Morgunblaðið - 01.10.1974, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 01.10.1974, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1974 10 fólk — fólk — fólk — fólk „Síðustu forvöð að sjá til sólar fyrir veturinn” Ofan úr fjallshlíðinni gat að llta byggð við fjarðarbotn og frí brúnum séð var fjarðarbotninn girtur fjöllum. Hann kúrði þarna bærinn I sólskin- inu við lognhvltt haf, en marga mánuði ðrsins sér þar aldrei sól. Það fyrsta úr mannllfinu, sem blasti við okkur þegar við renndum inn I byggðina var fólk I heyskap, nokkrir fullorðnir og mörg böm að safna ævintýrum. Páll Sigtryggur Bjömsson var með hrlfuna á lofti, fæddur 1902 og hefur átt heima á Seyðisfirði síðan 1935. Vi8 röbbuðum vi8 hann á túninu. „Ég ætla a8 biðja þig fyrir skilaboS til þeirra fyrir sunnan, sem hafa veriS I nafni landbúnaðarforsvars- manna að þvl að undanförnu að hæla sumrinu um allt land og hey- skaparaðstöSu bænda. Þetta hefur 1 „Ég ætla að biðja þig fyrir skilaboð til þeirra fyrir sunnan” sungið I útvarpi og sjónvarpi, en vi8 . viljum aldeilis gera athugasemd vi8 það. Þa8 litur út fyrir, a8 ef það er sólskin I Reykjavlk og á SuSvestur- landi þá sé allt I lagi, en þa8 eru nú fleiri horn á landinu en það og þetta sumar hér hjá okkur hefur veriS þa8 vætusamasta I áratugi, minnir mig helzt á sumariS 1950 nema það. að rigningarnar hafa ekki veriS eins gifurlegar og engin stórviSri, en þrautleiSinlegt veSur I lengd. í júlí sást til sólar stund úr degi ellefu sinnum og 8 sinnum I ágúst, en ég er veðurathugunarmaður hér. Þetta hefur veriS með verstu sumrum á svæSinu alveg frá Vopnafirði og suður I Skaftafellssýslur, sólarleysi, þoka og súld. Eina nóttina rigndi hér 108 mm, en það var I úrhellinu um 20. ágúst." „HvaS ert þú með af búfé?" „Ég er með 10 nautgripi og þar af sex geldneyti, en þremur kúm varð ég a8 farga I fyrra. Nei, það eru allir a8 dðsama þetta góða sumar um allt tand, en ég var að hugsa um að hringja I hann Glsla Kristjánsson og mótmæla þessu, en þú skilar þvl þá fyrir mig." „Hvernig er hljóðið I mannskapn- um hér?" „Ekki er ég nú kannski vel kunn- ugur þvl en ég held, a8 menn llti heldur dökkum augum á málin og kviði fyrir áframhaldandi dýrtlS, en skoBanir manna eru þó ákaflega mis- jafnar I þessu efni, þvl pólitlsku sjónarmiSin ráða svo miklu. Mér finnst óskaplega vitlaust aS láta póli- tlsku sjónarmiðin ráSa þennan tlma, sem maður gengur hérna um. Okkur Krakkarnir léku sér dátt í heyinu og hundurinn lét ekki sinn hlut eftir liggja. Páll Sigtryggur Björnsson bóndi. Ljósmyndir Mbl. Árni Johnsen. Keppzt viS aS hlaða hjólbörurnar. yfirsést anzi oft, að það eina, sem skiptir máli, er að láta fólki llða vel." Kona Sigtryggs veiktist s.l. ár þar sem hún var við mjaltir og slðan hefur hún legið rúmföst. Þá varð bóndinn að draga saman seglin og hann kvartaSi llka yfir þjónustunni, sem Landspltalinn veitti fólkinu utan af landi, a.m.k. hefði hann ekki góða reynslu þar af. „Sjúkrahúsin verða að vera manneskjuleg," sagði hann, „þau mega ekki vera færibönd," og svo vitnaði hann I Egil Jónsson lækni, sem hafði sagt, að hann vissi aldrei til þess, að peningar hefðu Iækna8 neina sjúkdóma. „Hver finnst þér helzt breytingin ð bæjarbragnum hér I gegn um ðrin?" „Breytingin er geysileg, mikil breyting hefur orði8 til hins betra á húsplássi og öðru, en það hefur verið til hins verra hvernig farið hefur verið með landið. Öllu var rótað sundur um tfma, en nú er þó búið að byggja nýjan bæ að hluta og ég verð að segja það eins og það er, að það er allt annað að búa hér nú en fyrir 20 árum, nú er maður miklu einangr- aðri og hver situr I slnu horni og lætur sér nægja fóðrið. sem borið er á borð I hljóðvarpi og sjónvarpi, sumt gott og sumt vont eins og gengur. Ég bý á Öldunni hérna, I gömlu byggðinni, og mér finnst miklu minni samgangur milli fólks, ekki eins persónulegt samband og fyrrum. Annars á ég böm hér um allt, 4 drengi og tvær stúlkur og helling af barnabörnum, eitthvað milli 20 og 30 a8 ég held. Ég þarf þvl ekki að kvarta, þvl ég geng svona á milli," Svo röbbuSum við aftur stundar- korn um veðrið og kempan sagSi, að það hefði verið 2 stiga næturfrost slðustu nótt, fyrsta frostnótt hausts- ins. „Já," hélt hann ðfram, „sólin er hnöttur. sem við þekkjum vart á þessu sumri. Það er nú svo blautt túnið hérna hjá mér að heyið er eins og dregið af sundi. Það hefur bráð af þvl I þessu góða veðri I dag, en tunið er svo blautt að það er ekki hægt að fara með nein véltæki út á það, þess vegna verSum við að hirða I hjól- borðum Það léttir mikið að ein tengdadóttir mín kom I dag til að hjálpa mér og svo skila krakkarnir nú einnig drjúgu verki. Þetta eru nú slðustu forvöð að sjá til sólar, þvl frá þvl I október og fram I miðjan febrúar sézt sólin ekki hérna I Seyðisfirði vegna þess hve lágt hún er þá á lofti og fjöllin skyggja é. Það tlðkast ennþá sólarkaffi hér á veturna þegar sólin sóst fyrst á skriði slnu ofar fjöllum, það er skemmtileg sjón og einstaklega gott kaffi." —á.j. „Getum ekki tekið alla, sem þurfa skólavist” K EGILSSTÖÐUM hittum við Kristin Kristjánsson skólastjóra á Eiðum, en hann gegnir þar skólastjórastarfi á meðan Þorkell Steinar Ellertsson er I leyfi. Kristinn sagði, að Eiðaskóli byrjaði 29. sept. og yrðu 124 nem- endur I skólanum, sem er gagn- fræðaskóli með 2., 3., 4„ og 5. bekk. Fimmti bekkur er framhalds- deild. Flesta nemendur skólans kvað Kristinn vera af svæðinu frá Horna- firði og til Vopnafjarðar, sem sagt öllu Austurlandi. en einnig væru nemendur frá öðrum landshlutum. Aðstöðu til kennslu kvað hann vera ágæta og einmitt væri nú verið að innrétta eðlisfræðistofu, hluti heima- vistar væri mjög góður, en annar hluti mjög slæmur. Þá kvað hann kennaraibúðir vera I algjöru öng- þveiti, nokkuð vel hefði tekizt að ná I kennara, en vegna Ibúðaöngþveitis- ins hefðu þeir orðið að fá tvo kennara búsetta á Egilsstöðum til þess að aka á milli daglega. f skólamálum Austfirðinga kvað Kristinn það helzt á döfinni. að búið væri að ákveða byggingu fjölbrautar skóla á Egilsstöðum fyrir bóklegt nám að loknum grunnskóla og reikn- að væri með. að verklegt nám yrði á Neskaupstað. svo sem iðnskóli og önnur tæknimenntun. — segir Kristinn skólastjóri á Eiðum „Það er almennt gott hljóð I fólki I sveitinni I kring um Eiða," sagði Kristinn, „félagslífið er þó fremur fábreytt, en að sjálfsögðu árleg þorrablót. Mér likar vel hérna, það er alveg ágætt að vera hér." „Getur skólinn tekið við öllum nemendum, sem vilja sækja skólann?" „Nei, við getum ekki tekið alla nemendur. sem þurfa skólavist á þessu svæði. Við höfum pláss I bekkjunum, en ekki I heimavistinni og það er náttúrulega mjög alvarlegt ástand. Að öðru leyti er allt tilbúið fyrir veturinn." „Hvernig er að vinna við heimavistarskóla?" „Það er eiginlega þannig, að maður er I starfi allan sólarhringinn, en það er heimilisbragur á svona skóla og persónulegt samband er meira en I öðrum skólum. Hérna eru hressir og ágætis krakkar." — á. j. Kristinn Kristjánsson dótturog börnum. skólastjóri á Eiðum I ásamt konu sinni Valgerði Gunnars-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.