og nýsköpun einka- framtaksins. A sunnudagsmorg- un var lagður blómsveigur að minnisvarða Bjarna Benedikts- sonar, Sigríður Björnsdóttur og dóttursonar þeirra. Viðstaddur þá athöfn var Geir Hallgrfmsson fcr- sætisráðherra, sem flutti ávarp eftir hádegisverð þingfulltrúa á sunnudaginn. Friðrik Sophusson, formaður S.U.S., sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær: „Þegar á heildina er litið er ég ánægður með þingið og það starf, sem var unnið þar og við undirbúning þess. Á sjálfu þinginu var rætt og ályktað um þau málefni, sem verða í sviðs- ljósi stjórnmálanna á næstunni. Sjálfstæðisflokkurinn er nú f stjórnarsamstarfi við flokk, sem hann hefur verið í andstöðu við allan þann tíma, er þeir, sem nú starfa í samtökum ungra sjálf- stæðismanna, hafa tekið þátt f stjórnmálastarfi. Á þessum breyt- ingum vildum við átta okkur, ekki síst með tilliti til kosningasigra flokksins á þessu ári, en flestir telja, að unga fólkið hafi átt mest- an þátt i þeim.“ Aukaþingið var sett laust eftir kl. 14 á laugardag. Við þingsetn- ingu flutti Friðrik Sophusson ávarp. Siðan var gengið til dag- skrár. Talsmenn starfshópa, er unnið höfðu að málefnaundirbún- ingi þingsins, gerðu grein fyrir tillögum og álitsgerðum, er lagðar voru fram. Jón Magnússon mælti fyrir áliti hóps, er fjallað hafði um stjórnskipunarmálefni. Markús Örn Antonsson gerði grein fyrir áliti starfshóps um byggðamál og sjálfstæði byggða- samtaka. Loks lýsti Jón Steinar Gunnlaugsson tillögum starfs- hóps, er fjallað hafði um nýsköp- un einkaframtaksins. Að loknu kaffihléi var rætt um áðurgreind verkefni 1 sérstökum umræðuhópum. Hóparnir héldu sfðan áfram störfum árdegis á sunnudag. En eftir hádegi hófust almennar umræður og afgreiðsla mála. Samþykktar voru vfðtækar tillögur um breytingar á stjórnar- skránni. ítarlegar ályktanir voru samþykktar um aðgerðir í byggða- málum og sjálfstjórn byggðasam- taka. Loks voru samþykktar til- lögur um nýsköpun einkafram- taksins. Þinginu lauk laust eftir kl. 19 á sunnudagskvöld. Á laugardagskvöldið var kvöldvaka, er Árni Johnsen stjórnaði. Nánar verður greint frá ályktunum þingsins síðar. 1 stjórnmálayfirlýsingu auka- þingsins er lýst yfir stuðningi við endurreisnaraðgerðir ríkisstjórn- arinnar í efnahagsmálum. Sér- stök áhersla er lögð á mikilvægi láglaunauppbóta, og loks er fagn- að þeirri stefnubreytingu, sem orðið héfur í varnar- og öryggis- málum. Bíræfinn ávísanafalsari 1 SlÐUSTU viku brá maður nokkur sér inn f verzlun við Laugaveginn. Að vel athuguðu máli festi hann kaup á hlut, og kostaði hann 30 þúsund krónur. Tók maðurinn upp ávfsana- hefti, skrifaði ávfsun uppá 75 þúsund krónur, fékk mismun- inn greiddan í reiðufé og hvarf á brott með féð og hlutinn. Næst gerist það, að menn uppgötva að ávfsunin er f meira lagi grunsamleg. Reyndist hún vera úr 20 ára gömlu hefti frá Iðnaðarbankanum, gjörólík þeim sem nú eru í umferð. Að sjálfsögðu var hún innstæðu- laus. Þegar þetta var upplýst, var hringt í útgefanda ávís- unarinnar, en nafn og heimilis- fang var greinilega skrifað á ávfsunina. Hann varð þrumu lostinn, sagðist hvorki hafa i umrædda verzlun komið né hafa ávísanareikning í Iðnaðar- bankanum. Hafði nafn hans verið falsað á ávísunina. Mál þetta er enn óupplýst. Slysí Landssveit MJÖG harður árekstur varð á þjóðveginum f Landssveit að- fararnótt sunnudagsins, skammt sunnan við félagsheim- ilið Brúarlund. Tveir bflar lentu saman á blindhæð, og slasaðist þrennt. Flytja varð pilt og stúlku á sjúkrahús f Reykjavfk, en stúlkan fékk að fara heim til sfn eftir að lækn irinn á Stórólfshvoli hafði gert að meiðslum hennar. Báðir bfl- arnir voru úr Reykjavfk, og leikur grunur á að bifreiða- stjóri annars þeirra hafi verið undir áhrifum áfengis. Réttar dansleikur var f Brúarlundi þetta kvöld, og átti slysið sér stað skömmu eftir að honum lauk, eða um kl. 2.30. Athafnasamir þjófar ÞJÓFAR voru mjög athafna- samir f höfuðborginni um helg- ina. Hér á eftir verða talin þau innbrot sem rannsóknarlög- reglan hafði afskipti af. Aðfararnótt s.l. laugardags var brotizt inn í endurskoð- unarskrifstofu N Manscher & Co, Borgartúni 21. Þar var stoi- ið hvorki meira né minna en rúmlega 2000 ávísanaeyðublöð- um á hlaupareikning í Austur- bæjarútibúi Landsbankans. Númer hlaupareikningsins og nafn fyrirtækisins er prentað á eyðublöðin. Númer eyðublað- anna sem hurfu eru 27964C til 30000C, og eru menn beðnir að láta rannsóknarlögregluna vita strax, ef þeir verða varir við þessi eyðublöð í umferð. 1 gær hafði enginn af þessum ávísun- um komið fram. Sömu nótt var brotizt inn í Sundhöllina. Litlu var stolið, en töluverðar skemmdir unnar á útbúnaði fyrirtækisins. M.a. fóru glerbrot í sundlaugina, og varð að loka henni og hreinsa. Af ummerkjum mátti ráða, að þjófarnir væru litlir sund- áhugamenn, því þeir slepptu því að fá sér sundsprett. Tilraun var gerð til innbrots í skrifstofuhús Stálsmiðjunnar við Mýrargötu, en sú tilraun virðist ekki hafa borið árangur. Nokkrar rúður voru brotnar. Annað innbrot í Vesturbænum heppnaðist betur, ef nota má slíkt orðalag. Brotizt var inn í kjallarageymslu i fjölbýlishúsi við Meistaravelli, og þaðan var stolið 15 dósum af niðursoðnum ávöxtum. Þrjú önnur smáinnbrot varð lögreglan að glfma við um helg- ina. Brotizt var inn í smáverzl- un við Hátún, og þaðan stolið 6 lengjum af sfgarettum og 2—3 þúsund krónum í peningum. Barnaheimilið Bjarkarhlíð við Bústaðaveg fékk heimsókn óvæntra gesta, en þar var ekk- ert verðmætt að finna, og sneru þjófarnir brott við svo búið, en áður höfðu þeir rótað í dóti og þar með skilið eftir merki um heimsókn sína. Þá var brotizt inn í bifreiðina P 200, sem stóð við Skipholt. Stolið var Blaupunkt útvarpstæki, mjög vönduðu. Loks má geta þess, að rann- sóknarlögreglan handsamaði um-helgina mann nokkurn sem játaði að hafa stolið riffli úr húsi við Hraunbæ fyrir nokkru, en frá máli þessu hefur verið skýrt í Mbl. Fannst annar tveggja stolnu rifflanna í her- bergi mannsins, sem er leigj- andi f húsinu. Hinn riffillinn hefur ekki fundizt. Maðurinn hefur verið dæmdur í 10 daga gæzluvarðhald. í lífshættu eftir að hafa ekið undir vörubíl TVEIR ungir menn slösuðust alvarlega þegar bfll þeirra lenti undir vörubflspalli á Sogavegi aðfararnótt s.I. sunnudags. Oku- maðurinn hlaut höfuðkúpubrot og farþeginn hálsbrotnaði. Þeir liggja nú á gjörgæzludeild Borgarsjúkrahússins, og er ökumaðurinn meðvitundarlaus og f Iffshættu, en farþeginn er með meðvitund, mjög mikið slasaður. Slysið varð skömmu fyrir klukkan 3 um nóttina. Menn- irnir voru á Fiat 850, og óku austur Sogaveg. Á móts við hús nr. 88 stóð ógangfær vörubíll, og skipti engum togum, að þeir óku beint undir pall bílsins. Sjónarvottar segja, að svo virð- ist sem ökumaðurinn hafi ekki áttað sig á hættunni fyrr en bíllinn átti eftir örfáa metra að vörubílnum. Reyndi hann þá að hægja á ferðinni og sveigja frá, en það var þá of seint. Aksturs skilyrði voru mjög góð þessa nótt. Bíllinn er stórskemmdur. Mennirnir eru 21 og 22 ára. Á laugardaginn varð mjög harður árekstur tveggja bif- reiða á mótum Flókagötu og Gunnarsbrautar. Slys urðu ekki, en önnur bifreiðin er tal in gjörónýt. Þá varð bílvelta á Vesturlandsvegi um kl. 16 i gær, skammt austan Korpu Volvóbíll var að fara framúr Volkswagenbíl og strukust þeir saman, með þeim afleiðingum að Volkswagenbíllinn endaði ferð sína á hvolfi utan vegar. Kona og 7 ára sonur hennar voru í bflnum, og sluppu þau nær ómeidd. Telst það mikil mildi, þvf bíllinn er gjörónýtur. Tekur 23000 plús16000 Siglufirði 30. sept. BRUARFOSS er kominn, hing- að til að lesta hraðfrystan fisk til útlanda. Tekur hann 23.000 kassa af fiski úr hraðfrystihús- unum og hingað er kominn Ljósafoss, sem hefur verið að skrapa saman á ýmsurrí höfnum frystan fisk. I umskipun milli fossanna fara um 16.000 kassar. — Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.