Morgunblaðið - 03.10.1974, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER 1974
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
n 21190 21186
LOFTLEIÐIR
Æbílaleigan
felEYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
PIOMEEH
ÚTVARP OG STEREO
KASETTUTÆKI
Ferðabílar hf.
BilaleigaS—81260
5 manna Citroen G.S fólks og
stationbilar 1 1 manna Chervolet
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabilar (með bilstjórn)
HÓPFERÐA-
BÍLAR
Til leigu i lengri og skemmri ferðir
8—50 farþega bílar.
KJARTAN INGIMARSSON
Sími 86155 og 32716
Dnnun loan -uui -BRonco
ÚTMUIP OC STEItEO í ÖLLUM BILUM
Bílaleigan ÆÐI
Siml 13009 Kvöldfimi 83389
Hleðslutæki
Rafgeyma-sambönd
Rafgeyma-mælar
Rafgeyma-klemmur
Útvarpsstangir
Dráttartógar
REDEX sóteyðir
AUSTIN-Gipsy
varahlutir
M.V. búðin
Suðurlandsbraut 12,
simi 85052.
Viðbrögð í
varnarmálum
t viðtölum við Morgunblaðið,
27. septemb. sl., og Tfmann 28.
septemb. sl., lýsir Einar
Ágústsson, utanrfkisráðherra,
yfir ánægju sinni með árangur
viðræðna og samkomulags-
grundvöll I öryggismálum þjóð-
arinnar, sem þessa daga vóru
helzta fréttaefni blaðanna.
Alþýðublaðið hefur og mjög
ákveðið túikað samþykki
Alþýðuflokksins við samkomu-
lagið, sem er byggt á stefnuyf-
irlýsingu núverandi rfkis-
stjðrnar, svo ljóst er, að ( dag er
ekki ágreiningur milli lýðræð-
isflokkanna f landinu um stefn-
una í utanríkis- og öryggismál-
um þjóðarinnar.
Þessari samstöðu lýðræðis-
flokkanna ber sérstaklega að
fagna. Hún er f samræmi við
yfirlýstan meirihlutavilja þjðð-
arinnar, ber vott um ábyrgð og
tryggir öryggi, sem hvort
tveggja eru náuðsynlegar for-
sendur sjálfstæðis þjððarinnar
og samstöðu hennar með lýð-
ræðisþjððum heims um vernd-
un lýð- og þegnréttinda.
Efnahagslegt
sjálfstæði og
afkomuöryggi
almennings
A örlagatfmum, þegar hættur
steðja að efnahags- og atvinnu-
lffi þjððarinnar, eins og nú er
raunin, er það og skylda lýð-
ræðisflokka, bæði við hags-
muni borgaranna og efnahags-
legt sjálfstæði þjððarinnar, að
slfðra sverðin f dægurbarátt-
unni og sameinast um ðhjá-
kvæmilegar aðgerðir til úrbðta.
Þessi skylda nær einnig til
hagsmunahðpa, sem haft geta
afgerandi áhrif á framvindu
mála í þjððarbúskapnum.
Slfk samstaða lýðræðisflokka
er prðfsteinn á ábyrgð þeirra,
sem ætti að vera forsenda þess
að njðta að marki trausts og
trúnaðar almennings. öðru
máli gegnir með öfgahðpa, sem
vilja núverandi þjððskípulag
feigt, og telja algjöra upplausn
f efnahags- og atvinnulffi þjóð-
arinnar nauðsynlegan áfanga
að settu marki; kreppuástand
og atvinnuleysi það meðal, sem
helgist af tilganginum, að kné-
setja borgaralegt þjóðskipufag.
Öryggi og samstaða
Sjálfstæði og öryggi þjóðar-
innar út á við byggist á sam-
stöðu og samstarfi við þær þjðð-
ir, sem búa við hliðstætt mat,
hliðstæðan skilning á lýðræði
og almennum mannréttindum.
Á sama hátt byggist efnahags-
legt sjálfstæði og afkomuör-
yggi þjððarinnar á samstarfi og
samstöðu um það meginatriði,
að atvinnugreinar þjððarbúsins
búi við traustan rekstrargrund-
völl, almenningur við næga at-
vinnu og að þjððin f heild eyði
ekki til lengdar meiru en hún
aflar. Skiptar skoðanir eru að
vfsu aðall lýðræðis, og stjðrn-
málaflokkar eiga að veita hvor
öðrum nauðsynlega gagnrýni
og aðhaid, en þegar þjððar-
nauðsyn krefur eiga þeir að
geta staðið saman. Samstaða
Iýðræðisflokkanna við núver-
andi aðstæður f efnahagsmál-
um þjóðarinnar hefði þvf átt að
vera jafn sjálfsögð og lofsverð
samstaða þeirra f öryggismáf-
um hennar.
Verðbólguflóðið
Sú verðbólga, sem nú tröllrfð-
ur þjððinni, er samansafnaður
vandi, sem vinstri stjðrnin lét
eftir sig. Að vfsu er hluti henn-
ar innfluttur og afleiðing verð
lagsþróunar á alþjððavett-
vangi. Engu að sfður hefur á
undanförnum misserum verið
hlúð svo að verðbðlguvextinum
hérlendis, að alþjóðaskýrslur
greina frá fslenzku Evrópumeti
á þessum vettvangi. Og þó
vinstri stjðrnin sé af fyrir fá-
um vikum eru afleiðingar
stefnu hennar enn að koma f
dagsins ljðs og þær eru megin-
orsök þess vanda, sem nú er við
að glfma. En þð nauðsynlegt sé
að Hta um öxl, til að kanna
rætur og orsakir vandans,
skiptir hitt þó öllu máli, að
skyggnast fram á veginn og
treysta á ný þann grund-
völl, sem atvinnulffið og af-
koma almennings byggist á.
Rafmagnsveitur ríkisins:
Raforkudreifing
og sveitarfélög
1 FRÉTTAAUKA útvarpsins
21. þ.m. var greint frá fréttatil-
kynningu félags rafveitustjóra
sveitarfélaga um verðjöfnunar-
gjald raforku, en til áréttingar
því var viðtal við rafmagns-
stjórann I Reykjavík.
I fréttatilkynningunni og við-
talinu Voru harðar ádeilur á
Rafmagnsveitur ríkisins og að
þeirra áliti bornar fram vill-
andi og rangar upplýsingar.
Rafmagnsveitur ríkisins vilja
þvf fara þess á leit að Morgun-
blaðið birti neðangreindar upp-
lýsingar.
Þaó sem nefnt er hér félag
rafveitustjóra sveitarfélaga er I
raun aðallega félag rafveitu-
stjóra stærstu bæjarfélaga f
landinu. Sveitarfélög landsins
eru nú 240 að tölu en nefnt
félag er samtök rafveitustjóra
17 fjölmennustu bæjarfélag-
anna og má þar sem dæmi
nefna Reykjavík, Akureyri og
Hafnarfjörð.
Þessir 17 rafveitustjórar geta
á engan hátt komið fram sem
fulltrúar sveitarfélaga I raf-
veitumálum, þótt þéttbýli sé
mikið á þeirra svæðum, því í
strjálbýlinu eru það um 190
sveitarfélög, sem þeim eru óvið-
komandi og þar sem Rafmagns-
veitur ríkisins hafa með hönd-
um alla raforkusölu til notenda.
Til að forðast misskilning 1
fréttatilkynningu rafveitustjór-
anna skal þess getið að 13%
verðjöfnunargjaldið verður
sett á raforkusölu allra svæða á
landinu, jafnt í dreifbýli sem 1
þéttbýli. Hins vegar er verð-
jöfnunargjaldið ætlað til að
jafna aðstöðumun dreifbýlis og
þéttbýlis í raforkumálum.
í fréttatilkynningu bæjarraf-
veitustjóranna er sagt að með-
alverð hjá Rafmagnsveitum rík-
isins sé lægra en flestra ann-
arra rafveitna. Slíkur frétta-
flutningur er mjög villandi því
meðalverðið gefur enga hug-
mynd til samanburðar um
heildarraforkuverð. Raforku-
verð til húshitunar er hið
lægsta sem til er hjá rafveitum.
Þar sem mikið er um rafmagns-
húshitun verður meðalverðið
lágt, en það segir ekkert til um
verð til ljósa, heimilisnotkunar
eða iðnrekstrar, sem er miklu
hærra. Þar sem hitaveita er, er
engin raforka seld til húshitun-
ar og hlýtur þar meðalverðið að
vera mjög hátt.
Þannig rugla rafveitustjór-
arnir málunum og bera saman
meðalverð t.d. Rafveitu Selfoss,
Rafveitu Hveragerðis og
Rafmagnsveitu Reykjavíkur
þar sem hitaveitur eru og engin
raforka er seld til hitunar, við
dreifbýlissvæði Rafmagnsveit-
ur ríkisins þar sem aðeins er
tveggja kosta völ, olía eða raf-
magn, og allflestir kjósa raf-
magn. Yfir 30% af allri raf-
orkusölu Rafmagnsveitna ríkis-
ins fer til húshitunar og lækkar
þessi mikli þáttur hitunar að
sjálfsögðu meðalverðið.
Réttara er að bera saman
hina einstöku þætti raforkusöl-
unnar og má þar nefna verð til
heimilisnotkunar sem er 43%
hærra hjá Rafmagnsveitum rík-
isins en hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og verð til iðnaðar
38% hærra hjá Rafmagnsveit-
um ríkisins en hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, hvoru-
tveggja miðað við árið 1973.
Rafveitustjórar bæjanna lýsa
því yfir að nauðsynlegt sé að
fela sveitarfélögum alla raf-
orkudreifingu. Hér virðast þeir
ekki gera sér grein fyrir að
sveitarfélög 1 dreifbýli og þétt-
býli er 240 að tölu, en þessir 17
bæjarrafveitustjórar þekkja
gjörla aðeins rekstur sinna 17
rafveitna. Þeir áttu einnig þátt
1 störfum margra stjórnskip-
aðra nefnda til að kanna það
mál að sveitarfélögin tækju að
sér hlutverk Rafmagnsveitna
rfkisins um raforkusöluna. All-
ar þessar nefndir hafa farið 1
strand einfaldlega vegna þess
að aðstaða og hagsmunir hinna
240 sveitarfélaga eru svo gjör-
ólíkir.
Rafmagnsstjóri Reykjavíkur
segir i viðtalinu að rfkisrafveit-
ur séu ekki til á Norðurlöndum.
Þetta er ekki rétt. Ríkisrafveit-
ur Svíþjóðar, sem upprunalega
voru stofnaðar til að byggja
stór orkuver og háspenntar
tengilínur um alla Svíþjóð,
hafa hin seinni ár einnig tekið
að sér raforkudreifingu til not-
enda í stórum hluta Norður- og
Mið-Svíþjóðar. Þær hafa að
fjárhagslegum bakhjarli, til að
fjármagna veitur dreifbýlisins,
hin stóru og arðbæru orkuver
sín.
Rafmagnsveitur ríkisins hér
á landi hafa hins vegar ekki
slíkan fjárhagslegan stuðning
innan sinnar stofnunar og
verða því annað tveggja að leita
fjárhagslegs stuðnings ríkisins
eða jafna kostnaðarmun dreif-
býlis og þéttbýlis með verðjöfn-
unargjaldi.
Rafmagnsstjóri Reykjavíkur
lætur hjá líða að geta þess
hvemig þessum málum sé hátt-
að 1 öðrum Evrópulöndum.
Staðreyndin er hins vegar sú að
í 16 löndum Evrópu, með rff-
lega 300 milljónir íbúa, hefur
ríkið eitt með höndum alla raf-
orkuöflun og dreifingu til not-
enda. Slíkri skipan var komið á
vegna þjóðarhagsmuna og til
aðstöðujöfnunar íbúa um orku-
mál, þrátt fyrir sterka andstöðu
margra bæjarrafveitustjóra 1
þeim löndum.
Frá Tafl- og bridgeklúbbnum
Nú stendur yfir fimm kvölda
tvímenningskeppni, og er lokið
þremur umferðum. Spilað er í
þremur 12 para riðium, og verð-
ur raðað I riðla 1 síðustu um-
ferðunum, þannig að 12 efstu
pörin verða í A-riðli, 12 næstu í
B-riðli og 12 neðstu í C-riðli.
A-riðillinn verður þannig
skipaður í kvöld:
Kristján — Þðrhallur 600
Gestur — Sigtryggur 570
Rafn — Þorsteinn 553
Ólafur — Ragna 553
Benedikt — Kristinn 551
Gylfi — Kristján 542
Tryggvi — Þorsteinn 540
Gísli — Þórarinn 534
Haukur — Kristján 523
Guðrún — Jóhanna 522
Bernharður — Júlíus 522
Bjarni — Guðlaugur 517
Að tvímenningskeppninni
lokinni hefst hraðsveitakeppn-
in og eru spilarar beðnir um að
gera gangskör að því að mynda
sveitir.
1 stjórn TBK eru: Tryggvi
Gíslason formaður, Þórhallur
Þorsteinsson varaformaður og
mótsritari, Sigurjón Tryggva-
son ritari, Haraldur Snorrason
gjaldkeri og Jósep Sigurðsson
áhaldavörður.
1 stjórn Bridgedeildar
Reykjavíkur var kosinn frá
félaginu Kristján Jónasson.
XXX
Frá Bridgefélagi
Hafnarf jarðar.
Hjá félaginu stendur yfir
fimm kvölda tvímenningur og
er lokið þremur umferðum.
Staða efstu para er þessi:
Óli — Óskar 384
Guðmundur—Þórir 376
Björn — Bjarni 372
Kristján — Böðvar 360
Einar—Þorsteinn 355
Albert — Kjartan 347
Spilað er á mánudögum I
Skiphól í Hafnarfirði.
XXX
Bridgefélag Kðpavogs
Starfsemi félagsins hófst með
þriggja kvölda tvímennings-
keppni fimmtudaginn 26. sept.
Spilað er f tveimur tíu para
riðlum.
Eftir fyrstu umferð er staða
efstu para þessi: stig
1. Gunnar—Björn 127
2. Einar — Páll 124
3. Jón — Sigurður 120
4. Óli — GuðmundurG 118
5. Júlíus — Ragnar 116
6. Jónatan — Þorieifur 114
7. Arni — Matthfas 113
8. Pálmi — GuðmundurK 109
9. Sverrir — Jón 109
Meðalskor 105 stig.
A.G.R.