Morgunblaðið - 03.10.1974, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER 1974
3
Jökuldalur og Jökulárhlíð:
Fé fennt af flestum
bæium og f arið ofan í
Tófan ræðst á fennt fé
BÆNDUR í Jökuldalnum,
Jökulsárhlíð og fleiri stöð-
um á Austurlandi hafa átt í
miklum erfiðleikum sið-
ustu daga með fé sitt vegna
illviðris, sem skall á, áður
en bændur voru yfirleitt
búnir að smala fé sínu af
fjöllum. Fannfergi er nú
víða á þessu svæði og vitað
er, að fé hefur farizt af
flestum bæjum, þótt ekki
liggi fyrir enn þá, hve
- Rabbað við bændur
margt fé hefur farizt eða
hve tjónið er mikið. Við
höfðum samband við
nokkra bændur á þessu
svæói í gær og simastúlk-
una á Fossvöllum til að
leita frétta af stöðunni.
„Bændur vantar allt að 100
lömb“.
Víkingur Glslason á Arnórs-
stöðum I Jökulsárdal sagði, að
ekki væri búið að húsa féð, sem
rekið hefur verið niður f dalinn
undanfarna daga og því væri ekki
vitað, hve margt fé vantaði. ,,Það
hefur þó fundizt nokkuð af fé“,
sagði hann, „sem farið hefur
ofanf og einnig fé, sem hefur
fennt. Það hefur víða flætt yfir
árbakka og víða við ár sjást spor
klakkar og ferill og talsvert er af
ófundnu fé. Smölun hefur staðið
yfir síðustu fjóra daga. Fyrsta
daginn var algjört illviðri, en í
dag er hér sólskin, en engin
hláka. Það viknar varla á snjóinn,
en í nótt var hér 10 stiga frost.
Það er vitað, að suma bændur hér
vantar um 100 lömb, en eitthvað
af því á nú eftir að koma til skila,
þegar smölun lýkur“.
„Dró lömb upp úr bæjar-
læknum“.
Geir Stefánsson bóndi á
Sleðbrjót i Jökulsárhlfð sagði, að
það hefði gengið á ýmsu síðustu
daga. „Hérna í Úthlíðinni", sagði
hann, „er hálka og gaddur um alla
byggð og Ketilsstaðabóndinn, sem
gekk á fjöll í gær, sagði, að það
væri afleitt að komast um vegna
mikils harðfennis og hálku. Hér
um slóðir fórst dálítið af fé I
óveðrinu fyrir síðustu helgi, en
niðurstaðan af tjóni og fjárdauða
liggur ekki fyrir, fyrr en hlánar.
Hér er allt hulið snjó og fé hefur
vfða fundizt í fönnum. Tófa hefur
á nokkrum stöðum grafið sig nið-
ur á féð. Ketilsstaðabóndinn dró
til dæmis 10 lömb upp úr læk rétt
við bæinn hjá sér og fé fann hann
í fönn, sem töfa hafði grafið sig
niður á. Tíðarfar hér um slóðir
hefur verið afleitt undanfarnar
vikur og heyskapartíð afar slæm.
Vfða eru hey úti enn þá og víst er,
að fé hefur farizt á hverjum ein-
asta bæ“.
„Víða sem ekki var búið að
smala“.
Aðalsteinn Aðalsteinsson bóndi
á Vaðbrekku f Jökuldal sagðist nú
hafa lítið að segja í þessu efni, þar
sem hann hefði verið búinn að
smala, þegar hretið skall á og
meira segja vera búinn að lóga
lömbum. „En allt mitt fullorðna
fé,“ sagði hann, „er nú heima í
túni. Það var búið að smala aust-
an við ána, þegar á skall, en féð er
smátt og smátt að færast heim
núna hér á svæðinu öllu. í dag
átti safnið að komast að Brú, það
er féð af Brúardölum, en ljóst er,
að flestir hafa misst eitthvað af
fé. Það er þó sízt hér hjá okkur,
en ein og ein getur þó hafa hrokk-
ið. Þessi ofsi skall einnig yfir á
Austurfjöllunum og það var vfðar
en hér, sem ekki var búið að
smala“.
„Tófa ræðst á fennt fé“
Ragnheiður Ragnarsdóttir á
símstöðinni að Fossvöllum sagði,
að veður væri ágætt, „Það er snjó-
laust hjá okkur í dag á láglendi,
en beggja vegna hérna við okkur
var veðrið alveg brjálað. Á Laxár-
dalnum í landi Fossvalla fundu
menn 10 dauðar kindur strax eftir
óveðrið og síðan hefur það fundizt
bæði lifandi og dautt. Ekkert er
vitað enn þá, hvað margt hefur
orðið úti, þvi allar ár og pyttir eru
fullir af krapa og snjó og þvi
hefur slétt af, þannig að ekki er
hægt að vita, hvort fé er undir.
Mikið hefur verið um það, að tófa
hafi grafið sig niður á fé og orðið
hefur að deyða fé, sem tófa var
búin að ráðast á og særa. Annars
er gott hljóð hér f fólki, það þýðir
ekkert annað. Fólk er farið að
venjast þessari ótíð, en hér hefur
verið afskaplega leiðinlegt veður
og erfitt með heyskap. Það hefur
verið svo vætusamt, að varla hef-
ur komið þurr dagur sfðan i ágúst-
byrjun. Þá var það nú ekki til að
bæta úr, að í óveðrinu brotnaði
mikið af rafmagnsstaurum og hér
hefur verið meira og minna raf-
magnslaust í Jökuldalnum, Hlíð-
inni og Tungunni í 4 daga“.
Frægur útvarps- og sjón-
varpsmaður í heimsókn
t næstu viku er Lowell
Thomas, einn frægasti útvarps-
og sjónvarpsmaður Bandarikj-
anna, væntanlegur til tslands 1
boði Islenzka-amerfska félags-
ins. Lowell Thomas er ekki
aðeins kunnur útvarpsmaður,
heldur er hann einnig þekktur
rithöfundur, landkönnuður og
kvikmyndagerðarmaður.
Lowell Thomas er maðurinn,
sem gerði Arabfu Lawrence
heimsfrægan f fyrri heims-
styrjöldinni, en fyrir nokkrum
árum var gerð vinsæl kvik-
mynd um manninn og hét hún
„Lawrence of Arabia".
Lawrence var brezkur forn-
leifafræðingur, sem varð einn
af herforingjum Araba í
styrjöldinni gegn Tyrkjum í
fyrri heimsstyrjöldinni f Mið-
austurlöndum.
Lowell Thomas hefur haft
daglegan útvarpsþátt í Banda-
rikjunum í tæplega 45 ár og
hefur mjög sjaldan misst dag
úr, helzt þegar hann hefur ver-
ið staddur á afskekktum stöð-
um, þaðan sem ekki hefur verið
hægt að útvarpa. Hann hefur
skrifað 50 bækur um ferðalög
sín, menn og málefni. Auk þess
hefur hann gert nokkrar fræg-
ar kvikmyndir, eins og t.d.
cinerama-myndina „Seven
Wonders of the World" og um
árabil gerði hann fyrir CBS-
sjónvarpsfyrirtækið ferðaþætti
sem hétu „High Adventure".
Thomas hefur heimsótt flest
öll ríki heimsins í starfi sinu og
var t.d. fyrsti hviti maðurinn,
sem fékk að heimsækja Tíbet á
þessari öld. Hann er fæddur
árið 1892 í Bandaríkjunum og
skilar enn fullum starfsdegi og
ferðast að staðaldri. Ævintýri
hans hófust strax I æsku, en
hann var alinn upp á hinu
fræga „Cripple Creek“ gull-
grafarasvæði I Klettafjöllun-
um, meðan gullæðið stóð enn í
blóma.
Hingað kemur Thomas til
þess að flytja ávarp á
skemmtunum Islenzka-
ameríska félagsins á Hótel
Loftleiðum laugardagskvöldið
12. október n.k. Með honum
kemur vinur hans, A. H.
Motley, sem gefur út vikuritið
Parade Magazine, sem er
sunnudagsfylgirit 180 dagblaða
i Bandaríkjunum og er gefið út
í 17 milljónum eintaka.
Þetta er önnur heimsókn
Lowells Thomas til Islands, en
hann gerði nokkra útvarps-
þætti hér um skákeinvigi
Fichers og Spasskys, en nú vill
hann heimsækja Vestmanna-
eyjar og safna efni þar í sína
vinsælu útvarpsþætti, sem út-
varpað er um öll Bandaríkin.
Ráðinn aðstoðar
armaður sjávar-
útvegsráðherra
EINAR B. Ingvarsson, aðstoð-
armaður bankastjóra Lands-
banka Islands hefur nú verið
ráðinn aðstoðarmaður Matt-
hfasar Bjarnasonar, sjávarút-
vegs-, heilbrigðis- og trygging-
aráðherra. Hann mun starfa f
öllum þessum ráðuneytum.
Einar er fæddur i Reykjavik
árið 1920 og er þvi 54 ára
gamall. Hann hóf starf hjá
Landsbanka Islands árið 1941
og hefur starfað þar óslitið
síðan, þar af hefur hann verið
útibússtjóri Landsbanka Is-
lands á Isafirði í 17 ár. Undan-
farið hefur Einar verið að-
stoðarmaður bankastjóra
Landsbankans í Reykjavik og
hefur einkum sinnt sjávarút-
vegs- og skipulagsmálum.
Hreðavatn:
Stórtjón af
bruna í vöru-
flutningabíl
STÓR flutningabíll frá Blöndu-
ósi skemmdist talsvert, þegar
eldur kom upp f honum í fyrra-
kvöld, þar sem hann stóð á hlað-
inu við Hreðarvatnsskála.
Feikna mikið tjón varð á vam-
ingi, sem var í bílnum. Við
hringdum i Leopold f Hreðar-
vatnsskála í gær og leituðum
frétta. Hann sagði, að bíllinn
hefði verið með margs konar
nauðsynjavörur, garn til Polar-
prjóns, bildekk, fóður fyrir
menn og skeppnur og eitt og
annað. „Þetta skeði á 12. tíman-
um“, sagði Leopold," Bílnum
sjálfum varbjargað, en pallhús-
ið skemmdist mikið að innan.
Unnt reyndist að slökkva eld-
inn með því að troða kyrfilega í
allar rifur, þannig að eldurinn
kafnaði. Tæp klukkustund leið
þar til slökkvilið kom á vett-
vang. Mögulegt er, að kviknað
hafi í út frá rafmagni, mest af
varningnum ergjöfónýtur. Bíll-
inn hélt áfram norður í nótt“.
Nýr bæjar-
stjóri ráðinn
Akranesi 2.10.
Á BÆJARSTJÖRNARFUNDI
þann 27. sept. var Magnús
Oddsson, sem hefur verið hér
rafveitustjóri, kjörinn bæjar-
stjóri með 5 atkvæðum af 9.
Gylfi Isaksson, sem gegndi
bæjarstjórastörfum hér í 4 ár,
hætti þann 1. sept. s.l., en þá
var ráðningartími hans útrunn-
inn.
— Júlfus
Egilsstaðir:
Malbikaði yfir
grasið til að
losna við slátt
Egilsstöðum 2.10.
FYRIR i skömmu var verið að
malbika götur hér og þegar
malbikunarvélin átti leið um
eina götuna, fékk fbúi við hana
Ihugmynd, sem hann dreif f að
framlkvæma. Þannig Var mál
með vexti, að eiginkonan hafði
verið fjarverantíi um skeið, en
húsbóndinn hafði ætlað að slá
blettinin á meðan og hafa hann
finan, þegar konan kæmi heim.
Eiginmanninum leizt hins
vegar svo vel á malbikið, að
hann lét malbika allan blettinn
og þannig var hann, þegar
konan koml heim. Eiginkonan
mun þvf aldred komast að þvf,
hvort edginmaðurinn sló
blettinn, þvf grasið er kyrfilega
falið þar undir.
— Hákon.
25 ára afmælis
alþýðulýðveld-
isins minnst
á Islandi
1 fyrradag voru liðin 25 ár frá
valdatöku kommúnista f Kfna
undir stjórn Maó Tse-tung.
Afmælisins var minnzt vfða f
Kfna og erlendis höfðu sendi-
fulltrúar Kfna boð inni fyrir
gesti. Á Islandi hafði kfnverski
sendiherrann f Reykjavfk.
Chen Tung, boð inni á mánu-
dags- og þriðjudagskvöid f
sendiráði Kfnverska alþýðulýð-
veldisins við Vfðimel. Þangað
komu sendimenn erlendra
ríkja á tslandi, ráðherrar og
fleiri gestir.
GÓÐUR ÞORSK
UR Á LÍNUNA
Siglufirði 2. október.
AFLI línubáta hefur glæðzt
mjög vérulega sfðustu daga og
hafa þeir verið með upp í 7,5
tonn af ágætis þorski. Hver
bátur rær með 40—43 dalla og
sótt er á Skagagrunnið og vest-
ur undir Dranga.
Matthfas.
Brunaverðir
þinga áHöfn
Höfn 2. okt.
UM NÆSTU helgi verður
haldin hér ráðstefna bruna-
varða af öllu landinu. M.a.
verða sýnd á ráðstefnunni
björgunartæki, sem f.vrirtækið
Björgunartækni hf. flytur inn,
t.d. atgeir, sem notaður er til að
komast inn f bflflök og nýr út-
búnaður til að taka upp alvar-
lega slasaða menn. Búizt er við
þvf, að brunaverðir f jölmenni á
þingið.
— Elías.