Morgunblaðið - 03.10.1974, Side 36

Morgunblaðið - 03.10.1974, Side 36
GNIS FRYSTIKISTUR RAFTORG SIMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1974 Jttarnimlblg^ife nuGivsmcRR ^22480 Skemmdarverk unnin á enn einu björgunarskýli í FYRRI viku var skýrt frá því f Mbl., að skemmdir hefðu verið unnar á þremur af fjórum björgunarskýlum, sem Björgun- arfélag Hornafjarðar hefur um- sjón með. Var jafnframt frá þvf skýrt, að einungis skýlið á Breiða- merkursandi hefði verið ðskemmt eftir sumarið. „En dag skal að kveldi lofa“, sagði Elías Jónsson, formaður félagsins og fréttaritari Mbl., er blaðið ræddi við hann í gær. „Ég er nýkominn úr eftirlitsferð f skýlið á Breiðamerkursandi, og nú var aðkoman önnur en þegar ég var þar fvrir tæpum mánuði. Búið var að brjóta rúður í skýl- inu, teppi og fatnaður lá eins og hráviður um gólfið og lampi hafði verið brotinn. Hvorki er neyðar- talstöð né sfmi í skýlinu, en varla hefði sá tækjabúnaður verið lát- inn í friði fyrir vörgunum, ef hann hefði verið til staðar. Maður er alltaf jafnagndofa, þegar slík eyðilegging ber fyrir augu manns, en það er því miður orðið æði algengt. Það verður að beita öll- um hugsanlegum ráðum til þess að uppræta þennan ófögnuð“, sagði Elías að lokum, og að vonum var þungt f honum hljóðið. Dýrara aðvera „ öldungur ”áAkur■ eyri en íReykjavík 1 tilefni af 100 ára afmæli sfnu heldur Kvennaskólinn sýningu á ýmsum munum, kennslugögnum og handavinnu f skólanum og lýkur sýningunni f kvöld kl. 22, en hún stendur frá kl. 14 f dag. — Myndin er af nemanda f Kvennaskólanum að skoða saumavél- ar af eiztu og nýjustu gerð, en stúlkan hefur eftirlit með sýningarmunum. Ljósmynd Mbl. Öl.K.M. 1 BLAÐINU Islendingi á Akur- eyri fyrir skömmu er sagt frá þvf, að fyrsti vfsir að öldungadeild utan Reykjavfkur taki til starfa á Akureyri f haust. Deildin verður rekin þar á vegum námsflokka Akureyrar og er námstfmi áætl- aður þrjú ár, en með þessu fyrir- komulagi opnast fólki, sem er 21 árs og eldra, leið til þess að taka stúdentspróf. Námstfmi er áætl- aður þrjú ár og eru engin skilyrði sett um fyrri menntun. Forstöðu- maður Námsflokka Akureyrar getur þess f viðtali við tslending, að ekki verði um formlega deild að ræða heldur sé þetta fremur hugsað sem hjálparkennsla við að lesa undir stúdentspróf, en tilraunin er gerð f samvinnu við Menntaskólann á Akureyri og munu margir af kennurum skól- ans sjá um kennslu f öldunga- deildinni. Reiknað er með, að námsgjöld verði um 20 þús. kr. fyrir áramót, en engar fjárveit- ingar hafa fengizt frá rfkinu til þessarar deildar. Hins vegar greiðir rfkið allan kostnað við öldungadeildina f Hamrahlfðar- skólanum f Reykjavfk og sam- Bandarísk stjórnvöld vilja minnka flug erlendra aðila til USA Bandarísk stjórnvöld hafa nú þegar gert samn inga við Breta um, að brezk flugfélög minnki starfsemi sína um 20% f flugi milli Bandarfkjanna og Bretlands og fyrir dyr- um standa samningavið- ræður við flest lönd Vest- ur-Evrópu um sama mál. Gott æfinga- mót fyrir mig” Friðrik Olafsson sigraði á alþjóðlegu móti íGlasgow FRIÐRIK ölafsson stórmeistari kom heim f gær frá Skotlandi, þar sem hann keppti f alþjóðlegu móti f Glasgow. Sigraði Friðrik f efsta flokki, sem skipaður var 12 mönnum, hlaut 4'A vinning af 5 mögulegum, en umferðir voru aðeins 5. Framkvæmd mótsins var þannig, að þeir, sem unnu tefldu saman og þeir, sem töpuðu tefldu saman, en meðal keppenda voru sterkustu skákmenn Bret- lands og Skotlands og einn skák- maður frá Astralfu. Þetta mót var haldið til að auka áhuga á skák- fþróttinni í Skotlandi og voru alls 400 þátttakendur, allt niður f barnaskólabörn, en skákáhugi hefur aukizt mikið á sfðustu árum f Skotlandi. Morgunblaðið hafði tal af Friðrik Ólafssyni i gærkvöldi og sagði hann, að fyrir sig persónu- lega hefði þetta verið gott æfinga- mót. „Þótt ekki væri þarna menn á heimsmælikvarða", sagði hann, „voru þarna sterkustu menn þessara landa og all þétt lið, þannig að maður varð að taka á honum stóra sfnum. Ég lenti m.a. í þremur biðskákum. Númer tvö varð Basman frá Englandi með 3'/i vinning, en harin var efstur ásamt öðrum í brezka meistara- Framhald á bls. 20 Er ísland tilgreint í þeim hópi, en ástæðan fyrir þessari beiðni er m.a. miklir rekstrarerfiðleikar, sem bandarísk flugfélög eiga nú við að glfma. t fréttaskeyti til Morgun- blaðsins frá NTB í Osló er sagt, að bandarísk stjórn- völd fari fram á ráðstefnu í haust með Norðurlanda- þjóðunum vegna þessa máls, en samkvæmt upp- iýsingum fslenzka utan- rfkisráðuneytisins í gær hafa tilmæli þar að lútandi ekki borizt ráðuneytinu enn þá. Forstjóri SAS var spurður að þvf, hvaða augum SAS liti Boða Norðurlönd- in og fleiri lönd til viðræðna væntanlega minnkun á flugi er- lendra flugfélaga til Bandarfkj- anna. Ilann sagðist telja, að SAS hefði mjög sterk tromp á hend- inni f þessu efni, þvf rekstur félagsins væri mjög traustur á þessu ári og flugið miðaðist ein- göngu við þarfirnar. „Rekstur okkar f dag er þvf mjög eðlileg- ur“, sagði Asbjö Engen. Morgunblaðið hafði f gær sam- band við Örn Johnson forstjóra Flugleiða og sagði hann, að ekk- ert væri komið um þetta mál til þeirra enn þá, en hins vegar hefðu þeir frétt um samninga við Breta og vilja til viðræðna við ýmis Evrópurfki. kvæmt upplýsingum, sem Morg- unblaðið fékk f gær hjá Hjálmari Ölafssyni conrektor Hamrahlfðar- skólans, en hann veitir Öldunga- deildinni forstöðu, þá er skrán- ingargjald hvers nemanda f öld- ungadeildinni 2500 kr. fyrir önn, en skólaárinu er skipt f tvær annir, fyrir og eftir áramót. Hjálmar sagði, að þessar 2500 kr. væru f rauninni aðeins pappfrs- kostnaður, þvf rfkið greiddi allan annan kostnað, nema skólabækur, sem nemendur greiða sjálfir. Bárður Halldórsson forstöðu- maður Námsflokka Akureyrar sagði f viðtali við Morgunblaðið f gær að 21 hefði sótt um í öldunga- deildina og væri kennsla hafin. Nemendur kvað Bárður vera á aldrinum 21—47 ára. Tvær deildir eru, náttúrufræði- og máladeild og miðast námið í vetur við að lokið verði við 57 einingar af 132 semþarf til stúdentspróf s. Morgunblaðið sneri sér einnig til Vilhjálms Hjálmarssonar menntamálaráðherra og spurði hann hvort ráðuneytið myndi veita norðlenzkum öldungum sömu fyrirgreiðslu og er í Reykja- vík. Vilhjálmur kvað þessi mál vera f athugun hjá ráðuneytinu um þessar mundir, en stefnt yrði að þvi að sama fyrirgreiðsla yrði á þessum stöðum. Hins vegar kvaðst hann hafa fengið þetta mál það seint að ekki væri útséð hvort hægt væri að afgreiða það eins og Norðlendingar æsktu fyrir þennan vetur. 75 þúsund kr. stolið á Höfn TÖLUVERT hefur verið um inn- brot og þjófnaði á Höfn f Horna- firði að undanförnu. ! sumum til- vikum eru málin upplýst, og hafa aðkomumenn verið þar að verki. Ekki hefur þó tekizt að upplýsa stærsta þjófnaðinn, en hann var framinn 22. sept. s.l. Þá varstolið 75 þúsund krónum f peningum og nokkru af vörum úr söluturni Essó. Nokkru áður hafði verið stolið útvarpstækjum og 2—3 þúsund krónum í peningum úr söluturni Shell. Einnig var brotizt inn f nokkur íbúðarhús á staðnum og stolið þaðan ýmsum hlutum. Úr einu húsanna var stolið áfengi og út- fylltri ávísun. Arabískir skœruliðar kollvörpuðu íslenzkri landkynningarkvikmynd AÐGERÐIR arabfskra skæru- liða áTelaviv-flugfelli fyrirum tveimur árum hafa valdið þvf, að fslenzk landkynningarmynd varð aldrei að veruleika og þrfr fslenzkir sitja uppi með mikla 35 millimetra kvikmyndatöku- vél — verkefnalausir. Vélina hafa þeir þó ekki viljað láta, þar sem hún fékkst á kostakjör- um og þeir lifa í voninni um, að sá tfmi renni upp, að landlæg ótrú tslendinga á innlendri kvikmyndagerð hjaðní og fjár- sterkir aðilar hlaupi undir bagga með þeim til að gera fslenzka kvikmynd. Fyrir fáeinum árum stofnuðu þrfr íslendingar — Þrándur Thoroddsen og Jón Hermanns- son kvikmyndagerðarmenn og Gísli Alfreðsson leikari með sér félag um kaup á 35 mm kvik- myndatökuvél, sem þeim eig- indum var búin að geta tekið breiðtjaldsmynd án verulegra tilfæringa. Kaup þeirra félaga á vélinni byggðust á því, að þeir höfðu að bakhjarli þýzkan kvik- ^^idaframleiðanda^^Ianfred^ Korytowski að nafni, sem var fús til að fjármagna landkynn- ingarmynd um Island, er þeir þremenningar voru með á prjónunum. Korytowski þekkti vel til Islands frá því að hann var framkvæmdastjóri kvik- myndafyrirtækis þess, er gerði Sigurð fáfnisbana og tekin var hér á landi fyrir nokkrum ár- um. Hafði þá tekizt ágæt vin- átta með honum og Gfsla Al- freðssyni. Fyrirætlun þeirra félaga var komin vel á veg, — Þrándur hafði skrifað handrit að mynd- inni, „strákur—hittir— stelpu—saga“, fléttuð inn í landkynninguna — eins og Þrándur orðaði það og Kory- towski hafði samþykkt hana, er hann þurfti skyndilega að bregða sér til Tel Aviv vegna kvikmyndagerðar fyrirtækis hans þar. Tók hann flugvél í Frankfurt, millilenti í Vín, en þegar lent var í Frankfurt, kom f Ijós, að arabískir skæruliðar voru um borð f vélinni. Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.