Morgunblaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 37
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1974
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1.OKT0BER 1974
21
Handknattleikur af rólegri gerðinni
Dauft á
laugardag
Á LAUGARDAG fóru fram tveir
leikir I Reykjavfkurmótinu f
handknattleik. Ármann vann KR
17:16, eftir að staðan f hálfleik
hafði verið 10:7, Ármanni f vii. Þá
sigraði Þróttur lið Fylkis 23:16,
en í hálfleik varstaðan 14:9.
Báðir þessir leikir höfðu litla
þýðingu, þar eð liðin voru öll úr
leik í keppninni um Reykjavíkur-
meistaratitilinn. Það var því held-
ur mikil deyfð yfir leikjunum,
enda áhorfendur sárafáir. Það
var helzt að fjöri brygði fyrir í
leik Ármanns og KR, en í þeim
leik sigu KR-ingar mjög á í lokin,
efíir að Ármann hafði haft yfir-
höndina lengst af. Sigurmarkið
skoraði Ármann skömmu fyrir
leikslok.
Á fimmtudaginn voru toppliðin
Valur og Fram í baráttunni.
Valur lék við Þrótt og vann stórt,
35:19. Var ekki að sjá, að Þróttar-
ar hefðu mikið lært í Danmerkur-
ferðinni, nema þá að þeir geymi
sér það, þar til 2. deildin byrjar.
Guðjón Magnússon og Ólafur
Jónsson léku aðalhlutverkin hjá
Val, en hjá Þrótti var Halldór
Bragason að vanda drýgstur. I
hálfleik var staðan 20:9. Framar-
ar áttu ekki f erfiðleikum með að
afgreiða fremur slakt lið KR.
Lokatölur leiksins urðu 22:14,
eftir að staðan hafði verið 11:6 í
hálfleik. Það var helzt, að Björg-
vin Björgvinsson skaraði framúr í
liði Fram, og hjá KR var Hilmar
Björnsson markhæstur, eins og í
fyrri leikjum liðsins. Og vítaköst
hans voru frábær.
Jónarnirsáu
um sigur Vals
VALSMENN sigruðu ÍR 21:19 í
Reykjavfkurmótinu á sunnudags-
kvöldið og komust þar með f úr,-
slit. En þessi sigur var ekki
áreynslulaus, og geta Valsmenn
þakkað Jóni Karlssyni sigurinn
öðrum fremur. Hann skoraði þrjú
mörk fyrir Val á mikilvægum
augnablikum undir lok leiksins,
þegar iR-ingar voru famir
að sækja mjög f sig veðrið. Jón
ásamt nafna sfnum P. Jónssyni
voru aðalmarkaskorarar liðsins,
og tóku þeir við af Ólafi Jónssyni
og Guðjóni Magnússyni, sem
höfðu óvenju hægt um sig f þess-
um leik, gerðu aðeins sitt markið
hvor.
Valsmenn byrjuðu vel, komust í
6:2. ÍR-ingar náðu sér heldur á
strik, þegar Ifða tók á hálfleikinn,
og í hlé var staðan 10:7 fyrirVal. I
byrjun seinni hálfleiks náðu Vals-
menn á nýjan leik mjög góðum
kafla, og áður en ÍR-ingar höfðu
áttað sig, var staðan orðin 18:10
Val í hag. En nú fóru ÍR-ingar að
ranka við sér, og undir lok leiks-
ins var staða orðin 19:16, en þá
kom mark frá Jóni Karlssyni og
lagaði það stöðuna fyrir Val. Enn
sóttu ÍR-ingar af krafti, og staðan
var orðin 20:18. En þá skoraði Jón
K. enn eitt mark, og sigur Vals
varí höfn.
Mörk Vals: Jón Karlsson 6 (1
v.), Jón P. Jónsson 5 (3 v.),
Bjami 3, Jóhannes 2, Stefán 2,
Guðjón, Jóhann Ingi og Ólafur
eitt mark hver.
Mörk ÍR: Vilhjálmur 4 (3 v.),
Hörður H. 3, Sigtryggur 3, Ágúst
2, Brynjólfur 2, Hörður Á. 2, Ólaf-
ur 2 og Bjarni eitt mark.
Valsmenn léku á köflum skin-
andi góðan handknattleik, en þeg-
ar líða tók á hálfleikina báða,
dró mjög af liðinu. Enda þótt
Ólafur skoraði lítið, var hann
drjúgur í spilinu. Jón Karlsson
var bezti maður liðsins ásamt Jóni
Breiðfjörð markverði, sem sjald-
an eða aldrei hefur verið í jafn-
góðu formi og nú. Athygli vöktu
tveir nýliðar í liði Vals, Bjarni
Guðmundsson og Jóhannes Stef-
ánsson báðir mjög efnilegir.
Gagnstætt Valsmönnum byrj-
uðu ÍR-ingarnir hálfieikina mjög
illa, en lokasprettur þeirra var
góóur. Allt bendir til þess, að IR-
liðið nái langt í vetur. í raðir
ÍR-inga hafa bætzt nýir menn, t.d.
Akureyringurinn Sigtryggur Guð-
laugsson, sem verður liðinu ef-
laust mikill styrkur, og „gömlu“
kempurnar virðast betri nú en
nokkru sinni fyrr. Sprækastur
allra er þó aldursforseti hand-
knattleiksmanna landsins, Gunn-
laugur Hjálmarsson. Það er óhætt
að fylgjast náið með frammistöðu
ÍR-liðsins í vetur, undir stjórn
Þórarins Eyþórssonar þess fræga
þjálfara.
Dómarar leiksins voru Gunnar
Gunnarsson og Sigurður Hannes-
son, og skiluðu þeir hlutverkum
sínum sérlega vel. Vonandi verða
þeir látnir dæma sem mest í vet-
ur.
__Sjj
Fram og Valur
leika til úrslita
LEIKUR Fram og Vfkings var
ekki eins hraður og skemmtileg-
- -
r *
ur og fyrri leikur kvöldsins, milli
Vals og IR. Framarar leika ætfð
fremur hægan og yfirvegaðan
handknattleik og Vfkingar voru
með rólegasta móti. Framarar
höfðu ætfð undirtökin f leiknum,
og þó að stundum munaði ekki
nema tveimur mörkum á liðun-
um, höfðu menn það á tilfinning-
unni, að leikurinn gæti ekki end-
að nema með sigri Fram. Sú varð
Ifka raunin, og lokatölurnar urðu
20:16, eftir að staðan hafði verið
9:8 I hálfleik. Þar með komust
Framarar I úrslitin.
Leikurinn var fremur jafn
framan af, en brátt fóru Framar-
ar að ná frumkvæðinu. Voru þeir
mest þrjú mörk yfir I fyrri hálf-
leik, en minnst eitt mark. Voru
þeir iðnir að fiska víti, enda Vík-
var fumið og lætin I lokin, þegar
Víkingarnir voru einum fleiri og
áttu möguleika á þvf að jafna met-
in. Þess í stað skoraði Fram tvö
mörk gegn engu og tryggði sigur-
ínn endanlega. Það var einhvern
tíma sagt um Víkingsliðið, að það
þyrfti miklu fremur á sálfræðingi
að halda en þjálfara.
Karl .Jóhannsson og Kristján
örn Ingibergsson dæmdu stórvel.
— SS.
Samkvæmt
formúlunni
ÞAÐ MÁ með sanni segja, að
lokastaðan f riðlum Reykjavfkur-
mótsins f handknattleik hafi orð-
ið sú, sem reiknað var með fyrir-
mmmm
twm
Trausti Þorgrfmsson, Þróttari skorar f leiknum við Fylki.
Óiafur H. Jónsson var f miklum ham f leiknum við tR og skorar
þarna eitt marka sinna.
ingsvörnin götótt eins og fyrri
daginn og oft hennar sfðasta úr-
ræði að brjóta þannig af sér, að
vfti varð ekki umflúið. Svipaður
munur hélzt út seinni hálfleikinn,
allt til loka leiksins. Nokkur
harka færðist í leikinn undir lok
hans, og var tveimur Framurum
vísað af velli fyrir að slá andstæð-
inga sfna.
Mörk Fram: Pálmi 5 (4v),
Sveinn 4, Björgvin 3, Guðmundur
3 (1 v), Arnar 2, Hannes, Kjartan
og Pétur eitt mark hver.
Mörk Víkings: Einar 7 (3 v.),
Ólafur 3, Stefán, Sigfús og Viggó
2 mörk hver.
Það mátti greinilega merkja á
leik Fram, að liðið er ekki það
sama og í fyrra, enda munur um
að missa Axel Axelsson. Hann var
allt f öllu hjá Fram í fyrra, aðal
markaskorari liðsins, vítaskytta
og sá, sem mataði Björgvin Björg-
vinsson á lfnunni. í þessum leik
skoraði Björgvin að vfsu falleg
mörk, en hann varð að gera það
upp á eigin spýtur. Pálmi Pálma-
son er kominn til liðs við Fram að
nýju og munar um hann. Þrátt
fyrir mikið „mannfall" á síðustu
árum hafa Framarar ætfð sýnt
óvenju mikla seiglu, þegar á reyn-
ir, og væntanlega verður það
einnig uppi á teningnum í vetur.
Vörnin hefur verið höfuðverk-
ur Víkingaliðsins undanfarin ár
og eftir fyrstu leikjum haustsinsað
dæma, virðist engin breyting ætla
að verða þar á. Eins og fyrri dag-
inn var Einar Magnússon mark-
hæstur í liði Vfkings, en hann
hefur þó oft átt betri dag. Þá
vakti Ólafur Friðriksson athygli
fyrir mörk úr hornunum, enda
þótt honum brygðist hrapallega
bogalistin í lok leiksins. Það hef-
ur löngum loðað við Víkingsliðið,
að allt fari í vitleysu, þegar mikið
liggur við. Gott dæmi um þetta
fram. Engin óvænt úrslit urðu f
12 leikjum riðiakeppninnar og til
úrslita leika Fram og Valur.
„Fastir liðir eins og venjulega“,
varð einhverjum að orði f Laugar-
dalshöliinni f fyrrakvöld, þegar
úrslitin voru kunn. Annars varð
lokastaða riðlanna þessi:
A-riðill:
Fram
Víkingur
Ármann
KR
B-riðill:
Valur
IR
Þróttur
Fylkir
Samkvæmt þessu eru Fram og
Valur sigurvegarar riðlanna og
leika úrslitaleikinn annað kvöld,
þ.e. miðvikudagskvöld. Sama
kvöld leika einnig til úrslita um
5—6. sætið Ármann og Þróttur. I
kvöld leika Vfkingur og IR til
úrslita um 3—4. sætið og KR og
Fylkir leika til úrslita um 7—8.
sætið. Keppni hefst klukkan 10,15
báða dagana.
Urslit einstakra leikja í riðla-
keppninni urðu þessi:
A-riðill:
Fram — Ármann 22:14
Vfkingur — KR 22:20
Víkingur — Ármann 25:18
Fram — KR 22:14
Armann — KR 17:16
Fram — Víkingur 20:16
B-riðilI:
Valur — Fylkir
IR — Þróttur
ÍR — Fylkir
Valur — Þróttur
Þróttur — Fylkir
Valur — ÍR
27:14
29:12
25:17
35:19
23:16
21:19
Frá 52. fþróttaþingi Iþróttasambands Isiands, er haldið var dagana 7. og 8. september sl.
Fjármálin og grunnskólinn
stærstu málin á íþróttaþingi
Á þinginu var kynnt námsefni
Grunnskóla ISI, sem fræðslunefnd
sambandsins hefur unnið að útgáfu
á sl. tvö ár. Er þar um mikið verk að
ræða, um 300 bls. í tveímur bind-
um. Varhéraðssamböndunumog sér
samböndunum afhent eintak af
námskrá Grunnskólans, en hér er
um fjölbreytt námsefni að ræða
fyrir þá, sem ætla að taka að sér
leiðtogastörf hjá íþróttahreyfing-
unni, annaðhvort sem félagslegir
eða íþróttalegir leiðbeinendur.
Verið er nú að undirbúa kynningu
námsefnisins meðal sambandsaðila
og annarra, sem vilja færa sér það í
nyt.
Borgarstjórn Reykjavíkur bauð
þingfulltrúum til hádegisverðar f
Höfða síðari þingdaginn og Knatt-
spyrnusamband Islands bauð þing-
fulltrúum að sjá landsleikinn: Is-
land — Belgía, er fram fór þann
sama dag.
Á þinginu var þremur mönnum
afhent gullmerki ISl. Fram-
kvæmdastjórn sambandsins hafði
nokkru áður samþykkt að sæma þá
gullmerki í viðurkenningarskyni
fyrir mikið og gott starf að íþrótta-
málum. Það voru þeir Guðmundur
Þórarinsson, iþróttakennari í
Reykjavík, og Valtýr Snæbjörnsson
og Ingólfur Arnarson í Vestmanna-
eyjum.
Kjörin var stjórn íþróttasam-
bands Islands fyrir næstu tvö árin.
Hana skipa: Gfsli Halldórsson, for-
seti, Sveinn Björnsson, varaforseti,
Gunnlaugur J. Briem, gjaldkeri,
Hannes Þ. Sigurðsson, ritari og Þor-
varður Árnason, er kom í stjórnina f
stað Ólafs Jónssonar, sem baðst
undan endurkjöri.
Mörg mál komu til umræðu á
þessu fþróttaþingi og gerði þingið
fjölmargar samþykktir. Eru sam-
þykktir þessar birtar hér á sfðunni.
I lok þingsins bauð forseti ÍSÍ,
Gísli Halldórsson og frú Margrét
kona hans, þingfulltrúum til kvöld-
verðar að Hótel Esju. Við það tæki-
færi afhenti Óskar Ágústsson, for-
maður H.S.Þ., gjafir frá héraðssam-
böndum utan Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar til forseta og fram-
kvæmdastjóra ÍSl, í tilefni sextugs
afmælis þeirra fyrr í sumar. Voru
gjafir þessar hátíðarplattar þjóð-
hátíðanefndanna úti á landsbyggð-
inni.
GísK
Halldórsson
endurkjörinn
forseti ÍSÍ
52. IÞRÓTTAÞING Iþróttasam-
bands tslands var haldið I húsa-
kynnum Slysavarnafélags Islands
við Grandagarð dagana 7. og 8.
september sl. Þingið var mjög fjöl-
sótt og komu til þess 90 fulltrúar af
þeim 100, sem eiga rétt til þingsetu.
Meðal gesta þingsins voru Vilhjálm-
ur Hjálmarsson, menntamálaráð-
herra, sem ávarpaði þingið og bauð
jafnframt til kvöldverðar I lok fyrri
þingdagsins, og Hafsteinn Þorvalds-
son, formaður Ungmennafélags Is-
lands, sem einnig ávarpaði þingið.
Þingforsetar voru kjörnir þeir
Ulafar Þórðarsson og Einar Sæ-
mundsson og þingritarar Hannes Þ.
Sigurðsson og Torfi Steinþórsson.
I upphafi þingsins minntist for-
seti ISl, Frímanns Helgasonar, sem
lézt nokkru eftir að sfðasta íþrótta-
þing var haldið. Fór forseti viður-
kenningarorðum um mikið og gott
framlag Frímanns Helgasonar til
íþróttahreyfingarinnar, sagði, að
Gfsli Halldórsson, forseti ISt.
hann hefði verið meðal þekktustu
knattspyrnumanna landsins um
langt árabil, hefði setið mörg ár í
stjórn ISÍ og orðið meðal hinna
fyrstu til þess að skrifa að staðaldri
um íþróttir I dagblöð. Heiðruðu
þingfulltrúar minningu Frímans
Helgasonar með því að rísa úr
sætum.
Gísli Halldórsson flutti þessu
næst ýtarlega setningarræðu og
rakti gang ýmissa mála frá síðasta
íþróttaþingi. Meðal þess, sem fram
kom I ræðu hans var eftirfarandi:
1. Á síðastliðnum tveimur árum
hefur virkum íþróttaiðkendum
fjölgað um 12 þúsund og eru nú
komnir yfir 50 þúsund.
2. Þessa aukningu má einkum
rekja til árangurs trimmherferðar-
innar undanfarin þrjú ár og ötuls
starfs íþróttahreyfingarinnar víðs-
vegar um landið.
3. Unnið hefur verið þrotlaust að
þvi að fá aukinn fjárstyrk opinberra
aðila til íþróttastarfsins.
4. Menntamálaráðuneytið hefur
samþykkt samkvæmt tillögu ÍSl að
skipa nefnd til að kanna fjárþörf og
stöðu fþróttahreyfingarinnar í þjóð
félaginu.
5. Eðlileg fjármögnun fþrótta-
starfsins getur talizt: 30% frá við-
komandi sveitarfélagi, 30% frá rík-
inu og 40% frá félagsmönnum sjálf-
um.
6. Nú er lokið að mestu stækkun
íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal,
sem bætir stórum starfsaðstöðu sér-
sambandanna, sem nú eru orðin 15
innan ÍSl.
7. I framtíðinni þarf að stækka
Iþróttamiðstöðina enn meira, ekki
sfzt vegna væntanlegrar tilkomu
Grunnskóla ISl.
8. Unnið hefur verið markvisst að
íþróttaiðkunum fyrir fatlaða.
9. Margt bendir til þess að hætt
verði að tala um áhugamenn og at-
vinnumenn í íþróttum — aðeins um
íþróttamenn.
10. Leggja þarf áherzlu á að ná til
starfsfólks á vinnustöðum og í fyrir-
tækjum til þess að auka enn á út-
breiðslu íþróttanna.
Samþykktir 52.
íþróttaþings ÍSÍ
Skattur sambandsfélaga
Iþróttaþing ISÍ 1974 sam-
þykkir, að skattur sambands-
félaganna til Iþróttasambands
íslands fyrir árin 1975 og 1976
verði krónur 10,00 í stað kr.
5,00 áður, á hvern félagsmann
16 ára og eldri.
Um aukin fjárstuðn-
ing Alþingis
íþróttaþing ISI haldið í
Reykjavík, 7.—8. september
1974 skorar á ríkisstjórn og Al-
þingi að verða við umsókn
Iþróttasambands Islands um
aukna fjárveitingu á fjárlögum
1975, svo að sambandinu verði
mögulegt að standa undir
sfauknu og vaxandi starfi
íþróttasamtakanna f landinu.
Vfsar þingið. til bréfs og
greinargerðar ISl til stjórn-
valda varðandi þetta mál.
Um fjármögnun
íþrðttahreyfingarinnar
Iþróttaþing ISl haldið í
Reykjavfk 7. og 8. september
1974 telur eðlilegt, að eftir-
greindir þrír aðilar beri kostn-
að við íþróttastarfið í landinu:
Ríkisvaldið 30%.
Viðkomandi sveitarfélag 30%.
Iþrótta- og ungmennafélög og
héraðssambönd 40%.
Skorar íþróttaþing á ríkis-
valdið og sveitarstjórnir að
samræma fjárstuðning sinn við
framgreinda skiptingu.
Um ferðakostnað
fþrðttafðlks
Iþróttaþing ISl haldið í
Reykjavík 7. og 8. september
1974 samþykkir að fela nefnd
þeirri, er kjörin var á sam-
bandsráðsfundi 27. apríl 1974
til að athuga gerð heildar-
samninga um ferðakostnað
íþróttafólks hjá flugfélögum og
ferðaskrifstofum, að halda
áfram starfi sínu og leggja
niðurstöður fyrir vorfund Sam-
bandsráðs ISI 1975.
Um slysatryggingu
fþrðttamanna
Iþróttaþingi ISl haldið 7. og
8. september 1974 skorar á
hæstvirt Alþingi að samþykkja
frumvarp til laga um breytingu
á lögum almannatryggingar,
sem tryggi íþróttamönnum, er
slasast, sömu bætur og launþeg-
um, sem slasast við vinnu sína.
Um stærð og gerð
íþrðttamannvirkja
Iþróttaþing ISl haldið dag-
ana 7. og 8. september 1974
samþykkir að beina þeim til-
mælum til þeirra aðila innan
menntamálaráðuneytisins og
fulltrúa Sambands islenzkra
sveitarfélaga, sem vinna nú að
endurskoðun reglugerðar nr.
159/1969 um stofnkostnað
skóla og breytingu á þeirri
reglugerð frá maí 1972, að mið-
svæðis íþróttahús og sundlaug-
ar geti risið í hverju íþrótta-
héraði af þeirri stærð, að þessi
fþróttamannvirki geti veitt lög-
lega aðstöðu fyrir sem flestar
íþróttir, sem skólar, Iþrótta- og
ungmennafélög og almenning-
ur þurfa til íþróttaiðkana og
keppni. Einnig að áhorfenda-
svæði og fylgirými þeirra verði
við hæfi.
Ennfremur skorar þingið á
sömu aðila að gæta þess, að i
reglugerð sem unnið er að sam-
kvæmt 9. grein íþróttalaga
varðandi greiðsluþátttöku
íþróttasjóðs f kostnaði iþrótta-
mannvirkja íþrótta- og ung-
mennafélaga, bæjar- og sveitar-
félaga eða samtök þessara að-
ila, að hundraðstöluleg þátttaka
sjóðsins f kostnaði þeirra verði
eigi lækkuð frá því, sem hún
hefur verið áætluð að undan-
förnu af íþróttanefnd ríkisins.
I þessu sambandi fer þingið
þess á leit við sömu aðila/ að
hundraðstöluleg þátttaka í
kostnaði við Iþróttavelli og golf-
velli félaga verði 40%.
Um grunnskóla ÍSÍ
íþróttaþing ISÍ haldið 7. og 8.
september 1974 felur fram-
kvæmdastjórn ISl að hefja nú
þegar kynningu á efni Grunn-
skóla ISÍ.
Verði stefnt að því, að héraðs-
sambönd og sérsambönd hefji
undirbúning að því að efna til
leiðbeinandanámskeiða, þar
sem kennsla færi fram sam-
kvæmt nýútkomnu námsefni
Grunnskólans.
Fræðslunefnd ÍSÍ hafi yfir-
umsjón með framkvæmd nám-
skeiðanna.
Um eflingu
íþróttakennara-
skóla tslands
Iþróttaþing ÍSl haldið
dagana 7.—8. september 1974
samþykkir að beina þeirri
áskorun til menntamálaráðu-
neytisins og Alþingis, að í fjár-
lögum 1975 verði veitt fé til
framhaldsframkvæmda við
húsnæði og' velli Iþrótta-
kennaraskóla Islands að
Laugarvatni, svo að skólinn
geti sem fyrst búið við þá að-
stöðu til fþróttaiðkana og íbúða
fyrir starfsfólk, sem eigi hamli
starfsemi hans.
Um hestamennsku
íþróttaþing ISI haldið 7. og 8.
september 1974 samþykkir að
„reiðhestaíþróttir" verði að svo
stöddu eigi skilgreindar í flokki
þeirra iþrótta, sem átt ervið í 3.
grein laga ISI og því verði inn-
töku hestamannafélaga í
héraðssambönd ISl frestað.
Jafnframt samþykkir þingið að
fela framkvæmdastjórn ISI að
kynna málið stjórn Lands-
sambands hestamanna og öðr-
um viðkomandi aðilum og felur
laganefnd ÍSl að gera tillögu
um skilgreiningar á orðunum
íþróttir og almannaíþróttir i
sambandi við notkun þessara
orða I lögum ISI.
Um áfengismál
Iþróttaþing ÍSl haldið 7. og 8.
september 1974 beinir þeim
eindregnu tilmælum til allra
aðila íþróttahreyfingarinnar,
að þeir beiti sér gegn áfengis-
veitingum og áfengisneyzlu og
sameinist þannig i baráttunni
gegn áfengisbölinu.
Iþróttaþing ISl haldið í
Reykjavík dagana 7. og 8.
september 1974 þakkar
nýskipuðum menntamálaráð-
herra lofsvert fordæmi hans að
taka fyrir vinveitingar á sam-
komum á vegum ráðuneytisins.
Jafnframt skorar þingið á aðrar
opinberar stofnanir að hafa
áðurgreinda ákvörðun að for-
dæmi.
Um fþróttahátfð
1980.
Með tilliti til markaðrar
stefnu Iþróttaþings um, að
íþróttasambandið skuli efna til
íþróttahátíðar á 10 ára fresti,
samþykkir Iþróttaþing ÍSl, 7.
og 8. september 1974 að
fela framkvæmdastjórn ÍSI að
hefja nú þegar undirbúning
iþróttahátiðar 1980.
Um endurskoðun
laga ÍSl
Iþróttaþing ISI haldið 7. og 8.
september 1974 samþykkir að
kjósa fimm manna milliþinga-
nefnd til að endurskoða lög Isl.
Z
Um árlegan fþróttadag
Iþróttaþing ISI haldið í
Reykjavfk dagana 7. og 8.
september 1974 samþykkir, að
ISl í samvinnu við UMFl efni
til árlegs íþróttadags, er hafi
þann tilgang að kynna starf
fþróttahreyfingarinnar og örva
þátttöku almennings í íþrótt-
um.
Um allsherjarmót
barna og unglinga.
Iþróttaþingi ISl haldið f
Reykjavík dagana 7. og 8. sept.
1974 telur brýna nauðsyn á því
að auka og skipuleggja þátttöku
barna og unglinga í íþróttum og
telur, að allsherjarmót bama-
og unglinga geti orðið mikil-
vægur þáttur i þessu efni. Þing-
ið samþykkir að fela fram-
kvæmdastjórn ÍSl að koma á
samstarfsnefnd ISÍ, UMFÍ,
fræðsluyfirvalda og ÍKFl, sem
kanni mál þetta til hlítar og
leggi niðurstöður fyrir 45. sam-
bandsráðsfund ISl.
Þingið heimilar Sambands-
ráði ISI að taka ákvörðun um
þetta mál.
Um fþróttabókasafn
Iþróttaþing ÍSl haldið 7. og 8.
sept. 1974 felur framkvæmda-
stjórn ÍSI að kanna möguleika
á stofnun iþróttabókasafns,
sem íþróttakennarar og fþrótta-
áhugamenn hefðu greiðan að-
gang að.
Um fþróttaminjasafn
Iþróttaþing ISl haldið
dagana 7. og 8. sept. 1974 í
Reykjavík telur, að stofna beri
íþróttaminjasafn íþrótta-
hreyfingarinnar og felur fram-
kvæmdastjórninni að athuga
alla möguleika á því.
Um sjónvarpssendingar
Iþróttaþing ISl haldið
dagana 7. og 8. september 1974
samþykkir að beina þeirri
áskorun til menntamálaráð-
herra, að hann afnemi þær
hömlur, sem eru á sýningum
innlends íþróttaefnis í sjón-
varpi, þar sem auglýsingar á
iþróttavöllum og iþróttahúsum
koma fram.
Breyting á dóms- og
refsiákvæðum ÍSÍ
Þriðja grein í dóms- og refsi-
ákvæðum ISÍ orðist svo: ,,
A. Kærufrestur er einn
mánuður frá þvi að atvik það,
sem kært er, bar við eða ástandi
lauk, ef um ástandsbrot er að
ræða. Þó getur framkvæmda-
stjórn ISI eða stjórn hlut-
aðeigandi sérsambands gefið til
þess leyfi, að dómstólar megi
fjalla um málið, þótt lengra sé
liðið en einn mánuður, ef
stjórninni þykir sérstök ástæða
til.
B. Sé kærufrestur styttri í
leikreglum hlutaðeigandi sér-
greinar, gildir sá kærufrestur..
Um endurskoðun móta-
og keppendareglna
Iþróttaþing ISÍ haldið
dagana 7. og 8. september 1974
samþykkir að beina tilmælum
til framkvæmdastjórnar ISI, að
hún láti endurskoða móta- og
keppendareglur ISl varðandi
félagsréttindi og félagskipti
íþróttamanna.