Morgunblaðið - 10.10.1974, Side 18

Morgunblaðið - 10.10.1974, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÖBER 1974 18______________________ — Miklir menn Framhald af bls. 24 ekki að vera vopn neinna gegn öðrum. Það er ekki auðvelt að skilja þau ummæli, sem höfð eru eftir kaupfélagsstjóranum í Samvinn- unni, þar sem mig minnir, að haft hafi verið eftir forstjóra Sam- bandsins fyrir ekki löngu síðan, að „smásöluverzlunin væri rekin með tapi,“ og þá sennilega átt við kaupfélögin, því að kaupmenn „bara græða á fólki peninga", en alla vega hefur hagur smásölu- verzlunar ekki bátnað síðan. Eða á að skilja þetta svo, að verzlunar- stjórar kaupfélaganna séu svo slæmir, að þeir geti ekki rekið verzlun, en á sama tíma græói kaupmenn. Höfum bara stað- reyndirnar að leiðarljósi, það eru venjulegir menn i stétt kaup- manna, sem þurfa að vinna eins og aðrir til að reka sín fyrirtæki og eru ekki nein grýla, sem á að hræða fólkið með. Séu kaupmenn einhverjar blóð- sugur á þjóðfélaginu þá eru kaup- félögin það einnig, en nú er raun- in sú, að hvorugur aðilinn er neitt meindýr, sem þarf að eyða. Báðir aðilar eru nauðsynlegir, svo og frjáls samkeppni, að ógleymdri jafnri aðstþðu. Reyðarfirði 4/10 1974 Gunnar Hjaltason. — Hjartabíllinn Framhald af bls. 32 niðurstaða hefði enn fengizt þar. Hins vegar er nokkurn veginn ljóst, að þjónusta bílsins verður óbreytt fyrst um sinn, á meðan unnið er að þvf, að sjúkraflutn- ingaþjónustunni verði breytt. Innlagningarkerfi sjúkrahúsanna væri nú í endurskoðun, og gæti því orðið breyting á rekstri bíls- ins þegar endurskoðuninni væri lokið. — Bruninn Framhald af bls. 32 var hægt að komast að upptökun- um og ekki er vitað út frá hverju kviknaði. í fyrstu dældu skipverj- ar úr slökkvitækjum bátsins á eld- inn, en það bar ekki árangur. Þá sagði Þórlindur, að hann hefði haft samband við Reykja- víkurradíó og beðið um hjálp. Sjálfir hefðu þeir farið á gúmmí- bátnum frá Hafborgu og innan skamms hefðu þeir verið teknir um borð í Skilding BA, en það er 4 lesta handfærabátur, sem þarna var á veiðum. Litlu seinna kom Freyr á staðinn og tók hann Haf- borgu 1 tog og lagði af stað með bátinn áleiðis til Sandgerðis. Um svipað leyti var björgunar- sveit S.V.F.Í. 1 Sandgerði, Sigur- von, kölluð út og ennfremur slökkviliðið. Var farið af stað á vélbátnum Sæunni til móts við hið brennandi skip, aðeins 15 mfnútum eftir að kallið barst, og í förinni voru slökkvidælur og froðutæki. Átti að freista þess að fara með tækin um borð í Haf- borgu, en það tókst ekki fyrr en — Sigalda Framhald af bls. 32 Berger lét á þessum fundi í ljós mjög mikla ánægju með afköst og starfshæfni íslenzku starfsmann- anna og sagðist vera bjartsýnn á, að októberáætlunin stæðist á svipaðan hátt og hin fyrri, ef veð- ur hamlaði ekki verkinu því meir. Hann tók einnig fram, að ef þessi áfangi næðist, væri óhætt að hafa eftir sér, að þá yrði heildarfram- kvæmd verksins komin á það stig, sem framkvæmdaáætlunin gerir ráð fyrir samkvæmt samningum fyrirtækisins við Landsvirkjun. I október verður höfuðáherzla lögð á steypuvinnu í stöðvarhúsi og jarðvinnslu, en steypuvinnan hefur fram til þessa tafizt tölu- vert vegna mikils vatnsaga f grunni hússíns. En ef þessi áfangi næst nú f þessum mánuði er ekkert því til fyrirstöðu, að undir- verktakar geti tekið til óspilltra málanna. Reyndar hafa tveir erlendir fulltrúar — frá portúgölsku og v-þýzku fyrirtæki — hafið vinnu á virkjunar- svæðinu en um miðjan nóvember er gert ráð fyrir, að rússneskir aðilar hefji þar undirbúning að þeim hluta verksins, sem að þeim snýr. ^ ( — Gulag Framhald af bls. 2 fjarðarprentsmiðja er að gefa út og kemur nú f haust, er Þjóðlög séra Bjarna Þorsteinssonar og er þjóðlagabókin gefin út í tilefni þjóðhátíðarársins. Þjóðlög séra Bjarna vorú fyrst gefin út árið 1909. Bókin mun verða um 1000 síður að stærð. Sigurjón sagði, að af bama- og unglingabókum mætti nefna bók um Skippý, sem allir kannast við úr sjónvarpinu, Af Heiðargarði, Bonanza, bók um hestinn Gust, bók um hundinn Lassy og bók um höfrunginn Flippý. inn á Sandgerðishöfn var komið. Slökkviliðsmenn gátu dælt sjó yfir bátinn í sífellu. Um kl. 14.15 kom svo Freyr með Hafborgu inn á höfnina í Sandgerði og fóru þá slökkviliðsmenn um borð. Tók það þá rösklega klukkustund að ráða niðurlögum eldsins, en bát- urinn er eins og fyrr segir mikið skemmdur, ef ekki ónýtur. Þórlindur Jóhannsson sagði, að hann vissi ekki hvort hægt væri að gera við bátinn, og ef það væri hægt tæki það langan tfma. Því væri ekki um annað að gera en að útvega sér annað pláss. Ekki vissi hann, þegar blaðið ræddi við hann, hvaða bátur myndi draga netin, en fá átti bát til þess í gærkvöldi. Skipstjóri á Frey, sem dró Haf- borgu til hafnar, er Björn Ingólfs- son. Á Sæunni, sem fór til móts við bátinn, er skipstjóri Einar Þórarinsson og skipstjóri á Skildingi, bátnum, sem bjargaði mönnunum, er Hallgrímur Færseth. Hafborg GK 99 var 36 lestir að stærð, smfðuð árið 1946. Var bát- urinn í eigu Jóhanns Þórlinds- sonar föður Þórlinds skipstjóra. Handfærabáturinn Skildingur bjargaði áhöfninni og hér kemur hann með áhöfnina og gúmmfbátinn af Hafborgu að landi. Ljósm.: Heimir Stígsson Hver kannast ekki við „neonljósin" svokölluðu sem um alllangt skeið hafa lffgað upp umhverfi okkar þéttbýlisbúa. Fyrirtæki og stofnanir minna á tilvist sfna og láta beygja nöfn sfn og merki f næfurþunn gierrör, sem sfðan eru lýst með neongasi. — Það er engin smásmfði skiltið hérna á myndinni, svo sem sjá má af samanburði við bflinn þann arna. Karl Jóhann Karlsson, forstjóri rafljósagerðarinnar Neon f Kópavogi, er hér að leggja sfðustu hönd á rafbúnað skiltisins, en fyrir aftan Ffatinn stendur eiginkona hans, Kristfn Sighvatsdóttir, sem einnig starfar hjá fyrirtækinu. — Nú vantar ekkert annað en neonpfpurnar f miðja stafina og þá logar skiltíð stafna á milli f frostmyrkri höfuðstaðarins. — Fordáfundi Framhald af bls. 1 þó að „herða skúfurnar of fast“. Þeim væri nauðsyn að fylgja eftir með ströngu eftirliti, og hvatti forsetinn til samvinnu þjóðar- innar í þeim efnum. Ford lýsti eindregnum stuðn- ingi við Henry Kissinger, utan- ríkisráðherra, sem sætir nú æ meiri gagnrýni heima fyrir, ekki sfzt meðal þingmanna. Sagði Ford, að Kissinger hefði unnið mikið og gott starf í þágu friðar. Viðbrögð við efnahagsráðstöf- unum forsetans voru misjöfn í dag en forsetinn og William Simon, fjármálaráðherra, reru öll um árum að því að eyða gagnrýni og fullvissa þingmenn um nauð- syn á samþykki við helztu atriði þeirra. Mestri gagnrýni sætti atriði um 5% aukaskatt á meðal- háa og hærri tekjuflokka. Margir þingmenn voru þeirrar skoðunar að eðlilegra væri að miða skatt- lagninguna við fjölskyldur með tekjur hærri en 20.000 dollara í stað 15.000 dollara. Þá var varað við atvinnuleysi, og Simon fjármálaráðherra sagði í dag, að nokkur aukning atvinnu- leysis væri líkleg. Þvf yrði þó mætt með atvinnuáætlun rfkis- stjórnarinnar. Olíuútflutningsríki í Miðaustur- löndum og Suður-Ameríku fögn- uðu hins vegar áætlun Fords um að draga úr olíuinnflutningi. Samtök olíuútflytjenda, OPEC, sögðu, að þetta væri einmitt í þágu sparnaðarstefnu beirrar, sem þau berðust fyrir. Einnig var þessum aðgerðum Fords fagnað hjá Efnahagsbandalaginu, og þær nefndar verulegt spor til lausnar efnahagsvanda heimsins. — Hagfræði- verðlaun Framhald af bls. 1 gagnrýndur fyrir að hafa fátt nýtt fram að færa f grein sinni. Hann er þó talinn einn af fáum hag- fræðingum, sem sáu fyrir verð- fallið mikla árið 1929. Báðir verð- launahafarnir starfa nú erlendis, — Myrdal við City University í New York og von Hayek við Rikkyo-háskóla f Tókýó. I greinargerð Nóbelsnefndar- innar segir, að þeir eigi sameign- inlegan þann hæfileika að finna nýjar leiðir til að bera fram spurningar, setja fram nýjar hug- myndir um orsakir og stefnur, „einkenni, sem oft gerir þá um- deilda." Mikilvægasta verk Myrdals er almennt talin bókin „An Ameri- can Dilemma — the Negro Problem and Modern Demo- cracy", sem út kom 1944, svo og bókin „Asian Drama", sem út kom 1968 og er athugun á víta- hring fátæktar hjá þróunarlönd- unum. Eitt kunnasta verk von Hayeks er „The Road to Serf- dom“, sem út kom 1944 og var gagnrýni á sósíalíska þjóðskipu- lagið, sem Myrdal hafði barizt fyr- ir. Einnig er bókin „Prices and Production" þekkt hagfræðirit. „Það er ekki mitt að segja eitt eða neitt um svona verðlaunaveit- ingu,“ sagði Gunnar Myrdal f New York f dag, en hann á sjálfur sæti f konunglegu vfsindaaka- demíunni, sem úthlutar verðlaun- unum. Hann kvaðst þó að sjálf- sögðu vera ánægður með að hafa hlotið þau en vildi ekki segja til hvers fénu yrði varið. Hann hefði ekkert að gera við það sjálfur, svo það yrði gefið. Myrdal sagðist ætla að koma sjálfur til Stokk- hólms 10. desember til að veita þeim móttöku. — Kosningar Framhald af bls. 15 skoðanakonnun nafa þjóðernis- sinnar skotið Ihaldsmönnum aftur fyrir sig og eiga fylgi 28% skozkra kjósenda á móti 22% fylgi þeirra síðarnefndu. Kjör- dæmaskipanin gerir það hins vegar að verkum að þetta at- kvæðahlutfall á kjördag nægir þeim ekki til að fá fleiri þing- sæti en Ihaldsmenn. Verka- mannaflokkurinn mun hins vegar áfram vera stærsti flokk- urinn samkvæmt þessari skoðanakönnun með 38% at- kvæða, en Frjálslyndi flokkur- inn minnstur með 11%. Standist þetta á fimmtudag, munu þjóðemissinnar auka at- kvæðamagn sitt um 6% frá þvf í febrúar og fá 12 þingmenn á móti 7, sem þeir hafa nú. Fari hins vegar svo, að þeir auki fylgi sitt um 10% fá þeir 18 þingsæti og eru þar með orðnir stærri en íhaldsflokkurinn. Til að fá fleiri þingmenn en Verka- mannaflokkurinn, þurfa þjóð- ernissinnar 14% aukningu, en 17% aukning tryggir hreinan meirihluta þeirra f Skotlandi og væntanlega sjálfstæði landsins. En svo stórri sveiflu eiga fæstir von á. — Wilson Framhald af bls. 1 flokkur væri sá eini, sem sagt hefði kjósendum satt til um hversu alvarlegt ástandið væri. • 1 sfðustu áskoruntil kjósendaf dag, varaði Heath kjósendur við þeirri hættu að Verkamanna- flokkurinn kæmist að vegna þess, að menn hefðu kosið Frjálslynda flokkinn. Eina vonin til að forða landinu frá sósfaliskri stjórn væri að kjósa thaldsflokkinn. Jeremy Thorpe, leiðtogi Frjáls- lynda, réðst harkalega á tveggja flokka kerfið í Bretlandi á síðasta blaðamannafundi sfnum í dag, og kvað það auka á stéttaskipingu í landinu. Tveggja flokka kerfið sagði hann leiða til „óheiðarlegra stjórnmála, óeiningar með þjóð- inni og æ meiri áhugaleysis al- mennings". Leiðtogar tveggja stærstu flokkanna hafa farið ólfkt að f þeirri kosningabaráttu, sem lauk í kvöld. Wilson barðist sjálfs- öruggur og kraftmikill, Thorpe skutlaðist víða f þyrlu til fundar við kjósendur, en Heath var hins vegar hljóðlátari en oft áður og lagði meiri áherzlu á fámenna fundi með kjósendum en fjölda- samkomur. Hefur þessi aðferð hans verið gagnrýnd af flokks- bræðrum, sem telja, að honum kunni að hafa mistekizt að gera stefnu flokksins ljósa. Ef thalds- flokkurinn tapar kosningunum er talið afar sennilegt, að um leið missi Heath leiðtogaembættið innan flokksins. Auk þessara stóru flokka eru ýmiss konar smáflokkar og flokksbrot í framboði, sem litla möguleika eiga á að koma manni að, en sem þó geta flækzt fyrir og dregið kjósendur frá öðrum flokkum. Auk þjóðernissinna og kommúnista eru 107 frambjóð- endur af ýmsu tagi, t.d. fyrir bar- áttusamtök kynvillinga, rauð- sokka og „Farið-til-fjaldans“ flokkinn. Kjörstaðir opna kl. 7 í fyrra- málið, og er talið, að úrslit ættu að geta legið fyrir snemma um nóttina. Á kjörskrá eru 40.072.971. Kjörsókn í sfðustu kosningum var 78.8%. — Djúpsprengjur Framhald af bls. 32 hreint óvíst hvort vélbyssuskot gera nokkurt gagn. „I Faxaflóa var síðan reynt að nota flugvélar," sagði Páll, „og gafst það vel. Vörpuðu þær djúp- sprengjum, sem sprungu svo á vissu dýpi. Höfðu sprengjurnar þau áhrif á háhyrninginn, að hann hvarf af síldarsvæðinu í marga mánuði á eftir. Þá máttu þeir heldur aldrei heyra í flugvél á eftir, þvf þá lögðu þeir á flótta og reyndu að fela sig. Hornfirð- ingar eru hinsvegar hræddir við að nota djúpsprengjur, þar sem þeir segja, að síldin sé á tiltölu- lega litlu svæði, og farið gæti svo, að djúpsprengjurnar dræpu all- mikið af henni. En varnarliðið mun ekkert gera og getur ekkert gert fyrr en formleg beiðni um aðgerðir hefur borizt frá rfkis- stjórninni."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.