Morgunblaðið - 26.10.1974, Page 26

Morgunblaðið - 26.10.1974, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÖBER 1974 Anna María Elísabet Pálsdóttir — Minning Skátakveðja frá félögunum Sofnar drótt, nálgast nótt, sveipast kvöldroða himinn og sær. Allt er hljótt, hvíldu rótt. Guó er nær. Anna Marla Elfsabet hét hún fullu nafni, en alltaf kölluð Beta. Hún var fædd 8. sept. 1925 að Stóra-Hrauni á Snæfellsnesi. For- eldrar hennar voru hjónin Anna Ámadóttir Þórarinssonar, prests að Stóra-Hrauni, og Páll G. Þor- bergsson. Að Stóra-Hrauni ólst Beta upp. Hinn 27. maí 1950 giftist hún Bergi P. Jónssyni, Þor- leifssonar listmálara í Blátúni, skrifstofustjóra hjá flugmála- stjórn. Þau áttu fjögur börn, en það elsta dó á öðru ári. Hinn 19. þ.m. lést svo Beta af lamandi veik- indu. Hér er stiklað á því stærsta f æfiskeiði Betu, enda verður æfi- saga hennar ekki skráð hér og nú. Flestum er svo farið að þeir þekkja ekki dauðann. Vita ekki hvað að baki honum býr. Spyrja aðeins sjálfa sig og aðra: Er þar annað líf, eða er þar ekki neitt? Leitið og þér munuð finna, sagði hinn mikli meistari, sem við játum átrúnað okkar á og sannar- lega ber það ekki vott um mikinn styrkleika í þeim átrúnaði, að við skulum ala með okkur slíkar efa- semdir gagnvart dauðanum. Hér verður ekki farió frekar út í slíkar trúarhugmyndir, þótt ein- mitt þær séu eini mótleikurinn sem lífið á gegn dauðanum. Spor dauðans í hinu mannlega lffi þekkja allir hvað sem trúarbrögð- um þeirra líður. Það eru spor, sem að jafnaði eru vætt tárum harms og trega. Engin skilur svo við það, sem honum þykir vænt um, að hann ekki finni til sakn- aðar og sársauka. öllum sem kynntust Betu í raun, varð hlýtt til hennar. Glaðværð hennar, t Maðurinn minn, JÓHANNESJÓNASSON, trésmiður, Hjarðarhaga 44, lést I Landakotsspítala 25. október. Anna Kristmundsdóttir. t Eiginmaður minn LÁRUS PÉTURSSON, frá Káranesi, andaðisti Landakotsspítala 25. okt. Kristín Jónsdóttir. Eiginmaður minn t HJÁLMTÝR PÉTURSSON, Barðavogi 28. andaðist 24. október sl. Jarðarförin ákveðin síðar. F.h. vandamanna Þórunn Þórðardóttir og börn. t Minningarathöfn um GUÐJÓN JÓNSSON, vélsmið, Hásteinsvegi 28, Vestmannaeyjum, fer fram í Fossvogskirkju, mánudaginn 28. okt kl. 1 30. Útförin verður gerð frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 2. nóvember kl 2 Vandamenn. t Innilegar þakkir færum við þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall, GÍSLA ÓLAFSSONAR loftskeytamanns. Svava Ólafsdóttir, Bjarni Karlsson, Fjóla Ólafsdóttir, Björn Pétursson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa, JÓHANNS J. KRISTJÁNSSONAR læknis. Haraldur Kr. Jóhannsson, Guðmundur Kr. Jóhannsson, Birgir J. Jóhannsson, Heimir Br. Jóhannsson Hannes Jóhannsson, Sigríður Hafdis Jóhannsdóttir, og barnabörn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir. Ingibjörg Dan Kristjánsdóttir. Ásdís Jónasdóttir. Friðrikka Baldvinsdóttir, Sveinn Sæmundsson greiðvikni og takmarkalaus hjálp- semi hennar, bar yl og hressandi andblæ að hvers manns dyrum, sem hún kom að. Marga dapra sál hressti hún í geði á vansælum stundum. Hún hafði lag á þvf að smeygja geislum birtu og vonar þangað sem döpur sál barðist við skammdegisskugga tilveru sinnar. Við sættum okkur við dauðann, eins og þroskuðu fólki sæmir, þótt hann hafi nú höggvið f kunningjahópinn og lagt að moldu göfuga konu, á raunalegan máta. Við höfum djúpa samúð með þeim, sem nær henni stóðu en við kunningjar hennar. For- eldrar hennar, eiginmaður og börnin hafa að 3jálfsögðu meira mísst en við. Orð eru svo máttvana á skiln- aðarstundu. En þau eru þó það eina, sem trúverðugt sam- ferðafólk á handbært í eigin sökn- uði. Fullorðnir skátar eiga að sjálf- sögðu sínar minningar frá liðinni tíð, eins og allir aðrir. Flestar þeirra eru tengdar ljúfu lífi í glaðværum hópi. A döprum stundum þegar blöð fölna og lauf fjúka, gæla þeir við þetta liðna líf. Þar ber Betu mjög hátt, iðandi af glensi og léttu gamni. Sólin skfn og allir brosa. Regnið dynur og vindurinn blæs. En það breytir engu, þótt rigni, þvf að Beta hlær og býður meira kaffi. Hún hlúir að öllum í nágrenninu, sem ekki nenna að gera það sjálfir, ef þeir blotna. Henni var margt vel gefið. Við gömlu skátarnir og allir félagar Betu í þeim hópi biðjum nú blæ- inn, sem strauk vanga hennar forðum og hvfslaði í laufinu, að flytja henni þakklæti okkar fyrir þær sólskinsstundir sem hún flutti með sér inn í mannlffið. Við biðjum einnig lindina, sem ennþá þjalar við grundina að flytja henni nú árnaðaróskir okkar á hennar nýju vegferð. Hún var ekki kona efasemdanna f þeim efnum og þeirra mál skilur hún nú betúr heldur en þótt við hróp- um kveðjuorð út yfir gröf hennar. Skarphéðinn Össurarson. Ég kynntist henni Betu fyrst, er ég var lítill drengur í Norðurmýr- inni. Mæður lftilla stráka eru alltaf pínulítið sniðgengnar, þar sem strákum finnst þær sjaldan öðru- vísi en kvartandi yfir að litlu strákarnir séu of lftið klæddir, ættu að vera með húfur eða vera í stígvélum, fara í úlpur, vera ekki f leik nærri götunni, passa sig á blómabeðum nágrannans o.s.frv. Þar sem leikur okkar afmarkað- ist af þröngum malbikuðum göt- unum í mýrinni og tryggilega af- girtum húsagörðum sóttum við vinirnir ósjaldan inn á Mánagötu 16, þar sem Beta átti heimili sitt. Þar opnaðist okkur félögunum nýr heimur, heimur þar sem hún var ekki lengur ein af þessum þrasgefnu mæðrum lítilla stráka, heldur félagi okkar og jafningi, — sannur uppalandi. Ég minnist þess að við eignuð- umst okkar ákveðna talsmáta. Með honum fékk Beta okkur til þess að tjá hugsanir okkar og þannig ól hún á gagnkvæmum t Móðir okkar og tengdamóðir, KRISTBJÖRG PÉTURSDÓTTIR, Blönduósi. andaðist í Héraðshæli A-Húnvetninga 1 8. þ.m Jarðarförin fer fram frá Blönduóskirkju, mánudaginn 28. október kl 14 00. Erlendur Bjömsson. Katrfn Jónsdóttir, Marteinn Björnsson, Amdís Þorbjamardóttir. t Þökkum innilega sýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður Og ömmu, GUÐLAUGARMARÍU HJARTARDÓTTUR Gnoðarvogi 18. Valdemar Thorarensen Ingibjörg Óskarsdóttir Soffia Thorarensen Gunnlaugur Arnórsson Sunna Thorarensen og bamaböm. t Við þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför, ÓLAFAR GUÐFINNSDÓTTUR, Sundstræti 24, ísafirði. Guðfinnur Magnússon, Jóna Bárðardóttir. Guðriður Magnúsdóttir, Carl J. Eiríksson, Bára Magnúsdóttir, Ámi Brynjólfsson, Halldóra Magnúsdóttir, Þröstur Marselliusson, Elma M. Hástrup, Torben Hástrup, Elín Þ. Magnúsdóttir, Jón M. Gunnarsson, barnaböm og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð. hlýhug og alla sæmd, vegna fráfalls, eiginmanns míns, föður og tengdaföður okkar ÞORSTEINS SIGURÐSSONAR bónda á Vatnsleysu Ágústa Jónsdóttir, Ingigerður Þorsteinsdóttir, Steingerður Þorsteinsdóttir, Sigurður Þorsteinsson. Ólöf Brynjólfsdóttir Einar Geir Þorsteinsson, Ingveldur B. Stefánsdóttir, Kolbeinn Þorsteinsson, Erla Sigurðardóttir, Bragi Þorsteinsson, Halla Bjarnadóttir. Sigrfður Þorsteinsdóttir, Grétar Br. Kristjánsson, Viðar Þorsteinsson, Guðrún Gestsdóttir. skilningi milli litlu strákanna annars vegar og stóra fólksins hins vegar. Ógleymanlegar eru mér ferðirnar upp á loft til þeirra önnu og Páls, þar sem hún settist við slaghörpuna, lék og söng fyrir okkur boðskap ástarinnar gagn- vart ættjörðinni og öllu því sem lifði, lifir og mun lifa. Nú á kveðjustund langar mig að þakka þá mannúð, er hún kenndi mér. Beta var dýrmætur þáttur f lffi lítilla drengja, varð dýrmæt- ari lífi ögn stærri drengja og verð- ur það dýrmætasta f lffi fullorð- inna drengja. Ég votta eftirlifandi eigin- manni hennar, börnum, foreldr- um og systkinum sambúð mína á raunarstundu. Egill. Framkvæmda- hugur á Reyðarfirði Reyðarfirði — 23. október. AFLI hefur verið mjög tregur hjá Reyðarfjarðarbátum. Gunnar SU 139 er á leið til Bremerhaven í Þýzkalandi með afla úr báðum bátunum héðan, um 50 tonn. At- vinnulíf á Reyðarfirði hefur verið gott það sem af er árinu að öðru leyti en því að hingað vantar mikið iðnaðarmenn, og að lítið er hér um fjölbreytta atvinnu fyrir konur. Aðalframkvæmdir hreppsins er varanleg gatnagerð, bygging íþróttahúss og sundlaugar og bygging verkamannabústaðar. Varðandi framkvæmdirnar við íþróttahúsið og sundlaugina standa vonir til að það verði fok- helt árið 1976. Aætlaður bygg- ingarkostnaður er milli 60 til 70 milljónir. Næsti áfangi varan- legrar gatnagerðar er áætlaður 10 milljónir. Sveitarstjórinn hér, Hörður Þórhallsson, tjáði mér, að hér væri verið að vinna að aðal- skipulagi Reyðarfjarðarog verður því verki vonandi lokið f vetur. — Gréta. Norrænar hjúkr- unarkonur þinga í Danmörku SAMVINNA hjúkrunarkvenna á Norðurlöndum (SSN) hélt ár- legan fulltrúafund sinn í Kaup- mannahöfn dagana 17. — 20. sept. s.l. Samtökin hafa innan vébanda sinna yfir 130 þús. félaga. Höfuð- viðfangsefni fundarins var „Kjaramál og starfsaðstaða hjúkrunarkvenna“. Af tslands hálfu sátu fundinn 8 fulltrúar, en alls voru þátttak- endur 73 frá öllum aðildarfélög- unum. Umræðugrundvöllur var: launamál, trúnaðarmannakerfi, starfsráðningar, framlag hjúkrunarkvenna tit heilbrigðis- mála, símenntun og framhalds- nám og aðlöðun starfsfólks. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og bálför, ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR f rá Arnarbæli Aðstandendur. t Þökkum innilega auðsýnda sam- úð við andlát og útför, STEINUNNAR SVEINSDÓTTUR Börn, tengdabörn og barna- börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.