Morgunblaðið - 26.10.1974, Síða 3

Morgunblaðið - 26.10.1974, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1974 3 Bjöm Bjamason sett- ur deildarstjóri í forsætisráðuneytinu BJÖRN Bjarnason lögfræðing- ur hefur verið settur deildar- stjóri f forsætisráðuneytinu og tók hann við störfum f gær. Björn Bjarnason er fæddur 14. nóvember 1944 í Reykjavfk. Hann er stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavfk 1964 og tók embættispróf f lögfræði frá Háskóla lslands 1971. A háskólaárum sfnum gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum f þágu stúdenta og var m.a. for- maður Stúdentaráðs Háskóla tslands. Að loknu námi hefur hann starfað sem útgáfustjóri Almenna bókafélagsins og nú sfðast sem fréttastjóri erlendra frétta hjá dagblaðinu Vfsi. Hef- ur hann fengið leyfi frá þvf starfi um óákveðinn tfma. Hann hefur ritað mikið um utanrfkismál m.a. f Morgun- blaðið og annast fréttaskýring- ar f sjónvarpi. Björn Bjarnason er kvæntur Rut Ingólfsdóttur fiðluleikara og eiga þau eina dóttur. Björn Bjarnason Andalúsíuhundurinn — fyrst á dagskrá Kvik- myndaklúbbs Menntaskólanna ■ .. r KVIKMYNDAKLUBBUR menntaskólanna er að hefja vetr- arstarf sitt, og voru fyrstu sýning- ar hans í gær. Sýndar verða tvær kvikmyndir og skal þar fyrst fræga telja Un Chien Andalou eftir þá Luis Bunuel og Salvador Dali. Er vel við hæfi að sýna Andalúsfuhundinn nú þegar 50 ár eru liðin frá þvf að Breton sendi frá sér fyrsta ávarp súrreallista. Hún er gerð fjórum árum sfðar eða 1928 og vakti mikið umtal og hneykslan á sfnum tfma. Hin myndin er The Commitee eftir Peter Sykes, gerð i Englandi fyrir sex árum. í aðalhlutverki er Paul Jones, sem var áður söngvari hljómsveitarinnar Manfred Man en tónlistin er eftir Pink Floyd, r r Crazy World og Arthur Brown. Kvikmyndaklúbburinn er me'ð ýmsar þekktar myndir í sigti nú fyrir jólin, svo sem Tout Va Bien eftir Godard, Punishment Park eftir Peter Watkins, Black Fox eftir Stouman, sem fjallar um Hitler og var kjörin bezta heim- ildarmynd ársins á Óskarsverð- launahátíðinni 1962, Chicago Blues Muddy Waters, þýzk heim- ildarmynd um Andy Wharol, og Savages eftir James Ivory. Sýningar kvikmyndaklúbbsins hér í Reykjavík verða á föstudög- um kl. 14.30 og á laugardögum — og þá í dag — kl. 10. 30 og kl. 14. Fyrir jól verða 20 sýningar ásamt aukasýningum og þurfa félagar að greiða kr. 1500 fyrir þær allar. Hallgrímsmessa í Hvalsneskirkju Sandgerði 25. okt. I TILEFNI af því að 300 ár eru Lélegri markaður í Þýzkalandi TVEIR fslenzkir netabátar seldu isaðan fisk i Cuxhaven í gær. Fengu þeir sæmilegt verð fyrir aflann, en þó gekk ekki vel að selja stórkarfa. Ennfremur var hluti af aflanum dæmdur ónýt- ur. Bjarnarey frá Vestmannaeyjum seldi tæpar 58 lestir fyrir 3.5 millj. kr. Meðalverðið var kr. 61.25. Ef aðeins er reiknað verð af þeim afla sem tókst að selja, er meðalverðið 66.00 kr. Þá seldi Gunnar frá Reyðarfirði 57.7 h-stir fyrir 3.9 millj. kr. 4 lestir if aflanum tóks ekki að selja. Meðalverðið var kr. 67.15, en ef aó’ins er reiknað verð af aflanum sem tókst að selja þá er meðalverðið kr. 73.50. Einn seldi fyrir 1,4 millj. kr. SVEINN Sveinbjörnsson frá Nes- kaupstað seldi 44 lestir af sfld f Skagen f gær fyrir 1.4 millj. króna. Meðalverðið, sem skipið fékkk var kr. 31.80. liðin frá dauða sr. Hallgrims Pét- urssonar verður haldin guðsþjón- usta i Hvalsneskirkju á Miðnesi sunnudaginn 27. október kl. 14. Sóknarpresturinn sr. Guðmundur Guðmundsson messar og kirkju- kórinn, sem í hafa bætzt allmargir nýir söngkraftar, mun eingöngu flytja sálma eftir sr. Hallgrím. Eins og kunnugt er var sr. Hall- grímur prestur í Hvalsnesi í 7 ár. Hann vígðist þangað 1644 og þjón- aði þar unz hann vígðist til Saur- bæjar 1651.1 Hvalsnesi er geymd- ur le'gsteinn af leiði hinnar ást- kæru íl(>ttur sálmaskáldsins, Steinunnar; en hann fannst 1964. Einnig er þár varðveitt afsteypa af brjóstmynd Einars Jónssonar myndhöggvara af'sr. Hallgrími. Nemandi Oistrachs á sinfóníutónleikum JONAS SYNIRI HAMRAGÖRÐUM JÓNAS Guðmundsson rithöfund- ur og listmálari opnaði í gær mál- verkasýningu að Hamragörðum f Reykjavík. Jónas hefur haldið fjölda málverkasýninga og hefur tekið þátt í samsýningum. Síðast sýndi hann í Reykjavík árið 1971. Á sýningunni í Hamragörðum verða 44 verk, aðallega vatnslita- myndir en einnig eru olfumálverk á sýningunni. Myndirnar eru málaðar á síð- ustu tveim árum og nokkur verk- anna voru á sýningu í Danmörku nú fyrir skömmu, ennfremur nýrri verk máluð suður í Mtinch- en á liðnu sumri, en Jónas dvaldi Stórhækkun á lögreglusektum LÖGREGLUSEKTIR fyrir brot á umferðarlögum voru nýlega hækkaðar verulega. Sem dæmi má nefna, að sekt fyrir of hraðan akstur er nú frá 1500.00 til 8000,00 krónur; fyrir brot á stöðvunarskyldu og akstur á rauðu ljósi 4000,00 krónur; fyrir að mæta ekki með bifreið til skoð- unar á réttum tfma 3000,00 krón- ur og fyrir rangstöðu 800,00 krón- ur. I september sl. kærði lögreglan í Reykjavík alls 1013 ökumenn fyrir of hraðan akstur, þar af nokkra fyrir mjög hraðan akstur. ökumaður, sem kærður var fyrir að aka á 112 km hraða miðað við klst. austur Miklubraut austan Stakkshlíðar, var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða af lögreglustjóra og hlaut, er málið var tekið fyrir í sakadómi, 10.000,00 krónur í sekt og var sviptur ökuleyfi í 4 mánuði. Þá voru í september 105 öku- menn kærðir fyrir að aka á rauðu ljósi og 97 ökumenn fyrir brot á stöðvunarskyldu. þar um skeið i boði hins kunna þýzka málara Rudolf Weissauer, sem haldið hefur nokkrar sýning- ar á Islandi. Málverkasýningin í Hamragörð- um stendur f 10 daga eða frá 2Í5. október til 3. nóvember að báðum dögum meðtöldum og er opið frá kl. 14.00—22.00 daglega, nema mánudag, þriðjudag og miðviku- dag, en þá lýkur sýningunni klukkan 20.00. Hátíðasamkoma Akranesi, 25. okt. MANUDAGINN 28. október klukkan 21 verður hátfðarsam- koma og Hallgrímsminning f Akraneskirkju í tilefni 300. ártíð- ar séra Hallgríms Péturssonar. Séra Jón Einarsson í Saurbæ flyt- ur erindi f minning séra Hall- gríms, sem hann nefnir: „Dauði ég óttast eigi“, kirkjukór Akra- ness syngur sálma eftir séra Hall- grím. Stjórnandi verður Haukur Guðlaugsson og frú Guðmunda Elfasdóttir syngur einsöng. Máni Sigurjónsson leikur á orgel kirkj- unnar og Þorvaldur Þorvaldsson kennari les ljóð um og eftir séra Hallgrím. — júlfus. ÞRIÐJU tónleikar Sinfónfu- hljómsveitarinnar á þessu starfs- ári verða f Háskólabfói fimmtu- daginn 31. október kl. 20.30. Aðal- hljómsveitarstjórinn Karsten Andersen stjórnar tónleikunum, en einleikari verður Vaclav Hudecek frá Tékkóslóvakfu. A efnisskránni er Sinfónfa nr. 1 f c-moll eftir A. Bruckner, sem ekki hefur verið flutt fyrr á tón- leikum hér, og fiðlukonsert f D- dúr eftir Tsjaikovský. Tékkneski fiðluleikarinn Vaclav Hudecek, sem er aðeins 22 ára, hefur þegar skipað sér sess meðal færustu fiðluleikara heimalands síns. Meðan hann var enn f bernsku, hafði hann unnið til margra opinberra verðlauna, og vegna frábærra hæfileika hans veitti tékkneska menntamála- ráðuneytið honum undanþágu til upptöku í Tónlistarháskólann í Prag þegar hann var aðeins tólf ára gamall. Þar naut hann hand- leiðslu eins besta tónlistar- kennara Tékkóslóvakíu, dr. Josef Micka, og hóf jafnframt tónleika- ferðir til annarra Evrópulanda. Frá árinu 1971 æfði hann f Moskvu undir handleiðslu Davíðs Oistrachs, og komu þeir sameigin- lega fram á listahátíð í Prag 1972, þar sem Vaclav Hudecek lék einleik í fiðlukonsert Tsjaikovskýs með Tékknesku fllharmóníuhljómsveitinni undir stjórn Davíðs Oistrachs. íslenzka stúlkan enn í fangelsi: „Líf hennar gæti verið í hættu,” — segir lögregluforingi Scotland Yard í samtali við Mbl. ISLENZKA stúlkan er sökuð er um að vera viðriðin eiturlyfja- mál f London situr enn f fangelsi. Hafa lögregluyfirvöld f London ekki viljað viður- kenna ábyrgðarmenn trygg- ingarfjárhæðarinnar, sem sett var upp til að stúlkan yrði látin laus úr fangelsinu og fengi skjólshús f fslenzka sendi- ráðinu þar til mál hennar verð- ur tekið fyrir. Verður það naumast fyrr en um eða eftir jólin, að þvf er Brian Riley, lögregluforingi hjá Scotland Yard, tjáði Morgunblaðinu f gær, en hann annast rannsókn málsins. Nfels P. Sigurðsson, sendi- herra í London, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að allt væri nú óljóst um hvenær stúlk- an fengi að yfirgefa fangelsið. Lögfræðiskrifstofa sú er annaðist vörn stúlkunnar hefði fengið menn til að gangast í ábyrgð fyrir þeim 2000 sterlingspundum, er sett höfðu verið sem trygging fyrir þvi að stúlkan mætti við réttarhöldin, yrði hún látin laus, en lögreglu- yfirvöld hefðu þá aftur á móti ekki getað fallizt á þessa ábyrgðarmenn, þar sem þeir væru ekki borgunarmenn fyrir tryggingarfjárhæðinni. Þess vegna verður lögfræði- skrifstofan að fara aftur á stúf- ana til að útvega nýja ábyrgðar- menn, en Niels kvaðst ekki vita hvað þeirri málaleitan liði. Hins vegar kvað hann islenzka sendiráðið í London hafa um- boð til að leggja fram trygging- arfjárhæðina er næmi á sjötta hundrað íslenzkum krónum. Hið eina sem það gæti aðhafzt í málinu væri að bjóða stúlkunni húsaskjól í sendiráðinu þar til mál hennar kæmi fyrir. Kvað hann stúlkuna hafa heitið Eiríki Benedikz sendiráðsritara því, að hún skyldi halda kyrru fyrir í sendiráðinu þar til réttarhöldin hæfust. Brian Riley lögregluforingi sagði I simtali við Morgun- blaðið í gær, að hann gæti ekki gefið upplýsingar um einstök smáatriði þessa máls fyrr en réttarhöldin hæfust. Þó kvaðst hann geta skýrt frá þvi, að hóp- ur fólks biði þess að komá’fyrir rétt vegna máls þessa og væri íslenzka stúlkan ein í þeim hópi. Hún hefði verið hand- tekin 29. júlí sl. ásamt tveimur S-Ameríkumönnum á þeirri forsendu að þau hefðu í fórum sinum hættulegt eiturlyf — kókain — og hefðu ætlað að dreifa efninu til annarra aðila. Taldi hann ólíklegt að málið kæmi fyrir rétt fyrr en um eða eftir jólin. Að því er Niels P. Sigurðsson sendiherra tjáði blaðinu, mun lögreglan hafa handtekið 11—12 manns vegna máls þessa. Væru það aðallega Suður-Ameríkumenn, einn Breti og þessi íslenzka stúlka, en hún bjó með einum þeirra, manni frá Kolumbíu. Riley lög- regluforingi skýrði hins vegar blaðinu frá þvi, að enn sem komið væri hefði aðeins óveru- legt eiturlyfjamagn komið í leitirnar og hann kvað hér vera um skipulegan hring að ræða með alþjóðleg sambönd. Brian Riley tjáði Morgun- blaðinu. að hann teldi að lif íslenzku stúlkunnar gæti verið í hættu, yrði hún látin laus, og Níels P. Sigurðsson hafði það eftir Lundúnablöðum að lög- reglan teldi sig aðeins hafa náð hluta þessa eiturlyfjahrings. Teldu lögregluyfirvöld líkur á að þeir sem enn gengju lausir myndu reyna að koma í veg fyrir að stúlkan yrði yfirheyrð fyrir rétti. Væri jafnvel talið hugsanlegt, að þessir aðilar myndu ræna stúlkunni og reyna að koma henni úr landi, ef hún yrði látin laus. Væri bent á, að þrátt fyrir stað- hæfingar stúlkunnar um sak- leysi sitt í þessu máli, yrði að teljast með ólíkindum að hún hefði ekki einhverja vitneskju um hagi þessara aðila, svo náin samskipti sem stúlkan hefði haft við einn úr hópnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.