Morgunblaðið - 10.10.1974, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.10.1974, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1974 Gunnar Hjaltason, Reyðarfirði: Miklir menn eru kaupmenn I 4. tbl. Samvinnunnar 1974 á bls. 16 segir kaupfélagsstjóri Kaupfélags Héraðsbúa í viðtali: „Um hlutdeild kaupfélaganna í atvinnurekstri hafa jafnan verið skiptar skoðanir. Sumir álíta, að kaupfélögin eigi eingöngu að fást við verzlun, en aðrir kvarta yfir þvf, að þau vanræki undirstöðuna og reyni fyrst og fremst að græða — eins og kaupmennirnir." Það er þá enn f dag staðreynd, að ráðandi maður fyrir stóru fyrirtæki lætur hafa eftir sér á prenti I viðtali, að kaupmenn séu stétt, sem aðeins séu til að græða á sauðsvörtum almúganum. Hvað þá með kaupfélögin? Það er þó hægt að benda á þá staðreynd, að með þessu er hann að vega að sjálfum sér og sínu fyrirtæki sem sýna má fram á. Undirritaður hefur verzlað hér á Reyðarfirði nú f fimm ár. Þennan tíma hef ég sem og fleiri í þessu þjóðfélagi mátt búa við það ranglæti, sem aðeins á að heyra fortíðinni til og þá sennilega ein- okunartímanum. Það virðist svo sem sumir haldi, að aðeins kaupfélögin megi verzla og séu ein fær um það. En sem betur fer eru það fleiri, sem það gera fyrir allan almenning, þvf frjáls samkeppni er talin það æskilégasta í dag. Þetta ranglæti, sem ég ætla að taka til meðferðar, er út af mjólk- inni, en hana hef ég fengið í smá- sölu öll þessi ár. Það fyrsta, sem ég fékk sem svar við þvf, að eðlilegt væri, að ég fengi mjólkina í smásölu, var eitthvað á þessa leið: Þakkaðu fyrir að fá mjólkina, þú eykur söluna og það er þér nóg. Tvívegis með nokkru millibili talaði ég við kaupfélagsstjórann og fór fram á, að fá mjólkina í heildsölu, en svarið var: Við látum ekki aðra en bændur hafa ágóða af mjólkinni. Eftir þessu gætu bændur sótt smásöluálagn- inguna til kaupfélagsins, en við vitum það, að verzluninni veitir ekki af sfnu, en þetta sýnir, hve rökin fyrir neituninni eru léleg. Svo gerist undrið nú f janúar í vetur. A stað einum á samlags- svæði KHB, sem ég nefni ekki, en get, ef þörf krefur, fer kaup- maður á staðnum að fá mjólkina f heildsölu, sem auðvitað er sjálf- sagt. Strax þá, er ég frétti það, talaði ég við kaupfélagsstjórann og spurði, hvort ég fylgdi ekki með. Nei, því var nú ekki að heilsa, en af hverju? Ég get orðað það stutt og laggott: A Reyðarfirði rekur KHB verzlun, en ekki á hinum staðnunl. Svo mörg voru þau orð, sem því miður eru sönn. Það er staðreynd, að einokun þrífst hér, því að þótt ég fái mjólkiná f smásölu, þá er það ekki það sama og að fá hana í heildsölu, ef hugsjónin um, að allir hafi sama rétt til verzlunar, er í heiðri höfð. Mjólkurbúin eru heildsölufyrir- tæki og þegar verið er að láta einn og einn hafa mjólkina í heildsölu, sem er staðreynd, þá er búið að kasta fyrir borð öllum fyrri rökum fyrir neituninni og hagn- aði bænda og farið að nota út- , hlutun á heildsölu mjólkur sem I vopn til að ná fram sínum málum. Endurbætur á þessu úrelta kerfi eru sennilega að sjá dagsins ljós, eða það vona allir þeir, sem vilja koma á eðlilegum við- skiptum á þessu sviði. Það breytir ekki þeirri stað- reynd, að þessi mjólkurmál hafa verið til vansæmdar og keyrir um þverbak, þegar einstökum aðilum eru sköpuð óvenjuleg aðstaða til viðskipta. Það á hver að geta verzlað, þar sem honum sýnist, án þvingana, og get ég nefnt dæmi, ef þörf krefur, að svo er ekki. Mjólkin er nauðsynjavara, sem allir þurfa að kaupa, og því á hún Framhald á bls. 18 ...—- iJISIIII .... .—-- X-9 a snooir uminoi- haíd styttunnar.. Cuií9 hbroin! I U5EP TO HAT£ 6ÖIN6 TÐ 6CH00U6LTT6lNCB l'VE 6OTTEN TO KNOlO WO, EVERVTHIN6 16 PlfPERENÍ Aður fyrr hataði ég skólagöngu, en eftir að ég kynntist þér, hefur allt breytzt. MMMMMMMMM! Ég trúi þvf ekki . . . einhver elskar mig! I KOTTURINN feux FERDINAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.