Morgunblaðið - 03.10.1974, Side 16

Morgunblaðið - 03.10.1974, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÖBER 1974 Stjórnmálaályktun aukaþings SUS: Almenningur taki aukinn þátt í rekstri fyrirtækja AUKAÞING Sambands ungra sjálfstæðismanna, sem haldið var f Valhöll á Þingvöllum um sfð- ustu helgi samþykkti m.a. al- menna stjórnmálaályktun, þar sem lýst er yfir stuðningi við endurreisnaraðgerðir ríkisstjórn- arinnar f efnahagsmálum og skor- að á hana að efla frjálst efnahags- og atvinnulff f landinu og stuðla að markvissri byggðaþróun. Jafn- framt er fagnað þeirri stefnu- breytingu, sem orðið hefur f varn- ar- og öryggismálum. Stjórnmála- yfirlýsingin ferhérá eftir: „Aukaþing Sambands ungra Sjálfstæðismanna haldið á Þing- völlum 28. og 29. september 1974 lýsir yfir stuðningi við þær fyrstu aðgerðir við endurreisn efnahags- lífsins, sem ríkisstjórnin hefur framkvæmt. Aðgerðir þessar eru óhjákvæmilegar eftir þá ringul- reið, er rfkt hefur í efnahagsmál- um þjóðarinnar á valdatíma vinstri stjórnarinnar. Ljóst er, að landsmenn allir verða að taka á sig þær byrðar, sem þessum að- gerðum fylgja. Aukaþingið fagn- ar sérstaklega þeim ráðstöfunum, sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir í samráði við launþegasam- tökin til að bæta kjör láglauna- manna og elli- og örorkulífeyris- þega. ið telur mjög þýðingarmikið, að nú hefur verið ákveðið að greina á milli varnarstarfseminnar á Keflavíkurflugvelli og almennrar flugstarfsemi og lýsir ánægju yfir því, að aðstæður leyfðu fækkun í bandarfska varnarliðinu. Jafn- framt ítrekar þingið þá stefnu Sjálfstæðisflokksins, að þess skuli ætíð gætt, að efnahagslegum áhrifum af vamarsamstarfinu við Bandaríkin sé haldið í lágmarki, svo að það verði aðeins mat á öryggishagsmunum, sem ráði af- stöðu manna til dvalar varnarliðs- ins hér á landi. Sjálfstæðisflokkurinn var sig- urvegari síðustu byggða- og al- þingiskosninga. Þessi sigur á fyrst og fremst rætur að rekja til þess, að unga fólkið I landinu hefur í auknum mæli skipað sér undir merki sjálfstæðisstefn- unnar. Ungir Sjálfstæðismenn eru staðráðnir í að fylgja þessum sigri eftir og tryggja þannig frelsi og þjóðfélagslegar framfarir.“ Það þýðir ekki annað en að láta heyra duglega f sér, þegar það er eiginlega það eina, sem maður getur gert. (Ljósm. Ól. K. Mag.) K Þingið væntir þess, að í kjölfar endurreisnaraðgerðanna beiti rikisstjórnin sér fyrir aðkallandi þjóðfélagsumbótum. Sérstaka áherzlu ber að leggja á byggða- þróun með aðgerðum í húsnæðis- málum, atvinnumálum, sam- göngumálum, mennta- og menn- ingarmálum og heilbrigðismálum. Samhliða slíkum aðgerðum er nauðsynlegt að dreifa þjóðfélags- valdinu með því að auka sjálf- stæði og áhrit byggða og byggða- samtaka. Ungir Sjálfstæðismenn skora á ríkisstjórnina að stíga ný skref í þá átt að efla frjálst efnahags- og atvinnulif í landinu. Frjáls at- vinnustarfsemi stenzt ekki í nú- tíma þjóðfélagi nema yfirráð fjár- magnsins séu á höndum fleiri aðila en nú er. Stuðla ber að sáttum fjármagns og vinnu og auka þarf þátttöku almennings í stjórnun og rekstri fyrirtækja. Jafnvægi í efnahagsmálum og frjálst markaðskerfi eru m.a. for- senda slíkra þjóðfélagsbreytinga. Ennfremur minnir þingið á gefin loforð um lækkun ríkisútgjalda með samdrætti í opinberum rekstri og flokkun ríkisfyrirtækja og væntir þess, að við þau verði staðið. Aukaþingið fagnar þeirri stefnubreytingu I varnar- og öryggismálum, sem ríkisstjórnin hefur markað og kemur fram í þeim samningi, er gerður hefur verið við ríkisstjórn Banda- ríkjanna um breytingar á fram- kvæmd varnarsamningsins. Þing- Ný álma tekin í notkun við Fæðmgariieimili Rcykjarvíkun „Mikið má góður 1 GÆR var tekin f notkun ný álma við Fæðingarheimili Reykjavfkur. Áður hafði heimilið húseignirnar Eirfksgötu 37 og Þorfinnsgötu 16 til afnota, en nú hefur Þorfinsgata 14 bætzt við. Miklar endurbætur hafa farið fram á húsnæðinu. Hafa nú bætzt við fimm sjúkrarúm til viðbótar þeim tuttugu og fimm, sem fyrir voru. Auk þess er f nvia húsnæð- inu herbergi til eftirskoðunar þeirra, sem eitthvað er að hjá fyrstu dagana eftir heimkomu, leikfimisalur, borðstofa fyrir sængurkonur, sótthreinsunarað- staða, vistarverur fyrir starfsfólk o.fl. Þótt ekki hafi sjúkrarúmum fjölgað að marki, hefur starfsað- staðan gjörbreytzt við tilkomu þessa nýja húsnæðis. Páll Gíslason, formaður Heil- brigðisráðs Reykjavíkurborgar, afhenti Guðjóni Guðnasyni, yfir- lækni, og Huldu Jensdóttur, for- stöðukonu, hið nýja húsnæði fyrir hönd borgaryfirvalda, og fórust honum m.a. svo orð við það tæki- færi: „Mikið má góður vilji, eins og sést á því, að hér hefur Grettis- taki verið lyft í þröngum húsa- kynnum". Fæðingarheimili Reykjavíkur var opnað í ágúst árið 1960, og var tilgangurinn þá að bæta úr brýnni þörf til bráðabirgða. Reyndin varð þó önnur, og hafa um 14.000 börn fæðzt þar síðan heimilið var stofnað. Jafnan hefur verið lögð Upphitaður gangstigur fyrir fatlaða Á FUNDI borgarráðs Reykja- vfkur, sem haldinn var 17. september sfðastliðinn, var sam- þykkt tillaga frá Magnúsi L. Sveinssyni, sem gerir ráð fyrir, að lagður verði sérstakur gangstfgur frá húsi Öryrkjabandalagsins við Hátún 10 upp á Laugaveg. Gangstígur þessi verður þrír metrar á breidd og upphitaður til að koma f veg fyrir, að hálka myndist á honum, en hálka og snjór hafa valdið fötluðu fólki erfiðleikum við að komast þessa leið. Komið verður upp handriði við stfginn og sérstakri lýsingu. Gangstígur þessi á að auðvelda fötluðum að komast leiðar sinnar að biðskýli strætisvagnanna við Laugaveg. Vonir standa til, að framkvæmdir geti hafizt, áður en vetrarveðrin byrja. áherzla á að fræða mæðurnar meðan þær dveljast á heimilinu. Þannig er til dæmis notað segul- band fyrir fæðingu og meðan á henni stendur, og gefst konum þar kostur á að fylgjast með læknisfræðilegum útskýringum á því, sem fram fer, en jafnframt fá þær leiðbeiningar um slökun. Barnalæknir heldur fyrirlestur tvisvar í viku hverri, mæður fá leiðbeiningar um meðferð ung- barna o.s.frv. Frá upphafi hefur heimilið ein- ungis verið ætlað fyrir þær kon- ur, sem búizt er við að geti fætt á eðlilegan hátt og án vandkvæða, en þær, sem vitað er, að muni eiga í einhverjum erfiðleikum, fara í fæðingardeild Landspftalans. Þegar ófyrirsjáanlega erfiðleika ber að höndum hjá þeim, sem komnar eru á fæðingarheimilið, eru þær fluttar yfir á fæðingar- deildina, sem er handan götunn- ar. Nokkur hjálpartæki eru tiltæk f stofnuninni, svo sem lífgunarborð og súrefniskassi, sem eru nýkom- in, en einnig er þar sogklukku- tæki af fullkominni gerð, en það er notað í stað fæðingartanga, sem löngum voru notaðar við erfiðar fæðingar. Umferðamefnd gagn- rýnir borgarráð BORGARRÁÐ samþykkti sem kunnugt er 10. september sl. að setja upp handstýrð umferðarljós á gangbraut gegnt Laugavegi 178. Að tillögu Davfðs Oddssonar hef- ur umferðarnefnd nýlega sam- þykkt gagnrýni á vinnubrögð borgarráðs að þvf er afgreiðslu þessa máls varðar. Forsaga máisins er sú, að dag- inn eftir að sjónvarpið birti ýtar- lega frétt um gangbrautarslys á þessum stað, flutti Björgvin Guð- mundsson í lok borgarráðsfundar tillögu, þar sem lagt var til, að þar yrðu sett upp handstýrð um- ferðarljós. Tillagan var án frekari athugunar samþykkt samhljóða. Á fundi umferðarráðs 26. septem- ber var samþykkt eftirfarandi til- laga frá Davíð Oddssyni: „An þess að taka efnislega afstöðu til ákvörðunar borgarráðs frá 10. september 1974 um að setja upp handstýrð umferðarljós við gang- braut gegnt Laugavegi 178, átelur umferðarnefnd, hvernig að þeirri ákvörðunartekt var staðið. Vænt- ir nefndin þess, að i framtíðinni verði ekki fram hjá henni gengið með þeim hætti, sem gert var og leggur áherzlu á, að jafnan sé gætt heildarsjónarmiða, þegar mikilvægar ákvarðanir um um- ferð í borginni eru teknar.“ Fyrst var fæðingarstofnun rek- in í húsnæðinu, þegar Helga Níelsdóttir rak þar fæðingarheim- ili á árunum 1933—1940. A stríðs- árunum voru Norðmenn þar með sjúkrahús, en síðar var þar til húsa barnaheimili á vegum Sumargjafar. Margt gesta var við afhending- una í gær, og bárust stofnunni gjafir. Helga Níelsdóttir, formað- ur Ljósmæðrafélags Reykjavíkur afhenti sjónvarpstæki fyrir hönd félags síns, Steinunn Finnboga- dóttir, formaður Ljósmæðrafélags Islands, afhenti fyrir þess hönd afsteypu af styttunni „Fyrsti kossinn" eftir Carbonell, starf- andi ljósmæður við heimilið gáfu silfurkertastjaka, og forstöðukon- an gaf lampa. Athugasemd 1 FRÉTTATILKYNNINGU frá Flugleiðum h/f, þar sem skýrt er frá uppsögnum 16 flugmanna, er frá þvi greint sem einni af aðal- ástæðum, að AIR VIKING hafi valdið Flugleiðum h/f umtals- verðu fjárhagstjóni. Vegna þessa telur flugfélagið AIR VIKING nauðsynlegt að koma á framfæri athugasemdum: 1) Fram kemur i frásögn Flug- leiða h/f, að ein af ástæðunum sé minnkandi farþegafjöldi fyrir- tækisins milli Ameríku og Evrópu. Þar hefur engrar sam- keppni gætt frá öðrum islenzkum aðilum. En á þessu tímabili hefur Pan American hætt flugi um Is- land og samkeppni þvf raunveru- lega minnkað. 2) Ekki er getið um farþegafækk- un milli íslands og Evrópu hjá Flugleiðum h/f, enda hefur áður verið greint frá farþegaaukningu á þeim leiðum, þrátt fyrir tilkomu AIR VIKING á sama tíma. Vera má, að samkeppnin frá AIR VIK- ING hafi orsakað einhverjar far- gjaldalækkanir, sem annars hefðu ekki orðið. Slíkt er fagn- aðarefni og til hagsbóta fyrir ís- lenzkan almenning, enda þótt það kunni að valda örlitið minni tekj- um hluthafa Flugleiða h/f. 3) Flugleiðir h/f kvarta undan hækkandi kaupi starfsfólks. I ljós kemur, að stjórnunar og mannaflakostnaður í rekstrinum er hvorki meira né minna en um 2 milljónir króna á hvert flugvéla- sæti, sem fyrirtækið ræður yfir mestan hluta ársins. Verulegur hluti (líklega um þriðjungur) er erlent starfsfólk. Eftir uppgefn- um tölum að dæma getur starfs- mannafjöldi tæpast verið undir 16 hundruðum, en af þeim hópi eru flugmenn áður en til upp- sagnar kom um 150 hjá Flugleið- um h/f, og eru þá flugvélstjórar meðtaldir. Flugvélakostur Flugleiða h/f mun vera sem hér segir: 5 Fokker F. 5 x 48 240 sæti 2 Boeing 727 2 x 126 sæti 252 sæti Samtals eigin flugkostur Flug- leiðah/f 429 sæti Til viðbótar: 2 DC 8 (leigðar allt árið af amerísku leiguflugfélagi) 2 x 250 sæti 500 sæti 992 sæti Samtals allt árið 992 sæti Auk þess er upplýst, að næsta sumar verði um tíma i notkun þriðja DC 8 leiguvélin. Flugleiðir h/f upplýsa, að stjórnunar- og mannaflakostnað- ur við rekstur þessara flugsæta sé á ársgrundvelli um 2 þúsund milljónir króna. Ekki verður séð, að tilkoma AIR VIKING geti neinu breytt um skipan þessara mála hjá Flug- leiðum h/f. Hins vegar skapast vaxandi atvinnumöguleikar fyrir fslenzka flugliða hjá AIR VIK- ING, þar sem um 20 flugliðar munu starfa með hverjum tveim- ur, sem aðeins vinna skrifstofu- störf. Til að forðast mistúlkim Til ritstjóra Morgunblaðsins. Þegar ég kom heim f gær og tók að fletta blöðum vikunnar, rakst ég í Morgunblaðinu 28. sept. á Staksteinaklausu helgaða mér ásamt ljóði, sem ég þakka höfundi fyrir. Þó verð ég að gera athuga- semd við eina málsgre'in téðrar klausu, nefnilega þessa: Að hætti hins sósfalfska þjóðflokks lýkur höfundur skrifi sfnu með þvf að draga andstæðing sinn f dilk „réttdræpra fasista". Með gæsalöppunum er ófróðum og hrekklausum lesanda ótvírætt gefið í skyn, að ég hafi viðhaft orðalagið „réttdræpir fasistar" f andmælagrein minni við málflut- ing Hreggviðs Jónssonar i Morgunblaðinu nokkru áður. Svo var vitaskuld ekki, enda tel ég fasista enganveginn réttdræpa. Þvert á móti mega þeir mín vegna lifa við sina skömm allra manna lengst. I von um skjóta birtingu neðan Staksteina. Árni Björnsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.