Morgunblaðið - 03.10.1974, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.10.1974, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER 1974 Skagaströnd: Stórgjöf til bygg- mgar dvalar- heimilis aldraðra Nokkrir Rauðsokkar á btaðamannafun4inum f hinu nýja félags- húsnæði að Skólavörðustfg 12. Rauðsokkar opna félags- húsnæði RAUÐSOKKAR hafa tekið á leigu 70 fermetra húsnæði við Skólavörðustfg 12 á efstu hæð, þar sem hreyfingin mun hafa fastan samastað fyrir starfsemi sfna. A blaðamannafundi með Rauðsokkum af þessu tilefni kom fram, að um 200 einstakl- ingar hafa starfað f starfs- hópum hreyfingarinnar og er svo til eíngöngu um konur að ræða. Starfsemin f þessu nýja húsnæði mun m.a. byggjast á þvf að veita upplýsingar um eitt og annað, sem upp kann að koma. Hreyfingin telur mikla þörf á þvf að breyta hugsunarhætti fólks og siðvenjum í flestu, er lýtur að konum. „Baráttu kvenna fyrir frelsi og jafnrétti verður að heyja með vopnum stéttabaráttu", segir í stefnu- yfirlýsingu Rauðsokkahreyf- ingarinnar, sem samþykkt var á ráðstefnu, sem haldin var að Skógum f sumar og milli 30 og 40 konur sóttu. Það kom einnig fram á fundinum, að Rauð- sokkur telja karlmenn einnig órétti beitta gagnvart konum og má þar nefna einhliða rétt móður yfir börnum hjóna, sem skilja, svo og óskilgetinna barna. Húsnæði Rauðsokkahreyf- ingarinnar að Skólavörðustig verður framvegis opið á hverjum virkum degi milli kl. 5 og 7. Þá verða tveir Rauðsokkar til staðar og veita þeir upplýs- ingar um hreyfinguna og gefa einnig þær ráðleggingar aðrar, sem þeim er unnt. I setustof- unni iiggja frammi innlend og erlend tímarit og er þess vænzt, að allir þeir, sem áhuga hafa á hreyfingunni, llti við að loknum vinnudegi til að fræðast, rabba saman eða líta í blöð. Kaffi og öl fæst við vægu verði. I bfgerð er að koma upp vfsi að bókasafni. A kvöldin og utan hinna föstu opnunartfma verður húsnæðið vitaskuld notað til funda ellegar starfs. LÁRUS G. Guðmundsson á Skagaströnd hefur gefið 1 millj. kr. til byggingar íbúða fyrir aldraða á Skagaströnd og hefur hann afhent Jóni Isberg sýslu- manni í Húnavatnssýslum bankabók með þessari upp- hæð, en sýslumaður mun geyma bókina, þar til hreppsnefnd Skaga- strandar hefur skipað byggingarnefnd til að sjá um byggingu dvalar- heimilis fyrir aldraða á Skagaströnd. Morgunblaðið hafði í gær samband við Jón Isberg og sagði hann, að Lárus vildi, að þessir peningar yrðu fyrsta framlag til dvalar- heimilis, sem síðar mætti byggja við hjúkrunar- heimili. Morgunblaðið hafði einnig samband við sveitarstjórann á Skaga- strönd, Lárus Ægi Guð- mundsson, dótturson Lárusar og sagði hann, að þetta mál væri allt á byrj- unarstigi og því erfitt að segja nokkuð um það, en það yrði tekið upp innan tiðar hjá hreppsnefnd. Undirskriftasöfnunin Fr jáls menning hafin: Vilja íslenzkt lita- sjónvarp og Keflavík ursjónvarpið áfram UNDIRSKRIFTASÖFNUN undir kjörorðinu Frjáls menning er hafin á þéttbýlissvæðinu suð- vestanlands f þvf skyni að gefa almcnningi kost á þvf að láta f ljós skoðun sfna á sjónvarpsmál- um þjóðarinnar. Þó að aðstand- endur undirskriftasöfnunar þessarar séu alllr af þessu lands- svæði, hvetja þeir hins vegar fólk úr öðrum landshlutum, sem sama sinnis er, að setja sig f samband við skrifstofu söfnunarinnar. Allir þeir, sem verða 18 ára á þessu ári og eldri, geta tekið þátt f Námsflokkar á Isafirði: Mestur áhugi á enskunni Stúlkur í meirihluta íMÍ FYRIR forgöngu kennara og skólameistara Menntaskólans á Isafirði hefur verið stofnað til námsflokka á staðnum og fer kennsla fram á kvöldin. Attu námsflokkarnir að hefjast f þess- ari viku. Að sögn Jóns Baldvins Hannibalssonar skólameistara Ml, reyndist aðsókn miklu meiri en reiknað var með f upphafi, og verða nemendur f vetur 200 tals- ins, frá Isafirði og byggðunum f kring. Námsflokkarnir veita ekki stig til stúdentsprófs og eru þvf ekki „öldungadeild" eins og það er kallað hjá MH. Hins vegar stunda nokkrir nám utan skóla við Mt, þar á meðal ein húsmóðir. „Aðsóknin sýnir, að það hefur verið greinileg þörf á slfkum námsflokkum,“ sagði Jón Bald- vin. Hann sagði, að kennt væri f 10 flokkum, fimm flokkum í ensku, tveimur í bókfærslu og einum í eftirtöldum greinum: dönsku, þýzku og fslenzku. Þá sýndu margir áhuga á öðrum greinum, en lágmarksþátttaka náðist ekki í þeim, en miðað var við 10 manns sem lágmark. Kennt er í húsakynnum Menntaskólans, þrjú kvöld f viku. Um Menntaskólann sjálfan er það að segja, að kennsla er hafin fyrir nokkru. Skráðir nemendur eru 160, þar af 81 stúlka og 79 piltar, og mun þetta vera I fyrsta skipti I íslenzkum menntaskóla, að kvenfólk er f meirihluta. Nýjum nemendum er ekki skipt í deildir. Eldri nemendur skiptast þannig, að 61 er f félagsfræðikjör- sviði, en 51 í raungreinakjörsviði. Af þessum 160 nemendum eru 61 frá Isafirði, 48 annars staðar af Vestfjörðum og 51 frá öðrum landshlutum. I fyrra voru nem- Framhald á bls. 20 undirskriftum þessum, en áskor- unin er tvíþætt: Við undirrituð skorum á rfkis- stjórn og Alþingi að.‘ 1. efla íslenzkt sjónvarp með þvf að tryggja fjármagn til kaupa á viðunandi dagskrárefni og hefja útsendingar í lit. 2. skapa eðlilega samkeppni með því að hefta ekki útsendingar Keflavíkursjónvarpsins. Opnuð hefur verið skrifstofa að Skipholti 27 í Reykjavík, og verð- ur hún opin daglega frá kl. 14—19, sfminn er 85670. Þar má undirrita yfirlýsinguna og fá undirskriftalista. Undirskrifta- söfnunin stendur til 28. október, en áskorunin verður síðan afhent forsætisráðherra og forseta Sam- einaðs alþingis. I ávarpi forráðamanna söfnunarinnar kemur fram, að þeir vilja mótmæla þeirri til- hneigingu ráðamanna Sjónvarps- ins að hefta möguleika einstakl- ingsins til að njóta þess sjónvarps- efnis, sem völ er á í dag undir yfirskyni menningarverndunar. Islenzk menning eflist ekki með einangrun heldur vaxi hún og dafni með frjálsum samskiptum þjóða á milli. Dagskrá íslenzka sjónvarpsins sé að þeirri áliti harla fátækleg og fjárframlög af skornum skammti. Þá telja forráðamenn söfnunar- innar, að til að halda uppi sjón- varpsmenningu sé nauðsynlegt að tryggja fjármagn til kaupa á við- unandi dagskrárefni. Þeir benda á, að útsendingar sjónvarps hafi hafizt fyrir átta árum svo að nú standi endurnýjun margra sjón- Framhald á bls. 20 Cellóleikari frá Texas með sinfóní- unni í kvöld 21 Einar Ágústsson um varnarsamkomulagið: Ekki samið um neinar tölur 99 „ÞAÐ VAR ekki samið um neinar tölur,“ sagði Einar Agústsson utanrfkisráðherra er Morgunblaðið hafði sam- band við hann f New York f gær vegna fregna f Washing- ton Post og frá Reuterfrétta- stofunni um fjárútlát Banda- rfkjamanna vegna samkomu- lags, sem nýlega var gert um varnarmálin. Utanríkisráðherra sagði, að í samningaviðræðurium í Washington hefði ekki verið samið um beinar fjárupphæð- ir. Bandarfkjamenn hefðu tekið að sér að flytja alla bandaríska starfsmenn varnar- liðsins, sem nú eru búsettir utan flugvallarins inn fyrir vallarmörkin, og myndu þeir byggja íbúðarhúsnæði fyrir það fólk. Það væri ekki sitt mál, hvaða kostnað þeir hefðu af því. Þá hefðu þeir tekið að sér að greiða þann kostnað, sem leiddi af aðskilnaði hernaðarflugs og almenns far- þegaflugs, þó þannig, að þeir mundu ekki greiða kostnað við byggingu nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli, en hins vegar taka þátt í framkvæmd- um, sem væru tengdar því verki. Leiðrétting í Washington Post. Fréttamaður Morgunblaðs- ins í Washington, Geir Haarde, símaði eftirfarandi til Mbl. í gærkvöldi: 1 frétt Morgunblaðsins s.l. laugardag um hlutdeild Bandarfkjamanna f kostnaði við breytingar á Keflavíkur- flugvelli var haft eftir föstu- dagsblaði Washington Post, að kostnaður Bandaríkjanna sé 60 milljónir dollara. Tekið var fram, að sú upphæð hefði ekki fengizt staðfest í Washington. Nú hefur komið I ljós, að um prentvillu var að ræða í Washington Post og birtist ör- smá klausa með fyrirsögninni „Leiðrétting" í laugardags- blaðinu, þar sem frá því var skýrt, að upphæðin ætti að vera 16 milljónir dala. Morg- unblaðið sneri sér til banda- ríska utanríkisráðuneytisins f dag og fékk staðfest, að 16 milljónir dala er sú upphæð, sem um hefur verið talað í þessu sambandi. 38,5milljónir dala Forstöðumaður Upplýsinga- Framhald á bls. 20 Ralph Kirshhaum Fyrstu tónleikar Sinfónfu- hljómsveitar tslands á starfs- árinu 1974/75 verða haldnir f Háskólabfói fimmtudaginn 3. október kl. 20.30. Stjórnandi er aðalhljómsveitarstjórinn Karsten Andersen og einleikari banda- rfski cellóleikarinn Ralph Kirshbaum. Á efnisskránni verða eftirtalin verk: Ludvig Irgens Jensen: Passacaglia, Antonin Dvorak: Cellókoncert f h-moll op. 104, Felix Mendelssohn: Sinfónfa nr. 4 í A-dúr op 90 (ítalska sinfónian). Fyrstu tónleikar utan Reykja- víkur verða haldnir að Logalandi i Borgarfirði fimmtudaginn 10. okt. kl. 21.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.