Morgunblaðið - 10.10.1974, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTOBER 1974
Sigríður Ásthildur
Guðjónsdóttir-Kveðja
Minning:
Jóhann Jeremías
Kristjánsson lœknir
Þeim hjónunum Halldóru Hildi-
brandsdóttur og Guðjóni Jónssyni
járnsmíðameistara hefur áreiðan-
lega þótt sá atburður ljósgjafi í
svartasta skammdeginu aldamóta
árið 1900, þegar frumburður
þeirra leit fyrst dagsins ljós, 4.
nóvember í Hákoti í Reykjavík
miðri.
En það var ekki einasta, að
frumburðurinn, sem var stúlka
færði birtu og yl inn á heimili
foreldra sinna, ævi hennar, sem
síðar varð tengdamóðir mín, var
þessu lík. Lifsgleði og góða lund
bar hún með sér, hvar sem hún
fór, og gjafmildi í víðtækri merk-
ingu var einkenni hennar.
Hún var skírð Sigrfður Ásthild-
ur, í höfuðið á móður-ömmu sinni
og afa, þeirra Sigríðar Sveinsdótt
ur og Hildibrands Kolbeinssonar,
en þau bjuggu alla tíð í sambýli
við einkadóttur sína og tengda-
son, — og dótturbörnin, sem urðu
alls þrettán.
Fjölslyldan reisti sér hús við
Garðastræti númer 13. Þar ólust
börnin upp, þar var atvinnurekst-
ur föðurins, svo fátt þurfti í önn-
ur hús að sækja, enda urðu fjöl-
skyldubönd sterk, og var Sigríður
tryggur forsvarsmaður systkina
sinna. Trygglyndi og greiðasemi
ásamt höfðinglegri rausn voru svo
ríkir þættir f eðli hennar, að í
návist hennar var sem komið væri
í annan heim, aðskilinn þeim, er
nútíminn speglar.
Tengdamóðir mín var listfeng
kona og hafði næmt auga fyrir
því, sem fegraði tilveruna. Hún
unni tónlist og myndlist og naut
þess að líta fagra hluti. Sjálf var
hún snillingur í höndum og kunni
þar meira fyrir sér en almennt
gerist. Heimili Sigríðar bar þess
og glöggt vitni, og þar voru hlutir
ekki f ægðir, heldur gljáfægðir, og
var þar slíkt hreinlæti viðhaft, að
orðið þrifnaður er veikasta lýs-
ingarorðið, ef skilgreina ætti við-
unandi þá snyrtimennsku, sem
hún viðhafði um heimilishald
allt.
Um Sigriði á ég engar minning-
ar nema ljúfar, allt frá þvf er ég
fyrst kom f hús hennar á skólaár-
um mínum og naut þar gjafmildi
og góðvildar. Bættu þau hjón
bæði enn um betur síðar, er þau
gáfu mér dóttur sína, Brynhildi,
einkabarn, sem eflaust hafði ver-
ið þeim sá ljósgjafi, sem Sigriður
hafði sjálf verið sínum foreldrum.
Eftirlifandi manni sínum,
Kristni Kristjánssyni, giftist
Sigríður 24. maí árið 1936, og varð
hjónaband þeirra hið farsælasta
og friðsælasta, sem ég þekki til,
enda mikil samheldni með þeim
hjónum, hún umhyggjusöm og
heimiliskær húsmóðir, hann
hygginn og traustur sem bjarg.
Þau reistu sér húsið Hávallagötu
53 árið 1936 og bjuggu þar æ
síðan.
Að leiðarlokum er margs að
minnast og margs að sakna.
Sigríði entist aldur til þess að sjá
og umgangast barnabörn sín þrjú,
Kristin, ívar og litla dótturdótt-
ur, sem ber bæði nöfn ömmu sinn-
ar.
Ótaldar eru stundirnar, sem
drengirnir áttu hjá ömmu sinni,
sem ávallt tók á móti þeim opnum
örmum og veitti þeim af rausn.
Lengi verður minnzt þeirrar um-
hyggju, sem hún bar fyrir eldri
drengnum, Kristni, sem naut um-
sjár ömmu sinnar fyrsta árið, þeg-
ar aðstæður höguðu því þann veg,
að foreldrar voru við nám. Ekki
gleymist heldur Ivari ferðir sínar
á Hávallagötuna, árla morguns, til
þess að komast f morgunkaffið
með ömmu sinni og afa, áður
en hann fór í skólann, þeirra
stunda vildi hann ekki missa,
amma átti ýmislegt til, sem aðriir
áttu ekki.
Sigriður naut þess innilega að
vera samvistum við fólk, ekki sízt
úr fjölskyldu sinni, af hvaða til-
efni sem var, og lundgæði hennar
voru engin takmörk sett. Ekki
minnist ég þess, að nokkru sinni
hafi borið skugga á kynni okkar
öll þau ár, er ég þekkti hana og
svo vel var hún skapi farin og þjál
f umgengni, að óþurftarverk hefði
mátt kalla að fá hana sér mót-
snúna.
Hún var ein hinna sönnu dætra
Reykjavíkur og tók hennar mál-
stað, þegar með þurfti, og það var
málstaður, sem var liðtækur.
Reykjavík var hennar fæðingar-
staður og lífsdvalarstaður, og hún
vildi veg hennar sem mestan, það
máttu allir vita-.
Með Sigríði er í senn gengin góð
tengdamóðir, ástsæl amma og
mæt eiginkona og móðir. En það
er ekki eingöngu, að við fráfall
hennar hafi þeim, sem vitnað er
til hér að ofan fundist, að rofið
væri skarð í eignhelgi þeirra
einna, heldur er með henni horf-
inn fjölgegn og styrkur stólpi
stórrar fjölskyldu.
Hún varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að eiga góða og ánægjuríka
ævi, hún gat leyft sér að haga
hlutum sínum eftir eigin geðþótta
og heilsuhraust var hún alla tíð.
Það varð því okkur, ástvinum
hennar þungt áfall, er við vissum
sjúkdóm hennar, sem enginn
mannlegur máttur réð við, en þá
var það hún, sem létti okkur róð-
urnn með æðruleysi sfnu.
Ég þakka henni samfylgdina og
kveð hana með þá ósk í huga, að
nú sé hún komin heim til þess
upphafs og endis, sem skilur einn
dag og þúsund ár jarðnesks lífs
frá eilífð andans, orkunnar, sem
aldrei deyr, en tekur sér bólfestu
í einu hinna mörgu híbýla, i öðru
rúmi og öðrum tíma.
Geir R. Andersen.
t
Móðir okkar,
GUÐRUN
KRISTJÁNSDÓTTIR,
Öldugötu 7,
lézt á St. Jósefsspitala, Hafnar-
firði 8/10
Börnin.
t
GUÐRÚNÁRNÝ
ÓLAFSDÓTTIR,
andaðist 7. október á Sjúkrahúsi
Akraness. Hún verður jarðsungin
frá Akraneskirkju laugardaginn
12. október.
Vandamenn
t
Sonur minn,
EYVIND BREMS
ÍSLANDI.
lézt í Kaupmannahöfn 9. októ-
ber.
Stefán íslandi.
F. 7. júnf 1898
D. 3. okt. 1974
I dag fer fram frá dómkirkj-
unni í Reykjavík útför Jóhanns J.
Kristjánssonar fv. héraðslæknis í
Ólafsfirði.
Arið 1937 fluttist Jóhann ásamt
fjölskyldu sinni frá Grenivík til
Ólafsfjarðar og var hérðaslæknir
þar frá þvf ári til 1961, er hann
fékk lausn frá starfi sökum
heilsubrests og settist að í Reykja-
vík.
En þótt Jóhann flyttist til
Reykjavíkur var hugur hans og
tengsl við Ólafsfjörð aldrei rof-
inn, kom hann þangað ásamt
konu sinni á hverju sumri á með-
an heilsa leyfði og dvöldu þau
hjónin yfir sumarið í vinalegum
sumarbústað, sem þau áttu og Jó-
hann hafði að mestu smfðað sjálf-
ur.
Hlökkuðu Ólafsfirðingar ætíð
til komu þeirra hjóna og söknuðu
vina í stað, er þau fóru aftur að
áliðnu sumri.
Kona Jóhanns læknis, Inga
Guðmundsdóttir, var glæsileg
kona og stórbrotin, hún andaðist f
Reykjavík 22. okt. 1970.
Þau hjónin eignuðust sjö börn,
sex syni og eina dóttur, sem var
yngst þeirra barna, en einn sona
þeirra, Hannes, dó árið 1931,
fimm ára gamall.
Það hefi ég heyrt marga segja,
sem fylgdust með komu þeirra
læknishjóna ásamt sex börnum
þeirra til Ólafsfjarðar, að glæsi
legri fjölskyldu hefðu þeir vart
áður séð. Jóhann var maður frfð-
ur sínum, léttur og kvikur á fæti
og bar sig vel. Konan hans, frú
Inga, var sem áður segir glæsileg
og börnin, sem þá voru frá eins til
fjórtán ára gömul, voru hvert
öðru myndarlegra.
Heimili þeirra hjóna var fljótt
rómað fyrir myndarskap og gest-
risni, en þó látleysi og samlagað-
ist þessi f jölskylda fljótt íbúunum
eins og innfædd væri.
Jóhann læknir var f skóla mikill
námsmaður og margvíslegum
hæfileikum búinn. Hann var far-
sæll læknir og rækti starf sitt af
slfkri trúmennsku og reglusemi
að fátítt var. Með honum er horf-
inn einn af þeim héraðslæknum,
sem voru í senn félagslegir og
andlegir uppbyggjendur síns
héraðs ásamt læknisstarfi, sem
þeir þá vegna lélegra skilyrða og
einhliða og fátæklegra aðstæðna
þurftu eins oft f starfi að treysta á
hugvit sitt sem læknislega mennt-
un.
Þegar litið er til baka yfir far-
inn veg og hugleidd störf þeirra
manna, er hvað mest mótuðu upp-
byggingu Ólafsfjarðar s.l. 30—40
árin, fer ekki á milli mála. að
Jóhann læknir ber þar hátt.
Hann var um mörg ár formaður
skólannefndar, sfðar fræðsluráðs
og átti hvað mestan þátt að já-
kvæðri uppbyggingu skóla og
fræðslumála. Átti sæti f yfir-
skattanefnd Ólafsfjarðar. I stjórn
Sparisjóðs Ólafsfjarðar og
stjórnarformaður hin síðari ár. I
stjórn Verzlunarfélags Ólafsfjarð-
ar. Þá starfaði hann f kirkjukór
og Karlakór Ólafsfjarðar meðan
hann var f Ólafsfirði og var kjör-
t
GfSLI SÆMUNDSSON,
Birtingaholti
lézt að heimili sínu 8. október
1974
Fyrir hönd vandamanna hins
látna og fjölskyldu minnar
Sigurður Ágústsson.
inn heiðursfélagi karlakórsins ár-
ið 1958. I allmörg ár kenndi Jó-
hann bæði í Unglinga og Gagn-
fræðaskóla Ólafsfjarðar.
Hann var einn af stofnendum
Rotaryklúbbs Ólafsfjarðar og
vann þeim félagsskap af dugnaði
og einhug og fylgdist með störf-
um hans eftir að hann fluttist f
burtu, sendi til dæmis Rotary-
klúbbnum æviminningaþætti
sína, sem hann skrifaði, oft í létt-
um dúr, enda var hann ritfær vel
og bjó yfir meiri kfmnigáfu en
margan grunaði, þvf að f eðli sfnu
var hann frekar hlédrægur og
flíkaði lítt þeim hæfileikum, sem
öðrum.
Þau hjónin, Jóhann læknir og
frú Inga, byggðu upp eitt svip-
mesta heimilið í Ólafsfirði og
börn þeirra örvuðu jafnaldra sína
af æskuþrótti og falslausri glað-
værð og dugnaði, en þau eru:
Haraldur Kristófer, sölustjóri í
Reykjavík, kvæntur Ingibjörgu
Gunnlaugsdóttur frá Ólafsfirði.
Guðmundur Kristján, viðskipta-
fræðingur, bæjargjaldkeri á
Akureyri, kvæntur Ingibjörgu
Dan Kristjánsdóttur.
Birgir Jóhann, tannlæknir í
Reykjavík, kvæntur Jóhönnu
Ásdísi Jónasdóttur frá Siglufirði.
Heimir Brynjúlfur, prent-
smiðjueigandi i Reykjavík,
kvæntur Friðrikku Baldvinsdótt-
ur frá Hofsósi.
Hannes, málaram. Reykjavík,
ókvæntur.
Sigriður Hafdís, stúdent,
kennari í Reykjavík, gift Sveini
Sæmundssyni, viðskiptafr. frá
Fagrabæ f Þingeyjarsýslu.
Allt er þetta velmetið myndar
og dugnaðar fólk. Þá var lfka
mikið hjá þeim hjónum dóttur-
dóttir þeirra Gyða, sem var auga-
steinn afa síns og ömmu og fylgdi
þeim oftast á ferðum þeirra til
Ólafsfjarðar.
Vissulega gáfu þau hjón með
öllu starfi sínu Ólafsfirði mikið.
Þau unnu ætfð af fórnfúsum vilja
hverju velferðarmáli byggðar-
lagsins. Því voru þau með hverju
ári meira dáð og þeir, sem kynnt-
ust þeim bezt, dáðu þau mest.
Oft sagði Jóhann heitinn við
okkur hjónin, þegar hann kom á
sumrin hingað til Ólafsfjarðar,
eftir að hann var fluttur suður, að
sér fyndist hann hressast allur
strax og hann liti Ólafsfjörð og
það væri eins og hlýhugur Ólafs-
firðinga til sín og umhverfið allt
verkaði sem töframeðal sér til
heilsubótar.
Ég og kona mín þökkum þeim
hjónum, Jóhanni lækni og frú
Ingu, alla þeirra vinsemd í okkar
garð og barna okkar, og ég hygg,
að ég mæli fyrir munn flestra
Ólafsfirðinga, þegar ég færi þeim
hjónum nú hjartans þakkir fyrir
allt, er þau unnu Ólafsfirði og
Ólafsfirðingum.
Blessuð sé minning þeirra.
Og við hjónin vottum börnum
þeirra, tengda- og barna-börnum
innilegustu samúð okkar, vegna
andláts Jóhanns læknis, sem við
vitum, að þau öll unnu svo heitt
og mátu svo mikils að verðleikum.
Ásgrfmur Hartmannsson.
t
Móðir okkar,
ÞORGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
lézt að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 9 október.
Börn hinnar látnu.
t Útför mannsins míns.
FINNBOGA GUÐMUNDSSONAR
frá Gerðum,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 1 1 okt kl. 14.00.
María Pétursdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNAR ODDSSON.
Bjarnastöðum,
verður jarðsunginn frá Mosfelli, Grlmsnesi laugardaginn 1 2. október
kl. 2 e.h.
Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 12.
Ása Gunnarsdóttir Karl Ólafsson
Sigurður Gunnarsson Sólveig Árnadóttir
Guðmundur Gunnarsson Sigriður Gunnsteinsdóttir
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
DÓRA ÞÓRARINSDÓTTIR,
Bárugötu 33,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 1 1. október kl. 1 0,30
f.h.
Þeim. sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Barnaspitala Hringsins.
SigrFður Gestsdóttir, Guðgeir Þórarinsson,
Svanhildur Gestsdóttir Þórarinn Elmar Jensen,
Páll Gestsson, Gunnþóra Jónsdóttir,
Eva Gestsdóttir, Fjölnir Björnsson
og barnabörn.