Morgunblaðið - 01.10.1974, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKT0BER 1974
23
UMF Ármann
sigraði á íþrótta-
móti USVS
Frjálsfþróttamót Ungmenna-
sambands Vestur-Skaftafells-
sýslu var haldið að Kirkjubæjar-
klaustrí 17. og 18. ágúst s.l. Þrjú
félög sendu keppendur til mðts-
ins og fðr stigakeppni milli
þeirra þannig, að UMF Armann
sigraði, hlaut 211 stig, UMF
Drengur hlaut 161 stig og UMF
Skafti hlaut 105 stig.
Bezta afrek mótsins vann Ölaf-
ur Magnússon, Á, sem stökk 6,28
metra í langstökki, og hlaut hann
fyrir það bikar, sem gefinn var af
Sparisjóði Vestur-Skaftafells-
sýslu. Gísli Sveinsson, S, var hins
vegar stigahæsti einstaklingur
keppninnar, en hann vann allar
þær greinar, sem hann keppti f,
og hlaut hann í verðlaun bikar,
sem Samvinnubankinn gaf.
Keppti Gísli í flokki 15 ára og
yngri.
— Ólafur H.
Jónsson
Framhald af bls. 19
ast meira af fslenzkum hand-
knattleiksmönnum. Þeir gera
nú þegar meira fyrir ánægj-
una eina en fþröttamenn f öðr-
um löndum, eru miklu fðrn-
fúsari. Það verður að taka
þetta stig af stigi, t.d. væri
hægt að byrja á þvf að styrkja
leikmenn við kaup á fþrðtta-
vörum og auðvelda þeim að fá
frf frá vinnu, svo þeir geti æft.
Ef ekkert er að gert, stöðnum
við alveg, og missum okkar
beztu menn til annarra landa.“
— Ruben Ayala
Framhald af bls. 19
næði niður á rass. Það virtist
ætla að taka þann öratfma, að
ég breytti ákvörðun minni og
lét þá bara klippa mig stutt.
Ayala telur, að spænska
knattspyrnan sé mjög svipuð
og knattspyrnan f Argentfnu.
Aðalmunurinn sé sá, að liðin á
Spáni séu skipuð jafnari leik-
mönnum, og auðvitað séu leik-
menn þar miklu betur settir
og ánægðari. — Það er at-
vinnuknattspyrna í Argentínu,
sagði Ayala, — en miðað við
það, sem gerist á Spáni, eru
launin heima breinustu
vasapeningar.
— Efstu liðin
Framhald af bls. 18
20 metra færi að Burnley mark-
inu og skoraði. Á 71 mínútu
breyttist staðan í 4—2 fyrir West
Ham, er Billy Jennings skoraði og
Billy Bonds bætti timmta marki
liðs síns við á 83Lmfnútu — með
skoti af um 20 metra færi. Þrem-
ur mínútum fyrir leikslok tókst
Fletcher að rétta hlut Burnley, og
síðustu minúturnar var mjög hart
barizt á vellinum og bæði Iiðin
fengu þá gullin marktækifæri,
sem ekki nýttust. Áhorfendur
voru 17.613.
Everton — Leeds 3—2
Steve Seargeant skoraði fyrsta
mark þessa leiks með skoti af um
30 metra færi snemma í leiknum
og er þetta fyrsta markið, sem
Seargeant skorar síðan hann hóf
að leika í 1. deildar keppninni.
Yfirleitt átti Everton meira í þess-
um leik, en tækifæri voru þó
mörg á báða böga. Hin tvö mörk
Everton skoruðu þeir Mick Lyons
og Dave Clements, en Alan Clarke
og Terry Yorath skoruðu mörk
Leeds.
2. deild.
1 2. deildar keppninni kom nú
að þvf, að efsta liðið, Manchester
United tapaði leik. Það var Nor-
wich, sem bar sigurorð af United f
mjög fjörugum og vel leiknum
leik í Norwich. Gífurleg stemmn-
ing var á áhorfendapöllunum, og
Ein breyting
— Víkingur
Framhald af bls. 17
góma, eins og margt annað, á
fundunum með liðunum.
Jón Aðalsteinn Jónsson for-
maður Víkings sagði f viðtali við
Morgunblaðið f gær, að ástæðan
fyrir þvf, að Víkingar breyttu af-
stöðu sinni hefði verið sú, að þeir
hefðu viljað forða knattspyrnu-
hreyfingunni frá enn meiri upp-
lausn en orðið væri. Jón sagði, að
Sanders, þjálfari Vfkinganna,
hefði verið kominn utan, en væri
nú kominn aftur og mundi búa
liðið undir Ieikinn á laugar-
daginn. — Og við munum leika á
fullu og stefnum auðvitað að
sigri, sagði Jón Aðalsteinn.
Kristján Kristjánsson, for-
maður Knattspyrnuráðs Akureyr-
ar, sagði, að ákvörðun IBA að
koma til leiksins væri sprottin af
því einu, að þeir vildu gera sitt til
þess að forða frá frekari upplausn
í knattspyrnumálunum hérlendis.
Nóg væri samt. — En okkur var
mjög óljúft að gera þetta, sagði
Kristján. Hann sagði og, að ekkert
hefði verið rætt um hugsanlega
fjölgun f 1. deildinni og vildi ekki
tjá sig um viðhorf Akureyringa til
þeirra mála.
— Þjálfarinn okkar er löngu
kominn út til Danmerkur, sagði
Kristján, — og liðið hefur ekki
mikið æft að undanförnu. Það
mun þó að sjálfsögðu reyna að
búa sig sem bezt undir leikinn og
stefnir að sigri. Við höfum allan
okkar mannskap enn þá, nema
hvað Gunnar Austfjörð mun ekki
geta tekið þátt i leiknum, þar sem
hann erf leikbanni.
LANDSLIÐSNEFND Knatt- i
spyrnusambands Islands hefur
tilkynnt val sitt á fslenzka lands-
liðinu, sem leika á við Dani og
Austur-Þjöðverja innan tfðar.
Hefur nefndin aðeins gert eina
breytingu á landsliðshópnum frá
þvf sem var f leiknum við Belgfu-
menn á dögunum: Jðn
Gunnlaugsson frá Akranesi er nú
með f hðpnum að nýju, en sem
kunnugt er var Jðn f landsliðs-
hðpnum fyrr í sumar, en var ekki
valinn með á mðti Belgfumönn-
unum.
Sem fyrr kemur val landsliðs-
nefndarinnar nokkuð á óvart.
Sérstaklega þó það, að nefndin
velur f liðið að þessu sinni leik-
mann, sem vitað er, að er
meiddur. Er þar um að ræða Grét-
ar Magnússon, IBK, sem meiddist
Jðn Gunnlaugsson — kemur inn f
landsliðshðpinn að nýju.
í fyrri leik ÍBK og Hadjuk Split í
Júgóslavfu á dögunum og gat ekki
leikið með Keflvíkingunum
seinni leikinn Eftir vali á lands-
liðinu er hel jr ekki svo gott að
gera sér grn^ fyrir þvf, hvernig
nefndin h^'bot stilla liðinu upp í
leikjunum tveimur, en mjög
sennilega verður það á svipaðan
hátt og á móti Belgíumönnunum á
dögunum.
Ekki hefur enn frétzt, hvernig
danska liðið verður skipað í leikn-
um við Islendinga, en þó hafa
dönsku blöðin nokkuð fjallað um
það að undanförnu, að atvinnu-
mennirnir verði ekki kallaðir
heim til þessa leiks, heldur munu
sjórnendur danska landsliðsins
kjósa að tefla fram ungum og
efnilegum leikmönnum til leiks-
ins.
íslenzki landsliðshópurinn
verður skipaður eftirtöldum leik-
mönnum:
Þorsteinn Ölafsson, IBK,
Magnús Guðmundsson KR,
Eirikur Þorsteinsson Víkingi,
Björn Lárusson ÍA, Jóhannes
Eðvaldsson Val, Gísli Torfason
ÍBK, Grétar Magnússon ÍBK,
Marteinn Geirsson Fram, Karl
Hermannsson ÍBK, Jón Gunn-
laugsson ÍA, Guðgeir Leifsson
Fram, Ásgeir Elíasson Fram, Ás-
geir Sigurvinsson Standard
Liege, Matthías Hallgrimsson ÍA,
Teitur Þórðarson ÍA og Óskar
Tómasson Víkingi.
Leikurinn við A-Þjóðverja er
liður f Evröpubikarkeppni lands-
liða í knattspyrnu, en sem
kunnugt er leika íslendingar þar f
riðli með Frökkum, AÞjóðverj-
um og Belgíumönnum.
NAUMUR FIINNSKIR SIGUR
í KEPPNINNI VIÐ BRETA
FINNAR sigruðu Breta f lands-
keppni f frjálsum fþróttum, sem
lauk á Crystal Palace-leikvangin-
um f London á fimmtudagskvöld-
ið. Hlutu Finnar 105 stig f karla-
greinunum, en Bretar 104 stig. 1
kvennakeppninni varð hins vegar
jafntefli. Bæði liðin hlutu 73 stig.
Eins og frá var skýrt í Mbl. á
föstudaginn náðist ágætur árang-
ur í flestum keppnisgreinanna á
miðvikudagskvöldið, og ekki var
árangurinn slakari seinni
keppnisdaginn. i flestum grein-
um var um mjög tvísýna baráttu
að ræða, sérstaklega þó í hlaupa-
greinunum. Hvorug þjóðin gat
teflt fram sínu allra besta liði, t.d.
keppti Evrópumethafinn fyrrver-
andi í kúluvarpi, Capes, ekki með
brezka liðinu. Sætti hann mikilli
gagnrýni fyrir, ekki sízt þegar á
daginn kom, að svo litlu munaði.
Helztu úrslit seinni keppnisdag-
inn urðu þau, að A. Lerwill frá
Bretlandi sigraði í langstökki,
stökk 7,61 metra, en H. Mettima
frá Finnlandi varð annar, stökk
7,60 metra. Stahlberg frá Finn-
landi sigraði í kúluvarpinu, varp-
aði 19,96 metra, en Bretinn
Winch varð annar, varpaði 18,98
metra. Evrópumeistarinn í 3000
metra hlaupi kvenna, Nina
Holmen frá Finnlandi sigraði
örugglega í sinni grein á 9:12,4
mfn., en J. Smith frá Bretlandi
varð önnur á 9:18,0 mín.
Olympíumeistarinn frá
Mtinchen, Pekka Vasala sigraði í
1500 metra hlaupinu á 3:43,1
mín., en R. Smedley frá Bretlandi
varð annar á 3:46,2 min. 1 4x400
metra boðhlaupi kvenna vann
finnska sveitin öruggan sigur,
hljóp á 3:32,3 mín., en brezka
sveitin hljóp á 3:33,3 mín. 1 4x400
metra boðhlaupi karla snérist
dæmið við. Bretarnir sigruðu á
3:06,6 mín., en Finnarnir hlupu á
3:07,0 min.
Tvöfaldur brezkur sigur varð f
kringlukasti, R. Payne sigraði
með 52,26 metra kasti, en M.
Ritchie varð önnur, kastaði 51,36
metra. Pekka Paivarinta frá Finn-
landi sigraði í 10.000 metra hlaup-
inu á 28:18,4 min., en J. Brown
frá Bretlandi varð annará 28:23,8
mfn. Í 100 metra grindahlaupi
sigraði brezka stúlkan L.
Drysdale á 13,9 sek., en U.
Lempianinen frá Finnlandi varð
önnur á 14,2 sek. R. Wright frá
Bretlandi sigraði f 800 metra
hlaupi kvenna á 2:06,1 mín. A.
Mustakallio frá Finnlandi sigraði
i spjótkasti kvenna, kastaði 55,54
metra, en T. Sanerson frá Bret-
landi varð önnur og kastaði 55,04
metra.
1 stangarstökki karla vann svo
Atli Kalliomaki frá Finnlandi
sigur, stökk 5,20 metra, en M. Bull
frá Bretlandi varð annar, stökk
sömu hæð. Þriðji varð svo Bretinn
B. Hooper, stökk 5,10 metra og V.
Aartolahti frá Finnlandi varð
fjórði, stökk 5,00 metra.
nokkrir unglingar, sem komu með
United-liðinu, gerðu þar tilraun
til þess að efna til óspekta. En
lögreglan hefði fylgzt með ungl-
ingunum allt frá þvf að þeir komu
úr lestinni, og var fljót að taka
ólátaseggina f sína vörzlu, þannig
að lítið varð úr áformum þeirra.
Með þessum sigri náði Norwich
öðru sæti í deildinni, en Sunder-
land á þó möguleika á þvf að ná
því sæti, þar sem liðið er komið
með 11 stig, en hefur leikið tveim-
ur leikjum færra en Manchester
United og Norwich. Þá vekur það
athygli í 2. deildar keppninni,
hvað frammistaða nýliðanna frá
York City er góð, en eins og flest-
ir muna eflaust kom York City í
heimsókn hingað í vor og lék
nokkra leiki.
3. og 4. deild
í 3. deildar keppninni hefur nú
liðið hans Bobby Chartons, Prest-
on North End forystu og er með
14 stig að loknum 10 leikjum.
Southend er í öðru sæti með 13
stig eftir 10 leiki, en síðan koma
Crystal Palace með 12 stig eftir 9
leiki og Blackburn með 12 stig
eftir 8 leiki. Neðst f deildinni eru
Tranmere með 6 stig og Hudders-
field og Aldershot með 4 stig.
1 fjórðu deild hefur Shrews-
bury forystu með 14 stig eftir 9
leiki. Reading er f öðru sæti með
13 stig eftir 9 leiki og Crewe er í
þriðja sæti með 13 stig eftir 10
leiki. Neðst í deildinni eru Stock-
port og Workington með 5 stig og
Scunthorpe með 4 stig.
Skotland
1 skozku 1. deildar keppninni
missti Hibernian af fyrsta sætinu,
er liðið tapaði fyrir St. Johnstone,
og það á heimavelli. Mesta athygli
vakti þó stórsigur Glasgow Rang-
ers yfir Kilmarnock 6—0, en
Rangers hefur þar með tekið for-
ystu í deildinni og er með 9 stig
eftir 5 leiki, Celtic og Hibernian
eru með 8 stig, en Morton er í
fjórða sæti með 7 stig. Neðst f
deildinni eru svo Motherwell með
2 stig, Clyde með 2 stig og Ayr
með 1 stig. Efst í 2. deildar keppn-
inni í Skotlandi eru Montrose
með 15 stig, Queen of the South,
St. Mirren og East Fife með 11
stig.
V-Þýzkaland
Evrópumeistararnir í knatt-
spyrnu, Bayern Munchen, tapaði
á laugardaginn fyrsta leik sínum
á heimavelli síðan í marz 1970.
Var það Schalke 04, sem vann
MUnchen 2—1 f skemmtilegum
leik.
Fimm leikmenn úr heimsmeist-
araliði Vestur-Þýzkalands eru
leikmenn með Bayern MUnchen,
en svo virðist sem liðið hafi misst
allan mátt, er Paul Breitner var
seldur til spánska liðsins Real
Madrid í sumar. Hefur Bayern
MUnchen aðeins unnið þrjá af
fyrstu sex leikjum sínum í 1.
deildar keppninni, og er nú í 11.
sæti af 18 liðum, sem leika í deild-
inni.
Jafntefli
Noregur og Finnland gerðu
jafntefli, 0-0, f unglingalands-
leik f knattspyrnu, sem fram
fðr f Osló á föstudagskvöldið.
Leikur þessi var liður f undan-
keppni UEFAbikarkeppn-
innar.
Zoff"
bjargaði
Ítalíu
Júgóslavía sigraði Ítalíu f
vináttulandsleik í knatt-
spyrnu, sem fram fór í Zagreb
á laugardaginn, með einu
marki gegn engu. Markið skor-
aði Surjak á 41. mínútu, eftir
að slæm mistök höfðu orðið í
vörn ítalska liðsins.
Leikur þessi var annars
algjörlega eign júgóslavneska
liðsins, sem lék vörn ítalska
liðsins margsinnis mjög grátt.
Var það aðeins snilldarmark-
varzla hins fræga markvarðar
italíu, Dino Zoff, sem kom í
veg fyrir markasúpu í leikn-
um, en hvað eftir annað bjarg-
aði hann á ótrúlegan hátt.
Mikil forföll voru í liði
Júgóslavfu í þessum leik, frá
þvi sem liðið var skipað í
heimsmeistarakeppninni. Nú
léku t.d. ekki þeir Dragan
Dzajic og Dusan Bajevic með
liðinu, vegna meiðsla og sjö
leikmanna úr heimsmeistara-
hópnum hafa farið í atvinnu-
mennsku til annarra landa.
Há verðlaun
MASASHI „Jumbo“ Ozaki
sigraði f opna japanska meist-
aramðtinu f golfi, sem lauk á
sunnudaginn. Lék hann á 279
höggum og fékk í verðlaun 30
milljðnir yena <um 100.000
dollarar). Annar f keppninni
varð Murakami á 280 höggum
og þriðji varð Yoshitaka
Yamamoto, sem lék á 282
höggum.
Asía —
Evrópa
jafntefli
URVALSLIÐ Evrðpu og Asfu
gerðu jafntefli, 0-0, f hokkí-
leik, sem fram fór f Briissel á
laugardaginn að viðstöddum
2.500 áhorfendum. Flestir
beztu hokkfleikmenn heims
tðku þátt f þessum leik, sem
var hinn skemmtilegasti, þrátt
fyrir markaleysið.
Haustmót BLI
FYRSTA blakmðt vetrarins
fer fram helgina 12.—13.
október. Mótanefnd BLI hefur
falið hinni nýstofnuðu blak-
deild Þróttar að sjá um mótið,
f tilefni 25 ára afmælis félags-
ins.
Mðt þetta er hraðmðt og
þátttökurétt hafa öll félög og
héraðssambönd innan tSl, svo
og skólar og starfshðpar.
Félögum er heimilt að senda
fleiri en eitt lið til keppni.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast Blakdeild Þróttar, c/o
Guðmundur E. Pálsson, Stór-
holti 32, R., fyrir 7. október
n.k. Þátttökugjald kr. 1.500,00
skal fylgja þátttökutilkynn-
ingunni.