Morgunblaðið - 10.10.1974, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTOBER 1974
19
Norðmenn ætla
að semja við
Rússa um loðnu
Osló, 8. október. NTB.
NORÐMENN og Rússar verða
fljótlega að hefja viðræður um
tilhögun loðnuveiða segir Knut
Vartdal fiskimðlastjóri I viðtali
við Aftenposten.
Astæðan er sú að loðnuveiði
Rússa hefur margfalsazt á sfðari
árum og Norðmenn stunda ekki
lengur loðnuveiðar einir á
Barentshafi. Ef samið verður um
loðnuveiðarnar verða Norðmenn
að veiða minna af loðnu segir1
Aftenposten. Núverandi áætlanir
um heildarkvóta byggjast á þvi að
Norðmenn séu einir um veiðarn-
ar.
Rússar veiddu 1 — 1 Vi milljón
hektólítra af loðnu í fyrravetur |
en árið 1972 var afli þeirra aðeins
300.000 hektólítrar. Afli Norð-
manna í fyrra var 7,6 milljónir
hektólítra.
Þessar auknu veiðar Rússa gera
nauðsynlegt að reglur verði settar
um veiðarnar. Aftenposten segir
að fiskimálaráðherra Sovét-
rfkjanna hafi verið boðið til
Noregs, en formlega séð mun
hann endurgjalda þar með
Moskvuheimsókn norska sjávar-
útvegsráðherrans, Eivind Bolle,
fyrr áþessu ári.
Rússar stefna að þvf að koma
sér upp sérstökum loðnuveiði-
flota og ætla meðal annars að
smfða stór verksmiðjuskip í þvf
skyni.
Tfu þúsund lesta skipi hefur
verið breytt í þessu skyni í
Nyland-skipasmíðastöðinni f Ósló
og skip af sömu stærð verður
breytt f sömu stöð á næstu fimm
mánuðum. Sams konar breytingar
verða gerðar á tveimur skipum
hjá Götaverken f Svíþjóð.
Rockefeller gaf
þingmönnum yfir
100.000 dollara
Washington,
8. október. AP.
NELSON A. Rockefeller og fjöl-
skylda hans hafa gefið rúmlega
100.000 dollara á sfðari árum f
framlög til kosningabaráttu þing-
manna öldungadeildarinnar og
fulltrúadeildarinnar sem eiga að
greiða atkvæði um tilnefningu
hans f embætti varaforseta.
Rockefeller hefur einnig gefið
ýmsum kunnum áhrifamönnum,
þar á meðal Henry Kissinger ut-
anrfkisráðherra, fyrrverandi
ráðunaut sínum í utanríkismál-
um, 50.000 dollara eða meira.
Larsen
efstur
Manila, 8. október. AP.
BENT Larsen sigraði Filipps-
eyinginn Eugene Torre á öðru
alþjóðlega skákmótinu f Manila f
dag og er efstur á mótinu eftir
þrjár umferðir með 2Vi vinning.
Næstir honum eru Ljubtjevic
frá Júgóslavfu og Rússarnir
Vassiukov og Petrosian fyrr-
verandi heimsmeistari með 2
vinninga.
Petrosian gerði jafntefli við
Portisch frá Ungverjalandi í
þriðju umferðinni. Ulf Anders-
son frá Svfþjóð sigraði Portisch f
biðskák úr annarri umferð eftir
80 leiki.
Mike Mansfield, foringi demó-
krata f öldungadeildinni, sagði f
dag að fréttir um gjafir Rockefell-
ers til aðstoðarmanna og opin-
berra embættismanna gætu vel
leitt til þess að yfirheyrslur yrðu
teknar upp að nýju í öldunga-
deildinni um tilnefningu hans.
Hann bætti því við að gjafirnar
hefðu „allar verið löglegar“ að
þvf er hann fengi bezt séð, en
sagði að fréttirnar hlytu að vekja
spurningar.
Hins vegar sagði foringi repú-
blikana í öldungadeildinni, Hugh
Scott, sem stjórnaði yfirheyrslun-
um f síðasta mánuði, að hann sæi
enga ástæðu til að taka þær upp
að nýju.
„Ég hef ekkert séð sem á nokk-
urn hátt rýrir mannorð Rockefell-
ers, sagði Scott við blaðamenn.
Rockefeller á enn eftir að mæta
f yfirheyrslum f dómsmálanefnd
fulltrúadeildarinnar.
Samkvæmt skýrslum hafa öld
ungadeildarmennirnir Jacob
Javits og Peter Payser frá New
York fengið ríflegustu kosninga-
framlögin frá Rockefeller.
GAF $550.000
Seinna staðfesti talsmaður
Rockefellers að varaforsetinn til-
vonandi hefði gefið William Ron-
an, ráðunaut sfnum um langt
skeið, 550.000 dollara. Ronan varð
yfirmaður hafnarmála í New
York og New Jersey í vor.
Hann sagði að að meðtöldum
rfkis- og alríkissköttum hefði gjöf-
in kostað Rockefeller 880.000 doll-
ara.
HVERNIG
DALE CARNEGIE
NÁMSKEIÐIÐ
getur hjálpað þér að:
* Öðlast HUGREKKI og
SJÁLFSTRAUST
Talið er, að 85% af velgengni þinni
séu komin undir því, hvernig þér
tekst að umgangast aðra.
ic Bœta MINNI þitt ó nöfn, andlit og
staðreyndir.
if Halda ÁHYGGJUM í skefjum og
draga úr KVÍÐA.
FJÁRFESTING í MENNTUN GEFUR ÞÉR
ARÐ ÆVILANGT.
Innritun og upplýsingar í sima 82411
STJÓRNUNARSKÓLINN
KONRÁÐ ADOLPHSSON
HVAÐ SEGJA ÞÁTTTAKENDUR:
[ heild er boðskapur Dale
Carnegie námskeiðanna
þess eðlis, að allir hafa
af honum gagn og gaman
og nauðsynlegur flestum.
—• Sérstaka áherslu vil
ég leggja á gildi þess, að
hjón sæki námskeiðin
saman. Með sllkri sam-
vinnu næst betri árangur og hin ýmsu vandamál og
önnur verkefni verða auðveldari viðfangs.
Rannveig Edda Hálfdánardóttir.
Einn þáttur ! Dale Carn
egie námskeiðunum er að
kenna okkur grundvallar-
atriði ræðumennsku, og
hefur það hjálpað mér
mikið við að losna við
kviða og áhyggjur þegar
ég hef viljað standa upp
á fundum til að láta I
Ijós skoðanir minar. Einnig er okkur kennt að skipu-
leggja störf okkar, og hefur það komið mér að góðum
notum Sigurður Ólafsson.
Ég fór á Carnegie nám-
skeiðið til að öðlast meira
öryggi, að standa upp á
fundum og láta skoðanir
mínar í Ijósi, í saman-
þjöppuðu formi. — Eftir
þvi sem ég sótti fleiri
tíma komst ég að raun
um, að það sem ég hugð-
ist fyrst og fremst læra, var aðeins lítill hluti af
kennslunni. — Það varð mér mun meira virði, að þarna
lærði ég að þekkja betur sjálfa mig, auk ýmislegs f
sambandi við mannleg samskipti.
Elfn Þorvaldsdóttir.
Vaxa óleyst verkefni þér
yfir höfuð? — Hver eru
vandamálin? — Hverjar
eru orsakir þeirra? —
Hvernig er best að leysa
þau? — Dale Carnegie
námskeiðið hjálpar þér.
— Ég sótti sjálfur siðasta námskeið og tel mig hafa haft
af þvl mikinn ávinning _ . . , „
Bragi Þoroarson.
Ég fór á Dale Carnige
námskeiðið til þess að
læra að koma betur fyrir
mig orði á fundum. Auk
þess sem ég tel að vart
sé hægt að hugsa sér
betri mælskuskóla en hjá
Dale Carnegie. Opnaði
námskeiðið fyrir mér
nýtt svið í mannlegum samskiptum. Þá er manni kennt
hvernig nota á llfskraftinn. en það er I þvi fólgið að
beita kröftum slnum að einu viðfangsefni af margföld-
um krafti Var það undraverður árangur sem nemendur
náðu á þessu. Ég hvet alla til að taka þátt í Dale
Carnegie námskeiði, því vist er að það kennir fólki betur
að lifa llfinu en áður. .... _
Horður Palsson.
Dale Carnegie námskeið
eykur skilning þinn á
mannlegum samskiptum
og hjálpar þér um leið að
þekkja betur sjálfan þig.
Þú lærir að varpa frá þér
biturleik og svartsýni og
tekur uppsýna og lifandi
afstöðu gagnvart um-
hverfi þinu og fólkinu
sem þú umgengst.
Jónfna Ingólfsdóttir.
Það er ekki alltaf nóg að
hlusta, þegar fólk vill
segja þér frá einhverju.
Þú þarft að hlusta af
einlægni og oft af þolin-
mæði, en að öðlast trún-
að annarra er mikill sig-
ur hvers og eins. — Þetta
sktldi ég betur eftir að ég
fór á Dale Carnegie námskeiðið og kynntist hinum
jákvæðu lifsreglum-, sem þar er starfað eftir
Þóra Björk Kristinsdóttir.
Dale Carnegie félagar.
Munið dansleikinn í Félagsheimili
Seltjarnarness 2. nóvember kl. 9.
Kjarnar leika.
Meðal annarra þátttakenda eru
Kavalek frá Bandarfkjunum,
Gligoric og Gheorghiu frá
Júgóslavfu og Quinteros frá
Argentfnu.
4 Islendingar
í framboði
FJÓRIR tslendingar hafa boóið
sig fram í borgarráðskosningum f
Winnipeg, sem fram fara 23.
október. Þeir eru: Einar Arnason,
frá ICEC (Independent Citizens
Election Committee) fyrir Ross
kjördæmi og frá NDP (New
Democratic Party) þeir Robert
Johansson fyrir Cockburn kjör-
dæmi, Magnús Elfasson í
Bannatyne kjördæmi og Barry G.
Thorsteinsson fyrir Sisler kjör-
dæmi. Þeir Robert og Magnús
hafa áður átt sæti f bæjarráði
viðkomandi staða.
Gjafavörur
frá Finnlandi
Finnsk hönnun hefur vakið heimsathygli fyrir smekklegt
útlit og hagkvæmt form. Auk hinnar velþekktu glervöru
bjóðum við nú einstaklega fallega gjafavöru úr stáli —
potta, pönnur, könnur, ofl.
Einnig hin margeftirspurðu kerti frá Finnlandi.
Komið og skoðið úrvalið.
HUSGAGNAVERZLUN
KRISTIÁNS SIGGEIRSSONAR HE
Laugavegi 13 Reykjavik simi 25870