Morgunblaðið - 03.10.1974, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.10.1974, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKT0BER 1974 29 fclk f fréttum mLangt flýgur flugdrekinn Roger Egle, 29 ára gamall Svisslendingur, flýgur flugdreka sfnum 18 kg þungum hátt yfir borgina Cortina D’Ampesso á Italíu er hann fór vel heppnaða flugferð nýlega frá 3244 metra háu fjalli niður í dal í 2020 metra hæð á tuttugu mfnútum. Útvarp Reykfavth 0 FIMMTUDAGUR 3. október 7.00 Morgunútvarp VeðurfreRnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.10. Morgunbæn kl. 7.55: Morgunstund barnanna kl. 8.45: Haraldur Jóhannsson heldur áfram lestri þýðingar sinnar á sögunni „Emil og leynilögreglustrákunum" eftir Erich Kástner. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Viðsjóinn kl. 10.25: Ingólfur Stefánsson ræðir við Þorvald Guðmundsson skipstjóra á Akranesi. Morgunpopp kl. 10.40. Hljómplötusafnið kl. 11.00: (endur- tekin þáttur G.G.). 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn- ingar. 13.00 A frfvaktinni. Margrét Guðmunds- dóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Sfðdegissagan: „Skjóttu hundinn þinn“ eftir Bent Nielsen. Guðrún Guðlaugsdóttir les þýðingusfna (7). 15.00 Miðdegistónleikar. Janácek kvart- ettinn leikur Strengjakvartett op. 29 nr. 13 f a-moll eftir Schubert. Mstislav Rostroprovich og Benjamin Britten leika fimm lög f alþýðustfl fyrir selló og pfanóeftir Schumann. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornið „ 17.10 Tónleikar. 17.30 Páskaferð til Rúmenfu. Sigurður Gunnarsson kennari segir frá (2). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til kynningar. 19.35 Mælt mál. Bjarni Einarsson flytur fimm mfnútna þátt um fslenzku. 19.40 Einsöngur f útvarpssal. Elín Sigur- vinsdóttir syngur lög eftir Kolbrúnu á Arbakka, Marfu Brynjólfsdóttur, Ingi- björgu Þorbergs. fslenzk þjóðlög f út- setningu Jórunnar Viðar, lög eftir Jón Asgeirsson, Björgvin Guðmundsson, Emil Thoroddsen og Arna Thorsteins- son. Sigrfður Sveinsdóttir leikur á pfanó. 20.05 Flokkur fslenzkra leikrita, I: „Narfi“ eftir Sigurð Pétursson I.eikstjóri: Sveinn Einarsson. Bjarni Benediktsson frá Hofteigi flytur inn- gangserindi. Leikritinu var áður út- varpað fyrir sjö árum. Guttormur lögréttumaður .... Jón Aðils Jón ) barn hans ..Guðmundur Magnús- son Ragnhildur ) bam hans Björg Davfðs- dóttir Nikulás vinnumaður .. Sigurður Karls- son ólafur niðursetningur ........Kjartan Ragnarsson Dalstæd kaupmaður .......Þorsteinnö. Stephensen Narfi búðarmaður Borgar Garðarsson 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan: „Septembermánuður“ eftir Fréderique Hébrard. Gfsli Jóns- son fslenzkaði. Bryndfs Jakobsdóttir les (8). 22.35 Manstu eftir þéssu? Tónlistar- þáttur f umsjá Guðmundar Jónssonar pfanólei kara. 23.20 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok. Á skfánum 0 • Kapp- aksturs- hetja... Leikarinn Paul Newman hefur fleiri áhugamál en leikarastörfin. Hann er nefnilega mikill kapp- akstursáhugamaður og meðfylgjandi mynd af honum þar sem hann sit- ur (með hjálm) undir stýri á Ferrari sport- kappakstursbíl var tekin á Bonnewille saltsléttun- um í Utah nú fyrir skömmu. Hann ók þar nokkuð og setti 10 hraða- met. • Lögreglu- menn í Washington syrgja lát- inn félaga Lögreglumenn f Wash- ington f Bandarfkjunum votta hér látnum félaga sfnum hinstu virðingu. Hin látna hét Gail Cobb fyrsta lögreglukonan, sem ferst við störf sín. Hún var skotin til bana er hún veitti glæpa- manni eftirför. FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1974 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar 20.35 1 söngvanna rfki Kór Menntaskólans við Hamrahlfð syngur. Stjórnandi Þorgerður Ingólfsdóttir. Áður á dagskrá 4. aprfl 1974. 21.05 Kapp með forsjá Breskur sakamálamyndaflokkur. Þýðandí Kristmann Eiðsson. 21.55 Kastljós Fréttaskýringaþáttur. Umsjónarmaður Ólafur Ragnarsson. 22.30 Dagskrárlok. r. . fclk i [ fjclmiélum jj Elín Sigur- vinsdóttir syngur lög eftir íslenzka höfunda í KVÖLD kl. 20.05 syngur Elín Sigurvinsdóttir lög eftir íslenzka höfunda í útvarpið. Elínu kannast leikhúsgestir við, en hún fór með eitt aðalhlut- verkið ! Leðurblökunni, sem nýlega var á fjölum Þjóðleik- hússins. Við höfðum samband við Elínu, og spurðum fyrst hversu lengi og hvar hún hefði verið við söngnám. — Ég lærði í átta ár hjá Marlu Markan, en auk þess lærði ég eitt sumar hjá Hans Hoffer í Hollandi, og svo í Austurriki hjá söngkonunum Ernu Bergerog Hetty Plúmacher. — Nú eru þetta mjög frægir söngvarar, — hvernig líkaði þér námið hjá þeim. — Mjög vel. Hans Hoffer hafði sungið með Einari Kristjáns- syni í Þýzkalandi á sinum tíma og spurði mig mikið um hann. — Þú kennir leikfimi í Austurbæjarskólanum, er ekki dálítið erfitt að samræma sönglistina og kennsluna? — Nei, ég kenni svo lítið núna, ekki nema 10 tíma á viku, þannig að ég hef góðan tíma til að sinna söngnum, en ég er alltaf í tímum hjá Maríu Markan. Hins vegar kenndi ég meira í fyrra, þegar Leðurblakan var í gangi, og þá var anzi mikið að gera. Það var hlutverk Adele, sem Elín fór með í Leðurblökunni, en áður hafði hún komið fram á nemendatónleikum hjá Maríu Maikan, auk þess sem hún hélt tónleika með Ragnheiði Guðmundsdóttur, sem einnig er nemandi Mariu. Elín er gift Sigurði Eggertssyni og eiga þau þrjú börn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.