Morgunblaðið - 10.10.1974, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 10.10.1974, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTOBER 1974 5 Hoffman látinn Sinfóníutónleikar Dauðadans New York, 8. október. Reuter. PAUL Hoffman, yfirmaður Marshall-áætlunarinnar sem bjargaði Evrópu frð efnahagslegu hruni eftir sfðari heimsstyrjöld- ina, lézt f dag, 83 ára að aldri. Hoffman var yfirmaður þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna frá 1965 til 1972. Hann hafði áhuga á að verða ráðunaut- ur SÞ I efnahagsmálum eftir að hann dró sig f hlé en fékk siag og var hálflamaður þar tii hann lézt. Svíar leita að kafbáti Stokkhólmi, 8. október. NTB. Reuter. ÞYRLUR og herskip leita að erlendum kafbáti sem sást I morgun I sænskri landhelgi norð- ur af Stokkhðimi. Seinast varð vart við erlendan kafbát í landhelgi Svfa fyrir tveimur mánuðum. Fyrr á árinu var erlendur kafbátur flæmdur úr sænskri landhelgi. Tilraun til að neyða erlendan kafbát upp á yfirborðið mistókst. ^ÞEIR RllKR UIÐSKIPTin SEIR RUCLVSR I it Stjórnandi: Karsten Andersen Einleikari: Ralph Kirschbaum Efnisskrá: Ludvig Irgens Jensen Antonin Dvorak Felix Mendelssohn Passacaglia Cellokonsert, op. 104 Sinfónfa nr. 4, op. 90 Ef marka má frammistöðu sinfónfuhljómsveitarinnar á þessum fyrstu tónleikum vetr- arins, geta fslenzkir tónlistar- vinir horft bjartsýnir fram á veginn. Nýir listamenn hafa tekið sæti f hljómsveitinni, þeirra á meðal Guðný Guð- mundsdóttir, sem á sfðastliðnu sumri var ráðin konsertmeist- ari, svo að segja má, að hljóm- sveitin komi nú fram að nokkru endurnýjuð. Fyrsta verkið á efnisskránni, Passacaglfa eftir norska tónskáldið L.I. Jensen, er ef til vill ekki stórt í boðskap sfnum, en vel samið og áheyri- legt. Það hefst á hægum inn- gangi, en að honum loknum hefst passacaglian á óvenjulega lagrænu stefi, eftir því sem venja er um tilbrigðaform þetta. Cellókonsertinn eftir Dvorak er eitt af fegurstu ein- leiksverkum klassfskrar tón- listar og gerir miklar kröfur til einleikarans og hljómsveitar- innar. Þrátt fyrir að á stöku stað vildi brydda á erfiðleikum í tóntaki, lék hljómsveitin í heild mjög vel. Kirschbaum er góður einleikari, en það þarf stórkarl til að glíma við Dvorak, svo jafnist á við það, sem bezt þekkist af þeim vígstöðum. Sfðasta verkið, ttalska sinfónían, var ótrúlega vel leikin og var auðheyrt, að vel hafði verið æft. Það er eins og samband stjórnanda og hljóm- sveitar sé nú að komast á það stig, að tónlistin streymi til manns án allrar áreynslu. Það er ekki verið að stjórna eða reka á eftir, aðeins upplifa. Síðastliðinn sunnudag var efnt til söngvastefnu f Háteigs- kirkju og þrátt fyrir gott veður fylltu áheyrendur bekki kirkj- unnar, sem sýnir, að áhugi fyrir kirkjulegri tónlist er mikill og einlægur. Forráðamenn þjóð- kirkjunnar mættu vel athuga, hvort góð og vel flutt tónlist gáeti ekki aukið aðsókn almenn- ings að almennum kirkjuat- höfnum í stað þess að láta áhugafólki eftir til flutnings einn dýrasta fjársjóð kirkj- unnar. Fyrsta verkið á efnisskránni var stuttur sálmforleikur eftir Brahms, þar sem sálmurinn O, Welt, ich muss dich lassen var vafinn í hljómskrúð og leik með komutóna. Ungur tón- listarnemi, Hörður Áskelsson, flutti verkið mjög þokkalega og einnig næsta verk, tvöfalda fúgu f c-moll eftir Bach. Ruth L. Magnússon flutti næst með miklum glæsibrag lög eftir Tónllst eftir JON ÁSGEIRSSON Vaugham Williams og Britten. Halldór Vilhelmsson söng með sinni djúpu og hljómfögru rödd einsöng í kantötu nr. 158 eftir Bach. Nokkurs óstyrks gætti í sam- spili, þó að flutningur væri vfða með ágætum, sérstaklega hjá flautuleikaranum, Jósef Magnússyni. I kóralaríunni féll einsöngur Guðfinnu D. Ölafs- dóttur ekki vel við. Form þessa kaf la er svipað og i kóralf orspili og hefði innskot sálmsins orðið skýrara og áhrifameira sungið af kór sópranradda. Sömuleiðis var sfðasti sálmurinn of hljóm- grunnur þó að flutningur hans væri að öðru leyti áferðafal- legur. Sfðasta verkið, Dauða- dansinn, ætti að flytja við al- menna guðsþjónustu. Þar næði boðskapur þess tilætluðum notum. Verk þetta var fyrir nokkrum árum flutt af Pólýfón- kórnum undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar og þá eins og nú flutt f þýðingu Hjartar Kristmundssonar. Flutningur verksins var látlaus og áferðar fallegur. Róbert Arnfinnsson las hlutverk dauðans af myndugleik og festu og nýi kór- inn, Guðbrands kór Þoriáks- sonar flutti tónramma þessa dauðadans vel og fallega undir stjórn Marteins H. Friðriks- sonar. ffj Aðstoðarlæknar 2 stöður aðstoðarlækna á Skurðlækningadeild Borg- arspítalans eru lausar til umsóknar, frá 1. nóvember til allt að 12 mánaða. Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykja- víkur. • Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf skulu sendar yfirlækni deildarinnar, fyrir23. okt. n.k. Frekari upplýsingar veitir yfirlæknirinn. Reykjavík, 7. október 1974. Heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar. Frúarleikfimi Ný námskeið hefjast mánudaginn 14. þ.m. Morguntímar, dagtímar og kvöldtímar. Innritun stendur yfir. Upplýsingar í síma 83295, frá kl. 1 3 alla daga, nema sunnudaga. Júdódeild Ármanns. Ármúla 32. Fræðslufundur Fræg hestakona frú Helen Porter frá Kaliforniu heldur fyrirlestur og sýnir kvikmyndir um tamn- ingu og þjálfun amerískra tölthesta í félags- heimili Fáks í kvöld fimmtudagskvöld kl. 20.30. FYRIRLESTURINN VERÐUR TÚLKAOUR OG FYRIR- SPURNUM SVARAÐ. Hestamannafélagið Fákur. VOLVO N10 VÖRUBÍLAR Verð: kr. 5.1 milljón Innifalið: 16 gíra gírkassi og 10 hjólbarðar Afgreiðslufrestur 4—8 vikur. Vinsamlegast hafið samband við Jón Þ. Jónsson. Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.