Morgunblaðið - 26.10.1974, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1974
25
Afkomendamót Arna Þor
valdssonar á Innra-Hólmi
ÁRNI Þorvaldsson hreppstjóri og
útgerðarmaður á Meiðastöðum f
Garði, síðar að Innra-Hólmi
á Akranesi, var fæddur að Stóra-
Nýjabæ í Krísuvík árið 1824.
Hann var lengi útgerðarmaður og
forustumaður á Suðurnesjum, en
fluttist síðan að Innra-Hólmi og
var þar hreppstjóri og bóndi til
dauðadags 1901.
Árni var einn af mestu fram-
faramönnum sinnar tíðar og for-
ustumaður þeirra héraða, sem
hann bjó í. Á Meiðastöðum hafði
hann á vertíðum 6—8 skip fyrir
landi. Voru þá oft um 50 manns f
heimili hjá honum. Hann rak
verzlun, stóð að fyrstu skóla-
stofnun á Suðurnesjum 1872 og
annaðist félagsmál og hrepps-
mál. Á innra-Hólmi bjó hann stór-
búi, húsaði jörðina, byggði kirkju
á staðnum og gerðist forustu-
maður þar um langt skeið.
Benedikt Gröndal skáld sagði um
hann látinn:
Hann var dáðríkur
dugnaðarmaður,
flestum fremri
að framtakssemi,
stilltur, hógvær,
þó stórmannlegur,
rithagur vel
og ráðagóður.
Hvar sem hann var
héruð báru
merkismanns
merkin stóru,
ei múndi allt
í eyði standa,
ef allir sem hann
unnið gætu.
Skriðuföll ogflóð í Kjósinm
Kiðafelli, 23. október.
SIÐASTLIÐNA nótt gerði
óhemju vatnsveður í Kjósinni
innanverðri, sem olli aurskriðu á
Möðruvöllum og lenti hún á fjós-
hlöðunni þar á bænum, en rann
svo báðum megin við hana og
niður undir íbúðarhúsið. Um tíma
buldi lækurinn, sem bar skriðuna
fram, á hlöðuveggnum og er við-
búið, að eitthvert vatn hafi komizt
í hlöðuna.
Á Eyjadal féll skriða og stíflaði
Sandsá. Er hún ruddist fram
flæddi hún yfir tún Eyjabæjanna
og Hjalla og fyllti þar framræsi-
skurði með aur. Þá flæddi vatn í
gegnum fjósið á Sandi, en olli
ekki tjóni.
Ur Meðalfelli féllu skriður á
veginn, en þó ekki miklar. Hátt
var I Meðalfellsvatni og voru sum-
arbústaðir umflotnir og nokkrir
bátar möruðu í kafi í fjörunni
niðri undan Meðalfelli. I Láxár-
dal tók veginn í sundur á einum
stað, en gert hafði verið við
skemmdirnar síðari hluta dags.
Vtur hafa verið við að hreinsa
til f dag.
— Hjalti.
Kammersveit Reykjavíkur
1. starfsár.
Tónleikar i sal Menntaskólans við Hamrahlið næstkomandi
sunnudag 27. okt. kl. 1 6.00.
Einsöngvari: Ruth L. Magnússon,
Upplesari: Matthías Jóhannessen, skáld.
Áskriftarkort fást i Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar.
Aðgöngumiðar seldir við innganginn.
Óskilahestur
Hjá lögreglunni i Kópavogi er i óskilum steingrár hestur, ójárnaður,
mark óljóst.
Nánari upplýsingar gefur Gestur Gunnlaugsson Meltungu, simi
34813.
Verði hestsins ekki vitjað fyrir 5. nóvember n.k. verður hann seldur
fyrir áföllnum kostnaði.
FELAGSHEIMILIÐ FESTI
HAUKAR
FELAGSHEIMILIÐ FESTI
Árni Þorvaldsson var mjög
kynsæll. Hann átti alls 14 börn.
Missti hann mörg þeirra á barns-
aldri. En frá þeim börnum hans,
sem upp komust, er kominn
mikill ættbálkur. Eru flestir af-
komenda hans á Suðurlandi, í
Reykjavík, á Akranesi, I Rangár-
vallasýslu og víðar. Einnig eru
afkomendur hans f Ameríku.
Á þessu ári eru 150 ár frá fæð-
ingu þessa merka manris. Akveðið
hefur verið að efna til kynningar-
móts afkomenda hans á þessum
tímamótum til heiðurs honum og
konum hans. Af því tilefni verður
efnt til samkomu í Átthagasal
Hótel Sögu sunnudaginn 24.
nóvember n.k. kl. 3.30. Þar verður
flutt erindi og fleira verður þar
til kynningar og skemmtunar.
Tilkynningar um þátttöku í
móti þessu þurfa að hafa borizt
fyrir 12. nóvember, til einhverra
af neðangreindum, er veita
nánari upplýsingar: — Geir-
laugur Arnason söngstjóri, s.
84338, Gunnar M. Magnúss rithöf-
undur, s. 27987 og Hallgrímur
Árnason framkvæmdastjóri,
Akranesi.
STAPI
JUDAS
Það verður æðisgengið stuð
í Stapa í kvöld
SJONVARPS-
INGO
Fyrstu útdregnu tölurnar i sjónvarps-bingóinu birtust í gær.
Tölurnar munu birtast í sjónvarpinu næstu 2 — 3 vikur.
Það þarf alls ekki að vera með frá byrjun, þó það sé
óneitanlega meira spennandi, því hægt er að byrja hvenær sem er,
þar sem þær tölur, sem dregnar hafa verið út birtast
vikulega eftir á í Morgunblaðinu.
b*"96sP,£S«w-'l6 Á^6,a
verða ^aðnuro. *
AÐRIR SÖLUSTAÐIR BINGÓSPJALDANNA ERU:
P&Ó, Austurstræti — H. Biering, Laugavegi, Gunnar Ás-
geirsson Suðurlandsbr. og Laugavegi — Vesturver —
Magnús Benjamínsson, Veltusundi — G. Þorsteinsson &
Johnson, Ármúla — Breiðholtskjör — Straumnes, Breið-
holti — Músík og Sport, Hafnarfirði.
Sala bingóspjaldanna er einnig hafin hjá Lionsklúbbi Akur-
eyrar, Selfoss, Akraness og Suðra í Vík.
Vinningur: Bifreið að eigin vali:
Kr. 500,000.00
Lionsklúbburinn ÆGIR