Morgunblaðið - 03.10.1974, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.10.1974, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÖBER 1974 17 Ford ber yitni 10. október Washington 2. október — Reuter. Ford Bandaríkjaforseti mun koma fyrirundirnefnddómsmálai fulltrúadeild Bandarikjaþings 10. október næstkomandi og svara spurningum nefndarmanna um hina umdeildu náöun Nixon, f yrr- um forseta, að því er formaður undirnefndarinnar skýrði frá í dag. Aðeins tveir bandariskir for- setar I sögunni hafa áður borið vitni fyrir þingnefnd, — George Washington og Abraham Lincoln. Ford bauðst sjálfur til að koma á fund nefndarinnar og útskýra ástæður sinar fyrir náðuninni, en nefndin hafði lýst áhuga á að fá svör við 14 spurningum um hana. I undirnefndinni eru menn, sem einnig eiga sæti I dómsmálanefnd deildarinnar, sem á sinum tíma rannsakaði ákæruatriði á hendur Nixon. Vitnisbyrði Fords fyrir nefndinni verður sjónvarpað um öll Bandarikin. Sögðu karlmann vera með barni London 2. október—Reuter. FRAMBJÖÐANDI einn í þing- kosningunum i Bretlandi 10. októ- ber fékk úrskurðað sjö sinnum, er hann gerði einkakönnun á þjón- ustu fóstureyðingastöðva, að hann væri með barni. Michael Lichfeld, sem býður sig fram fyrir íhaldsflokkinn i NEng- landi, sagði, að þessi könnun hefði verið ógeðslegri en nokkur, sem hann hefði gert á ferli sínum sem blaðamaður. Starfsemi fóstureyðingastöðvanna sé „mor- andi í spillingu og rekin af bófum og svindlurum". Lichfeld sagði, að kona ein, sem hjálpaði honum við könnunina og var ekki barns- hafandi, hefði fengið þær upplýs- ingar hjá þessum stöðvum, að hún ætti von á barni „til þess að drífa hana í fóstureyðingaraðgerð." Þegar þvagsýni úr sjálfum mér voru send til þessa fólks, komst það jafnvel að þeirri niðurstöðu, að ég væri ófrískur,“ bætti hann við. Rabin hót- ar Aröbum Jerusalem 2. október—AP. YITZHAK Rabin, forsætisráð- herra ísrael, hótaði því í dag, að ísraelar myndu beita lang- drægum eldflaugum til að hitta mikilvægar stöðvar f Araba- löndum, ef með þyrfti. Var þetta andsvar Rabins við yfirlýsingu varnarmálaráðherra Sýrlands í gær, að Sýrlendingar gætu hitt hvaða skotmark sem væri í Israel með þeim vopnum, sem þeir hafa undir höndum. Bæði Sýrland og Egyptaland hafa fengið lang- drægar eldflaugar frá Sovétrfkj- unum: Rabin sagði: „Hótunum verður að mæta með hótunum, áður en arabísku leiðtogarnir freistast til að gera eitthvað úr sfnurn". Andlit hungursins I Indlandi. Hungrið sverfur að Indverjum. hans var ekki gefið upp): „Svo virð- ist sem Arabarnir og aðrir hráefnis- framleiðendur þriðja heimsins séu að þreifa fyrir sér hversu langt þeir komist upp með að þrýsta á okkur". Það virðist sem Bandarikin og iðnaðarþjóðirnar hafi um þrjá kosti að velja. Fyrsti kosturinn og sá ákjósanleg- asti væri að framleiðslulöndin og neyzluþjóðirnar gætu setzt niður saman til að semja nýjar reglur um viðskiptahætti, þar sem sanngjarnt verð væri tryggt fyrir vöruna, gegn frjálsri sölu á hráefnum og tilbúnum vörum og jafnframt, að hið úrelta alþjóða gjaldeyriskerfi verði endur- byggt. Vestur-þýzki hagfræðingur- inn dr. Ingeborg Koehler-Rieken- berg segir: „Það er hætta á heims- kreppu, en hægt er að koma í veg fyrir hana, ef iðnaðarþjóðirnar gætu I eitt skipti komið sér saman um aðgerðir." Annar kostur og sá, sem ttklegri er, er, að þjóðerniskenndin ráði stöðugt táknrænni fyrir þær þjóðir heims, sem kallaðar eru þriðji heim- urinn, þjóðirnar, sem skemmra eru á veg komnar .1 Afríku, Asiu, S- Ameriku og Miðausturlöndum. Kaldhæðnin er sú, að þróunin hef- ur skipt þessum þjóðum i tvennt: þær sem framleiða ollu og önnur dýrmæt hráefni, og þær sem ekki búa yfir neinum náttúruauðæfum. Annar hópurinn verður nú auðugri með hverjum deginum sem liður, meðan hagur hins hópsins þrengist að sama skapi. Og það er fyrrnefndi hópurinn, sem veldur neyðinni hjá hinum. Litum nú á dæmi um ástand- ið. Kuwait og Abu Dhabi við Persa- flóa eru auðugust allra rikja, að minnsta kosti miðað við fólksfjötda Tekjur Kuwait af oliusölu i ár munu nema um 7 milljörðum dollara. Ibúarnir eru 350þúsund og fá m a ókeypis menntun allt gegnum doktorpróf, ókeypis læknishjálp, lif- trygginu, almannatryggingar, hús- næði, síma og beina fjárstyrki. í Abu Dhabi er ástandið jafnvel enn betra, þar nemur olíugróðinn 100 þúsund dollurum á hvern ibúa I Indlandi er staðan hins veg- ar sú, að þar jaðrar við Þeir f átæku verða fátækari og þeir ríku ríkari Bandaríska vikuritið Newsweek birti f tölublaði sinu dagsettu 30. september sl. sérstakan blaðauka, þar sem fjallað er um efnahags- vandamálin f heiminum og er greinin, sem hér fer á eftir, unnin upp ur þessum blaðauka. Hin gífurlega verðbólgualda, sem nú skellur yfir heiminn hefur valdið miklum óttaflestra þjóða heims, utan kommúnistaríkjanna, að hroðaleg efnahagskreppa, á borð við þá, sem rikti i heiminum á árunum eftir 1930, sé á næstu grösum. Verð- bólgan er allt frá 6,9% i V-Þýzka- landi upp i 200% i Chile. Atvinnu- leysi hefur stóraukizt, margar iðngreinar framleiða langt undir getu, hungursneyð blasir við milljónum manna í Indlandi, Bangladesh og Afríku og matvæla- skortur við tug ef ekki hundruðum milljóna manna. í ræðu sinni á árs- fundi Alþjóðabankans sagði forseti bankans, Robert McNamara, að um 300 milljónir manna lifðu á mörk- um lífs og dauða og að vestrænar iðnaðarþjóir yrðu að leggja fram 36 milljarða dollara á næstu fimm árum til að aðstoða þá 800 milljónir ibúa þriðja heimsins, sem búa við sára- fátækt, aðeins til halda I horfinu. Skoðanir manna á vandanum eru æði mismunandi. Mesta bjartsýnin er sögð koma fram i ársskýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þar sem segir, að iðnaðarþjóðirnar verði að sæta sig við aukið atvinnuleysi og hægari efnahagsvöxt um langan tíma, eigi að takast að sigrast á verðbólgunni. Mesta svartsýnin kom fram i ræðu Geralds Fords Banda- rikjaforseta á Ailsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna, er hann sagði: „Ef þjóðir heims sameinast ekki um að leysa matvæla- og oliuvandamálin, sem eru helzti verðbólguvaldurinn, gæti það þýtt neyðarástand fyrir hverja einustu þjóð, sem hér á full- trúa." Bandaríkjamenn eru þegar farnir að finna óþyrmilega fyrir ástandinu. Atvinnuleysi i landinu er um 5,4%, verðbréf á markaðinum í New York hafa fallið um 300 milljarða dollara frá þvi snemma á síðasta ári og fyrirtæki og bankar eiga i miklum lausafjárerfiðleikum. V-Þjóðverjar og Japanar hafa neyðzt til að herða að sér ólina og ítaliu var bjargað frá hreinu gjaldþroti með tveggja milljarða dollara láni frá VÞýzka- landi. Sannleikurinn er sá, að Bandarík- in og flestar vestrænu iðnaðar- þjóðirnar lifa við alvarlega sjúk efna- hagskerfi, og það, sem verst er, að enginn virðist hafa á takteinum nýjar og ferskar hugmyndir um, hvernig megi lækna þau, Hagfræðingar hafa misst mikla trú á sjálfum sér og þeim kenningum, sem þeir hafa haldið fram sem læknisráðum. Harwardprófessorinn Wassily Leontief, sem fengið hefur nóbels- verðlaunin i hagfræði, segir: „Yfir- lýsingar hagfræðinga um, að þeir kynnu ráð til að hafa hemil á verð- bólgu, eru innantómt hjal". Matvælaástand heimsins hefur hríðversnað á sl þremur árum. Hér áður fyrr var það ekkert óalgengt, að ein og ein þjóð ætti við matvæla- skort að striða af ýmsum ástæðum, en nú hefur slæmt veðurfar og gífur- leg fólksfjölgun orðið þess valdandi, að matvælaskorturinn þrýstir á um allan heim. Langveigamesta ástæðan fyrir hinu breytta efnahags- ástandi i heiminum var ákvörðun olíuframleiðslurikjanna um að fjór- falda verð á oliu. Verðið hefur hækk- að úr 2,25 dollurum fyrir hverja tunnu upp í 11,65 dollara. Þetta hefur komið sérlega illa við Evrópu- þjóðir, sem þurfa að kaupa nær alla sfna olíu erlendis frá. Talið er, að vestrænar þjóðir greiði í dag 60 milljarða dollara fyrir oliuna frá Aröbum miðað við ársneyzlu. Þessi samtök oliurikjanna urðu til þess, að þjóðir sem auðugar eru af öðrum hráefnum fetuðu í fótsporin og bundust samtökum um verð- hækkanir. Má þar nefna Bauxit, fosfat, kopar, tin, kaffi og banana og voru verðhækkanir allt að 600% knúðar í gegn Óttazt er, að hækkan- ir á timbri, gúmmii, kóbalt og fleiri tegundir séu á næstu grösum. Þegar litið er á þessa þróun, kem- ur i Ijós mynd af samfelldum alþjóð legum efnahagslegum átökum, ef svo má að orði komast. Einn helzti fjármálasérfræðingur Bandarikjanna sagði i samtali við Newsweek (nafn áfram i flestum meiriháttar málum og að hver þjóð verði ein á báti. Frakkar og ítalir hafa þegar gert ráðstafanir til að vernda sig, Frakkar með 4 milljarða franka meðgjöf með útflutningi sinum og italir með nýju kerfi, sem miðar að þvi að hefta innflutning. Auk þess voru uppi raddir um það í Washington nú I septemberlok, að Bandaríkjastjórn undirbyggi einhliða efnahagslegar gagnaðgerðir gegn oliuframleiðslu- ríkjum Araba. Heimildir hermdu, að aðgerða væri að vænta fyrir árslok Þriðji kosturinn er, að ef ástandið verður of alvarlegt, muni vestrænar þjóðir hreinlega hernema litlar þjóð- ir, sem framleiða oliu eða önnur mikilvæg hráefni. Þetta er skelfileg- ur kostur, en hann var mikið ræddur I Washington. meðan á olíusölu- banni Araba stóð. En meðan Banda- ríkin og aðrar iðnaðarþjóðir velta fyrir sér úrræðunum, heldur ástand- ið stöðugt áfram að versna Hverjir vinna og hverjir tapa? Þegar aðstæður í Tanzaniu eru eðlilegar, deyr fjórða hvert barn i landið, áður en það nær 5 ára aldri. í dag eru timar ekki eðlilegir I land- inu. Langvarandi þurrkar, stórhækk- að oliuverð og verð á áburði boða stóraukin barnadauöa, Hinu megin i álfunni er Nigeria, þar sem olíuturn ar dæla 2,3 milljónum tunna af oliu upp úr jörðinni á dag. Þar er verið að byggja nýja skóla, ibúðarhverfi og flugvelli og göturnar eru fullar af Rolls Royce bílum, Kadilökkum og Mercedes-Benz. Þessar skerandi andstæður tveggja Afríkuríkja veiða neyðarástand. Hveitiuppskera, sem nægt hefði til að fæða 50 milljón manns f heilt ár eyði- lagðist í ár vegna mikilla þurrka, orkuskorts, skorts á áburði og hroðalegrar seinvirkni stjórnvalda. Milljónir Indverja hörfast nú.i augu við hungursneyð innan fárra mánaða Þetta er hörmuleg afturför miðað við þann árangur í framfara- átt. sem náðist á siðasta ára- tug. er Græna byltingin olli þvi. að Indverjar urðu næst- um sjálfum sér nógir í matvæla- framleiðslu, og gert var ráð fyrir, að þeir gætu byrjað út- flutning á korni um miðjan þennan áratug. Græna byltingin hafði það hins vegar I för með sér, að Indland varð háðara olíu og áburði og þar með verr undir það búið að mæta olfuverð- hækkuninni og skorti á áburði Vandamál Indverja virðast óleysan- skorin niður um 20%, en samt verða Indverjar að afla eins milljarðs dollara á næsta ári til að greiða allra nauðsynlegustu oliu. Innflutnings- takmarkanirnar hafa haft þær afleið- ingar, að eldsneytisskortur hefur stöðvað vatnsveiturnar og er talið, að það hafi kostað þjóðina 1 milljón lesta af hveiti. Indland og aðrar fátækar þjóðir þriðja heimsins hafa fátt til að selja fyrir gjaldeyri, og eiga því allt sitt undir iðnaðarþjóðunum kömið, en hættan er sú, að versnandi efna- hagur þeirra leiði til þess, að þau dragi til muna úr aðstoð sinni við þróunarlöndin Fátæku þjóðirnar leita nú eðli- lega eftir aðstoð til bræðraþjóða sinna i þriðja heiminum, sem betur eru á sig komnar vegna oliuverðsins og hins háa verðs á öðrum mikil- vægum hráefnum. En Arabarnir hafa haft meiri áhuga á, að fjárfesta olíugróðann á Vesturlöndum og af 60 milljarða dollara gróða í ár á aðeins að veita 15 milljörðum til fátækra bræðraþjóða og aðeins örlitill hluti þess fjármagns hefur verið reiddur af hendi Hlutur þriðja heimsins, án Arabarikjanna er enn þá verri, þeim eru aðeins ætlaðir 5 milljarðar dollara og ekki einn eyrir af þeirri upphæð hefur verið afhent- ur, einkum vegna skipulagsleysis Nokkrar Afrlkuþjóðir hafa gagnrýnt Araba harðlega fyrir of litla aðstoð, en þær eru undantekningar. Nær allar þjóðir þriðja heimsins hafa fagnað hækkun oliuverðsins og tekið afstöðu gegn vestrænum þjóðum og israel. Þessar þjóðir biða eftir einhverri aðstoð og geta ekkert annað gert. Þeir fátæku eru fátækari en þeir voru fyrir nokkrum árum, og áttu þá ekki mikið, en þeir riku eru rikari. Verði kreppa, eiga milljónir eftir að deyja úr hungri — eða geta þjóðir heims loks komið sér saman og leyst vandann, áður en hann verður óyfirstíganlegur? Heimurinn biður eftir svörum við þessum spurningum og þar af 800 milljónir manna með öndina i háls- inum Arabinn veltir gróðanum á undan sér og kremur undir honum fátæku þjóðirnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.