Morgunblaðið - 10.10.1974, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 10.10.1974, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1974 23 Rabin boðar tilslakanir Tel Aviv, 7. okt AP. Reuter. YITZHAK Rabin forsætisrád- herra Israels sagði I blaðaviðtali á eins árs afmæli októberstrfðsins f dag að tsraelsmenn væru reiðu- búnir að leggja sig f hættu til þess að tryggja bráðabirgðasamning, sem gæti leitt tif friðar við Araba. Hann sagðist hafa ákveðnar hugmyndir um, hvaða tilslakanir Israeismenn yrðu að gera, en var tregur til þess að tilgreina hvaða landamærabreytingar hann gæti fallizt á. Á honum var helzt að skilja, að ísraelsmenn gætu hugs- að sér að afsala sér vesturbakka Jórdan. Stríðsins er minnzt með miklum hátfðarhöldum f Kafró og Damaskus. Tugþúsundir hylltu Sadat forseta á fjöldafundi á Nasserleikvanginum í Kaíró í kvöld. Sovézkar eldflaugar, skrið- drekar og þotur voru á mikilli hersýningu í gær. I Damaskus gekk ungt fólk fylktu liði um göturnar f gær og blómsveigur var lagður að minnisvarða óþekkta hermanns- ins. I Kaíró hefur Sadat forseti rætt við Yasser Arafat, foringja Frelsissamtaka Palestínumanna, til þess að reyna að setja niður deilur innan skæruliðahreyfing- arinnar. í tsrael var hafin rannsókn í dag á sprengingu í bænum Nablus á vesturbakkanum. Tveir Arabar særðust, þegar þeir reyndu að koma af stað spreng- ingu á markaðstorgi. Jafnframt hafa tsraelsmenn skilað átta af níu óbreyttum borgurum, sem þeir tóku til fanga f landamæraþorpi í Suður- Lfbanon i ágúst. I tilefni af því að Henry Kiss- inger utanrfkisráðherra Banda- rikjanna er að leggja upp í nýja friðarferð til Miðausturlanda sagði israelski utanríkisráðherr- ann, Yigal Allon, að engar ákveðnar tillögur um næsta áfanga friðarviðræðnanna mundi' koma fram f ferðinni. Hann sagði, að Kissinger mundi kanna við- horf manna til nýrra viðræðna, meðal annars í Genf. — Norsku blöðin Framhald af bls.7 vægi útfærslunnar fyrir Norðmenn og nauðsyn þess að revna samninaaleiðina til hlítar áður en gripið verður til óyndisúrræða. Síðan segir Arbeiderbladet: — Hið raun- verulega vandamál við verndun fiskstofnanna er að hvorki friðuð svæði eða 50 mílna landhelgi veita trygg- ingu fyrir þvl að þorskstofnin- um verði bjargað. 200 mílna lögsaga gefur nauðsynlega, en tæpast nóga vernd. Sann- leikurinn er sá að fullkomin vernd fiskstofnanna næst ekki nema með góðri sam- vinnu á alþjóðavettvangi. Ef þessu marki á að ná, þörfn- umst við alþjóðlegrar sam- stöðu og skilnings. Svæði sem togurum er meinað að veiða á vekja tæpast hrifn- ingu hjá hinum „stóru togaraþjóðum". Það mál verða Norðmenn að ræða við viðkomandi þjóðir, upplýsa þær og komast að samkomu- lagi. Umboð fyrir amerfskar, enskar og japanskar bifreiðir. Allt á sama stað er hjá Agli Frá Japan: LANCER '75 módelið af Safarisigurvegaranum er komið. De luxe útgáfa,4dyra með höfuðpúðum#hallan- legum stólbökum,útvarpi, klukku og diska- hemlum. Bensíneyðsla: 7 lálOOkm Allt á sama stað Laugavegi 118 - Simar 22240 og 15700 EGILL VILHJÁLMSSON HE BRIDGEFÉLAG KVENNA: Tvímenningskeppni félagsins er nú hafin með þátttöku 36 para. Fyrst verður spiluð undanrás í fjögur kvöld, en þá verður skipt í tvo riðla og keppt með barometer-fyrirkomulagi. Eftir 1. umferð eru eftirtalin pör efst: Júlfana Isebarn — Margrét Margeirsdóttir 213 Guðmundfa Pálsdóttir — Sigríður Ingibergsdóttir 198 Helga Bachmann — Ragnheiður Einarsdóttir 195 Aðalheiður Magnúsdóttir — Ingibjörg Björnsdóttir 188 Elín Auðunsdóttir — Kristfn Jónsdóttir 186 Guðríður Guðmundsdóttir — Kristín Þórðardóttir 186 Guðrún Bergsdóttir — Sigríður Pálsdóttir 182 Meðalskor: 165 stig. XXX Þegar fjórum umferðum af fimm er lokið í tvfmennings- keppni TBK er staða efstu para þessi: Ólafur — Ragna 759 Gestur — Sigtryggur 738 Kristján — Þórhallur 733 Rafn — Þorsteinn ,726 Benedikt — Kristján 714 Bernharður — Júlfus 707 Gylfi — Kristján 698 Gísli — Þórarinn 697 Tryggvi — Þorsteinn 687 Baldur — Zophonfas 685 Meðalskor 660 stig Sfðasta umferðin verður spil- uð f kvöld f Domus Medica og hefst klukkan 20. Næsta keppni félagsins er hraðsveitakeppni og eru sveitarstjórar beðnir að láta skrá sveitir sfnar hjá stjórn- inni. XXX BRIDGEFELAG KÓPAVOGS: Að tveim umferðum Ioknum í tvímenningskeppninni er staða efstu para þessi: Gunnar — Björn 259 Jón — Sigmundur 253 Einar — Páll 244 Óli — Guðmundur 239 Sverrir — Jón 235 Ragnar — Konráð 234 Júlfus — Ragnar 233 Jónatan — Þorleifur 228 Þorsteinn — Kristinn 226 Árni — Matthías 216 Meðalskor 216 stig A.G.R. ÞAKKARAVARP Vinum og vandamönnum, nær og fjær, þakka ég innilega vinsemd og heiður í tilefni af 60 ára afmæli mínu 19. sept. s/. S TEFÁN JA SONA FtSON Vorsabæ. Forskóli fyrir prentnám Verklegt forskólanám í prentiðn hefst í Iðnskól- anum í Reykjavík að öllu forfallalausu fimmtu- daginn 1 7. október. Forskóli þessi er ætlaður nemendum, er hafa hugsað sér að hefja prentnám á næstunni og þeim, sem eru komnir að í prentsmiðjum, en ekki hafið skólanám. Umsóknir þurfa að berast skrifstofu skólans í síðasta lagi mánudaginn 14. október. Umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar verða látnar í té á sama stað. Skólastjóri Styrktarfélagar fóstbræðra SÖNGUR GRÍN OG GAMAN Tvær fyrstu haustskemmtanirnar verða haldnar í Fóstbræðrahúsinu, Langholtsveg 109 —111, um næstu helgi, þ.e. föstudaginn 11. og laugardaginn 1 2. þ.m Skemmtanirnar verða alls átta. Öllum styrktarfélögum verða póstsend aðgöngukort að einhverri þeirra. Athugið vel dagsetningu aðgöngukortanna, sem ykkur berast, ásamt meðfylgjandi upplýsingum. Fóstbræður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.