Morgunblaðið - 26.10.1974, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1974
íslenzkir
flugmenn til
Air Bahama?
FULLTRUAR Félags fslenzkra
atvinnuflugmanna hafa ðtt við-
ræður við samgöngumálaráð-
herra Halldór E. Sigurðsson um
vandamál fiugmanna, sem sagt
hefur verið upp störfum hjá Flug-
leiðum. Hafa flugmennirnir bent
á þann möguleika, að umræddir
flugmenn gætu fengið störf hjá
Air Bahama, sem er f eigu Flug-
leiða, en fyrir Air Bahama fljúga
eingöngu erlendir flugmenn.
Halldór E. Sigurðsson sagði í
viðtali við Mbl. f gær að hann
hefði þetta mál til athugunar og
myndi ræða það við yfirmenn
Flugleiða. Hér væri um að ræða
10 flugmenn og 6 flugvirkja.
Halldór sagði að slfkir starfsmenn
sem þessir væru yfirleitt tekjuhá-
ir menn og hlyti það að vera hag-
kvæmst að íslendingar gegndu
störfum fyrir Air Bahama, þar
sem þeir væru skattgreiðendur á
Islandi, en hinir erlendu flug-
menn ekki. Á þetta hefðu fulltrú-
ar flugmannanna einnig bent.
250 þúsund krónur í
hjartabíl Norðurlands
NVLEGA afhenti Kiwaniskiúbb-
urinn Kaldbakur á Akureyri kr.
MYND þessi er af altaristöflu,
sem Hallgrfmskirkju f Reykja-
vfk var gefin, f fyrra og talin
er frá árinu 1650, gerð á Italfu.
Myndin sýnir Marfu guðs-
móður f skýjum og er það
sennilega himnaför hennar,
sem listamaðurinn hefir f
huga. Altaristaflan er ágæt-
lega gerð trjáskurðarmynd f
litum. Hún er fyrst um sínn f
skrúðhúsi Hallgrfmskirkju.
Gefendur eru systkinin
frú Guðrfður Kjartansson,
Kristján Sigurjónsson vél-
stjóri og Sigurgeir Sigurjóns-
son hæstaréttarlögmaður. Þau
gefa þessa gjöf til minningar
um foreldra sfna, Sigurjón
Kristjánsson vélstjóra og konu
hans Hjálmfrfði Kristjánsdótt-
ur, er lengi bjuggu á Skóla-
vörðustíg 42.
Mynd þessi hefir ekki fyrr
komið fyrir almenningssjónir,
og ég vil f þvf sambandi árétta
þakkír allra, sem að kirkjunni
standa, fyrir þessa fögru og
rausnarlegu gjöf.
Jakob Jónsson.
250 þús í söfnun Blaðamanna-
félags Isiands til kaupa á hjarta-
bfl fyrir Norðurland.
Mynd þessi er tekin er forseu
Kaldbaks, Stefán Gunnlaugsson,
afhendir Guðmundi Blöndal,
gjaldkera Rauða krossins á Akur-
eyri, gjöfina. Að baki þeirra eru
félagar úr Kaldbak.
Sýning á dönsku
skarti um helgina
SVNING á skarti dönsku hjón-
anna Helgu og Bent Exner hefur
vakið mikla og verðskuldaða
athygli. Þessa viku hefur verið
stöðugur straumur fólks að skoða
hina nýstárlegu skartgripi.
Sýningunni átti að ljúka á
föstudagskvöld, en Bent Exner
ákvað að dveljast hér á landi
nokkra daga í niðbót og verður
því sýningin opin til sunnudags-
kvölds. Bent Exner ætlar að nota
tímann til þess að leita að íslenzk-
um steinum fyrir næstu skartsýn-
ingu og einnig heldur hann fyrir-
lestra með nemendum Myndlista-
og handíðaskólans.
Hjálmtýr í
Nonna látinn
HJALMTYR Pétursson kaupmað-
ur f verzluninni Nonna er látinn
rúmlega 67 ára að aldri.
Hjálmtýr fæddist á Hörðubóli í
Miðdölum, Dalasýslu 24. ágúst
1907, sonur hjónanna Jóhanns
Péturs Hjálmtýssonar og Helgu
Þórðardóttur. Hjálmtýr útskrifað-
ist frá Samvinnuskólanum 1932,
var um skeið starfsmaður dag-
blaðsins Tímans, en stofnaði
verzlunina Nonna 1942, sem hann
rak til dauðadags. Hann ritaði
margar greinar um þjóðfélags-
mál, sem aðallega birtust í Tíman-
um.
Sjötugur maður fyrir
bíl - slasaðist mikið
SJÖTUGUR maður slasaðist
míkið þegar hann varð fyrir
fólksbfl á Frfkirkjuvegi við
Skothúsveg um klukkan 7.45 f
gærmorgun. Hlaut hann áverka
á höfði og fótbrot, en mun ekki
vera talinn f Iffshættu.
Maðurinn var á leið til vinnu
sinnar. Hann kom úr vesturátt
og ætlaði yfir Frfkirkjuveginn.
Bar þar að Volkswagenbifreið
sem ók norður Sóleyjargötu og
ætlaði norður Frfkirkjuveginn.
Lenti maðurinn vinstra megin
á farangursloki bifreiðarinnar
og þaðan skall hann f fram-
rúðuna. Við höggið kom dæld f
farangurslokið og rúðan brotn-
aði. Skyggni var slæmt þegar
atburðurinn gerðist, og kvaðst
bifreiðarstjórinn ekki hafa séð
til ferða mannsins fyrr en f
þann mund er hann skall á
bflnum.
Myndin var tekin á slysstað f
gærmorgun. Ljósm. Mbl. Sv.
Þorm.
Fisksalar loka
á laugardögum
— Við ákváðum á fundi Fisk-
salafélagsins að framvegis yrðu
fiskverzlanir borgarinnar lokaðar
á laugardögum og tekur þetta
gildi frá og með deginum í dag,
sagði Þorleifur Sigurðsson, for-
maður Fisksalafélagsins, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær.
Þorleifur sagði, að fisksalar
hefðu ekki verið kallaðir til
frekari yfirheyrslu hjá verðlags-
dómi, en þeir ættu alveg eins von
Goðdalakirkja
Mælifelli — 23. október.
KIRKJAN 1 Goðdölum í Vestur-
dal var vígð hinn 11. september
1904. Verður 70 ára vígsluafmælis
kirkjunnar minnst með hátíðar-
guðsþjónustu innan skamms,
væntanlega hinn 17. nóvember
nk. A safnaðarfundi f Goðdölum
sl. sunnudag var tilkynnt, að Elfn-
á því. Fisksalafélagið hefði haldið
fund á Hótel Esju í fyrrakvöld
þar sem fjallað hefði verið um
verðlagsmálin. Þar hefði fyrst
verið samþykkt að loka fisk-
verzlunum á laugardögum. Enn-
fremur hefði verið kosin sérstök
nefnd til að ræða við verðlagsyfir-
völd. — Við munum ekki gera
neinar róttækar ráðstafanir fyrr
en að þeim viðræðum loknum og
vonandi leysist þessi deila frið-
samlega, sagði hann.
borg Lárusdóttir skáldkona hefði
ánafnað kirkjunni fagran ljósa-
hjálm eftir sinn dag, en frú Elín-
borg er fædd og uppalin á Tungu-
hálsi á Goðdalasókr Var sóknar-
nefnd falið að fl’ jja frú Elín-
borgu þakkir prer og safnaðar
fyrir þessa dýrma -?jöf. Er þess
að vænta að hjálmurinn verði
mikil kirkjuprýði á hinu forna
kirkjusetri f Skagafjarðardölum.
— Séra Agúst.
Ráðstefna
norrænna
félags-
ráðgjafa
Dagana 6.—11. október sl. var
haldin I Vasa í Finnlandi ráð-
stefna norrænna félagsráðgjafa.
Samstarfsnefnd norrænna félags-
ráðgjafa, sem I eiga sæti fulltrúar
frá öllum Norðurlöndum skipu-
lagði ráðstefnuna, en þetta er I
fjórða sinn sem slík ráðstefna er
haldin.
Þátttakendur voru 45, en fjöldi
þátttakenda er takmarkaður við
10 frá hverju landi. Af hálfu Is-
lands tóku þrír félagsráðgjafar
þátt I ráðstefnunni: Ellen Júlfus-
dóttir, Margrét Margeirsdóttir og
Sigrún Júlfusdóttir.
Umræðuefni ráðstefnunnar var
að þessu sinni strjálbýli-þéttbýli
(Priset for urbaniseringen).
Þetta yfirgripsmikla efni var rætt
frá ýmsum hliðum í mörgum
fyrirlestrum og umræðuhópum.
Georg Walls docent við
háskólann f Tammerfors flutti
fyrirlestur um félagslegt starf á
hinum ýmsulandssvæðum. Leif
Holgersson frá Svíþjóð flutti
erindi um breytt hlutverk félags-
ráðgjafa f nútíma þjóðfélagi.
Auk fyrirlestra var mikið
starfað í fámennum hópum, þar
sem ýmis viðfangsefni voru rædd
ýtarlega. Má í því sambandi
nefna: Aætlanagerð til að stuðla
að byggðajafnvægi. Vandamál
ungs fólks, sem flytur í þéttbýli.
Orsakir fyrir búferlaflutningum
fólks frá einum landshluta til
annars. Kerfisbundin upplýsinga-
söfnun í þeim tilgangi að mæta
þörfum fbúanna f félagslegum og
menningarlegum efnum. At-
vinnulff og auðsöfnum.
Þátttakendum var boðið í eins
dags ferðalag um sýsluna, sem
borgin Vasa er í og voru heimili
fyrir aldraða og skólar skoðaðir.
Nýskipan um sveitarstjórn átti
sér stað í þessu héraði árið 1972,
þegar 6 hreppar sameinuðust í
eitt sveitarfélag.
Að lokum má geta þess, að
fyrirhugað er að halda næstu
ráðstefnu norrænna félagsráð-
gjafa í Reykjavík í júní 1975.
Undirbúningur er þegar hafinn
af hálfu Stéttarfélags íslenzkra
félagsráðgjafa og samnorrænu
nefndinni. Væntanlega veður
aðalmál ráðstefnunnar hlutverk
félagsráðgjafa í fyrirbyggjandi
starfi.
Fréttatilkynning frá Stéttar-
félagi fsienzkra félagsráðgjafa).
Haukur Tómasson,
jarðfræðingur.
Ingvar Birgir Friðleifsson, Lúðvfk Kristjánsson,
jarðfræðingur. rithöfundur.
Fyrirlestrar á Sögusýningu
ÞRlR fyrirlestrar verða haldnir á
Sögusýningunni á Kjarvalsstöð-
um um helgina, tveir f dag,
laugardag, og einn á morgun. Þá
verður jafnframt sérstök dagskrá
á morgun sem nefnist Land mfns
föður, landið mitt — og fjallar
hún um einkenni og eðlisfar
landsins f bókmenntatjáningu.
Klukkan 15 f dag flytur Haukur
Tómasson, jarðfræðingur, erindi,
sem hann nefnir: Landið, vatnið
og aflið. Klukkan 16.30 flytur svo
dr. Ingvar Birgir Friðleifsson,
jarðfræðingur, fyrirlestur, er
hann nefnir: Jarðhitinn og jarð-
saga Islands.
A sunnudag flytur Lúðvfk
Kristjánsson, rithöfundur, fyrir-
lestur klukkan 15, sem hann nefn-
ir: Hlutur Jóns Sigurðssonar í
endurreisn íslenzkra atvinnu-
vega. Að honum loknum eða
klukkan 17 verður svo flutt áður-
nefnd dagskrá, en flytjendur
hennar eru: Halla Guðmundsdótt-
ir, Kristín Anna Þórarinsdóttir,
Gils Guðmundsson og Óskar
Halldórsson.