Morgunblaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1974 19 Ruben Ayala Flestir þeir, sem fylgdust með sjónvarpsmyndum frá heimsmeistarakeppninni f knattspyrnu f sumar, munu minnast leikmannsins Ayala f liði Argentínu. Bæði var, að piltur þessi var með hár niður fyrir herðar og mikið alskegg og hitt og það ekki sfður, að Ayala var lang atkvæðamesti leikmaður argentfnska liðsins og þótti hvað eftir annað sýna tilburði, sem ekki eru á færi nema allra beztu knattspyrnu- manna. En Ayala vakti einnig at- hygli fyrir fleira. Hann var sagður sérlega óheflaður f framkomu og orðbragði — leitaði á þjónustustúlkurnar á hótelinu, sem hann bjó á, og var sfdrekkandi bjór og borðandi súkkulaði. Viður- kenndi þjálfari argentfnska liðsins, að Ayala væri hálfgert vandræðabarn, en bætti þvf jafnan við — að góður væri strákurinn. Og vfst er, að mörg knatt- spyrnufélög f Evrópu litu hýru auga til Ayala og skömmu eftir heimsmeistarakeppnina var gengið frá samningum milli hans og spænska félags- ins Atleticos Madrid, sem einnig keypti félaga hans úr argentfnska landsliðinu: Heredia. Og nú þykir Ayala allur ann- ar maður. Hann er búinn að klippa sig og snyrta skeggið, gengur um f ffnum fötum og hegðar sér eins og heimsmað- ur. En það er ekki eins með Ayala og var með Samson forð- um daga. Kraftur hans þvarr ekki þótt hárið væri klippt, heldur þykir Ayala nú betri knactspyrnumaður en nokkru sinni fyrr. Leikni hans með knöttinn hefur einkum tekið framförum við meðhöndlun þjálfarans hjá Atlentico Madrid, Lorenzo, en sá er einn- ig Argentfnumaður. Hraðann og hörkuna hafði Ayala fyrir, og nú spá margir þvf, að f vetur muni þessi piltur varpa nokkrum skugga á knatt- spyrnugoðið Johan Cruyff, sem leikur með Barcelonalið- inu, svo og á Giinhter Netzer og Paul Breitner, sem leika með Real Madrid. — Það er vissulega ævintýri að leika knattspyrnu á Spáni, sagði Ayala nýlega f blaða- viðtali, — en enn meira ævin- týri eru þó allir þeir peningar, sem maður fær fyrir það. Hann bar á móti þvf, að það hefði verið að skipun félags- ins, sem hann lét klippa sig: — Þetta var raunar mjög einfalt, sagði hann — einu sinni ákvað ég að láta hárið vaxa unz það Framhald á bls. 23. Gróska í íþróttalífinu á Snæfellsnesi Rætt við Ingimund Ingimundarson ARANGUR fþróttafólks úr Héraðssambandi Snæfells- og Hnappadalssýslu f sumar hefur vakið óskipta athygli. Nægir að nefna sem dæmi sigur Vfkings frá Olafsvfk f 3. deildar keppni Islandsmótsins f knattspyrnu og ágæta frammistöðu sama liðs f Bikarkeppni KSl; sigur frjáls- fþróttafólks sambandsins f 2. deildar keppni Bikarpeppni Frjálsfþróttasambandsins, og sigur UMF Snæfells frá Stykkis- hólmi f 2. deildar keppni tslands- mótsins f körfuknattleik. Framkvæmdastjóri HSH í sumar var Ingimundur Ingi- mundarson, iþróttakennari, og fékk Morgunblaðið hann til viðtals um íþróttalífið á Snæfellsnesi. — Það eru 12 starfandi félög innan HSH, sagði Ingimundur. — Af þeim eru 10 ungmennafélög, eitt fþróttafélag og einn golf- klúbbur, sem er jafnframt yngsta félagið innan sambandsins. Því er ekki hægt að neita, að starfið er mjög mismunandi hjá félögunum, en þegar á heildina er litið verður ekki annað sagt en það hafi verið gott. í aðeins einu félagi var frem- ur lítið starfað í sumar. Og eins og á árangri íþróttafólksins sést er víða mjög mikill áhugi, og vfst er, að nóg er af efniviðnum f öllum greinum íþrótta. Ingimundur sagði, að starfið i sumar hefði hafizt á þvf, að efnt hefði verið til ungmennabúða í Laugagerðisskóla. Þangað komu um 80 ungmenni víða að af Snæ- fellsnesi. — Það heyrðist þó, sagði Ingimundur, — að sumir töldu, að þarna væri aðeins verið að hafa ofan af fyrir kaupstaðarbörnun- um, en það var hinn mesti mis- skilningur. Forstöðumaður ung- mennabúðanna var Jakob Már Gunnarsson íþróttakennari f Ölafsvík, en starf þetta fékk mjög góða fyrirgreiðslu frá mörgum aðilum, ekki sfzt skólastjóra Laugagerðisskólans. —- Af feng- inni reynslu af þessum ung- mennabúðum erum við ákveðnir í að halda áfram á sömu braut, og ef til vill verður mögulegt að færa starfið þannig út, að þarna verði einnig komið á æfingabúðum fyrir íþróttafólk. Aðstaðan við Laugagerðisskóla er þó tæplega nógu góð. Þar vantar t.d. fþrótta- völl. — í framhaldi af þessum æf- ingabúðum var efnt til barnamóts í frjálsum íþróttum að Görðum í Staðarsveit, sagði Ingimundur. — Þar mættu um 100 börn og ungl- ingar til leiks, og sást þar glögg- lega hversu mörg íþróttamanns- efni er að finna í héraðinu. Síðan var haldið unglingamót f Stykkis- hólmi og kepptu þar um 80 ungl-. ingar. Einnig var svo farið með hóp ungmenna á meistaramót Is- lands f yngri aldursflokkunum, en það var haldið í Reykjavík og á Selfossi. Hlaut HSH þar 11 Is- landsmeistaratitla. Héraðsmót HSH var haldið að Breiðabliki 25. ágúst og tóku þátt í því um 80 manns frá 9 félögum, ogerþaðbæði meiri ogalmennari þátttaka en verið hefur að undan- förnu. Þarna náðust góð afrek í mörgum greinum, en hæst ber þó vitanlega afrek eins gestsins á mótinu, Erlends Valdimarssonar, sem setti nýtt og glæsilegt Is- landsmet f kringlukasti. Það var stórkostlegt að veraða vitni að því kasti. Einnig ber að geta sigurs HSH í 2. deildar keppninni í frjálsum fþróttum. Þar með unnum við okkur sæti í 1. deild og erum ákveðin í að halda því, en það gerist vitanlega ekki nema að frjálsíþróttafólkið æfi vel í vetur og búi sig undir átök næsta sum- ars. Ingimundur sagði, að lok frjáls- íþróttavertíðarinnar hefðu síðan verið hópferð til Noregs. Fór þangað 18 manna hópur og dvaldi 10 daga f Ösló og Bergen. — I þessari ferð var keppt á hverjum degi, og þarna voru sett 8 héraðs- ,Qiet og 48 persónuleg met. Við undirbúning þessarar ferðar nut- um við góðrar fyrirgreiðslu af hálfu UMFÍ og Ferðaskrifstof- unnar Utsýnar, og auk þess vil ég nota tækifærið til þess að koma á framfæri sérstökum þökkum til fararstjórans i ferðinni, Friðriks Þórs Öskarssonar, sem var okkur einstaklega hjálplegur, sagði Ingi- mundur. Ingimundur sagði, að knatt- spyrna væri mjög vinsæl íþrótta- grein í héraðinu og mikið stund- uð. — Það tóku þrjú lið frá HSH þátt í 3. deildar keppninni, og Ingimundur Ingimundarson, framkvæmdastjóri HSH. eins og flestir vita vann Víkingur frá Ólafsvík þá keppni, sagði Ingi- mundur. — Knattspyrnuáhuginn er hvergi meiri en í Ólafsvík, og árangur flokka þaðan hefur verið góður. Þannig má t.d. teljast öruggt, að lið Víkingssigri í öllum flokkum á héraðsmóti HSH í knattspyrnu. Þá tók lið HSH þátt í undankeppni fyrir landsmót UMFl, og þegar einn leikur er eftir i riðlinum má teljast nokkuð öruggt, að lið HSH komist áfram í átta-liða úrslitin. Uppistaðan í þessu liði er frá Víkingi. Aðrar íþróttagreinar, sem eiga vinsældum að fagna á sambands- svæðinu, eru körfuknattleikur og sund, en iðkun þeirra greina er ekki eins almenn og knattspyrnu og frjálsra íþrótta. — Körfuknatt- leikurinn er nær eingöngu stund- aður í Stykkishólmi og sundið í Ólafsvík, sagði Ingimundur. Ingimundur sagði, að það, sem nú væri stærsta verkefnið hjá HSH, væri að efla félagsmálaþátt sambandsins. — Það er nauðsyn- legt að halda félagsmálanám- skeið, helzt í hverju félagi, í vetur, sagði hann. — Þá þarf sam- bandið nauðsynlega að styrkja fjárhagsgrundvöll sinn, — helzt að finna sér einhvem fastan tekjulið, sem óhætt er að treysta á. Ingimundur sagði, að ársþing HSH hefði venjulega verið haldið á vorin, en nú stæði til að breyta þessu og halda þingið í haust, þannig að betra tóm gæfist til þess að einbeita sér að þeim stór- verkefnum, sem við verður að glíma næsta sumar. — Þar ber vitanlega hæst Landsmót UMFÍ, sem haldið verður að Akranesi, en við erum staðráðin i að fara þangað með stóran hóp iþróttafólks og vil ég skora á Snæfellinga að taka hönd- um saman til þess að svo geti orðið, ekki aðeins á íþróttafólkið, heldur og þá, sem að baki þvi standa, sagði Ingimundur Ingi- mundarson að lokum. Frjálsfþróttafólk úr HSH sem sigraði í 2. deildarkeppni Bikarkeppni FRl 1974. Fremri röð frá vinstri: (Jrsúla Kristjánsdóttir, Vilborg Jónsdóttir, Marfa Guðnadóttir, Petrfna Sigurðardóttir, Þóra Guðmundsdóttir og Sesselja Guðmundsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Erling Jóhannesson, Magnús Gfslason, Jóhann Hjörleifsson, Róbert Óskarsson, Ari Skúlason, Sigurður H jörleif sson og Jens Pétur Högnason. r Olafur H. Jónsson ÞVt verður ekki mótmælt, að Ólafur H. Jónsson er fjölhæf- asti handknattleiksmaður okk- ar, frábær bæði f vörn og sókn. Þetta er ákaflega merkilegt, þegar þess er gætt, að Ólafur byrjaði ekki að stunda hand- knattleik fyrr en hann var orð- inn 17 ára gamall, og fyrst þá fór hann að njóta leiðbeininga lærðra þjálfara. Til að ná góð- um árangri f fþróttum er talið nauðsvnlegt að viðkomandi hafi stundað þær frá bernsku. Ólafur er 24 ára gamall, vtð- skiptafræðinemi, kvæntur Guðrúnu Arnadóttur, og eiga þau eina dóttur, Kristfnu, tveggja ára. Ólafur leikur sem kunnugt er með V al. „Eg æfði fþróttir af kappi f skólanum og lét mér það alveg nægja. Þegar ég var orðinn 17 ára, ákvað ég að skella mér f handboltann, og þá kom aldrei annað félag til greina en Val- ur, enda þótt ég umgengist mikið Framara f skólanum.Ég kann enga skýringu á þvf, en ég hef alla tfð haldið með Val, jafnvel þótt ég hafi ekki þekkt neinn f félaginu. Eg varð strax ánægður, andinn var góður f hópi Valsmanna og menn voru ákveðnir f að ná árangri, og voru tilbúnir að leggja fram mikla vinnu til að svo mætti verða. Arangurinn sjáum við f dag.“ Ólafur lék hálft ár með 3. flokki, en sfðan lá leiðin f 2. flokk og loks f meistaraflokk, þegar hann var 18 ára. Hann hefur sfðan leikið um 170 leiki, og auk þess 66 lands- leiki. Fyrst lék hann með iandsliðinu gegn • Vest- ur-Þjóðverjum hér heima 1969, þá 18 ára. Um tfma æfði Ólafur knatt- spyrnu með Val, lék f markinu f 1. og 2. flokki og var vara- markvörður f meistaraflokki, fór m.a. með Val f Evrópu- keppni til Belgfu. „Ég hafði alltaf meiri ánægju af hand- knattleiknum og þvf sneri ég mér alveg að honum.“ Ólafur gerði þó undantekningu f sum- ar, þegar hann fór með fjöl- skylduna til Reyðarfjarðar og tók við þjálfarastörfum hjá knattspyrnuliði staðarins, sem einnig heitir Valur. „Ég gerði þetta til að fá tilbreytingu og sé ekki eftir þvf, við höfðum ákaflega mikla ánægju af dvöl- inni eystra.“ Að lokum var Ólafur að þvf spurður, hvort hann ætlaði að halda áfram að iðka hand- knattleikinn. Hann svaraði þvf til, að svo yrði meðan hann hefði af því ánægju. Og f leið- inni drap hann á atriði, sem hefur mikið verið til umræðu, hina algjöru áhugamennsku f fslenzkum fþróttum. „Það er augljóst, að miðað við óbrevtt ástand er ekki hægt að krefj- Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.