Morgunblaðið - 10.10.1974, Síða 7

Morgunblaðið - 10.10.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÖBER 1974 7 Dómararnir í Haag eru gamlir skarfar SKIPUN Jens Evensens sem ráðherra fiskveiðilögsögu og þjóðréttar fyrir nokkru síðan sýnir vel hve mikla áherzlu Norðmenn leggja á að út- færslan megí takast sem bezt. Norðmenn vilja ekki árekstra við aðrar þjóðir í þessu máli, né brjóta í bága við alþjóðasamþykktir. Talað er um það í Noregi að stofn- un þessa nýja ráðherraemb- ættis hafi verið kænt útspil -hjá stjórn Brattelis og með þvf hafi hann að nýju aflað sér trausts fiskimanna, sem voru farnir að missa trúna á heilindi stjórnarinnar í þessu lífshagsmunamáli þeirra. Jens Evensen er 56 ára gamall og einn af reyndustu lögfræðingum Norðmanna. Hann hefur flutt mörg mál fyrir Alþjóðadómstólnum f Haag og þar á meðal mál Norðmanna og Breta út af 4 mílna landhelginni árin 1949—51. Þá hefur hann einnig flutt mál fyrir öðrum alþjóðadómstólum. Hann hefur setið í fjölmörgum nefndum fyrir hönd Norð- manna og er varaformaður Hafsbotnsnefndar Samein- uðu þjóðanna svo eitthvað sé nefnt. Hann varð viðskipta- ráðherra í stjórn Brattelis 1 6. október 1973 og 17. ráð- herraembætúð hefur nú ver- ið stofnað og hann skipaður til að gegna því — fiskveiði- lögsögu- og þjóðréttarráð- herra. Evensen á ekki sæti í Stórþinginu frekar en 8 aðrir ráðherrar. Norðmenn færðu landhelgi slna út í 4 mllur í 2 áföngum 1 935 og 1 952 og síðan I 1 2 milur árið 1961. Nú verður það fyrst og fremst verk Evensens að sjá um útfærslu norsku fiskveiðilögsögunnar árið 1975. í viðtali við blaðið Orienter- ing, sem gefið er út af SV, sagði Jens Evensen fyrir nokkru síðan að hann hefði ekki mikla trú á störfum al- þjóðadómstólsins I Haag. Hann var óblíður í garð dóm- aranna þar og kallaði þá gamla skarfa. — Dómstóll- inn hefur verið eins og þver- sögn í alþjóðlegum þjóðarétti og er á góðri leið með að gera út af við sig. Dómurinn í máli íslendinga og Breta sýn- ir það svo dæmi sé nefnt, sagði Evensen í viðtalinu. Hann var spurður að því hvað Norðmenn gerðu ef samningaumleitanir þeirra fengju ekki hljómgrunn með- al annarrra þjóða, t.d. Sovét- manna, Breta og þýzku þjóð- anna. Sagðist Evensen helzt ekki vilja koma með neinar fullyrðingar, en þó gæti slíkt leitt til þess að Norðmenn neyddust til þess að stíga skref, sem væru þeim á móti skapi. Agúst I. Jónsson skrifar frá Osló: „Lög eru ofar vald- beitingu í siðmennt- uðu þjóðfélagi,, Norsku blöðin ræða um útfærslu landhelginnar Hér á eftir fara glefsur úr þremur norskum dagblöð- um, sem sýna vel hver er stefna stærstu stjórnmála- flokkanna í Noregi varðandi útfærslu fiskveiðilögsögunn- ar. Fyrst er kafli úr leiðara stærsta blaðs Noregs, Aftenposten, frá 28. septem- ber. Þarer meðal annars fjall- að um útfærslu íslendinga, en norsku blöðin hafa þó ekki gert mikið af því að blanda íslendingum inn í umræður sínar um þessi mál. ÚR AFTENPOSTEN MÁL- SVARA HÆGRI FLOKKS- INS. „Noregur hefur valið að fara hefðbundnar leiðir við útfærslu landhelginnar. Ein- hliða útfærsla kemur ekki til greina, enda hefði hún orðið sem löðrungur á þær þjóðir, sem í áratugi hafa veitt við strendur Noregs. Þessi mikil- vægi kjarni í yfirlýsingu rikis- stjórnarinnar um útfærslu landhelginnar kemur í raun- inni ekki á óvart, hann varð Ijós á orðum Jens Evensens, núverandi fiskveiðilögsögu- ráðherra, fyrr í þessum mánuði. Hann kallaði kröfur norðurnorskra sjómanna um einhliða útfærslu landhelg- innar í 50 mílur 1. janúar á næsta ári „ævintýrapólitík". Mikil samstaða ríkir um nauðsyn þess að vernda fiski- miðin undan ströndum landsins og það verður gert í fyrsta þrepi útfærslunnar. En það hefur mikla þýðingu að þær aðgerðir sem fyrirhugað- ar eru, verði gerðará varfær- inn hátt. Ríkisstjórnin byggir áætlanir sínar á grunni þjóða- réttar. Það er gleðileg ákvörðun og góður útgangs- punktur í máli, sem verið hefur næsta þokukennt fram til þessa. Noregur hefur ætíð barist fyrir réttlæti í heiminum. Við höfum ætíð virt Alþjóðadóm- stólinn í Haag og við höfum óskað þess að aðrar þjóðir gerðu það sama. Það gerð- um við einnig er einhliða útfærsla íslensku landhelg- innar var fordæmd af Haag- dómstólnum. Vissulega skildu Norðmenn afstöðu ís- lendinga, er þeir færðu land- helgi sína út í 50 mílur. En í siðmenntuðu þjóðfélagi eru lög ofar valdbeitingu. Blaðið Nordlys er eitt stærsta blaðið í Norður- Noregi og styður Verka- mannaflokkinn. í leiðara þess 28. september segir m.a. — Innan skamms verð- ur landhelgin færð út í 50 mílur. Samt sem áður meg- um við ekki missa sjónar á því markmiði ríkisstjórnarinn- ar að fá alþjóðaviðurkenn- ingu á rétti strandríkisins á 200 mílna efnahagslögsögu. í þessu máli er ekki viturlegt að láta hnefaréttinn ráða. Arbeiderbladet ræðir landhelgisútfærsluna í leiðara sínum 27. septem- ber. Blaðið rekur fyrst stefnu stjórnar Brattelis og mikil- Framhald á bls. 23. Til leigu strax 5 herb. íbúð í Breið'iolti. Fyrir- framgreiðsla. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld merkt. 5500. Bill óskast Óska eftir góðum Evrópubil i góðu ástandi, er með mjög gott fast- eignabréf til 3ja ára að upphæð kr. 400 þús. með hæstu vöxtum. Tilboð í Pósthólf 249, Hafnarfirði. Klukkustrengjajárnin langþráðu eru komin. Gobelin hefur aldrei verið fegra. Allar fáan- legar gerðir og litir af garni. Verzlunin Hof, Þingholtsstræti 1. | Glæsiíbúð Til leigu er 4ra herb. ibúð með sérinngangi við Reynimel. Mánaðargreiðsla kr. 26 þús. Með- mæli óskast. Tilboð, er greini gjölskyldustærð sendist blaðinu fyrir 14. okt. merkt: Reglusemi 8529. Vélritun Tek að mér heimavinnu hvers konar vélritunarstörf og einnig enskar bréfskriftir. Tilboð merkt: „heimavinna 5347" leggist inn á afgr. blaðsins. Til sölu V.W. Fastback árg. '66. Er í ógangfæru ástandi. Til sýnis fimmtudag og föstudag frá kl. 18 — 19,30. Uppl. 1 sima 14404. Hálfir nautaskrokkar úrvals nautakjöt i hálfum skrokk- um tilbúið i frystikistuna. 397 kr. kg Kjötmiðstöðin, sími 35020. Hafnarfjörður Stúlka með barn óskar eftir her- bergi helzt sem næst Suðurgöt- unni. Uppl. i sima 52291 milli kl. 8 og 10 á kvöldin. Hálfir grísaskrokkar Nýslátraðir grisaskrokkar. skorið, hakkað og merkt eftir óskum kaup- anda. 488 kr. kg. Kjötmiðstöðin Laugalæk, simi 35020. íbúð óskast til leigu í Keflavik eða Njarðvik. Uppl. i sima 6907. Atvinna óskast Ungur maður með félagsfræði- menntun óskar eftir atvinnu. Til- boð sendist Mbl. merkt Atvinna 5348", fyrir 1 5. október. Asco kúplingsdiskar! Eigum 1 Volkswagen bila á kr. 1.050.- og 1.170.-. Storð h.f., Ármúla 24. Simi 81430. 74 lesta bátur til sölu Til sölu 74 lesta eikarbátur, byggður í Vestur- Þýzkalandi 1960. Báturinn er í mjög góðu standi, með mikið af nýlegum tækjum. Báturinn er á hóflegu verði með góðum kjörum. Einnig til sölu 20 lesta 1961 með nýlegri vél, 1 7 lesta 1 972 og 12 lesta súðbyrðingur 1971. Stálskip 270, 207, 198, 165, 141, 129, 101, 92 lesta. Fiskiskip Austurstræti 14, 3. hæð. S/mi 22475, heimasími 13742. Utsýnarkvöld Afríkukynning í Hótel Sögu sunnudagskvöldið 13. október. Húsið verður opnað kl. 1 9.00. Kl. 19.30: Kvöldverður. Lambakjöt steikt á teini — shaslikn ásamt ýmsu góðgæti á austurlenzka vísu. Verð aðeins kr. 875. — Myndasýning frá töfraheimi Kenya — bingó — útsýnarferðir — glæsilegir vinningar— Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi. Gestir kvöldsins verða m.a. fulltrúar Alitalia flugfélagsins L og Kenya tourist board, sem afhenda munu gestum smágjafir, einnig góðir vinir útsýnarfarþega frá Costa del % í' Sol. Athugið að panta borð snemma hjá yfirþjóni, þvi að alltaf ,'í er fullt hús og fjör hjá útsýn. , -» — IV LESIÐ DnciEcn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.