Morgunblaðið - 26.10.1974, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.10.1974, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÖBER 1974 IÞROTTAFRETTIR MORGOIIIBTAÐSINS V ÞAÐ ER ekki algengt, að Islend- ingar séu framarlega f flokki á alþjóðlegum golfmðtum. Þ6 gerð- ist það í sumar, nánar tiltekið á golfmóti sem fram fór f Broad- moor f Colorado, Bandarfkjunum. Mót þetta, sem nefnist World senior golf championship, sóttu tslendingar í fimmta sinn og stóðu sig með mikilli prýði. Mótið er óopinbert heims- meistaramót eldri golfara. Það var fyrst haldið árið 1959 í Broad- moor og hefir verið haldið þar árlega sfðan við sfauknar vinsæld- ir. Upphafsmaðurinn að móti þessu var maður að nafni Francis H.I. Brown, og er sveitakeppnin kennd við hann. Hann er nú lát- inn, en bróðursonur, hans Kenneth Brown öldungadeildar- þingmaður, er nú einskonar verndari mótsins. Þau skilyrði eru sett fyrir þátttöku, að kepp- endur hafi náð 55 ára aldri. Broadmoor er kunnur staður víða um heim sem íþróttamiðstöð. Þar er lögð stund á ýmsar íþróttir, svo sem skauta, tennis og fleiri greinar, en hvað kunnastur er hann fyrir hina eðlu íþrótt, golf. í Broadmoor, sem er sjálfs- eignarstofnun, er öll aðstaða til gestamóttöku mjög góð. Nú þegar eru þar tveir golfvellir og sá þriðji í undirbúningi. Vellirnir tveir eru taldir meðal tuttugu beztu golfvalla Bandarfkjanna. Þannig hagar til, að vellirn- ir liggja í 6—7000 feta hæð yfir sjávarmáli, og þvi tekur þó nokkurn tíma fyrir ókunnuga að venjast hinu þunna lofti. En það hefur einnig sína kosti. T.d. er talið, að högglengd golfara sé um það bil 9% meiri í hinu þunna lofti. Vellirnir eru umvafðir mik- illi náttúrufegurð, sem veldur því að hindranir eru miklar og fjöl- breytilegar. Keppnin í ár stóð í um það bil viku. Hófst með sveitakeppni 23. ágúst og leik með einstaklings- keppni þann 30. Fulltrúar Islands mættu til mótsins í fimmta sinn. Fararstjóri Islendingannaogfyrir liði var Helgi Eiríksson fyrrver- andi bankastjóri. Helgi hefur mætt til þessa móts í þau fimm skipti sem Island hefir verið þátt- takandi. íslenzku keppendurnir voru Guðmundur Ófeigsson, sem hefir þrisvar verið meðal kepp- enda, Ingólfur Helgason, tvisvar og Óli B. Jónsson, sem tók þátt í fyrsta sinn. Með þeim í förinni voru eiginkonur þeirra, þær Jóhanna Arnadóttir, Kristín Guð- mundsdóttir, Hanna Gabríels og Guðný Guðbergsdóttir. Þrjár þær sfðasttöldu tóku þátt í kvenna- keppni, sem efnt var til. Svéi4akeppnin stóð yfir í tvo daga. Leikinn var einn hringur á hvorum velli um sig. Arangur þriggja beztu i hverri sveit var talinn. íslenzka sveitin stóð sig með mikilli prýði sem fyrr segir hafnaði í ellefta sæti, en 28 þjóðir kepptu þarna. Svo jöfn var keppnin, sem lauk með sigri Ástralíubúa, að hefði íslenzka sveitin leikið fjórum höggum bet- ur, hefði þeirra sess orðið sjöunda sæti. tslendingar lentu í 3. sæti af þjóðum Evrópu. Einstaklingskeppnin fór fram að sveitakeppninni lokinni. í henni tóku þátt um 400 manns, og var þeim raðað í riðla eftir frammistöðunni í sveitakeppn- inni. Þátttakendur voru á aldrin- um 55—84 ára. Útsláttarfyrir- komulag var á einstaklingskeppn- inni. öllum tslendingunum gekk vel í byrjun, en svo fóru leikar, að þeir Óli og Guðmundur féllu úr keppninni, en Helgi og Ingólfur hlutu annað sætið I sínum riðlum. Þess skal getið, að með því að krækja sér þarna i verðlaun, kórónaði Helgi fþróttaferil sinn. Sín fyrstu verðlaun fyrir íþróttir hlaut hann fyrir sextíu árum. Það var 1914, þegar Helgi hljóp í boð- hlaupssveit, sem bar sigur úr být- um í hlaupi á vegum U.M.F.I. Þetta er efalaust einstakur árang- ur, allavega á Islandi, ef ekki f heiminum. Konurnar sátu ekki auðum höndum í Broadmoor. Tvær þeirra, þær Hanna og Kristin, tóku þátt í kvennaflokki og höfn- uðu í áttunda og níunda sæti af fjörutíu. Einnig tóku þær þátt í púttkeppni auk Guðnýjar við góðan orðstír. Kristín varð í 2.—3. sæti, en tapaði í bráðabana á fimmtu holu. Það var samdóma álit íslenzku keppendanna, að ferð þessi yrði þeim ógleymanleg. öll aðstaða til mikillar fyrirmyndar og andinn góður. Aðspurðir kváðu þeir eng- an efa leika á, að tslandi héldi áfram þátttöku í þessari glæsi- legu keDpni. Talið frá vinstri: Oli B. Jónsson, Kristfn Guðmundsdóttir, Hanna Gabrielsson, Jóhanna Árnadóttir, Kenneth Brown, sentator frá Hawai, Guðný Guðbergsdóttir, Helgi Eirfksson, Ingólfur Helgason og Guðmundur Ófeigsson. Sennilega er áhugi leik- manna mjög takmarðaður á leik þessum enda hefur hann ekkert að segja fyrir þá — getur ekki einu sinni breytt röð þeirra í Islands- mótinu. En hvað um það. Þetta er mjög svo um- talaður leikur, og lok knatt- spyrnuvertíðarinnar í ár. Sögulegri knattspyrnuvertfð sumarsins lýkur með leik Vals og Fram í dag. Myndin er úr einum leik Framara í sumar og sýnir markvörð þeirra, Þorberg Atlason, sækja knöttinn f markið. SIGRAR ARMANN EÐA FÁ KR-ING- AR AUKALEIK? t DAG fer fram á Melavell- inum sfðasti opinberi knattspyrnuleikur ársins, en það er leikur Vals og Fram í 1. deildarkeppni Is- landsmótsins. — Flestum mun kunnug forsaga þess, að liðin þurfa nú að leika saman að nýju. Valsmenn kærðu Fram fyrir að nota Elmar Geirsson í leik sín- um gegn þeim í seinni um- ferð íslandsmótsins, og niðurstaða Sérráðsdóm- stóls KRR varð sú, að leikurinn skyldi teljast ógildur og verða leikinn að nýju. Það mun hafa verið hug- mynd Valsmanna um tíma að gefa þennan leik, en slíkt var hægara sagt en gert. Það er litið mjög al- varlegum augum, ef lið ætla sér að gefa leiki í Is- landsmótinu, og koma þá til bæði fjársektir og aðrar ráðstafanir. Góð frammistaða íslenzkra golfara Lok knattspyrnuvertíðar— Valur og Fram leika í dag SIGRAR Armann KR f Reykja- vfkurmótinu á morgun eða nær KR að sigra og fá þar með rétt á aukaleik? Ármann er eina liðið, sem hefur ekki tapað leik í mótinu, en KR tapaði fyrsta leik sínum, gegn tS. Víst er, að liðin eru mjög áþekk að getu, og eins og verið hefur undanfarin ár ætti að vera óhætt að búast við hörkuleik. Eins og menn muna léku þessi lið síðast í Islandsmótinu í fyrra, og þá sigr- aði KR eftir æsispennandi Ieik þar sem Ármann átti möguleika á að sigra að leiktíma loknum. Ár- mann missti af titli þá, og víst er, að Ármenningarnir ætla sér að hefna þeirra ófara annað kvöld. Á undan leik KR og Ármanns leika Valur og IR. Valur lék við IS í gærkvöldi, og var leiknum ekki lokið þegar blaðið fór f prentun. Hafi Valur sigrað í þeim leik verður leikur Vals og IR annað kvöld hreinn úrslitaleikur um 3. sætið. Að leikjunum annað kvöld loknum, en þeir hef jast í Laugar- dalshöll kl. 19, fer fram verð- launaafhending. Auk verðlauna til sigurvegara mótsins verða veitt tvenn einstaklingsverðlaun. Besti leikmaður mótsins verður valinn, og að auki besta vftaskytta mótsins. Keppni um vítaskyttu- titilinn er mjög jöfn, en mestan möguleika á þeirri styttu hafa þeir Símon Ölafsson (76,2%), Birgir Guðbjörnsson (75%), Kol- beinn Kristinsson (71,4%), Steinn Sveinsson (71,4%) og Þröstur Guðmundsson (70,8%).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.