Morgunblaðið - 03.10.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER 1974
11
fólk fólk fólk fólk fólk fólk fólk
Þessir fjörugu krakkar voru við höfnina að leika sér.
firði. „Mér líkar mjög vel hér í
alla staði“, sagði hann, „það er
nóg að gera, þegar maður nennir
að vinna, en ég er rólegheitanna
maður og líkar því vel hér inn á
milli fjallanna í fjarðarbotni. Það
er að vísu nokkuð þungt yfir vet-
urinn og mér finnst vanta á, að
fólk sé nógu samtaka og samstætt.
Mér finnst vera svolítil ástæðu-
laus spenna milli fólks, en allir
sem ég hef kynnzt, eru hreint
ágætir. Bæjarrigur er þó hér eins
og víða annarsstaðar. Yfir vetur-
inn er allt það hefðbundna, þorra-
blót, hjónaböll og slfkt, en það
þarf að færa út kvíarnar, t.d.
stofna blásarasveit og kór, kenna
tónlist og hljóðfæraleik. Ég er
þeirrar skoðunar, að tónlistin
bæti allt og tengi fólk saman."
Kolbeinn hefur leikið í hljóm-
sveit, og sagði hann, að s.l. ár
hefði mikil gróska verið í þeim
efnum á staðnum. Þá voru við lýði
hljómsveitirnar Skjóni, Eins-
dæmi og Nasasjón. I sumar hefur
Kolbeinn verið í hljómsveitinni
Bangsímon, en ekki hafa aðrar
hljómsveitir sýnt tilþrif, þótt
haldin hafi verið böll venjulega
aðra hverja helgi.
Við spurðum Kolbein að því,
hvernig honum lfkaði að búa úti á
landsbyggðinni?
„Maður hverfur ekki eins f
fjöldann úti á landsbyggðinni",
sagði hann, „þó finnst mér fólk
ekki nógu dnfandi hér. Hvf ekki
til dæmis að halda borgarafundi
um ýms mál, tala saman og hrinda
hagsmunamálum í framkvæmd í
stað þess að hlaupa alltaf í kring
um þau og velta þeim fyrir sér.
Meginmunurinn á því að vera í
Reykjavík og hér finnst mér sá, að
f Reykjavík er svo auðvelt að fela
sig og hverfa inn í fjöldann, en á
minni stöðum verður maður að
spjara sig og standa meira sjálf-
stætt og það lætur mér vel“.
-- árnij.
Kolbeinn Jakobsson og Ljósbrá. Ljósmyndir Mbl.
Arni Johnsen.
Olafur Haukur Arnason:
Heggur sá sem hlíf a skyldi?
Fyrir tæpum áratug gerðist það á
skólastjórafundi, sem haldinn var að
Laugarvatni, að farin var skemmtiferð
að Skálholti og viðar um Biskupstung-
ur I bilnum sat ég við hlið Hetga
Þorlákssonar. Spjölluðum við um
heima og geyma Þar kom tali okkar,
að hann sagði mér frá nýrri skipan
mála, sem gert væri ráð fyrir að taka
upp í Vogaskóla. Var það svonefnt
valgreinakerfi. Á þeirri tið var slikt
nýmæli hérlendis, að minnsta kosti i
gagnfræðaskólum. En siðan hafa það
margir skólar tekið upp slika náms-
hætti að meira eða minna leyti, að
óþarfi mun að skýra nánara, hvað
orðið merkir. Og í grunnskólalögum,
nýsamþykktum, er einmitt gert ráð
fyrir valgreinakerfi í efstu bekkjum.
Vogaskóli í Reykjavík byggir á átta ára
reynslu, hvað þetta snertir.
Alllangt mun siðan dagblöð vöktu
athygli á nýskipan starfs- og félags-
fræðikennslu í Vogaskóla. Þar var
frumkvöðull Sveinbjörn Finnsson
kennari. Hann lagði fyrir nemendur
raunhæf og frjó verkefni i skólastof-
unni, en lét ekki þar við sitja, heldur
sendi þá á ýmsa vinnustaði til virkrar
þátttöku i atvinnulifi þjóðarinnar og
nánari kynna af fjölbreytilegum störf-
um nútimaþjóðfélags. Þá fór hann og í
ferðir með nemendur til að kynna þeim
merk fyrirtæki utan Reykjavíkur og
félagslega gerð ýmissa sveitarfélaga.
Það mun hafa verið nýmæli, en Haga-
skóli mun nokkru fyrr hafa byrjað á að
senda nemendur verslunardeilda á
vinnustaði I Vogaskóla varöllum nem-
endum á hinn bóginn gefinn kostur á
þessari vettvangskönnun og fræðslu.
Þegar ég fyrir nokkrum árum starfaði
i Fræðslumálaskrifstofunni, kynntist ég
því, að Vogaskóli hafði að nokkru horf-
ið frá tugastafakerfi þvi, sem löngum
hefir verið beitt í íslenskum skólum til
að mæla þekkingu nemenda og hæfni.
Þar hafði þá þegar verið tekið upp
námsmat, svipað þvi sem grunnskóla-
lög, ný af nálinni, gera ráð fyrir.
( Vogaskóla er fullkomið kennslu-
eldhús og aðstaða til kennslu i
heimilisfræðum hin ákjósanlegasta.
Þar er einn stærsti íþróttasalur borgar-
innar og gott leiksvið Þar er nýtt
bókasafn i hlýlegum og vistlegum
húsakynnum.
Vogaskóli er að ég hygg, eini skólinn
á höfuðborgarsvæðinu, sem hefur
innan sinna vébanda alla niu bekkina,
sem eiga að vera i væntanlegum
grunnskóla, — og tveimur fleiri þó
Þess vegna þótti mörgum liklegt, að
með tilliti til sögu skólans yrði hann,
að grunnskólalögum samþykktum,
kjörinn til að verða fyrsti reglulegi
grunnskólinn i Reykjavik, ef til vill
tilraunastofnun og óhjákvæmilega fyr-
irmynd, eins og hann hefir þegar orðið
í mörgum greinum. Sumum datt jafn-
vel í hug, að deildum fjölbrautaskóla
yrði bætt við, ef húsrými leyfði.
En því miður mun sú ekki ætlun
ráðamanna Ekki var vika liðin frá sam-
þykkt grunnskólalaga á Alþingi, þegar
boðað var i blöðum, að þessi fyrir-
myndarskóli skyldi tættur sundur.
Gagnfræðadeildir, þar sem skórinn
kreppti fastast fyrir nokkrum árum og
þar sem starfslið Vogaskóla tróð nýjar
slóðir af hvað mestum dugnaði, mun
ætlunin að leggja niður. Störf fórn-
fúsra hugsjónamanna skulu lítils eða
einskis virt. Mega firn mikil heita, ef
skólarannsóknadeild, sem að sjálf-
sögðu er kunnugt um forystu Voga-
skóla í ýmsum greinum, lætur þetta
mál ekki til sín taka. Og undarlegt er,
ef jafnágætt fólk og forystumenn
fræðslumála í Reykjavík og mennta-
málaráðherra getur ekki fundið eðli-
legri og mannúðlegri lausn á hús-
Framhald á bls. 33
Umboð fyrir amerfskar, enskar og
japanskar bif reiðir. Allt á sama stað
erhjáAglí
Frá Japan: LANCER
'75 módelið af Safarisigurvegaranum er komið.
De luxe útgáfa,4dyra með höfuðpúðum,hallan-
legum stólbökum, útvarpi, klukku og diska-
hemlum. Bensíneyðsla : 7 lálOOkm
Allt á sama Stdó Laugavegi 118-Símar 22240 og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HF