Morgunblaðið - 10.10.1974, Page 32
LESBÐ
" - ■?í,0rfliinMniíiö
^•öa eru oiulþunga \.
DBCLECn
FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1974
Sigölduvirkjun:
Uppbót aftur í boði
Júgóslavneska fyrirtækið
Energoprojekt hefur ákveðið að
greiða fslenzkum starfsmönnum
sfnum við Sigölduvirkjun aðra
kaupuppbðt standist fram-
kvæmdaáætlun októbermánaðar
með sama hætti og septemher-
áætlunin. Morgunblaðið náði f
gær tali af Pétri Péturssyni, full-
trúa Ivans Berger, forstjóra
Energoprojekt, sem annast fram-
kvæmdirnar við Sigölduvirkjun,
og spurðist nánar fyrir um þessa
ákvörðun.
Pétur sagði, að Berger hefði í
fyrrakvöld haldið fund með verk-
stjórúm og flokksstjórum á
virkjunarsvæðinu . og staðfesti
þar, eins og áður hefur komið
fram f Morgunblaðinu, að fram-
kvæmdaáætlun septembermánað-
ar hefði staðizt og jafnvel á sum-
um svæðum verið á undan
áætlun. Yrði því nú í vikunni
greidd uppbót sú, sem starfsfólki
var heitið í byrjun september-
mánaðar. Jafnframt lagði Berger
þarna fram starfsáætlun fyrir
októberáætlun og hét íslenzku
starfsmönnunum því, að ef sú
áætlun stæðist einnig yrði aftur
greidd sams konar uppbót fyrir
októbermánuð eða 20 þúsund
krónur til hvers starfsmanns, er
vinnur allan mánuðinn.
Framhald á bls. 18
Nýja varð-
skipið af
stokkunum
NVJU varðskipi fyrir
tslendinga verður hleypt af
stokkunum f Árósum f Dan-
mörku f dag. Viðstaddur at-
höfnina verður fjöldi gesta,
þar á meðal forráðamenn
Landhelgisgæzlunnar.
Nýja varðskipið er svipað
Ægi að allri gerð og er rúmar
900 brúttólestir að stærð. Aðal-
vélar skipsins eru af gerðinni
M.A.N., en hjálparvélar frá
Caterpillar. Gert er ráð fyrir,
að varðskipið nýja, sem verður
gefið nafn um leið og það
hleypur af stokkunum, komi
Nýja varðskipið f skipasmfðastöðinni f Árósum. Myndin er tekin til landsins um miðjan
fyrir nokkrum dögum. Ljósm.: Garðar Pálsson. febrúar.
Brennandi bátur
dreginn til
Sandgerðis í gær
A MILLI kl. 12 og 12.30 f gær kom
upp eldur um borð f vélbátnum
Hafborgu GK 99, þar sem bátur-
inn var að veiðum um það bil 7
sjómflur norðvestur af Garð-
skaga. Skipverjar, fjórir talsins,
voru að borða þegar eldurinn
kom upp. Þeir ruku þegar til og
reyndu að slökkva eldinn, en án
árangurs. Var þá kallað á hjálp og
yfirgáfu þeir bátinn fljótlega.
Freyr frá Keflavfk tók sfðan Haf-
borgu f tog og kom með bátinn til
Sandgerðis um kl. 14 f gær. Það
tók svo um eina klukkustund að
slökkva eldinn f bátnum, en hann
er mikið skemmdur ef ekki ónýt-
ur.
Þórlindur Jóhannsson, skip-
stjóri á Hafborgu, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að þeir á Haf-
borgu hefðu verið búnir að leggja
netin og síðan farið til að borða,
en þá hefði eldurinn gosið upp.
Var hann í vélarrúminu, en aldrei
Framhald á bls. 18
Djúpsprengjur beztar
gegn háhyrningum
„JtJ, ÞAÐ er rétt, að Hornfirð-
ingar hafa farið fram á það við
varnarmáladeild, að hún hlutist
til um, að hermenn frá varnarlið-
inu verði fengnir til að fara út
með reknetabátum og skjóta með
vélbyssum á háhyrninga, sem
koma f veg fyrir sfldveiðar við
Hrollaugseyjar,“ sagði Páll
Ásgeir Tryggvason, deildarstjóri
varnarmáladeildar f samtali við
Mbl. f gær.
Páll sagði, að varnarliðið hefði
áður verið fengið til að stugga við
háhyrningum, sem komu í veg
fyrir veiðar með reknetum. Var
það á árunum 1954 og 1955, en þá
lét háhyrningurinn svo mikið að
sér kveða í Faxaflóa, að rekneta-
bátarnir voru að gefast upp. I
fyrstu var reynt að senda menn
úr á miðin með bátunum og höfðu
þeir rifla með sér. Ekki tókst að
Eyjaskeggjar
fá forkaupsrétt
VIÐLAGASJÓÐUR hefur hætt
sölu á húsum sfnum f bili. Mun
nú þeim Vestmannaeyingum, er
búa f húsunum, gefinn kostur á
að kaupa þau á núverandi kjörum
fyrir 1. nóvember en sfðar verða
þau hús, sem þá ekki seljast, boð-
in á almennum markaði á hærra
verði og með öðrum skilmálum.
Til þessa hefur viðlagasjóður
selt 230 hús af þeim 494, sem flutt
særa eða drepa nema eina og eina
skepnu. Hafði það aðeins þau
áhrif á háhyrningana, sem eru
mjög grimmir, en vitrir, að þeir
átu fyrst hinn særða eða dauða
félaga sinn, en gerðu svo stórkost-
legan usla í netunum. Þannig er
Framhald á bls. 18
Hér sést Freyr koma með Hafborgu til hafnar f Sandgerði. Ljósm.: Heimir Stfgsson
LITLAR breytingar hafa átt sér
stað á mjölmörkuðum Evrópu sfð-
ustu daga og búast söluaðilar á
tslandi ekki við neinum breyting-
um fyrr en fyrsta lagi f dag, en þá
verður skýrt frá veiðum Perú-
voru til landsins til að hýsa land-
flótta Vestmannaeyinga eftir eld-
gosið. Þar fyrir utan voru 60
bráðabirgðahús en þau voru öll
flutt til Vestmannaeyja aftur
þegar byggð hófst þar að nýju.
Á vegum viðlagasjóðs fer nú
einnig fram mikil hreinsun í
Eyjum á svæði þar sem heilt
hverfi fór undir gjall. Húsin, sem
þar komu undan, eru flest mjög
illa farin en þess er að vænta, að
þar verði eftirsóttar byggingar-
lóðir í framtfðinni vegna þess hve
vel það liggur við miðbæjar-
kjarna Vestmannaeyjakaupstað-
ar.
Lítíl hreyfing á mjölmörkuðum
—166 þús. lestir af ansjóvetu í Perú á 5 dögum
manna f sfðustu viku og ennfrem-
ur mun verða birt skýrsla banda-
rfska landbúnaðarráðuneytisins
um kornbirgðir og uppskeruhorf-
ur f landinu. Það vakti athygli f
fyrradag, að verð á mjöli féll
frekar en hækkaði f Evrópu þegar
fréttin um útflutningshömlur á
korni f Bandarfkjunum barst
þangað. Þykir það benda til þess,
að mikil óvissa sé nú rfkjandi á
Evrópumarkaðnum.
Ansjóvetuveiðar Perúmanna
hófust þann 30. september s.I. og
fyrstu 5 dagana veiddu þeir sam-
tals 166.399 lestir. Fyrsta daginn
fengust 33.538 lestir, 2. daginn
37.764 lestir, 3. daginn 44.182
lestir, 4. daginn 30.042 lestir og 5.
daginn 20.873 lestir. Á þessum
tölum sést, að fljótlega hefur
dregið úr veiðum Perúmanna, en
talið er, að jarðskjálftarnir í Perú
um helgina hafi dregið úr sókn-
inni. tlr þessu ansjóvetumagni
hafa verið framleidd 36.806 tonn
af mjöli og 7374 lestir af lýsi.
Heimanotkun Perú á lýsi er um
9000 lestir á mánuði og áður en
landið fer að selja lýsi á aðra
markaði, þarf það að eiga birgðir
fram í marz.
I samtali við Pétur Pétursson
hjá Lýsi h.f. í Morgunblaðinu á
þriðjudaginn var mishermt, að
soyabaunaolían hefði hækkað um
400 dollara tonnið, hækkunin
nam 100 dollurum, en verðmis-
munur á fiskilýsi og soya-
baunaolíu er nú 400 dollarar. Þá
var einnig gefið í skyn, að erlend-
ir kaupendur væru að þreifa fyrir
sér um kaup á loðnumjöli á 6 dali
proteineiningin. Það er ekki
alveg rétt, því hún hefur aðeins
verið boðin til sölu frá íslandi á 6
dollara, án þess að nokkurt svar
hafi borizt erlendis frá.
Rættum hjarta-
bílinn í borgarráði
FYRIR nokkrum dögum ritaði
Rúnar Bjamason borgarráði bréf
þar sem hann ræðir um hin miklu
skrif, sem farið hafa fram vegna
hjartabílsins svonefnda, og þá
gagnrýni, sem komið hefur fram
vegna rekstursins sem er á bíln-
um.
I bréfinu telur slökkviliðsstjóri
jafnvel rétt, að slökkviliðið hætti
að reka bílinn, þar sem slíkt sé
■ illmögulegt vegna sffelldrar gagn-
rýni. Hann bendir þó á, að nú
þegar hafi bíllinn sýnt yfirburði
sína, þótt ekki hafi um hjartatil-
felli verið að ræða, heldur köfn-
unartilfelli. Þar sinnti bfllinn
hlutverki, sem hinir eldri hefðu
ekki getað gert.
Skúli Johnsen, borgarlæknir,
sagði í samtali við Mbl. í gær, að
hann vissi, að þetta bréf hefði
verið rætt í borgarráði, en engin
Framhald á bls. 18